Morgunblaðið - 29.10.1992, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1992
31
Morgunblaðið/Kristinn
Lionsmenn styrkja Stígamót
Lionsklúbburinn Ægir hefur styrkt starfsemi Stígamóta, sem er
fræðslu- og ráðgjafamiðstöð um kynferðislegt ofbeldi, með 20 tommu
sjónvarpstæki, myndbandi, myndbandsupptökuvél og þrífæti að verð-
mæti 190 þúsund krónur. Tækjakosturinn kemur sér vel og verður
nýttur í kennslu og í daglegum rekstri miðstöðvarinnar. Ásgerður Sig-
urðardóttir og Margrét Steinarsdóttir tóku við gjöfinni fyrir hönd Stíga-
móta. Frá Lionsklúbbnum Ægi voru Einar Bjarnason formaður, Krist-
inn Eymundsson og Hafsteinn Gunnarsson.
Rannsóknastofnun
landbúnaðarins
Nýtt húsnæði
Bútæknideild-
ar í notkun
Hvanneyri.
VIÐ hátíðlega athöfn afhenti
framkvæmdadeild Innkaupa-
stofnunar ríkisins lykil að nýju
húsi fyrir bútæknideild Rann-
sóknastofnunar landbúnaðarins
á Hvanneyri sem síðan gekk boð-
leiðina til forstöðumanns bú-
tæknideildar, Grétars Einarsson-
ar.
í ræðum gesta kom fram nauð-
syn þessa húss og að starfsemin frá
stofnun deildarinnar hafí notið
trausts bænda og annarra sem til
hennar sóttu ráð og samvinnu.
Húsinu bárust gjafír, m.a. myndir
af fyrsta forstöðumanni bútækni-
deildar, Ólafí Guðmundssyni, og
ráðsmanni Bændaskólans á þeim
Kvennalistinn
Landsfundur á Laugarvatni
LANDSFUNDUR Kvennalistans
1992 verður haldinn á Laugar-
vatni dagna 30. október til 1.
nóvember. Fundir verða í barna-
skólanum á Laugarvatni en
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá BSRB:
„Á sama tíma og rætt er um að
skera niður samneyslu, létta skött-
un af fyrirtækjum og auka álögur
á almenning verður ekki vart neinn-
ar viðleitni af hálfu sijórnvalda til
að jafna skattheimtu á meðal þegn-
anna jafnvel þótt kveðið hafi verið
á um slíkt í síðustu kjarasamning-
um.
Samkvæmt skýrslum sem unnar
voru á vegum fjármálaráðuneytis
um miðjan síðasta áratug er áætlað
að hátt í 30 milljarðar króna á nú-
virði séu á sveimi í efnahagskerfinu
án þess að vera gefnir upp til skatts.
fundargestir gista í Iþróttamið-
stöðinni.
Landsfundur verður settur á
föstudagskvöld kl. 20.15. Þá um
kvöldið hefst umræða um evrópskt
Þetta eru um 7% af landsfram-
leiðslu. Ef þessir peningar skiluðu
sér í sköttum væru það um 10 millj-
arðar króna eða um 10% af fjárlög-
um og munar um minna.
Skattsvik eiga ekki að líðast og
er sú krafa gerð til stjómvalda að
skattaeftirlit verði nú stóreflt og
ekki látið sitja við orðin tóm. I
tengslum við kjarasamninga síðast-
liðið vor var ákveðið að skipa nefnd
til að gera tillögur um bætt skatta-
eftirlit. Sú nefnd hefur ekki enn
verið kölluð saman og er það undr-
unarefni á sama tíma og stjómvöld
munda niðurskurðarhnífa í sam-
neyslunni."
efnahagssvæði, en henni verður
fram haldið daginn eftir. Á laugar-
dag hefst fundur kl. 9.30 með því
að lögð verður fram skýrsla fram-
kvæmdaráðs og reikningar. Því
næst ræðir Jóna Valgerður Krist-
jánsdóttir, _ þingkona, stjórnmála-
ástandið. Á laugardag verða síðan
tekin fyrir ríkisfjármál, atvinnu-
ástandið og sveitarstjórnamál, svo
eitthvað sé nefnt. Síðdegið nýta
konur til hópvinnu, skrafs og ráða-
gerða. Á sunnudag verða kynntar
tillögur að breyttu skipulagi mál-
efnavinnu innan Kvennalistans. Þá
verður einnig almenn umræða um
ályktanir og þær afgreiddar.
Tvö hádegisverðarerindi verða
flutt á landsfundinum. Á laugardag
talar Sigrún Helgadóttir, umhverfís-
fræðingur, um jörðina og okkur.
Og á sunndag verður Kristín Einars-
dóttir, þingkona, með erindi um
umhverfísráðstefnuna í Rio de Jan-
ero fyrr á árinu. Það erindi ber heit-
ið Ríó í máli og myndum.
Athygli er vakin á rútuferð frá
BSÍ kl. 17.55 á föstudag. Fundurinn
er opinn öllum kvennalistakonum.
BSRB vill jafna skatta-
álögnr meðal þegnanna
Morgunblaðið/Diðrik Jóhannsson
Frá afhendingu húsnæðis bútæknideildar.
árum, Guðmundi Jóhannessyni. Það innflutning og prófun búvéla.
eru nær eitt hundrað ár síðan - D.J.
Bændaskólinn hafði forgöngu með
Dvalarheimilið Jaðar fær þrekhjól
í tilefni af tuttugasta starfsári Lionsklúbbs Ólafsvíkur færði klúbb-
urinn dvalarheimilinu Jaðri þrekhjól að gjöf til afnota fyrir vistmenn
þess. Myndin sýnir Guðríði Hansdóttur, vistmann á dvalarheimilinu
Jaðri, prufukeyra hið nýja þrekhjól. Að baki henni stendur Friðrik
Hjartarson, formaður Lionsklúbbs Ólafsvíkur.
Vogavík starfar áfram
Vognm.
FRAMTÍÐ laxeldisstöðvarinnar Vogavíkur í Vogum hefur verið í
mikilli óvissu undanfarið en nýverið var ákveðið að halda rekstrinum
áfram. Hjá fyrirtækinu starfa 6-7 manns í vetur en heldur fleiri á
sumrin eða 10-12 manns.
Hrognataka stendur yfir þessa
dagana þar sem um þijár milljónir
hrogna eru teknar til framleiðslu
seiða sem síðan verður sleppt í sjó
vorið 1994. Stefnt er að því að fá
10-12 þúsund seiði. Sesselja Guð-
mundsdóttir stöðvarstjóri segir það
heldur minna magn en undanfarin
ár enda markmiðið að hafa heldur
færri seiði en betri.
- E.G.
Amerískir hvfldarstólar
Ruggustóll
hvíldarstóll
og jafnvel svefnstóll
ALLT ÞETTA I EINUM OG SAMA STOLNUM
Verð frá kr.
38.000r-
afb verð
Marco
húsgagnaverslun
Langholtsvegi 111, sími 680 690