Morgunblaðið - 28.10.1992, Síða 43
Stftfl -Í.’IHOTHO. .82 ÍIUOACIUHIVCIIM vl 10A.IiI/'JOÍiOM
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 1992
st
43.
Ivy fannst besta vinkona sín eiga fullkomið heimili,
fullkomna fjölskyldu og fullkomið Ixf, þess vegna sló
hún eign sinni á allt saman.
ERÓTÍSKUR TRYLLIR SEM LÆTUR ENGAN ÓSNORTINN
Drew Barrymore (E.T., Firestarter o.fl.) er hér i hlutverki Ivy, sem
er mjög óræð manneskja. Enginn veit hver hún er, hvaðan hún kom
eða hvert hún fer næst.
SÝND Á RISATJALDI í mriöu»YSTEBÍ51
Sýnd kl. 5,7,9 og 11 í A-sal. - Bönnuð innan 14 ára.
TILBOÐÁ
POPPIOGKÓKI
ATHUGIÐ:
350 króna miðaverð
á 5 og 7 sýningar
í A og C-sal.
LYGAKVENDID
GOLDIE HAWN og
STEVE MARTIN fara hér
á kostum í sinni nýjustu
mynd.
Sýnd í B-sal kl. 5,7,9
og 11.
FERÐINTIL
VESTURHEIMS
Frábær mynd með
Tom Cruise
og Nicole Kidman.
Sýnd í C-sal kt. 5 og 9.
REGNBOGINN SÍMI: 19000
Ráðstefna um rétt bama
SAMTÖKIN Barnaheill halda dagana 30. til 31. október
ráðstefnu um mannréttindamál barna í samvinnu við
Rauða kross íslands. Markmiðið með ráðstefnunni er að
kynna og efna til umræðna um Barnasáttmála Samein-
uðu þjóðanna. Ráðstefnan verður haldin í Vinabæ, sem
er gamla Tónabíó, og hefst klukkan 13.
20. nóvember 1989 var Sameinuðu þjóðanna samn-
samþykktur á allsherjaþingi ingur um réttindi barna. ís-
Hámarkshraði við Hverf-
isgötu verði lækkaður
IBÚAR og verslunareigendur við Hverfisgötu hafa sent
frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu:
„íbúar og verslunareig-
endur við Hverfisgötu í
Reykjavík hafa safnað undir-
skriftum sem komið verður
til yfirvalda umferðar- og
gatnamála í borginni. Með
undirskriftunum er skorað á
þessa aðila að þeir grípi til
þeirra aðgerða sem duga til
að halda umferðarhraða við
götuna niðri. Það er reynsla
þeirra sem búa við götuna
að hún sé stórhættuleg sly-
sagildra og að ekki sé spurn-
ing um hvort heldur hvenær
næsta stórslys verði. Við það
ástand verður ekki unað
lengur."
lendingar voru meðal þeirra
þjóða sem undirrituðu Bama-
sáttmálann eins og hann er
kallaður í daglegu tali. Með
tilkomu sáttmálans var brotið
blað í réttarsögu bama því
þar er í fyrsta skipti slegið
föstu að manngildi barna sé
skýlaust, að börn hafi eigin
réttindi sem ákvarðast út frá
þörfum þeirra. Þessi lög
bamanna fela í sér full mann-
réttindi allra barna og ungl-
inga. Öll börn eiga sama rétt
til að alast upp og lifa í friði,
öryggi og virðingu fyrir skoð-
unum sínum og hugsunum.
Á ráðstefnunni verður
fjallað um sáttmálann frá
ýmsum sjónarhomum t.d.
þjóðréttarlegu, stjómsýslu-
legu sem og um einstakar
greinar sáttmálans. Fyrirles-
arar verða úr ýmsum áttum
m.a. stjómmálamenn og fólk
sem vinnur með börn. Sérleg-
ur gestur ráðstefnunnar
verður Trond Viggo Torgers-
en umboðsmaður barna í
Noregi.
Ábendlngar frá
LÖQREQLUNNI:
Varnir gegn innbrotum í bíla
STULDUR á bílum hef-
ur færst í vöxt á síðari
árum. Þjófarnir, oftast
undir áhrifum áfengis,
hafa notað þá sjálfum
sér til skemmtunar með
tilheyrandi afleiðingum;
skemmdir bílar og slas-
að fólk.
Innbrot og þjófnaðir úr
bílum hafa og færst í vöxt
að undanförnu. Oftast eru
þjófarnir að sækjast eftir
radarvörum, hljómtækjum
eða lauslegum verðmæt-
um, sem skilin hafa verið
eftir óvarin í bílunum. Oft-
ast eru þjófarnir utanað-
komandi fólk, sem ferðast
á milli svæða.
Hér á eftir fylgja nokk-
ur heilræði til bíleigenda í
von um að þau megi verða
til þess að draga úr líkum
á þjófnuðum og innbrotum
í bíla þeirra.
1. Takið undantekning-
arlaust lykilinn úr
kveikjulásnum þegar bíll-
inn er yfirgefínn. Skiptir
þá engu hvort um lengri
eða skemmri dvöl er að
ræða.
2. Leggið bílnum á eða
í nágrenni við fjölfarnari
staði. Að næturlagi er ráð-
legt að leggja bílnum
þannig að íbúum sé mögu-
legt að sjá til hans á vel
upplýstu svæði.
3. Skiljið aldrei laus
verðmæti eftir í bíl. Ef það
reynist nauðsynlegt í
skamman tíma, setjið þau
þá í læsta farangurs-
geymslu. Peninga, veski,
töskur, ávísanahefti, per-
sónuskilríki, greiðslukort
og önnur slík verðmæti á
aldrei að skilja eftir í bíl.
4. Læsið alltaf bílnum
og gangið vandlega úr
skugga um að allar hurðir
séu læstar og allar rúður
séu dregnar upp að fullu.
Gleymið ekki að læsa aft-
urhlera.
5. Ef viðkomandi hefur
aðgang að bílskúr eða bíl-
geymslu er ráðlegt að nota
þá staði sem geymslustaði
fyrir bílinn að næturlagi.
6. Aukið öryggi er í því
að búa bílinn viðurkennd-
um þjófavarnarbúnaði.
Slíkur búnaður getur verið
margvíslegur, bæði hvað
varðar virkni og verð.
Þeim sem vilja kynna sér
slíkan búnað er ráðlagt að
leita til fagmanna.
7. Skráið hjá ykkur
númer hljómflutnings-
tækja, bílasíma og annarra
þessháttar verðmæta. Þá
verður auðveldara að hafa
upp á tækjunum, ef þeim
verður stolið og einnig
verður auðveldara að
koma þeim til skila, ef þau
finnast aftur.
8. Nauðsynlegt er að
fólk gefí grunsamlegum
mannaferðum við bíla sér-
stakan gaum. Vakni grun-
semdir um óeðlilega hátt-
semi eða ef einhver telur
sig hafa upplýsingar um
afbrotamál, sem er að eiga
sér stað eða hefur átt sér
stað, er hlutaðeigandi ein-
dregið hvattur til þess að
hafa samband við lögregl-
una þegar í stað.
Bæjarráð Njarðvíkur
Yilja breyta reglum um
lán vegna skipaviðgerða,
Á FUNDI bæjarráðs Njarðvíkur 9. þ.m. var samþykkt að
senda svofellda ályktun til iðnaðarráðherra ríkisstjómar
íslands:
„Skipasmíðastöð Njarðvík-
ur hf., elsta fýrirtækið í Njarð-
vík, hefur sagt upp öllu starfs-
fólki sínu vegna verkefnas-
korts. Þessar uppsagnir koma
til viðbótar öðrum erfiðleikum
í atvinnulífi Suðurnesja-
manna. Bæjarráð Njarðvíkur
vill beina þeim eindregnu til-
mælum til iðnaðarráðherra að
hann taki málefni skipasmíða-
stöðva til sérstakrar athugun-
ar og leiti ráða svo ekki þurfi
að koma til þess að skipasmíð-
ar og viðgerðir skipa á Islandi
leggist að mestu niður.
Bæjarráð vill í þessu sam-
bandi fara fram á það við ráð-
herrann að skoðað verði sér-
staklega hvort ekki sé réttlæt-
anlegt við þessar aðgerðir að
breyta lögum Fiskveiðasjóðs
íslands og banna allar lánveit-
ingar úr sjóðnum til viðgerða
og smíði skipa utan Islands."
IIPII
eftir Gaetano Donizetti
Fös. 30. okt. kl. 20 uppselt, sun. 1. nóv. kl. 20, fös. 6. nóv
kl. 20, sun. 8. nóv. kl. 20.
Miðasalan er opin frá kl. 15-19 daglega en til kl. 20
sýningardaga.
Sími 11475 - Greiðslukortaþjónusta
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
Stóra svió kl. 20:
• DUNGANON eftir Björn Th. Bjömsson
Sýn. fim. 29. okt., fós. 6. nóv. Aðeins fjórar sýningar eftir.
Stóra svið kl. 20:
• HEIMA HJÁ ÖMMU eftir Neil Simon
5. sýn. í kvöld gul kort gilda.
6. sýn. fos. 30. okt. græn kort gilda, uppselt.
7. sýn. lau. 31. okt. hvít kort gilda, fáein sæti laus.
8. sýn. fim. 5. nóv. brún kort gilda.
Litla svið:
• SÖGUR ÚR SVEITINNI:
PLATANOV eftir Anton Tsjékov
Sýn. fim. 29. okt. kl. 20. Lau. 31. okt. kl. 17. Sun. 1. nóv kl. 17.
VANJA FRÆNDI eftir Anton Tsjékov
Sýn. fös. 30. okt. kl. 20. lau. 31. okt. kl. 20. Sun. 1. nóv kl. 20.
Verð á báðar sýningarnar saman aðeins kr. 2.400.
Kortagestir ath. að panta þarf miða á litla sviðið.
Ekki er hægt að hleypa gestum inn í salinn eftir aö sýning
er hafin.
Miöasalan er opin alla daga frá kl. 14-20 nema mánudaga frá
kl. 13-17.
Miöapantanir í síma 680680 alla virka daga frá kl. 10-12.
Aðgöngumiðar óskast sóttir þrem dögum fyrir sýningu.
Faxnúmer 680383. - Greiöslukortaþjónusta.
LEIKHÚSLÍNAN simi 99 1015
Muniö gjafakortin okkar - skemmtileg gjöf.