Morgunblaðið - 29.10.1992, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1992
43
Hvaða fólk
er þetta?
Þeir sem þekkja fólkið á mynd-
unum eru vinsamlegast beðnir að
hafa samband við Hennriettu
Bemdsen í síma 93-41162.
Ruglað
með örnefni
VELVAKANDI
Frá Benedikt Gunnarssyni:
NÚ á haustdögum birtist, í dagblaði
nokkru á Norðurlandi, fregn um það
að þá væru nýhafnar vegafram-
kvæmdir í Giljareitum á vestanverðri
Öxnadalsheiði. Var frétt þessi höfð
eftir umdæmistæknifræðingi Vega-
gerðarinnar á Sauðárkróki.
Nú veit ég ekki betur en að þá
( hafí verið lokið við vegagerð fram
hjá Giljareitum, þ.e. að vegurinn ligg-
ur ekki lengur um Giljareiti heldur
l á eyrum Heiðarár neðan við þennan
áður ógreiðfæra vegarkafla, enda hef
ég ekið þennan nýlagða veg fyrr í
sumar sem leið. Hinsvegar var þá
ekki lokið framkvæmdum við veginn
vestanvert við Giljareiti þar sem heit-
ir Skógarhlíð og vestur að brúnni á
Norðurá.
Það er mjög miður að starfsmenn
Vegagerðar ríkisins skuli ekki vita
nöfn á þeim landsvæðum sem verið
er að leggja vegi um og enn verra
þegar þeir uppnefna þau.
Það er heldur enginn sómi að því
fyrir fréttamann að afla sér ekki
réttra upplýsinga um það sem hann
fjallar í fréttum sínum og kallast það
óvönduð vinnubrögð.
BENEDIKT GUNNARSSON,
Vallarási 5, Reykjavík.
1 LEIÐRÉTTINGAR
i Nafn höfundar
misritaðist
Nafn höfundar greinar um Starfs-
mannaheilsuvemd í Morgunblaðinu
í gær misritaðist. Hið rétta nafn
höfundar er Guðmunda Sigurðar-
dóttir.
Ekki átt við
hámarkshraða
LEÐURJAKKI
Svartur leðurjakki tapaðist í
Seljahverfi á föstudagskvöld en
í vasa hans var miði með nafni
og símanúmeri. Finnandi er vin-
samlegast beðinn að hringja í
Erlu í síma 622240.
EKKIHÆSTA
BYGGING
EVRÓPU
Gestur Sturluson:
A forsíðu Lesbókar Morgun-
blaðsins 17. október er mynd
af nýjum skýjakljúf í Frankfurt
er Messeturm nefnist og er hann
254 metrar á hæð. Er hann
sagður hæsta bygging í Evrópu.
En að þessi skýjakljúfur sé
hæsta bygging í Evrópu er ekki
rétt. Eiffelturninn í París er
snöggtum hærri, hann er 300
metrum og 50 sentimetrum bet-
ur á hæð. Og frétt hef ég af
einum sjónvarpstumi í Póllandi
sem er um 600 metrar á hæð.
ÚR
Kvenúr fannst við Danshúsið
Glæsibæ. Upplýsingar í síma
21509.
TASKA
Konan sem hringdi út af rauðri
tösku í síma 22496 er beðin að
hringja aftur en síminn hefur
verið í ólagi.
SKELLENAÐRA
Rauðri Honda MTX 50 skelli-
nöðm var stolið í Árbæjarhverfi
fyrir skömmu. Númer hjólsins
er ÖA-045. Vinsamlegast hring-
ið í síma 673365 ef hjólið hefur
fundist eða til þess hefur sést.
Fundarlaun.
SLÆM LÝSING
Finnur Ingi Stefánsson:
Ég var tilneyddur til að horfa á
leik með flóðlýsingu á Laugar-
dalsvellinum í sjónvarpinu og
varð fyrir vonbrigðum með
þessa miklu fjárfestingu. Ekki
var hægt að greina leikmann
sem tók homspymu því hann
hvarf í myrkrið meðan á því
stóð en kom svo hlaupandi út
úr myrkrinu aftur. Þá var mark-
vörðurinn mjög óskýr við nær-
myndatöku. Auglýsendur hafa
ekki verið ánægðir með þetta
því auglýsingaspjöld aftan við
markið hurfu alveg í myrkur.
Það hlýtur að vera hægt að
gera betur með þessum dýru
ljósum. Margir komast ekki á
leikina og neyðast til að sjá þá
í sjónvarpi. Lýsingunni hlýtur
að vera hægt að haga eins og
hjá erlendum sjónvarpsstöðvum
þar sem ekki verður vart við
svona vandamál.
Einn af þeim, sem sendu Morgun-
blaðinu ályktun frá íbúum og versl-
unareigendum við Hverfisgötu og
birt var í Morgunblaðinu í gær á
bls. 43, hefur gert athugasemd við
* fyrirsagnarval á fréttina, þar sem
sagði „Hámarkshraði við Hverfis-
götu verði lækkaður“.
Hámarkshraði á Hverfisgötu er
nú 50 km á klukkustund og vilja
þessir aðilar ekki hreyfa við honum.
( Hins vegar skora þeir á yfirvöld að
komið verði í veg fyrir að núgildandi
reglur séu brotnar og að menn aki
hraðar en leyfilegt er, umferðarhraða
við götuna verði haldið niðri.
fikeypis lögfiæðiaðsloð
á hverju fimmtudagskvöldi miili
kl. 19.30 og 22.00 í síma 11012.
ORATORf élag laganema. I
ivu er
þrefaldur
l.vinningur!
MERKISMENN HF