Morgunblaðið - 29.10.1992, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1992
Þrír af fjórum verðbréfasjóðum Fjárfestingafélagsins Skandia
Hlutdeildarskírteini lækka um
þriðjung er opnað verður eftír viku
Eignir sjóðanna miðaðar við að selja þurfi þær tafarlaust,
segir Friðrik Jóhannsson framkvæmdastjóri Skandia
ÞÓRÐUR Ólafsson, forstöðumaður bankaeftirlits Seðlabanka íslands,
segir að farið hafi verið yfir þá útreikninga sem liggi til grundvallar
ákvörðun Fjárfestingarfélagsins Skandia um nær þriðjungslækkun á
gengi hlutdeildarskírteina í þremur af fjórum verðbréfasjóðum félags-
ins og bankaeftirlitið geri ekki athugasemdir við niðurstöðu stjórnar
félagsins eða þær forsendur sem liggi henni til grundvallar. Að mati
bankaeftirlitsins sé engin hætta miðað við þetta gengi á að eigendum
hlutdeildarskirteina verði mismunað.
Þórður sagði að bankaeftirlitið
hefði farið yfir útreikninga Fjárfest-
ingarfélagsins og kannað þær for-
sendur sem gengið sé út frá, en auð-
vitað skipti verulegu máli hverjar
kringumstæður séu hjá sjóðunum.
Allar aðstæður hefðu breyst verulega
á síðustu þremur vikum frá því sjóð-
ir félagsins lokuðu bæði hvaða varð-
aði hugsanlega innlausn skírteina og
annað því tengt.
„Eignir sjóðanna eru grundvöllur
þess að greiða út eigendum hlutdeild-
arskírteina og það skiptir gífurlega
miklu máli hvort það þarf að um-
breyta þessum eignum í peninga með
skömmum fyrirvara, eins og ástæða
er til að ætla að kunni að verða.
Miðað við ýtrustu varúðarkröfur sem
þarf að gera undir þeim kringum-
stæðum er þetta ekki óeðlileg niður-
staða miðað við þær eignir sem eru
í sjóðunum," sagði Þórður.
Hann sagði að um leið og kæmi
í ljós hveijar innlausnirnar verða
breytist forsendumnar fyrir útreikn-
ingnum á genginu. Hann benti á að
samkvæmt reglugerð um útreikning
á verðmætum hlutdeildarskírteina í
verðbréfasjóðum sé einmitt að finna
vísbendingar um hvemig eigi að
meta verðmæti hlutdeildarskírteina
við þær aðstæður sem hafi skapast
í tengslum við þessa verðbréfasjóði.
Þórður sagði að gengi skírtein-
anna væri ákaflega varlega reiknað
og það ætti að öðru jöfnu að geta
hækkað. Hins vegar hafi bankaeftir-
litið lagt áherslu á að það ástand
geti ekki varað nema í mjög skamm-
an tíma að ekki sé hafin sala á nýjum
hlutdeildarskírteinum. Bankaeftirlit-
ið gangi út frá því að það komist á
jafnvægi á sjóðina mjög fljótlega.
„Verði fmmvarp til laga um verð-
bréfasjóði sem nú er til meðferðar á
Alþingi að lögum munu rekstrarskil-
yrði og allar aðstæður í rekstri verð-
bréfasjóða breytast í veigamiklum
atriðum," sagði Þórður ennfremur. í
lögunum er gert ráð fyrir að sjóðirn-
ir verði að fjárfesta í skráðum verð-
bréfum á Verðbréfaþingi fyrir að
minnsta kosti 90% af ráðstöfunarfé
sínu.
Eignir metnar á
staðgreiðsluverði
Friðrik Jóhannsson, framkvæmda-
stjóri Fjárfestingarfélagsins
Skandia, segir að nauðsynlegt sé,
miðað við þær aðstæður sem hafí
skapast, að meta eignir verðbréfa-
sjóðanna miðað við það verð sem
myndi fást fyrir þær ef selja þyrfti
þær tafarlaust. Verið sé að meta
eignir á staðgreiðsluverði sem ætti
að fást gott verð fyrir ef nægur tími
gæfist til að koma þeim í verð. Þetta
þýði að hagsmunir eigenda hlutdeild-
arskírteina sem ekki innleysi skír-
teini sín séu vemdaðir.
Friðrik sagði að innlausn hæfist í
næstu viku og þangað til gæfíst svig-
rúm til að ræða við viðskiptavini,
útskýra þessa breytingu og koma ró
á starfsemi fyrirtækisins. „Eg á síðan
von á því, þar sem eignimar eru
mjög strangt metnar, að gengi skír-
teinanna geti hækkað vemlega á
næstunni."
Aðspurður hvort ekki hefði verið
eðlilegt að lækka gengi skírteinanna
strax í byijun um það sem nýtt mat
eigna gaf tilefni til, sagði Friðrik,
að þegar hætt hefði verið innlausn,
hefði verið orðinn svo mikill órói í
kringum reksturinn á fyrirtækinu að
annað hafí ekki verið hægt. „Það er
fullljóst að það hefði verið betra ef
yfírlýsingar allar og aðgerðir hefðu
verið hófsamari og nákvæmari."
Friðrik sagði að Skandia hefði
ákveðið að draga til baka kröfu um
riftun á kaupunum af Fjárfestingar-
félaginu og deila um kaupverðið
færi í gerðardóm eins og ráð væri
fyrir gert í kaupsamningnum. Skan-
dia hefði fullan hug á að starfa af
krafti á þessu sviði hér á landi. „Eft-
ir að Skandia kemur inn í þetta er
okkur ekki lengur heimilt að fjár-
festa í öðru en bréfum sem skráð
em á verðbréfamörkuðum og em
auðseljanleg. Þeir gera mjög strang-
ar kröfur í sambandi við sína fjárfest-
ingarstefnu og ég reikna með því
að við fömm mjög fljótlega að kynna
nýja verðbréfasjóði sem fjárfesta
jafnt í innlendum verðbréfum og er-
lendum, enda ekki mikið úrval af
verðbréfum hér heima sem við getum
fjárfest í miðað við þá fjárfestingar-
stefnu sem okkur er sett. Síðan er
ljóst að í sambandi við fijálsa lífeyris-
sjóðinn verður alveg á næstunni boð-
ið upp á nýjungar, þar sem tengdar
verða samán tryggingar og lífeyris-
spamaður," sagði Friðrik að lokum.
Samkomulag um
mannaskipti í stjórn
Gísli Öm Lámsson, forstjóri
tryggingafélagsins Skandia ísland,
segir að það hafi verið samkomulag
milli hans, Ragnars Aðalsteinssonar,
hæstarréttarlögmanns og Leifs Vict-
orins, forstjóra Skandia, að þeir tveir
fyrmefndu fæm úr stjórn verðbréfa-
markaðarins vegna neikvæðrar um-
fjöllunar um íjárfestingarfélagið
Skandia til að skaða ekki vátrygg-
ingafélagið. Þannig vildu þeir leggja
áherslu á og undirstrika að þama
væri um tvö aðskilin félög að ræða
og að þeir menn sem hefðu stjómað
verðbréfafyrirtækinu síðustu mánuði
yrðu að leysa þau vandamál sem
hefðu komið upp. Ákvörðunin um
gengislækkunina sé alfarið á ábyrgð
eigenda og stjómenda fyrirtækisins.
Það sé alrangt sem látið hafí verið
í veðri vaka í fjölmiðlum að þeir
Ragnar hafí verið látnir víkja úr
stjóminni og hann vísi slíkum dylgj-
um algerlega á bug. Hann sé með
samning um það að vera yfirmaður
Skandia á íslandi til ársins 1998 og
á því sé engin breyting.
Hér fer á eftir fréttatilkynning
Fjárfestingarfélagsins Skandia í
heild: „Stjóm Fjárfestingarfélagsins
Skandia hf. hefur ákveðið að hefja
viðskipti með hlutdeildarskírteini í
verðbréfasjóðum í vörslu félagsins
fímmtudaginn 5. nóvember næst-
komandi. Þá hefur stjóm verðbréfa-
sjóðanna ákveðið að lækka gengi
hlutdeildarskírteina í þremur sjóðum
af fjórum. Ástæður gengislækkunar-
innar eru tviþættar. I fyrsta lagi
hafa tilteknar eignir verðbréfasjóð-
anna frá fyrri tíð rýrnað og er gengis-
lækkunin af þessum sökum um 5-7%.
í öðm lagi em eignir verðbréfasjóð-
anna metnar á markaðsvirði en slíkt
er í samræmi við reglugerð um inn-
lausnarvirði samkvæmt staðli EEC,
en sú lækkun nemur um 26%.
Heildarlækkun á gengi hlutdeild-
arskírteina í Verðbréfasjóðnum verð-
ur þannig 33,5%, en gengi skírteina
í Marksjóðnum mun lækka um 32%
og gengi í Tekjusjóðnum mun lækka
um 31,6%. Gengi bréfa í Skyndi-
sjóðnum munu ekki lækka, en inn-
lausnir þeirra verða takmarkaðar
fyrst í stað.
Eignir sjóðanna em þær sömu og
áður. Samkvæmt skýrslum endur-
skoðenda vora þær of hátt metnar
um 5-7%. Þær eignir sem taldar voru
of hátt metnar em keyptar inn í sjóð-
ina löngu áður en Skandia tók við
rekstri Fjárfestingarfélagsins. Við-
bótargengislækkun er því tilkomin
vegna staðgreiðslumats á eignunum,
og mega eigendur sem eiga hlutdeild-
arskírteinin áfram búast við að gengi
þeirra hækki sem þessari lækkun
nemur ef ekki þarf að koma til sölu
á öllum eignum mjög fljótlega.
Rétt er að taka fram að eignir
Fijálsa lífeyrissjóðsins em traustar
og hafa eigendur hans ekkert að
óttast, enda uppbygging sjóðsins
með öðmm hætti en verðbréfasjóð-
anna. Stjóm Fijálsa lífeyrissjóðsins
verður sú sama og áður.
Försákringsbolaget Skandia,
Stokkhólmi, er eigandi Fjárfestingar-
félagsins Skandia hf. og meirihluta-
eigandi í Vátryggingafélaginu Skan-
dia hf. Félagið hyggst auka starfsemi
sína hér á landi á sviði vátrygginga
og fjármálaþjónustu. í því sambandi
hafa verið gerðar breytingar á stjóm
Fjárfestingarfélagsins Skandia hf.
og stjómum sjóða í vörslu félagsins.
Stjóm félagsins skipa Werner I.
Rasmusson, stjórnarformaður, Leif
Victorin, Leif Passmark, Torbjöm
Jakobsson og Friðrik Jóhannsson. í
sljóm verðbréfasjóðanna em Þórður
S. Gunnarsson, stjómarformaður
hrl., Wemer I. Rasmusson og Gunn-
ar S. Bjömsson. Gísli Örn Lámsson
er forstjóri Vátryggingafélagsins
Skandia hf., sem hefur verið í mik-
illi sókn á vátryggingamarkaðnum
og mun hann einbeita sér að vátrygg-
ingastarfseminni. Ragnar Aðal-
steinsson mun sem fyrr gegna störf-
um lögmanns Skandia hér á landi
þar á meðal vegna ágreinings félags-
ins við fyrri eigendur verðbréfafyrir-
tækisins. Hann er jafnframt stjómar-
formaður í vátryggingafélaginu.
Stjóm verðbréfasjóðanna hefur
samþykkt að selja ekki fyrst um sinn
ný hlutdeildarskírteini í sjóðum, til
að tryggja að sú ávöxtun sem skír-
teinin munu bera á næstunni skili
sér aðeins til núverandi eigenda
þeirra. Rétt er að benda þeim sem
hyggja á innlausn skírteina sinna,
nú þegar sjóðirnir opna á ný, að með
því afsala þeir sér þeirri ávöxtun sem
skírteinin munu bera á næstunni og
munu um leið auka ábata annarra
eigenda hlutdeildarskírteina í sjóðun-
um. Er því eigendum skírteina í sjóð-
unum ráðlagt að halda að sér hönd-
um um sinn, þvi líkur benda til að
ávöxtun í sjóðunum verði góð á
næstunni.
Eins og kunnugt er standa deilur
á milli núverandi og fyrrverandi eig-
enda Fjárfestingarfélagsins Skandia
og á þessari stundu liggur ekki fyrir
hver niðurstaða þeirra verður. Ef svo
fer að fyrri eigendum verði gert að
greiða núverandi eigendum skaða-
bætur, hefur Försákringsaktiebola-
get Skandia, ákveðið að láta þær
renna óskiptar til verðbréfasjóðanna
og hækka þannig um leið ávöxtun
hlutdeildarskírteinanna.
Verðbréfasjóðir Fjárfestingarfé-
lagsins Skandia munu eftirleiðis að-
eins fjárfesta í skráðum verðbréfum
samkvæmt viðurkenndum staðli
Skandia og er sú ákvörðun í sam-
ræmi við alþjóðlega fiárfestingar-
stefnu fyrirtækisins."
VEÐUR
I DAG kl 12.00
Heimild: Veðurstofa Islands
(8yggt é veðurepá kl. 16.15 í gær)
l/EÐURHORFUR I DAG, 29. OKTOBER
YFIRLIT: Yfir Bretlandseyjum er 975 mb víðáttumikii lægð, en 1.022
mb hæð suðvestur af landinu. Heldur dregur úr frosti.
SPÁ: Fremur hæg vestanótt á landinu. Smáél eða slydduél Vestan-
lands, en bjart veður um austanvert landið.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG: Minnkandi nv-átt um landið a-vert en hæg
breytileg um landið v-vert. Él á na-landi en annars bjart veður. Hiti um
eða rétt undir frostmarki.
HORFUR Á LAUGARDAG: Vaxandi sa-átt með slyddu eða rigningu sv-
lands en þurrt og nokkuð bjart veður na-til. Hægt hlýnandi.
HORFUR Á SUNNUDAG: Na-átt og snjókoma á Vestfjörðum en suölæg
átt annars staðar. Slydduél sv-tíl en léttskýjað á NA-landi. Hiti rétt yfir
frostmarki. Nýir veðurfregnatímar: 1.30,4.30,7.30,10.45,12.45,16.30,
19.30, 22.30. Svarsfmi Veðurstofu Islands — Veðurfregnir: 990600.
o
▼
Heiðskirt
r r r
r r
r r r
Rigning
•a
Léttskýjað
* / *
* r
/ * /
Slydda
•&
Hálfskýjað
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Skýjað Alskýjað
V ^ V
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.
10° Hitastig
V Súld
= Þoka
riig..
FÆRÐA VEGUM: <Ki;i7.3ofg»rj
Þjóðvegir landsins eru yfirleitt ágætlega greiðfærir, en þó er víða hálka
á vegum svo sem á Hellisheiði, Fróðárheiði, Bröttubrekku og Holtavörðu-
heiði. Á Vestfjörðum er hálka og snjór án fyrirstöðu á heiöum og fjallveg-
um en Hrafneyrarheiði er þó aöeins fær jeppum og stærri btlum. Á
Norðurlandi er hálka á Vatnsskarði, Öxnadalsheiði og Víkurskarði en
Lágheiði er ófær. Þá er hálka og snjór án fyrirstöðu víða á Norðaustur-
landi og á fjallvegum á Austfjörðum. Öxarfjarðarheiði og Hellisheiði
eystri eru aðeins færar jeppum.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti i 6tma 91-631600 og
íorænnilif fl
I grænni Ifnu 99-6315.
Vegagerðin.
VEÐUR VIÐA UM HEII ki 12.00 í gær að ísl. tm -'Hitl vedur Akureyri +1 skýjað Reykjavik +1 léttskýjað
Bergen 7 skýjað
Helalnki 0 skýjað
Kaupmannaböfn 8 léttskýjað
Narssarssuaq 0 alskýjað
Nuuk 0 alskýjað
Osló 0 alskýjað
Stokkhólmur 1 skýjað
Þórsböfn 8 skýjað
Algarve 20 skýjað
Amsterdam 10 léttskýjað
Barceiona 21 hálfskýjað
Berlín 8 rignlng
Chicago 4 léttskýjað
Feneyjar 14 þokumóða
Frankfurt 8 skýjað
Glasgow 6 skúrásið.klst.
Hamborg 9 skýjað
London 10 léttskýjað
tosAngeles 18 skýjað
Lúxemborg 7 skúr á síð.klst.
Madríd 17 skýjað
Malaga 23 hálfskýjað
Mallorca 23 skýjað
Montreal 3 skýjað
NewYork 7 léttskýjað
Orlando 19 þokumóða
Paris 10 skýjað
Madelra 22 léttskýjað
Róm vantar
Vfn 14 skýjað
Washington 9 alskýjað
Winnipeg +3 skýjað
I
l
I
I
L
i
i
i
\
i
i
I