Morgunblaðið - 29.10.1992, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1992
19
ÉjSBS*' ,SS£ í MMWfiéi
H> ass v
Elliheimilið Grund.
fyrirsvari þessara gjörða var séra
Sigurbjörn Ástvaldur Gíslason, en
með honum og í fyrstu stjóm voru
þeir Flosi Sigurðsson trésmíða-
meistari, Haraldur Sigurðsson
verslunarstjóri, Júlíus Árnason
kaupmaður og Páll Árnason kaup-
maður. Þörfín var brýn og knýjandi
og starfsemi óx og efldist fyrir dug
og óbugandi vilja frumheijanna.
Flutt var í nýreist hús við Hring-
braut árið 1930, sem síðan hefur
verið aukið við sem árin liðu og
reyndar byggt einnig upp í öðru
sveitarfélagi, austur í Hveragerði,
í sama skyni, svo sem kunnugt er.
Þúsundir landsmanna hafa notið
skjóls, eignast heimili og aðhlynn-
ingu á téðum stöðum á umliðnum
árum og löngum var Elli- og hjúkr-
unarheimilið Grund nær eini kostur-
inn, þeim er öldrunarheimili þurftu,
allt til Hrafnistu í Reykjavík tók til
starfa árið 1957.
Farsællega er óhætt að segja að
mál og efni hafa fram gengið á
Grund alla tíð. í upphafi vega og
við aðdraganda heimilisstofnunar
var starfað í nafni miskunnsama
Samveijans og af kristinni hugar-
sýn og tilfinning var elliheimilið
stofnað og á sömu lund hygg ég
að hafi einnig búið að baki hveiju
átaki og aukning sem orðið hefur
fyrir tilstuðlan mannsins sem að
löngum hefur haft með höndum
forsjá og rekstur. Og um leið og
ég minnist hér með þessum línum
merkra tímamóta í sögu Grundar,
þá vil ég senda Gísla Sigurbjöms-
syni forstjóra bestu heillaóskir, en
hann er 85 ára sama dag og Grund
fyllir sjöunda tuginn, en Gísli er
fæddur árið 1907, sonur þeirra séra
Sigurbjarnar Ástvalds Gíslasonar
og konu hans Guðrúnar Lárusdótt-
ur. Hann tók við sem forstjóri Elli-
og hjúkrunarheimilisins Grundar,
haustið 1934 og hefur jafnframt
stýrt starfseminni í Hveragerði síð-
an Elliheimilið Ás tók til starfa
1952. Gísli Sigurbjömsson er ennþá
við stjórnvölinn eftir 68 ára um-
sjón, hygg ég að slíkur starfsaldur
við þannig verk muni fátíður. Gísli
er vakinn og sofinn í að hyggja að
velferð skjólstæðinga sinna og hvað
má betur fara í forsjá og aðhlynn-
ingu. Sé litið um öxl þá munu flest-
ir sem nokkur skil kunna á Grund
og Ásum vita að Gísla hefur auðn-
ast að reka heimilin af sérstökum
myndarbrag, en jafnframt fyrir-
hyggju og á traustum grunni og
tiltekið er hvílík snyrtimennska rík-
ir hvarvetna svo vandfundin mun
hirðusemi og regla til jafnaðar. Og
óhætt er að segja um aldinn heið-
ursmann að hann býr að fijórri
hugsun og framsýnni vitund en
gerist og gengur. Þessa þátta í
eðlisgerð hefur gætt í framkvæmd-
um hans um dagana, störfum hans
og hugðarefnum og þessa gætir í
viðræðum við hann hvað sem um
er rætt, allsstaðar er hann heima
og fullur áhuga, hugmynda og leiða,
hvort heldur ber á góma þjóðmálin,
rekstur ríkis eða fyrirtækja, vís-
indaverkefni, trú og kirkjumál, hug-
ur hans er ætíð að starfi við úr-
lausn nýrra viðfangsefna, í leit úr-
ræða fyrir sitthvað í daglegri sýsl-
an, eða viðkomandi hag lands og
þjóðar. Störfín að baki eru giftu-
söm, ráð hans hafa gagnast mörg-
um og hjálparhönd hans stutt víðar
við en talið verði. En allra mest
hefur hann gott gert í þágu þeirra
sem kvöldlúinn sótti að og þurftu
aðhlynning og skjól. Ég sendi Gísla
Sigurbjörnssyni forstjóra hamingju-
óskir á tímamótum, sem og hans
mætu eiginkonu Helgu Björnsdótt-
ur. Fjölskyldunni allri, stjóm
Gmndar, starfsfólki og heimilisfólki
bið ég heilla á sjötíu ára hátíð
Grundar. Megi gifta og blessun.
hvíla yfír fram um veg sem hingað
til.
Guðmundur Óskar Ólafsson.
Hitaveita Reykiavíkur
Erum vel
undir vetur-
inn búin
- segirGunnar
Kristinsson hita-
veitustjóri
„VIÐ erum mjög vel undirbúnir
fyrir veturinn," sagði Gunnar
Kristinsson hitaveitustjóri í upp-
hafi vetrar. Heitavatnsþrýstingur
á vatni til Kópavógs og Hafnar-
fjarðar mun fljótlega verða kom-
inn í eðlilegt horf eða um leið og
Suðuræð Hitaveitunnar, verður
tekin í notkun á næstu vikum.
Nesjavallavirkjun, var lokuð um
tíma í sumar að venju á meðan farið
var yfír vélabúnaðinn. „Það er langt
síðan lokið var við að hreinsa allar
útfellingar úr rörunum," sagði Gunn-
ar. „Þær eru ekki lengur til og ekki
ástæða til að óttast kuldakast þegar
við höfum 140 megavött að austan."
100 megavött voru tekin í notkun
í september árið 1990 þegar Nesja-
vallavirkjun var sett í gang og 40
megavött bættust við í fyrra en
næsti áfangi, sem er 50 megavött
verður tekinn í notkun í fyrsta lagi
árið 1994. „Það liggur ekkert á því
við erum mjög vel settir,“ sagði hita-
veitustjóri. „Og svo höfum við vara-
stöðina, sem hægt er að grípa til dag
og dag. Það er ekkert stórmál að
eyða nokkrum milljónum króna í olíu
á ári og getur borgað sig í stað mik-
illa fjárfestinga á Nesjavöllum."
fitubrennslu
og pú ncerö áncegjulegunt úrangri
hefst 31. október
- mæting 5x í viku í leikfimi
- fitumælingar og vigtun
- fræðslufundur
— matardagbók þétttakendur skila matardagbók og fi
umsögn og réðgjöf um breytt mataræði
- Ijúffengar mataruppskriftir m. léttu fæði
Kr. 8.800
OplA i dag
kl. 12-16.
- aðhald og hvatning
Skemmtilegir tímar í góöum félagsskap og þú losnar viö óvelkomna fitu
og lærir aö tileinka þór nýjan lífsstíl svo aö aukakílóin veröi ekki framar
vandamál. Þú færö allar upplýsingar í síma 68 98 68.
ir Morgunhópur
★ Daghópur
★ Kvöldhópur
★ Vaktavinnufólk velkomið
★ Bamagæsla
STODlÖ JÖNlNU & AGOSTU
Odútt? Olafsílóttir,
Ecida Sigurbergsdóttir og
Ingibjörg Siguröardóttir
misstu sarntals
34 hg afjitu.
LOtamsrœht er nti
peirra IffsstílL
ÁRAIMGURSRÍKAR SÖLUAÐFERÐIR
Markmið markaðsfræðinnar er að skilja þarfir neytenda og
þá þætti í umhverfinu sem hafa áhrif á þá. Sölumenn verða
að hafa þekkingu á þörfum neytandans til þess að skilja kaup-
hegðun hans. Hvers vegna kaupir neytandinn ákveðna vöru?
Á námskeiðinu verður fjallað um:
★ Neytendur og þarfir þeirra.
★ Sölustjórinn - söiumennirnir
★ Staðsetning vöru
★ Að loka sölunni
★ 30 sölugullkorn
Leiðbeinandi: Bæring Ólafsson,
sölustjóri Vífilfells.
Tími: 9. og 10. nóvember
kl. 13.00-18.00 í húsa-
kynnum Stjórnunarfélags-
ins í Ánanaustum 15.
A
Stjómunarfélag Islands
Ánanaustum 15,
sími 621066.
Panasonic MC-E655
# Létt 02 meðfœrileg (4.6 kg.)
® 1000 w/motor
# Fylgihlutir geymdir í ryksugunni
# Inndraganleg snúra
NOVEMBERTILBOÐ
JAPISS
/ BRAUTARHOLTI 2
^ KRINGLUNNI
Panasonic M-5452
með sjálfvirkri affrystingu
SIMI 625200