Morgunblaðið - 29.10.1992, Page 7

Morgunblaðið - 29.10.1992, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1992 7 Akranes íbúar fjölbýlishúss vilja kynda með olíu auk hitaveitu Lög og reglugerðir veita hitaveitum einkarétt á að kynda hús á svæði þeirra ÍBÚAR í fjölbýlishúsinu Vallarbraut 1-3 á Akranesi hyggjast í til- raunaskyni frá mánaðamótum kynda hús sitt með olíu meðfram hitaveitu og telja sig með því ná fram aukinni hagkvæmni en þó einkum bættum hita í húsið, að sögn Guðlaugs Helgasonar, for- manns húsfélagsins. Hann sagði við Morgunblaðið að auk þess sem hitaveitan væri dýr, kostnaður fyrir 25 daga í september hefði numið 91 þúsund krónum, hefði illa tekist til við að halda húsinu heitu á vetrum eftir tilkomu hennar. Samþykkt hefði verið að hefja tilraunir með að kynda með olíu og yrði það fyrst í stað notað ásamt hitaveitukerfinu en til greina kæmi að skipta alveg yfir í olíu. Húsið var byggt á tíma olíukyndingar á Akranesi og er því til allt sem þarf til kyndingarinnar og stofnkostnaður eng- inn. Húsfélagið hefur þegar keypt olíu og látið dæla á tank við húsið og er stefnt að því að hefja kyndingu um mánaðamót. Sam- kvæmt reglugerð um hitaveituna eru þeir húseigendur sem eiga kost á hitaveitu skyldugir til að skipta við hana og styðst sú reglu- gerð við ákvæði í orkulögum frá 1967. Ingólfur Hrólfsson hitaveitustjóri segist ekki hafa heyrt beint frá íbú- unum hvað fyrir þeim vaki með þessu en það sem hann hafi heyrt frá öðrum gefi til kynna að mis- skilningur sé á ferðinni. Hann kvaðst hafa óskað eftir fundi með þeim um málið og sagði engar ákvarðanir hafa verið teknar um hvort hitaveitan notfærði sér í þessu máli þann einkarétt sem fyrrgreind lög veita henni. Guðlaugur Helgason kvaðst sjálfur ásamt fleiri íbúum hafa mælt með því að ráðist yrði í kostn- að við að bæta úr hitastýrikerfi hússins en meirihlutinn hefði viljað skipta í olíu enda ættu þeir sem lengst hafa búið í húsinu góðar minningar frá tímum olíukynding- ar. í Skagablaðinu á Akranesi hefur verið haft eftir Ingólfi Hrólfssyni hitaveitustjóra að samkvæmt reglu- gerð um hitaveituna sé öllum hús- um í bænum skylt að skipta við hana, en Guðlaugur sagði að húsfé- laginu hefðu engin viðbrögð borist frá hitaveitunni. Hins vegar vissi hann um fleiri hús í bænum þar sem olíukynding væri notuð auk heits vatns og einnig væri vitað um hús sem hefðu aldrei verið tengd við hitaveituna. Ingólfur Hrólfsson hitaveitustjóri sagði við Morgunblaðið að hann teldi áhuga íbúanna á að kynda með olíu á misskilningi byggðan; væri hita í húsinu áfátt sé unnt að leysa það með eðlilegu viðhaldi stýrikerfis eða meiri vatnskaupum. Þótt telja megi sér trú um með því að líta fram hjá rekstrarkostnaði kyndingartækjanna að peningar spöruðust með olíukyndingunni Akranes sýndi raunhæfur samanburður að hitaveitan sé a.m.k. 10% ódýrari, miðað við núgildandi olíuverð. Ing- ólfur sagði að hitaveitan væri, eins og aðrar slíkar, sameign allra íbúa sveitarfélagsins og mikilvægt og óhjákvæmilegt að allir tengist henni og taki þátt í að borga niður þann kostnað sem miklar fjárfestingar við veituna hafi haft í för með sér en um 80% tekna fer í fjármagns- kostnað. Með því að segja sig úr í tillögu Eggerts Jónssonar borg- arhagfræðings er gert ráð fyrir að ráðið verði í 20 störf við þrif og hrein- gerningar á vegum íþrótta- og tóm- stundaráðs og í 20 störf við endurnýj- un girðinga á barnaheimilislóðum á vegum Dagvistar barna og f sam- vinnu við embætti gatnamálastjóra. Kostnaður við endurnýjun girðing- anna er áætlaður 10,5 millj. en kostn- aður við umrædd störf á vegum viðskiptum við hitaveituna sé ein- ungis verið að velta kostnaði sem allir eigi að bera sameiginlega yfir á herðar annarra. Ingólfur sagði að í bænum væru einstaka hús utan hitaveitu á svæð- um sem búið hefðu við rafhitun fyr- ir daga hitaveitunnar. Þar hefði ver- ið veittur langur aðlögunartími enda fylgdi því hundruð þúsunda kostnað- ur fyrir hvern íbúðareiganda að skipta úr rafhitun í hitaveitu. íþrótta- og tómstundaráðs er áætlað- ur 2,5 millj. í bókun Óh'nu Þorvarðardóttur, Nýjum vettvangi, sem lögð var fram í borgarráði er vakin athygli á að tillaga Nýs vettvangs um 500 millj. kr. lántöku til að bregðast við erfiðu atvinnuástandi sé óafgreidd. Tillagan feli einnig í sér framkvæmdaáætlun af hálfu borgarinnar, en hér skorti á stefnumótun til lengri tíma. Sæstrengsviðræður Reykjavíkur Landsvirkjun fylgist með ÞESS ER ekki að vænta að stjórn Landsvirkjunar taki afstöðu til samninga annarra aðila um hag- kvæmniathugun á orkusölu um sæstreng frá íslandi fyrr en fyrir liggja niðurstöður athugana Landsvirkjunar og markaðsskrif- stofu iðnaðarráðuneytisins, segir í bréfi forstjóra Landsvirkjunar til borgarsljóra. Borgarráð hefur samþykkt að vísa afgreiðslu hag- kvæmniúttektar um sæstrengs- verksmiðju til borgarstjórnar. I bréfi Halldórs Jónatanssonar, forstjóra Landsvirkjunar, til Markús- ar Arnar Antonssonar borgarstjóra er vitnað til fundar í byijun mánaðar- ins með borgarstjóra, en hann sátu einnig Aðalsteinn Guðjohnsen raf- magnsstjóri og dr. Jóhannes Nordal. Þar var rætt um hagkvæmniathugun á orkusölu um sæstreng frá íslandi til Hollands, ásamt tengdum verkefn- um. Kom þar fram að enn stendur yfir tæknileg hagkvæmniathugun sem Landsvirkjun hefur ráðið Pirelli og Vattenfall Engineering AB til að gera á lagningu sæstrengsins frá Islandi til Bretlandseyja. Þá hefur markaðsskrifstofa iðnaðarráðuneyt- isins og Landsvirkjunar gert samning við Caminus Energy Ltd. og Sumi- tomo Bank um athugun á því hvern- ig best verði staðið að því að laða fjárfesta til þátttöku í sæstrengs- verkefninu. „Athuganir annarra aðila en Landsvirkjunar á hagkvæmni hugs- anlegs orkuútflutnings eiga að sjálf- sögðu fullan rétt á sér og eru góðra gjalda verðar. Þess er þó ekki að vænta að stjóm Landsvirkjunar taki afstöðu til samninga annarra um athuganir sem þessar fyrr en fyrir liggja niðurstöður fyrrnefndra at- hugana Landsvirkjunar og markaðs- skrifstofunnar. Landsvirkjun hefur, af framangreindum ástæðum, áhuga á því að fylgjast vandlega með fram- vindu þessa máls og óskar góðs sam- starfs við Reykjavíkurborg þar að lútandi," segir ennfremur í bréfinu. Reykjavík Aukafj árveitmgn veitt til fjörutíu nýrra starfa BORGARRÁÐ hefur samþykkt 13 milljóna króna aukafjárveitingu til að unnt verði að ráða 40 manns, 20 konur og 20 karla, til starfa hjá borginni í tvo mánuði, eða frá 1. nóvember til næstu áramóta. NYJAR VORUR sprenghlægilegu verði ra o co ■ Peysur á ............ ... krTOO,- Bolir á Buxur ú ... kr.l 00,- Skór ú Skyrtur ó ........... ... kr.l 00,- Barnajakkar ó ... LEIKFONG, BUSAHOID, FATNAÐUR, SKOR Herraleðurskór......kr.990fa Kvenleðurskór....... kr. 990,- Leður inniskór....... kr.500,■ Leður heilsuskór....kr.500fl Sportskór..........kr.500,1 Hælaskór.............. kr.500,-! tilbOÐSSPRENGJa Handklæði 50x100 6 i pk____kr.990,- Handklæði ___ 70x130 3 i pk..„. kr.990," Night & Day sængurverasett..... kr.990,■ 0P|NN VIRKA DAGA FRA Kl. 12.00 TIL 18.00 LAMGARDAGA FRA KL. 10.00 TIL 14.00 SPRENGIMARKAOURINN, SN0RRABRAUT 56,2. HÆÐ. SÍMI 16132.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.