Morgunblaðið - 29.10.1992, Page 14

Morgunblaðið - 29.10.1992, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1992 Menntamálaráðherra á ráðstefnu um menningarmál á landsbyggðinni Sinnuleysið er mesti and- stæðingur menningarinnar Laugarvatni. Það var þétt setinn bekkurínn við setningu ráðstefnunnar Menning um landið og var fólk komið hvaðan- æva af landinu til að taka þátt í umræðunum. HALDIN var ráðstefna dagana 16. og 17. október sl. um menn- ingarmál á landsbyggðinni á Flúðum í Hrunamannahreppi á vegum menntamálaráðuneytis- ins, Sambands íslenskra sveitar- félaga og Bandalags íslenskra listamanna. Á ráðstefnunni voru flutt nokk- ur erindi um menningarmál frá ýmsum sjónarhornum sem starfs- hópar ráðstefnunnar unnu síðan út frá. Helsta markmið ráðstefnunnar var að skoða menningarflutning á landsbyggðinni í víðu samhengi, hvemig efla mætti samstarf menn- ingarstofnanna úti um land og tengsl þeirra aðila sem fást við menningarstarfsemi í hinum ýmsu sveitarfélögum. Menningin bindur fólkið saman Menntamálaráðherra, Ólafur G. Einarsson, setti ráðstefnuna. Hann sagði íslenska tungu og íslenska sögu homsteina menningar á ís- landi. íslensk menning eir.kenndist af metnaði einstaklings, frelsisást og jafnréttiskennd, virðingu fyrir einstaklingnum og orðstír hans. Ólafur sagði sinnuleysi vera mesta andstæðing menningarinnar. „Áður fyrr gaf fólk sér meiri tíma til að setjast niður og tala saman og segja sögur. Með breyttum þjóð- félagsháttum höfum við minni tíma með bömum okkar og grípum æ oftar til þess ráðs að gerast hlut- lausir þiggjendur efnis í gegnum útvarp og sjónvarp." Ólafur talaði um byltingu í fjarskiptum sem skapaði okkur nýjan alþjóðlegan markað fyrir hugmyndir og hug- verk, markað sem byggist á venju- legum markaðsforsendum án tillits til sérkenna menningar einstakra landa eða menningarsvæða. Nú þegar væm farin að sjást merki erlendra áhrifa í gegnum gervi- hnattasjónvarp, þróun sem stefnt gæti bókmenntaarfi þjóðarinnar í hættu. Ráðherrann tók það skýrt fram að hann legði sérstaka áherslu á það við endurskoðun út- varpslaga að tryggja leiðir til að auka hlut innlends dagskrárefnis. Hafí fyrirtækin ekki fjármagn til dagskrárgerðarinnar verða þau að minnka yfirbyggingu fyrirtækj- anna. Menntamálaráðhera sagði ástæðu þessarar ráðstefnu vera þá staðhæfíngu margra að menn- ingarleg gjá væri að myndast á milli höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar. Þetta stafí einkum af of lítilli þátttöku lands- byggðarinnar í viðburðum stofn- ana á Reykjavíkursvæðinu. í fram- haldi af því sagði hann mikilvægt að skoða áframhald M-hátíða á landsbyggðinni og breytingar á samstarfí ríkis og sveitarfélaga í því sambandi. Ráðherra kynnti hugmyndir að breyttri skipan innan ráðuneytis síns, þar sem hugmyndir væm uppi um að skipta því í tvö nokk- um veginn sjálfstæð ráðuneyti undir sama ráðherra. Annars vegar væri ráðuneyti menntamála og hins vegar ráðuneyti menningar- mála. Þetta væri einkum til að gera menningarmálunum hærra undir höfði en áður hefði verið gert. Ráðherrann lýsti yfír sam- starfí við listamenn við þróun nýs ráðuneytis um að varðveita sem best menninguna „það sem þjóðlíf- ið nærist á“. Að lokum varaði ráð- herrann við því að menn leggðu peningalegt mat á menningu og menningarstarfsemi. M-hátíðir eru byggðamál Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, for- maður Sambands ísl. sveitarfélaga, lýsti ánægju með samstarfið við menntamálaráðuneytið við undir- búning þessarar ráðstefnu. Hann sagði mikilvægt að halda sam- starfí um M-hátíðimar áfram, þær drægju fram það besta í menning- arflutningi hvers héraðs og styrktu þau til dáða. Þar væri um raun- hæfa byggðastefnu að ræða. Vil- hjálmur lýsti þeim lögboðnu menn- ingarverkefnum sem sveitarfélögin sinntu, s.s. tónlistarskólum, bóka- söfnum, félagsheimilum, stuðningi við áhugamannafélög o.fl. Benti hann á mikilvægi þess að við ís- lendingar notuðum reynslu okkar af samstarfi Norðurlandanna í fyrirhugaðri samvinnu Evrópu- þjóðanna með EES-samningi. Tilt- ók hann sérstaklega vinabæja- tengslin í þessu sambandi. Maðurinn horfír til himins Hjálmar H. Ragnarsson, forseti Bandalags íslenskra listamanna, bað menn að horfa til himnins. Það væri einkenni hins vitiboma manns og skildi hann frá öðrum dýrum jarðarinnar. „Menning er það að sjá lengra en það sem blasir við augum hveiju sinni og það, að fínna fyrir meiri hughrifum en það sem líkamlegar þarfir kalla á.“ Hjálmar lagði áherslu á að stjóm- völd og listamenn stæðu saman vörð um íslenska menningu ein- mitt nú þegar aukið frelsi í sam- skiptum þjóða er að færast yfír. Varaði Hjálmar við aukinni skatt- Iagningu á menningarstarfsemi þar sem hann taldi stundarávinn- ing í fjáröflun geta valdið óbætan- legum skaða. Vonaðist hann til að áfram mætti búa í þessu landi þjóð sem kann að horfa til himins. Gagnkvæm menn- ingarsamskipti Einar Njálsson, bæjarstjóri á Húsavík, hvatti til gagkvæmra samskipta landshlutanna og menn- ingarstofnana á höfuðborgarsvæð- inu. Hann sagði menningu landsins hvfla á íjórum undirstöðuþáttum, atvinnu, menntun, listum og fé- lagslegri þjónustu. Og ef einn þess- ara homsteina brysti væri mannlíf- ið í hættu. Menningarmálin eiga að sameina þjóðina, sagði Einar ennfremur, „því er mikilvægt að flytja menningarviðburði frá dreif- býli til þéttbýlis og frá þéttbýli til hinna dreifðari byggða“. Einar lagði áherslu á að hlut- verk sveitarfélaga í menningar- málum væri aðallega að leggja li- stafólki til aðstöðu, s.s. húsnæði. Slflct húsnæði yrði að nýtast til fleiri þátta sökum nýtingar á íjár- festingunni. Hlutverk ríkisins er aftur á móti tvenns konar í huga Einars, þ.e. að styrkja með beinum hætti menningar- og listastarf og hins vegar að gera menningar- stofnunum kleift að sinna störfum sínum samkvæmt þeim lögum sem um þær fjalla. Að komast til sjálfs sín Sigurður Pálsson, skáld og rit- höfundur, sagði listimar færa GUÐMUNDA Andrésdóttír opn- ar málverkasýningu í Nýhöfn, Hafnarstræti 18, laugardaginn 31. október kl. 16-18. Málverkin á sýningunni eru öll unnin með olíu á þessu og síðasta ári. Guðmunda stundaði nám í Gautaborg, Stokkhólmi og París 1947-’53. Hún tók þátt í síðustu September-sýningu 1952 og sýndi þar geometrískar myndir. Árið 1956 hélt Guðmunda fyrstu einka- sýningu sína í Ásmundarsal. Síðan hefur hún haldið þijár einkasýn- ingar, 1961, 1966 og 1972, auk þess sem Kjarvalsstaðir heiðruðu Ó fyrir framan er heitið á sagna- safni eftir Þórarin Eldjám. í kynningu útgefanda segir ma.: Þessi nýja bók Þórarins hefur að geyma ljórtán sögur sem eiga það gjaman sammerkt að þegar minnst er á gæfu, heppni, eða hamingju er komið ó fyrir framan þar sem síst skyldi. Heppni hjónanna Aðal- steins og Eddu snýst til að mynda í óheppni á sömu stundu og þau fólkið nær sjálfu sér. Sigurður varaði fólk við að setja menningar- mál landsbyggðarinnar gegn menningu borgarinnar, allar heild- ir ættu sér einhveija minni heild og einhveija stærri heild, við vær- um stór gagnvart einhveiju og lít- il gagnvart einhveiju öðru og allt endaði þetta í frekar andlausri hreppapólitík. Ef við þykjumst sjá að togstreita höfuðborgar og landsbyggðar sé að þróast á hættulegt stig skulum við einbeita okkur að því að leysa málið, gagn- vart öðrum þjóðum höfum við um annað tveggja að velja að standa saman og lifa af eða sundrast og listakonuna með stórri yfirlitssýn- ingu árið 1990. Guðmunda hefur sýnt árlega með Septem-hópnum og tekið þátt í fjölda samsýninga heima og erlendis. í fréttatilkynningu segir að listakonan hafí fengið 12 mánaða starfslaun frá menntamálaráðu- neytinu árið 1970. Verk eftir Guðmundu eru í öll- um helstu söfnum á íslandi, auk þess eru verk eftir hana í söfnum í Bandaríkjunum, Svíþjóð, Eng- landi, Frakklandi og Danmörku. Sýningin í Nýhöfn er sölusýn- ing. Henni lýkur 18. nóvember. Opið er virka daga nema mánu- álpast í eplakassann forboðna í sjoppunni Paradís. - Sá gæflyndi og spaki heimilishundur Lilli reynd- ist ógæfan ein og umhverfíst í trylltan klámhund af gefnu tilefni. - Og þó að Sigurlaug, sjónvarps- konan vinsæla, fínni hamingjuna um stund í viðtalsþáttum sínum, uggir stúlkan ekki að sér fyrr en hún hefur ánetjast óhamingju trylltrar fíknar sem rekur hana í endalaus opinská og einlæg viðtöl. Guðmunda Andrés- dóttir sýnir í Nýhöfn Nýjar bækur Sagnasafn eftir Þórarin Eldjám hverfa sem ein heild. Sigurður lagði áherslu á að þjóðin eignaðist fullbúnar þjóðarstofnanir sem stæðust háar kröfur atvinnu- mennsku innan greinarinnar. En ekki margar hálfkláraðar stofnan- ir vítt og breitt um landið. Mögu- leikamir til að dreifa listinni um landið væru ótal margir, t.d. að senda fámennari hópa út, jafnvel blandaðan hóp listamanna til að fremja listgjöminga í fámennari byggðum í nánum tengslum við heimamenn og það sem fyrir er á staðnum. Sigurður benti á að til að njóta lista þyrfti þjálfun sem hann kallaði „ræktun“. Þessi ræktun hjálpar fólki að njóta lista og um leið gerir því kleift að kom- ast til sjálfs sín. Mikilvægt að eyða óttanum við að koma fram Rut Gunnarsdóttir frá Stokks- eyri talaði um áhrif M-hátíða á menningarlíf í litlu sjávarþorpi. Hún lofaði þá fyrir framsýni sem komu á M-hátíðum um landið og sagði þær gott dæmi þess að tíminn leiddi best í ljós árangur framkvæmda mannsins. „í sjávar- þorpinu er lífið saltfískur og þótti víst nokkrum nóg um þegar talað var um að halda M-hátíð á svona stað. í fyrstu heyrðust raddir um menningarkjaftæði sem heima ætti í hanastélsboðum í Reykjavík. En síðan kom í ljós að félagsheimlið var of lítið til að rúma þá sem sóttu viðburðina. Fólkið á staðnum er ekki fyrir að trana sér fram en með M-hátíð var ísinn brotinn og fólki fór að finnast eðlilegt að leyfa öðrum að njóta þess sem það var að gera.“ Rut sagði afar mikilvægt að eyða óttanum við að koma fram í dagsljósið og sýna list sína. Að loknum erindum var kynning á menningarstofnunum. Listasafn íslands var kynnt, Sinfóníuhljóm- sveit íslands, Þjóðleikhúsið, Þjóð- minjasafnið og Ríkisútvarpið. Síð- an voru hópumræður. Hóparnir störfuðu allan laugardaginn en í hádeginu flutti Ásdís Thoroddsen erindi um ástand kvikmyndamála á landsbyggðinni. Eftir kaffihlé skiluðu hópar áliti og almennar umræður hófust. - Kári. Guðmunda Andrésdóttir daga kl. 12-18, um helgar kl. 14-18. Þórarínn Eldjárn Útgefandi er Forlagið, bókin er 144 bls. Steingrímur Eyfjörð Krístmundsson myndskreytti bókina og hannaði kápu. Prent- smiðjan Oddi hf. prentaði. Verð 2.680 krónur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.