Morgunblaðið - 29.10.1992, Page 15

Morgunblaðið - 29.10.1992, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1992 15 Morgunblaðið/Amór Njáll Benediktsson afhjúpar minnisvarða af Sigurði Brynjólfssyni Sívertsen stofnanda Gerðaskóla. Minnisvarðinn var settur upp við skólann 1989. Afmæli Gerðaskóla Myndlistarsýning og tónleikar í Garði Garði. ÞAÐ VERÐUR mikið um að vera í Garðinum um helgina og fram eft- ir vikunni. Gerðaskóli er 120 ára um þessar mundir og verður af því tilefni sýning i skólanum. Ellefu myndlistarmenn sýna verk sín um helgina og fimmtudaginn 5. nóvember koma Gunnar Kvaran og Gísli Magnússon og flytja verk eftir innlenda og erlenda tónlistarmenn. Yfirskrift sýningarinnar í Gerða- Eftirtaldir listamenn sýna verk skóla er „Skólinn og byggðin", en þar er vikið að ýmsum þáttum í sögu byggðarinnar, atvinnusögu, byggða- sögu, þjóðsögum o.fl. Á sýningunni má sjá dagbækur frá fyrstu tíð um skólagöngu nemenda og ýmislegt um kennsluhætti og aðbúnað í skólanum. Gerðaskóli var stofnaður af séra Sig- urði B. Sívertsen og er fyrsti skráði skóladagurinn 7. október 1872. Sýn- ingin verður opin kl. 8.15-17 á föstu- dag, kl. 11-16 á laugardag og kl. 11-17 á sunnudag. Samsýning myndlistarmannanna verður í Sæborgu, húsi verkalýðsfé- lagsins, og verður opin frá kl. 13-20.30 á laugardag og hálftíma skemur á sunnudag. sín: Bragi Einarsson, Þorsteinn Egg- ertsson, Sólveig Björk Gránz, Jóhann Jónsson, Þórður Kr. Kristjánsson, Helga Sif Jónsdóttir, Fanney Hauks- dóttir, Marta Markúsdóttir, Svan- hildur Eiríksdóttir, Anna Borg Walt- ersdóttir og Hrafnhildur Sigurðar- dóttir. Fimmtudaginn 5. nóvember kl. 20.30 verða tónleikar í Sæborgu, þá munu Gunnar Kvaran sellóleikari og Gísli Magnússon píanóleikari flytja verk eftir S. Prokofjev, Jón Nordal, Rakhmanínov, W.H. Squire, Gabriel Fauré og Saint Saéns. Kirkjukór Útskálakirkju syngur tvö lög í upphafi tónleikanna. - Amór Kvikmyndahátíðin Harðfiskur FOSTUDAGINN 29. október hefst kvikmyndahátíðin Harðfiskur í Háskólabíói á vegum Hreyfi- myndafélagsins. Hátíðin stendur í eina viku. Á vegum hátíðarinnar munu ýms- ir góðir gestir koma til landsins, þar á meðal franski leikstjórinn Claire Denis, bandaríski leikstjórinn Gregg Araki og bandaríski framleiðandinn Jim Stark. Jim Stark hefur verið framleiðandi mynda Jims Jarmusch og er nú að undirbúa samstarf sitt með Friðrik Þór Friðrikssyni. I fréttatilkynningu segir að nýj- asta mynd Jims Jarmusch, „Night on Earth“, sem vakið hefur athygli í Evrópu undanfarið, verði sýnd á hátíðinni-.Myndin gerist í fimm borg- um: Los Angeles, New York, París, Róm og Helsinki. Hún samanstendur af fimm sögum sem allar eiga sér stað samtímis í leigubílum í hinum mismunandi borgum. Með hlutverk í myndinni fara: Beatrice Dalle („Betty Blue“), Win- ona Ryder (úr „Mermaids“, er nú að leika í nýjustu mynd Copolla), Gena Rowlans (eiginkona Casavettis), Armin Mueller-Stahl, Giancarlo Esposito, Rosie Perez, Isaach de Bankhole og Roberto Benigni. Kvik- myndatökumaður er Fred Elmes, sem var tökumaður í „Blue Velvet" og „Wild at Heart“. Höfundurtónlist- ar er Tom Waits. Þijár kvikmyndir leikstjórans Greggs Arakis verða sýndar: „The Living End“, „The Long Weekend" og „Three Bewildered People in the Night“, sem allar eiga það sameigin- legt að vera „low-budget“ kvikmynd- ir og fjalla gjarnan um samband samkynhneigðra. „The Living End“ er nýjasta mynd Greggs og kostaði aðeins 2,5 milljón- ir í framleiðslu, en er samt dýrasta mynd hans. Hún ijallar um Luke og Jon, ungan óðan rithöfund, sem taka stefnulaust flug frá Los Angeles eft- ir að hafa orðið lögreglumanni að bana. Ferð þeirra þvert yfir Banda- ríkin má rekja af innbrotum sem þeir fremja á leiðinni. í kvikmynda- hátíðinni í Hamborg í september var Gregg Araki kynntur sem hug- myndaríkasti "og frumlegasti leik- stjóri hátíðarinnar. Claire Denis er franskur leikstjóri og myndir hennar, „No Fear, No Die“, „Chocolat" og stutfmyndin „Keep It to Yourself" verða sýndar. „No Fear No Die“ fjallar um Dah og Jocelyn. Dah er frá Bénin, en Jocelyn frá Vestur-Indíum. Jocelyn hefur komist yfir spænsku landa- mærin án erfiðleika og allt virðist ganga þeim í hag. Þau hafa gert samning sem á að gera þau moldrík. En eins og Jocelyn segir: Maður verð- ur að bíða og sjá, ekkert vit að freista gæfunnar um of. Alex Descas fer með hlutverk Jocelyn. Isaach de Bankoli með hlutverk Dah og einnig með hlutverk í „Night on Earth“. „In the Soup“, kvikmynd Alexand- ers Rockwells, fjallar um ungan kvik- myndaleikstjóra sem auglýsir eftir fjármagni í sína fyrstu kvikmynd og kemst þannig í samband við vafa- saman náunga. Sigrún Eðvaldsdóttir með hljómleika í Japan Sigrún Eðvaldsdóttir, fiðluleik- ari, heldur þrenna einleikstón- leika og kemur fram sem einleik- ari á tvennum sinfóníutónleikum dagana 28. október til 5. nóvem- ber í Japan. Tónleikarnir eru haldnir að frum- kvæði Japansk-íslenska vináttufé- lagsins og japanska íþróttadag- blaðsins, Sports Nippon. í fréttatilkynningu segir, að eftir því sem næst verður komist séu þetta fyrstu einleikstónleikar ís- lensks fiðluleikara í Japan. Undir- leikari hennar á einleikstónleikun- um verður Seiko Seki. Á fyrstu tónleikunum 28. október kemur Sigrún fram með Sinsei Nippon sinfóníuhljómsveitinni á tónlistarhátíð í Tsjúo-hverfi í Tokýó. Aðrir tónleikarnir eru 29. október, einkatónleikar við undirleik Seiko Seki í Nagano-borg. Þriðju tónleik- arnir eru á sunnudaginn 1. nóvem- ber. Þá spilar Sigrún með skóla- hljómsveit Kunitachi tónlistarhá- skólans í Tókýó. Fjórðu tónleikamir eru einkatónleikar í Tókýó 2. nóv- ember. Fimmtu og síðustu tónleik- arnir eru einleikstónleikar í Shizu- oka-borg skammt frá Tókýó. BÍLALE/GA Úrval 4x4 fólksbila og statlon bfla. Pajero jeppar o.fl. teg. Pickup-bílar með einf. og tvöf. húsi. Minibussar og 12 sæta Van bílar. Farsímar, kerrur f. búslóðir og farangur og hestakerrur. Reykjavík 686915 interRent Europcar BÍLALEIGA AKUREYRAR Fáðu gott tilboð! • Skoski sekkjapípuleikarinn Robert MacKintosh • Gordon Rimes sýnir stórfengleg flóttaatriði, auk þess að skemmta börnunum ítrúðagerfi sínu • Listakonan Helen Cooper málar á silki • Lafði Christobel og einkaþjónn hennar, vafasamir fulltrúar breska aðalsins! • Grínleikarinn Adrian Kay sem meðal annars leikur Charlie Chaplin fyrir gesti Borgarkringlunnar Tveggja hæða Lundúna- strætisvagn með áætiunarferðir ^ í Borgarkringluna - Ókeypis fyrir alia Vagninn ekur um götur Reykjavíkur og verður á hálftíma fresti í Borgar- kringlunni. Við tökum farþega við Arnarhól 15 mín. yfir heila tímann og í Mjódd 15 mín. fyrir heila tímann Spennandi Sherlock Holmes leikur Takið þátt í spennandi /f qo.q Sherlock Holmes leik Borgarkringlunnar og Bylgjunnar. Nauðsynlegt GOH ÚIVARP er að nálgast þátttökublöð í Borgar- kringlunni. Veglegir vinningar í boði, m.a. Lundúnaferð fyrir tvo. Veiifi velkoniin Opið mánudaga - fimmtudaga kl. 10.00 -18.30 Föstudaga kl. 10.00 -19.00 Laugardaga kl. 10.00 -16.00 og sunnudaga kl. 13.00 -17.00, meðan á Bretlandsveislunni stendur. Bnstakt tækifæri til að gera góð kaup og njóta breskra lystisamda Verslanir Borgarkringlunnar bjóða nú breskar vörur á vildarkjörum. Þú þarft ekki að fara lengra en í Borgarkringluna til að komast í breska stemmingu og fá breska vöru á einstöku verði! Mikill fjöldi breskra og íslenskra listamanna mun skemmta gestum dag hvern. Meðal gesta okkarfrá Bretlandi eru:

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.