Morgunblaðið - 29.10.1992, Síða 21

Morgunblaðið - 29.10.1992, Síða 21
21 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUpAGUR 29. OKTÓBER 1992 18. þing Sjómannasambands íslands Allur afli innanlands fari á fiskmarkaði Stórt hagsmunamál fyrir okkur að koma þessu í gegn, segir Sævar Gunnarsson í FRAMSÖGURÆÐU um atvinnu- og kjaramál á þingi Sjómanna- sambandsins kom fram hjá Sævari Gunnarssyni frá Grindavík að eitt af stóru hagsmunamálum sjómanna í dag væri að allur afli heima fyrir fari í gegnum fiskmarkaði. „Við verðum að berj- ast eins og ljón fyrir þessu,“ segir Sævar. Og í drögum að álykt- un þingsins um kjara- og atvinnumál er þessi krafa sett fram í fyrstu málsgrein þar sem segir m.a. að þingið skori á stjórnvöld að vinna að því að innan tíðar fari allur afli sem seldur er innan- lands í gegnum fiskmarkaði. í máli Sævars kemur fram að með þessu er verið að vinna gegn þeirri tilhneigingu einstakra útgerðar- manna til að draga kostnað vegna kvótakaupa frá launum sjómanna. í síðustu kjarasamningum var að vísu samþykkt bókun þar sem stemma á stigu við þessu en Sævar segir að blekið á þeirri bókun hafi vart verið þornað er útgerðarmenn fóru að leita leiða framhjá henni. Sævar kynnti þau drög sem nú liggja fyrir um atvinnu- og kjaramál en í þeim er m.a. að finna harðorð mótmæli gegn hugmyndum um fjölg- un skattþrepa, öllum hugmyndum um auðlindaskatt er hafnað, mót- mælt er þeirri ákvörðun stjómvalda að styrkja útgerðina með beinum peningagreiðslum til að mæta sam- drætti í þorskveiðum og ekki komi annað til greina en að úthluta afla- heimildum Hagræðingarsjóðs beint í stað þess að selja þær. Margir tóku til máls um kjaramál- in, þeirra á meðal Elías Björnsson frá Vestmannaeyjum. Hann kynnti tillögur sjómannafélagsins í Vest- mannaeyjum í þessum málaflokki en í þeim er skorað á Alþingi að setja lög um að allur fiskur verði seldur á fiskmörkuðum eða verð á honum markaðstengt, að óheimilt verði að draga frá kaupverð kvóta áður en afli kemur til skipta og framsal á aflaheimildum verði einnig óheimilt. Sigurður Ólafsson frá ísafirði seg- ir að hann telji að sjómannasamtökin eigi í næstu kjarasamningum að taka það besta úr þeim þremur kjara- samningum sem í gildi eru fyrir sjó- menn, þ.e. samningar sem gerðir hafa verið á Vestfjörðum og Aust- fjörðum auk ASÍ-samkomulagsins og steypa þeim saman í einn samn- ing. Sjómenn eigi síðan að vera reiðu- búnir til að berjast fyrir þessu sam- komulagi og tilbúnir í verkfall hinn 1. mars á næsta ári takist ekki að ná því í gegn. Margir tóku undir þennan málflutning. Eitt af þeim málum sem komu ti! umræðu á þinginu í tengslum við þennan málaflokk var fækkun sjó- manna á sumum togurum úr 15 manns í 13 að kröfu stjórnenda um borð. Við þetta hækkaði að vísu hlut- ur sjómanna um rúm 11% að raun- gildi en á móti eykst vinnuframlag um rúm 12%. Hinsvegar hafi þetta í för með sér að slysahætta eykst um borð og alvarlegt ef útgerðar- menn geta notfært sér þetta er fram í sækir til að lækka skiptaprósent- una. Konráð Alfreðsson segir að hann geti tekið undir þau sjónarmið sem fram komu hjá Sigurði Ólafssyni. Sjómenn séu búnir að láta beija á sér alltof lengi án þess að fá nokkuð í staðinn. Það sé kominn tími til að sýna hörku í samningum. Hólmgeir Jónsson framkvæmda- stjóri Sjómannasambandsins segir að menn skuli fara varlega í kröfum sínum um að ekki verði fækkað á fiskiskipum. Hann bendir á fækkun hafi orðið um borð í mörgum skipum að kröfu sjómanna sjálfra til að hækka skiptaprósentuna. Sem dæmi nefndi hann skip af stærðinni 201 til 240 lestir en samkvæmt kjara- samningi er gert ráð fyrir 14 mönn- um um borð í þessum skipum. í raun séu þeir í flestum tilfellum 6-7 tals- ins. Morgunblaðið/Sverrir Óskar Vigfússon, formaður SSÍ, á tali við Þorstein Pálsson sjávarút- vegsráðherra á 18. þingi SSI. Öryggismálin í brennidepli Þurfum stöðuga umræðu um öryggismál til að árangur náist, segir Óskar Vigfússon formaður SSÍ í ÁVARPI sem Óskar Vigfússon, fprmaður Sjómannasambands ís- lands, flutti við setningu 18. þings SSÍ á Hótel Sögu í gærmorgun kom fram að öryggismál sjómanna yrðu í brennidepli á þessu þingi. Óskar segir að sjómenn þurfi stöðuga umræðu um öryggismálin til að árang- ur náist. Hann harmaði þá tregðu sem verið hefur á framkvæmd kaupa á nýrri björgunarþyrlu til Landhelgisgæslunnar. „Eg spyr hvort íslenskir sjómenn þurfi að bíða eftir stórslysi til að ný björgunar- þyrla verði keypt,“ segir Óskar. Sljórnarkjör verður á þinginu í kvöld, fimmtudagskvöld, og er komið framboð gegn Óskari í stöðu formanns frá Konráð Alferðssyni, formanni Sjómannafélags Eyjafjarðar. Fyrir liggur að Guðmundur Hallvarðsson mun ekki gefa kost á sér i stöðu varaformanns áfram en Sævar Gunnarsson frá Grindavík hefur hug á þeirri stöðu. Óskar Vigfússon ræddi nokkuð um hina erfiðu stöðu sem sjávarút- vegurinn er í nú til dags og segir að bágborið efnahagsástand bitni ekki síður á sjómönnum en öðrum, aflasamdráttur, þung staða á mörk- uðum og óhagstæð gengisþróun leiddi til versnandi afkomu sjávarút- vegsfyrirtækja. Atvinnuleysi færi vaxandi og ætti eftir að aukast enn væri ekkert að gert. „Kjaraumræðan hlýtur að taka mið af þessu ástandi og það er ljóst að ekki verður mikið að sækja í vasa útgerðarinnar í kjaraviðræðunum á næsta ári,“ seg- ir Óskar. Hann nefndi hinsvegar að það væru mörg önnur mál sem úr- lausnar þyrftu við í næstu kjaravið- ræðum, ekki síst hvað varðar nýjar veiðigreinar og nýjar verkunarað- ferðir. Það þyrfti að komast á hreint hvernig borga á fyrir vinnununa á þessum sviðum. Lífeyrissjóðir sjómanna fá 340-350 milljónir úr V er ðj öfnunar sj óði Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra, Ásmundur Stefánsson for- seti ASI, Guðjón A. Kristjánsson formaður Farmanna-og fiskimanna- sambandsins og Helgi Laxdal for- maður Vélstjórafélagsins ávörpuðu þingið. í máli sjávarútvegsráðherra kom m.a. fram að nú stendur fyrir dyrum að leggja Verðjöfnunarsjóð niður og að unnið er að gerð laga- og reglubreytinga þess efnis í ráðu- neytinu. Hann gat þess að lífeyris- sjóðir sjómanna myndu fá útborgað úr sjóðnum, alls 340-50 milljónir króna. í máli sínu kom Þorsteinn Pálsson inn á öryggismálin og segir að mik- illi undirbúningsvinnu vegna þyrlu- kaupa hafi verið lokið í sumar og haust og það hafi verið von stjórn- vaida að kaupsamningur lægi fyrir að því loknu. Við ríkjandi efnahags- ástand hafi hinsvegar ekki verið tal- ið hægt að auka rekstrarkostnað Landhelgisgæslunnar á næsta ári. Bæði Þorsteinn Pálsson og Ás- mundur Stefánsson ræddu ítarlega um hið erfiða efnahagsástand sem nú er ríkjandi í þjóðfélaginu. Ás- mundur segir að við núverandi að- stæður komi gengisfelling ekki til greina. Hún þyrfti að vera á bilinu 15-20% og þýddi um 7% skerðingu á kaupmætti. Og ein gengisfelling kallaði á aðra og þá skrúfu væri erfitt að stöðva. Því væri rökrétt að leita allra leiða til að lækka kostnað fyrirtækja og halda áfram þeim stöð- ugleika sem náðst hafi. í máli Ásmundar kom fram að hann hefur áhyggjur af þeirri þróun sem er að eiga sér stað með aukinni frystitogaravæðingu útgerðarinnar. Með henni sé verið að færa vinnu frá landverkafólki út á sjó. „Ég ótt- ast afleiðingamar af þessari stefnu fyrir okkur í landi og fiskvinnsluna hér,“ segir Ásmundur. í lokin gat Ásmundur þess að þetta þing væri hið síðasta sem hann ávarpaði sem formaður ASÍ enda lætur hann af því starfi á næsta ári. Ásmundur hefur setið flest öll þing SSÍ frá því hann var formaður ASI og áður sem hagfræðingur sambandsins. Að loknu máli hans risu þingfulltrúar úr sætum sínum og hylltu hann með lófataki. HLBOÐ VIKUNNAR SUNKIST \PPELS1NUDJUS með hbistara 279,- AðvíR 459,- HAGKAUP - aUt í eintti ferð

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.