Morgunblaðið - 29.10.1992, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1992
35
Reynir Gístí Péturs-
son - Kveðja
Fæddur 23. nóvember 1991
Dáinn 21. október 1992
Frændi okkar, Reynir Gísli Péturs-
son, lést á bamadeild Landakotsspít-
ala miðvikudaginn 21. október sl.
Reynir fæddist 23. nóvember 1991
og var sonur Ástu Maríu Reynisdótt-
ur og Péturs Áma Rafnssonar.
Á sinni stuttu ævi hefur Reynir
litli náð að auðga líf okkar allra.
Minningin um hann mun lifa að eilífu.
Ég fagna þér svanur, sem flýgur hátt
á ferð þinni um himingeiminn.
Sjálfur varð ég að lúta lágt
var lítill drengur og feiminn.
Þú flugdjarfi svanur ég flýg með þér
í frelsið og morgunroðann
það er svo skammt sem augað sér
í umheiminn til að skoð’ann.
(Geir G. Gunnarsson.)
Við biðjum góðan Guð að geyma
elsku litla frænda okkar og styrkja
foreldra hans í sorg þeirra og sökn-
uði.
Guðjón Karl Reynisson,
Li(ja Birna Arnórsdóttir,
Helena Guðjónsdóttir.
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesús, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér.
Litli drengurinn þeirra Ástu
Maríu og Péturs er dáinn aðeins
11 mánaða gámall. Reynir Gísli
átti við erfíð veikindi að stríða þann
stutta tíma sem hann fékk að lifa,
við vitum að nú er því stríði lokið
og að honum líður vel þar sem hann
er nú geymdur.
Elsku Ásta María og Pétur, við
sendum ykkur og fjölskyldum ykk-
ar, okkar dýpstu samúðarkveðjur.
Meistaraflokkur kvenna
Breiðabliks.
Haukur Morthens
söngvari — Minning
„Þetta er tónlist sem mér líkar,“
heyrðist í mömmu þegar Haukur
Morthens söng „Heim í heiðardalinn"
í útvarpið. Ekki þannig að hún vænti
mikils stuðnings þegar rokkið og
Presley áttu hug og hjörtu ungu
kynslóðarinnar. Sjálf hafði hún áður
dregið okkur ítrekað í Stjörnubíó til
þess að gráta úr sér augun út af
kamelíufrúnni í La Traviata. Hauki
Morthens kynntust margir í gegnum
útvarpið og þótt hann væri ekki rokk-
ari eða Alfredo náði list hans til allra.
Kynni mín af Hauki Morthens
urðu meiri en í gegnum útvarpið.
Þegar Heiðardalurinn og Lóa litla á
Brú gagntóku þjóðina ákváðu tveir
skólastrákar að gefa út tónlist-
artímarit. „Do re mí“ hét það og leið-
in lá til Hauks, sem skrifaði þá tón-
listarþátt fyrir Tímann. Ritið kom
bara einu sinni út, en Haukur tók
okkur vel.
Svo var það pólitíkin. í þijátíu ára
samfelldri hugsjónabaráttu minni í
Alþýðuflokknum höfum við Haukur
alltaf verið í sömu klíkunni. Ekki var
það af heimssögulegum heimspeki-
straumum eða meiri háttar innan-
landsátökum. Við enduðum einfald-
lega alltaf saman í prófkjörum,
sveitastjómarkosningum, Alþingis-
kosningum, á landsþingum og árshá-
tíðum. Við vorum saman í skemmti-
nefnd með Emmu, í stjóm flokksfé-
lagsins hér í Reylq'avík og meira að
segja líka á ættarmótum Lækjar-
botnaættarinnar uppi í Landsveit.
Mæður okkar vom nefnilega
frænkur. Þegar Haukur hélt þúsund-
unum föngnum og lét þjóðina taka
andvörp af hrifningu með tónblæ,
augnlyftingu eða fótsveiflu, þá
fannst mér ekkert eðlilegra vegna
uppeldisáhrifa sveitar með Heklu við
höfðalagið, landskjálftana sem
mggustól og kliðinn af Þjórsá og
Rangá beggja vegna. Hvaðan listin
kemur getur enginn svarað, list er
það sama og að vera maður. Alveldis-
sálin, friðurinn, huggunin, gleðin og
endurlausnin, allt þetta gaf Haukur
í list sinni og svo miklu meira, hvort
sem við kynntumst honum í gegnum
útvarp, á ættarmótum eða allt þar á
milji.
Ég votta konu hans, sonum, fjöl-
skyldu, ættingjum og vinum mína
dýpstu samúð. Yndislegum vini, fé-
laga og frænda bið ég guðs bless-
unar og friðar við móðurskaut.
Guðlaugur Trygg-vi Karlsson.
+
Þökkum auösýnda samúð við fráfall móður okkar,
MARGRÉTAR ÞÓRÐARDÓTTUR,
Hvassaleiti 42.
Þórður Rafn Guðjónsson,
Katrin Hlíf Guðjónsdóttir,
Jón Hlfðar Guðjónsson.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og út-
för eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa,
ÞÓRARINS LOFTSSONAR,
Nýbýlavegi 102,
Kópavogi,
áðurtil heimilis
á Hólabraut 19,
Akureyri.
Valný Eyjólfsdóttir,
Ragna Þórarinsdóttir, Þorgrfmur Magnússon,
Steinþór Þórarinsson, Laufey Jóhannsdóttir -
og barnabörn.
_____________Brids__________________
Umsjón Arnór G. Ragnarsson
Stórmót í Sandgerði
Stórmótin í Sandgerði eru að verða
einhver stærstu mót landsins en það
verður haldið um helgina og þegar
síðast fréttist höfðu um eða yfir 50
pör skrá sig til keppni. Eitt yngsta
bridsfélag landsins, bridsfélagið Mun-
inn stendur fyrir þessum mótum í
samvinnu við Samvinnuferðir/Land-
sýn.
Mótið verður á laugardaginn kemur
í Iþróttahúsinu í Sandgerði og hefst
kl. 10 um morguninn og áætlað að
því ljúki kl. 20-21 um kvöldið. Spilað
verður eftir Michell eða hipp-hopp fyr-
irkomulagi eftir fíölda þátttakenda.
Heildarverðlaun eru tæplega 300
þúsund kr. en 1. verðlaun eru 120
þúsund og 2. verðlaun 80 þúsund kr.
Spilagjald er 6000 kr á par. Keppn-
isstjóri verður Kristján Hauksson.
Veitingar verða á staðnum og frítt
kaffí.
Skráning er hjá Bridssambandinu í
síma 689360 eða hjá Eyþóri í síma
92-37660/37788.
Bridsdeild
Barðstrendingáfélagsins
Úrslit úr Aðaltvímenningi
(5 kvölda).
Hannes Ingibergsson - Jónína Halldórsd. 858
Ragnar Bjömsson — Leifur Jóhannsson 838
GunnarPétursson-AllanSveinbjömsson 833
ÞórarinnÁmason-GísliVíglundsson 831
BjömÁmason-EggertEinarsson 815
ÁsthildurSigurgíslad.-LámsAmórsson 813
Úrslit úr A-riðli síðasta spilakvöld:
RagnarBjömsson-LeifurJóhannsson 177
ÞórarinnÁmason-GísliVíglundsson 174
PéturSigurðsson-ViðarGuðmundsson 174
Úrslit úr B-riðli:
Jón Ingi Jónsson - Gunnl. Gunnlaugss. 228
ÞorleifurÞórarinsson-JóhannLúthersson 191
SkarphéðinnLýðsson-GuðbjömEiríksson 173
Ekki verður spilað hinn 2. nóvem-
ber nk. Hraðsveitarkeppni hefst mánu-
daginn 9. nóvember. Spilastjóri er ísak
Öm Sigurðsson. Þátttöku er hægt að
tilkynna til ísaks í síma 632820 á
vinnutíma, og 32482 á kvöldin og í
síma 71374 á kvöldin, Ólafur.
+
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur vináttu og samúð við
andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu,
GUÐMUNDÍNU SIGURVEIGAR STEFÁNSDÓTTUR,
Blönduhlíð 6,
Reykjavík.
Sigurður Sigurðsson, Sæunn Andrésdóttir,
Unnur S. Vilbergsdóttir, Gunnar M. Hansen,
Hafdfs Steingrímsdóttir, Hafliði Kristbjörnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu, móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
JÓNÍNU MAGNÚSDÓTTUR,
Holtastfg 4,
Bolungarvík.
Jón Kr. Guðnason,
Karítas I. Jónsdóttir, Birgir Bjarnason,
Jónfna Birgisdóttir,
Lárus G. Birgisson, Hugrún Alda Kristmundsdóttir,
Guðný Eva Birgisdóttir, Jóhann Hákonarson,
og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir til allra, sem auðsýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
EYJÓLFS JÓNSSONAR
lögfræðings.
Sérstakar þakkir fá þeir fjölmörgu, sem
sýndu honum tryggð og vináttu í veik-
indum hans.
Guðrun Guðgeirsdóttir,
Katrín Eyjólfsdóttir, Ármann Gunnlaugsson,
Vigdfs Eyjólfsdóttir, Guðjón Elíasson,
Brynjólfur Eyjólfsson,
Guðgeir Eyjólfsson, Kristfn Ingibjörg Geirsdóttir
og barnabörn.
r .. ^
■ Bamaheill
Ráðstefna um
Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna
verður haldin á vegum Barnaheilla í samvinnu við Rauða kross íslands
dagana 30. til 31. október 1992. Ráðstefnustaður er Vinabær (gamla Tóna-
bíó) og ráðstefnugjald kr. 1.500.-
Vinsamlegast skráið þátttöku í síma 680545.
DAGSKRÁ:
Föstudagur 30. október 1992
13:00 - 13:10 Nemendur í Suzuki-skólanum leika á hljóðfæri.
13:10 - 13:20 Steinunn Þórðardóttir 15 ára flytur ávarp.
13:20 - 13:30 Arthur Morthens, formaður Barnaheilla, setur ráðstefnuna.
13:30 - 14:00 Tilurð Barnasáttmálans, vægi hans og hlutverk. Hvaða skyldur leggur Barnasátt-
málinn stjórnvöldum á herðar? Guðmundur Eiríksson, þjóðréttarfræðingur.
14:00 - 14:30 Verkefni íslenskra stjórnvalda í kjölfar fullgildingar Barnasáttmála Sameinuðu
þjóðanna. Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra.
14:30 - 15:00 Kaffihlé
15:00 - 16:00 Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna, gjöf Sameinuðu þjóðanna til barna heims-
ins. Trond Viggo Torgersen, umboðsmaður barna í Noregi.
16:00 - 16:30 Fyrirspurnir og pallborðsumræður.
Pallborð: Trond Viggo, Guðmundur Eiríksson, Hrólfur Kjartansson, Anna Ólafs-
dóttir Björnsson og Arthur Morthens. Fundarstjóri Páll Ásgeirsson, yfirlæknir.
Laugardagur 31. október 1992
10:00 - 10:30 Sýning myndbands um Barnasáttmálann og fulltrúi Barnaheilla fjallar um
sáttmálann í heild.
10:30 - 10:50 Hannes Hauksson, framkvæmdasjóri Rauða kross íslands, flytur ávarp.
11:00 - 11:15 Réttur fatlaðs barns skv. 23. gr. Ásta Þorsteinsdóttir, formaður Þroskahjálpar.
11:15 - 11:30 Réttur barns til menntunar skv. 28. gr. Bima Sigurjónsdóttir yfirkennari í Snæ-
landsskóla.
11:30 - 11.45 Réttur barns til leiks og frístunda skv. 31. gr. Guðrún Alda Harðardóttir, fóstra
við Félagsmálastofnun Hafnafjarðar.
11:45 - 12:00 Réttur barns til bestu heilbrigðisþjónustu skv. 24. gr. Dr. Sveinn Kjartansson,
barnalæknir á Heilsuverndarstöð Reykjavíkur.
12:00 - 12:15 Réttur barna til slysavarna pg öruggs umhverfis skv. 24. gr. Herdís Storgaard,
hjúkrunarfræðingur hjá SVFÍ.
12:15 - 13:15 Matarhlé.
13:15 - 13:45 Réttur barns til beggja foreldra skv. 9. gr. og 18. gr. Nanna K. Sigurðardóttir,
félagsráðgjafi, Tengslum sf.
13:45 - 14:15 Réttur barns sem tímabundið eða til frambúðar nýtur ekki foreldra sinna skv.
20. gr. Guðrún Erna Hreiðarsdóttir, lögfræðingur Barnaverndarráðs.
14:15-14:45 Ábyrgð iðnríkja á börnum þróunarríkja. Ólafur Ragnar Grímsson, alþingismaður.
14:45 - 15:00 Kaffihlé.
15:00 - 15:30 Fyrirspurnir og umræður. Fundarstjóri Haraldur Finnsson, skólastjóri.