Morgunblaðið - 29.10.1992, Side 10

Morgunblaðið - 29.10.1992, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1992 '7 Hin sértæka athöfn „Næmishyggjuteningiir“ 1978, ál, kopar og brons. ________Myndlist_____________ Bragi Ásgeirsson Undanfarið hefur Listasafn ís- lands kynnt verk eftir Jóhanrt Eyfells myndhöggvara sem um árabil hefur verið búsettur í Or- lando, Flórída, þar sem hann er prófessor við University of Centra Florida, sem áður nefndist Florida Technological University. Þótt Jóhann hafi dvalist fjarri heimahögum í nær aldarfjórðung, er hann vel þekkt stærð í hér- lendri myndlist, í öllu falli meðal þeirra sem fylgjast grannt með framvindu hennar. Hann var mik- ill áhrifavaldur meðan hann kenndi við MHÍ á árunum 1964-69, og notaði afburða vel þann sundurlausa og knappa tíma, sem ætlaður var til kennslu í myndmótun. Jafnfraint tókst hon- um að vekja áhuga, vinnugleði, frumkvæði, athafnasemi og aga meðal nemenda, sem telst veigur- inn í allri æðri myndlistarkennslu. Margur mun minnast þessa umbrota- og uppgangstímabils á flestum sviðum innan skólans með nokkrum söknuði og var mikill skaði að myndmótun skyldi ekki verða að sérgrein við skólann á þessum árum og raunar enn fyrr. Hefði handleiðslu Jóhanns við mótun slíkrar sérdeildar notið við, hefði það vafalítið haft mikil og afgerandi áhrif á framþróun högg- myndalistar hérlendis. En hér höf- um við eins og á svo mörgum öðrum sviðum þjóðfélagsins verið að spara aurana en henda krónun- um og uppskerum samkvæmt því. En saga skólans, er einnig saga margra glataðra tækifæra til að rótfesta samfelld vinnubrögð með það markmið að leiðarljósi, að þjálfa næmi og snertiskyn nem- enda, sem ekki gerist nema á löngu samfelldu ferli, en það er ekki til umræðu hér. En þetta er reifað vegna þess, að Jóhann legg- ur einmitt mikið upp úr næmis- hyggju (receptualism), sem þó gengur langt út fyrir hinn almenna ramma snertiskynsins og tengist öflum, sem hann álítur að hafi ekki fengið táknræna merkingu. Þannig séð væri kannski hægt að skilgreina hana sem eins konar framlengingu fingurgómanna á sama hátt og Matisse skilgreindi teikninguna er hann sagði, að hin teiknandi hönd mannsins væri framlenging sálarinnar. Það er ekki vonum fyrr, að Listasafn íslands kynnir þennan listamann, en gjarnan hefði mátt fórna meira rými í þessa kynn- ingu, þótt ekki hefði hún öll þurft að fara fram innan veggja safns- ins. Rýmisverkum hefði t.d. verið hægt að koma fyrir á afmörkuðu svæði á borgarlandinu og jafnvel fleiri en einu. I öllu falli bjóst ég við mun yfir- gripsmeiri kynningu en við blasti er ég skundaði á vettvang nýkom- inn að utan, en vegna bókunarmis- skilnings á flugi út til íslands og þarmeð sólarhrings seinkunar var opnunarathöfnin illu heilli afstað- in, er mig bar að garði. Við Jó- hann og fleiri vorum félagar og samheijar um ýmsar breytingar innan MHÍ á miklum geijunará- rum og jafnframt í sýningarnefnd FÍM, og því hafði ég dijúgan metn- að til þess að vera á staðnum. Skráin sem gefin hefur verið út í tilefni sýningarinnar er mikils- verð viðbót við sýninguna og kynn- ir samhengið í list Jóhanns allvel, en hún hefði þó mátt vera skilvirk- ari og ná aftur til fyrstu sýningar hans hér heima, í Selvogsgrunni 10. En sýningin er auðsjáanlega ekki hugsuð sem yfirlitssýning heldur fyrst og fremst kynning á afmörkuðu sviði sem listamaður- inn mun helst hafa viljað halda fram. Sýningarskráin nær hins vegar yfir mun lenga tímabil, en hinar mörgu svart-hvítu myndir segja þó í flestum tilvikum ekki nema hálfa sögu. Þá kynnir skráin viðhorf Jóhanns til eigin athafna mjög vel í rituðu máli. Það hefur því afar mikið að segja, að þeir sem hafa áhuga á að meðtaka og skynja list hans festi sér skrána og lesi það sem þar er skrifað og þá einkum viðtalið við listamann- inn, sem er mjög hispurslaust. Jóhann er einn þeirra lista- manna, sem segja má að séu á aðra röndina heimspekingar, og hann gerir sér far um að kryfja athafnir sínar og finna þeim rök- rænt samhengi. Hugmyndafræði- legi grunnurinn að baki verkanna er Jóhanni þannig afar mikils virði. { núlistum eru þeir ekki svo fáir sem virkja náttúruöflin í gerð verka sinna og við vitum um mál- ara, sem létu málverk sín veðrast í bókstaflegum skilningi, en án þess að hugmyndin væri önnur, en að gæða þau svip fyllingar. En að sjálfsögðu var þetta einmitt að virkja tímann eins og menn myndu orða það núna. Og þá vita allir hvernig myndastyttur og rýmis- verk hvers konar veðrast. Þá hafa sumir málarar leikið það, að setja sérstakar olíur og þurrkefni í ein- staka fleti málverka til að ná fram vissum áhrifum, sem á stundum Sindri Freysson Jónas Þorbjarnarson Ljóðabækur eftir tvo unga höfunda Ljóðabækurnar Andartak á jörðu eftir Jónas Þorbjarnarson og Fljótið sofandi konur eftir Sindra Freysson eru komnar út. Þetta er fyrsta ljóða Sindra, en bók Jónas- ar er önnur ljóðabók hans. í kynningu útgefanda um bók Sindra segir meðal annars: „Ljóð Sindra mynda samslungna heild hvað varðar þema og tíma. Þau kallast stöðugt á, en röð þeirra og stígandi gefa slitrur af frásögn til kynna, h'kt og þegar samfelld myndröð er brotin upp í fáein eldsnögg svipleiftur og áhorfanda látið eftir að yrkja í eyð- umar.“ Um bók Jónasar segir meðal ann- ars í kynningunni: „Ljóð Jónasar geyma skýrt dregnar myndir af manni og heimi: landi, sjó, stundum lágum bæ. Og svo sem höfundi er einkar lagið að kalla landið fram í ljóð sín, þá leikur hann af þokkafullu öryggi með hljóm tungunnar." Utgefandi er Forlagið. Andar- tak á jörðu er 40 bls. Valgarður Gunnarsson listmálari gerði kápu- mynd. Prentsmiðjan Oddi hf. prent- aði og kostar bókin 1.980 krónur. Fljótið sofandi konur er 60 bls. Þorri Hringsson gerði kápu. Prentsmiðjan Oddi hf. prentaði. Verð bókarinnar er 1.780 krónur. Til sölu eða leigu 175 fm á 2. hæð í SmiðSbúð 8, Garðabæ. Alno-eldhús er á hæðinni og húsið í toppstandi. Hæðin er laus nú þegar og hentar vel fyrir hverskonar skrifstofur, litla heildsölu, snyrtistofu o.m.fl. Hagstætt verð og greiðsluskilmálar. Upplýsingar í síma 656300 og á kvöldin 38414. Söngkennsla í anda Shinichi Suzuki Næstkomandi laugardag og sunnudag stendur Tónlistarskóli ís- lenska Suzuki-sambandsins fyrir kynningarnámskeiði um söng- kennslu í anda móðurmálsaðferðar Shinichi Suzuki. í fréttatilkynningu segir að söngkennsla samkvæmt móður- málsaðferð Suzukis sé nýjung í heiminum, að hún byggi á svipuð- um forsendum og kennsla á hljóð- færi eftir móðurmálsaðferð, það er að tónlist er kennd á svipaðan hátt og móðurmálið. í hljóðfæra- námi er lögð er áhersla á að nám- ið hefjist snemma og foreldrar eru virkir þátttakendur í náminu. í söngkennslu hefja bömin ekki námið heldur byija mæður og feð- ur að koma í tónlistartíma á síðari hluta meðgöngu, þar sem þeim er kennd raddbeiting og sönglög. Eft- ir fæðingu barnsins halda foreldrar áfram að hittast í söngtímum ásamt barninu þannig að söngur- inn er frá upphafi verkefni sem öll fjölskyldan tekur þátt í. Leiðbeinandi á námskeiðinu er finnska söngkonan Paivi Kukkam- aki sem hefur þróað þessa aðferð í Finnlandi. Mun hún kynna rann- sóknir sínar og fara yfir námsferli kennslunnar. Námskeiðið stendur frá kl. 10-16 laugardaginn 31. október og sunnudaginn 1. nóvem- ber og fer fram á ensku. Nám- skeiðssalur er salur Félags ís- lenskra hljómsveitarmanna að Rauðagerði 27. Námskeiðið er ætlað tónlistar- og tónmenntakennurum, fóstrum, foreldrum ungra barna, svo og öll- um sem áhuga hafa á söng og tónlistaruppeldi. Upplýsingar og innritun eru á skrifstofu Tónlistar- skóla íslenska Suzukisambandsins, Brautarholti 4 (austurenda), sími 15777, fax 651777, alla virka daga kl. 9-13, á þriðjudögum og fimmtu- dögum einnig kl. 16.30-17.30. Drög að svínasteik EGG-leikhúsið hefur hafið æfingar á leikritinu Drög að svínasteik eftir franska rithöfundinn Raymond Cousse. Sýningin er unnin í samvinnu EGG-Ieikhússins og Þjóðleikhússins. Drög að svínasteik er einleikur. Persóna leiksins er svín sem bíður slátrunar. Svínið fjallar um líf sitt og drauma, frelsi og ófrelsi, skyldur og hlutverk í lífinu. Svíninu er ekk- ert svínslegt óviðkomandi og á meðan á biðinni stendur hugleiðir það - og leikur með miklum geð- sveiflum - öll svið hins svínslega lífs: kynlíf, geldingu, menntun, gildi þroskans og ástina, svo eitthvað sé nefnt. í fréttatilkynningu segir að Drög að svínasteik hafi verið á fjölunum víða um heim og Raymond Cousse er talinn athyglisverður leikritahöf- undur í Frakklandi hin síðari ár. EGG-leikhúsið á tíu ára afmæli um þessar mundir. Af því tilefni hefur tekist samvinna milli leikhúsanna. Viðar Eggertsson er í hlutverki svínsins. Leikstjóri er Ingunn Ásdís- ardóttir. Snorri Freyr Hilmarsson gerir leikmynd og búninga. Kristján Árnason þýddi leikritið. Frumsýn- ing er fyrirhuguð í Þjóðleikhúsinu um jólin.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.