Morgunblaðið - 29.10.1992, Side 46
46
, MORGUNBLAÐIÐ F1MMTUDAGUK 29. OKTQBER 1992
HANDKNATTLEIKUR
Vömin gleymd-
ist á Strand-
götunni
Morgunblaðið/Bjami
Dansinn dunar! Petr Baumruk og Gunnar Beinteinsson taka létt dansspor
í Hafnarfirði í gærkvöldi.
Haukar virtust eitthvað tauga-
spenntir er þeir mættu „stóra
bróður“ í Kaplakrika. Það var engu
líkara en Haukar
skrifar unni °g sóknarleik-
ur þeirra var ekki
heldur uppá marga fiska, mjög
þunglamaleg og ómarkviss. Mætti
segja mér að einhverskonar minni-
máttarkennd hafí hijáð liðið i gær-
kvöldi.
Sóknarleikur FH var markviss-
ari. Boltinn gekk þokkalega manna
á milli og hraðaupphlaupin voru
vel útfærð enda gerðu þeir tíu
mörk þannig. í vöminni tóku þeir
líka vel á og voru ákveðnari, kanske
um of því þeir vora einum færri
tíu mínútum lengur en Haukamir.
Þrátt fyrir að Haukamir næðu
að „hanga“ í FH-ingum var leikur-
inn aldrei veralega spennandi því
FH virtist hafa alla burði til að
skipta um gir ef á þurfti að halda.
Um miðjan síðari hálfleik jöfnuðu
Haukar 17:17 en þá var fyrirliði
þeirra rekinn af leikvelli það sem
eftir var leiks og var það vægast
sagt strangur dómur. í kjölfarið
gerðu FH-ingar fimm mörk í röð
og það var of mikið fyrir Hauka.
FH-liðið var jafnt. Hálfdán vann
vel úr því sem kom inná línuna og
Trafan var sterkur. Hjá gestunum
var Halldór sterkur í fyrri hálfleik
en reyndi allt of lítið í þeim síðari.
Baumrak lék ágætlega og Páll stóð
fyrir sínu en gekk þó heldur erfið-
lega að láta sóknarleikinn ganga.
Loks sigur hjá Val
Eftir þrjú jafntefli i röð var ég
viss um að við þurftum að
skora úr síðustu sókninni til að
tryggja sigurinn. ÍR
Frosti er lið með góð-
Eiðsson an heimavöll og
skrifar vissum það fyrir-
fram að þessi leikur
yrði ekki auðunninn," sagði línu-
maðurinn Geir Sveinsson sem
tryggði liði sínu bæði stigin í viður-
eigninni við ÍR í Seljaskóla. Geir
tók við línusendingu Dags Sig-
urðarsonar og skilaði knettinum í
markið 23 sekúndum fyrir leikslok
og breytti stöðunni í 20:18. Sá
skammi tími sem eftir var nægði
heimamönnum aðeins til eins
marks og Valsmenn gátu því fagn-
að sigri eftir hrinu af jafnteflum.
Valsmenn komu ákveðnari til
leiks og ÍR-ingar ráku sig margoft
á firnasterka Vöm á upphafsmínút-
unum. Það var ekki fyrr en eftir
níu mínútuna leik sem fyrsta mark
Breiðhyltinga leit dagsins ljós og
staðan var þá 4:1. ÍR-ingar komust
á skrið eftir það og leikurinn
jafnaðist. Lengst af höfðu Vals-
menn forystu, sem yfirleitt var
ekki meiri en 1-2 mörk í síðari
hálfleiknum.
Líklega var það fyrst og fremst
reynsla og mun meiri breidd sem
tryggði Valsmönnum sigurinn. Flöt
vörn og hreyfanleg gaf ÍR-ingum
fá sóknarfæri en hins vegar voru
oft hnökrar í sóknarleik þeirra og
skortur á ógnun, sérstaklega á
miðjunni.
Matthías er í geysilega góðu
formi, eldfljótur homamaður sem
hefur náð að aga skot sín. Magnús
Sigmundsson átti ágætan leik í
markinu og Dimitriv og Sigfús
Orri vora liðinu mikilvægir í síðari
hálfleiknum.
Leikgleðin í fyrirrúmi
Léttleikandi Víkingar áttu ekki
í miklum erfiðleikum með dap-
urt lið Stjörnunnar í Víkinni í gær-
kvöldi. Víkingar
Stefán sigruðu með átta
Eiríksson mörkum, 29:21, og
skrifar sagði Gunnar Gunn-
arsson þjálfari og
leikmaður Víkings að gífurleg leik-
gleði hefði hjálpað mikið til. „Við
eram að spila fyrir hvern annan,
sem hefur oft vantað þegar við
höfum náð forystunni,“ sagði
Gunnar.
Leikurinn var jafn lengi vel, en
það var góður vamarleikur undir
lok fyrri hálfleiks sem skilaði Vík-
ingum fjögurra marka forskoti í
hálfleik, og í síðari hálfleik var leik-
gleðin í fyrirrúmi hjá Víkingum,
sem fóra á kostum í sókninni. Krist-
ján Ágústsson átti skínandi Ieik í
vörn og sókn hjá Víkingum, og
Birgir Sigurðsson var geipilega
sterkur. Flestir Iéku reyndar vel í
liði Víkings, en ekki er hægt að
segja það sama um lið Stjörnunn-
ar. Magnús Sigurðsson var sá eini
sem eitthvað bragð var af.
Sigtryggur og Páll hetjur Fram
Sigtryggur Albertsson lagði
granninn að öruggum sigri
Fram gegn KA, 30:24. Hann hrein-
lega lokaði markinu
Sigmundur Ó. *' leiksinsu °S
Steinarsson varði þá sem ber-
skrifar serkur - varði sjö
skot fyrstu tólf mín. og þar af tvö
vítaköst. Þá lék Páll Þórólfsson
vöm KA-manna grátt, en hann
skoraði alls fjórtán mörk - þar af
níu í fyrri hálfleik.
Leikmenn Fram léku við hvern
sinn fingur þegar þeir vora að ná
átta marka forskoti, 13:5. Léku
sterkan vamarleik og fyrir aftan
þá var Sigtryggur í essinu sínu.
Framarar vora yfir, 16:9, í leik-
hléi, en í upphafi seinni hálfleiksins
náðu KA-menn að minnka muninn
í þijú mörk, 20:17. Þá sögðu
ákveðnir og baráttuglaðir Framar-
ar hingað og ekki lengra. KA-menn
áttu í erfíðleikum með að bijóta
vöm Framara á bak aftur - það
var aðeins Alfreð Gíslason sem
beit frá sér hjá KA.
Eyjamenn sækja sig
Eyjamenn unnu HK sanngjamt
í Digranesinu í gærkvöldi,
26:23. Gestirnir lögðu granninn að
sigrinum strax á
Skapti fyrstu mínútunum
Hallgrímsson er þeir náðu fimm
skrifar marka forystu og
var sá munur enn í
hálfleik. Ótrúleg deyfð var yfir
HK-liðinu, vömin lek og sóknarað-
gerðir ósannfærandi. Eyjamenn
vora mun betri; hreyfanlegir í vörn,
Sigmar Þröstur varði vel frá upp-
hafi og sex fyrstu sóknirnar nýtt-
ust.
Kópavogsbúar komu framar í
vörninni í seinni hálfleik og náðu
með því að trafla sóknarleik gest-
anna. Munurinn hélst þó fram yfir
miðjan hálfleikinn, en eftir að Eyja-
menn fóra að týnast út af í tvær
Fulltrúi hollenska úrvalsdeildar-
liðsins Feyenoord kemur til
landsins fljótlega til viðræðna við
forráðamenn Knattspymufélags
ÍA, vegna máls tvíburanna Arnars
og Bjarka Gunnlaugssona sem
Feyenoord hefur boðið atvinnu-
samning.
mínútur, hver af öðram, söxuðu
HK-menn skyndilega á forystuna
og náðu að jafna þegar rúmar sex
mín. voru eftir. HK lék vel á þeim
kafla, bjartsýnin jókst, en í kjölfar-
ið fylgdu fjögur mörk ÍBV í röð
og draumur heimamanna var þar
með úti. Leikurinn var ekki nema
í meðallagi góður, en sigurinn
sanngjarn sem fyrr segir. Bæði lið
geta betur; ljóst er að mun meira
býr í þeim mannskap sem var á
vellinum en áhorfendur urðu vitni
að.
Létt hjá SeHyssingum
etta var mun léttara en ég bjóst
við og er ég mjög ánægður
með sigurinn," sagði Sigurður
Sveinsson stór-
skytta Selfyssinga
eftir 30:25 sigur
þeirra gegn Þór á
Akureyri. „Þór
vantar einn góðan sigurleik til að
fá sjálfstraustið á nýjan leik. Þeir
geta leikið mun betur en þeir gerðu
í kvöld,“ bætti Sigurður við.
Selfoss, með Sigurð Sveinsson í
broddi fylkingar, tók forystu strax
í upphafi og hafði þriggja marka
forystu er gengið var til leikhlés.
Þeir komu enn ákveðnari til síðari
hálfeiks og gerðu fyrstu þijú mörk-
in. Þór tókst að klóra í bakkann
um miðbik hálfleiksins en þá kom
bóður kafli gestanna og gerðu þeir
út um leikinn.
Sigurður var bestur Selfyssinga
og Gísli Felix var traustur í mark-
inu. Hjá Þór voru Jóhann og Atli
atkvæðamestir auk þess sem Finn-
ur var fastur fyrir í vörninni.
Forseti hollenska félagsins, J.
A. Van den Herik hafði samband
við Gunnar Sigurðsson, formann
Knattspyrnufélags_ ÍA, í gær
vegna málsins. „Ég vona að við
getum gengið frá málinu sem allra
fyrst,“ sagði Gunnar við Morgun-
blaðið.
ÚRSLIT
Handknattleikur
FH - Haukar 30:26
Kaplakriki, íslandsmótið í handknattleik,
1. deild, miðvikudaginn 28. október 1992.
Gangur leiksins: 1:0, 2:3, 8:7, 13:9, 14:12,
15:14, 17:17, 22:17, 26:21, 27:25, 30:26.
Mörk FH: Alexej Trufan 6/2, Gunnar Bein-
teinsson 5, Hálfdán Þórðarson 5, Guðjón
Árnason 4, Pétur Petersen 2, Sigurður
Sveinsson 2, Kristján Arason 2, Arnar
Geirsson 2, Svafar Magnússon 2.
Varin skot: Bergsveinn Bergsveinsson
13/2 (þaraf 2 til mótheqa).
Utan vallar: 14 mínútur.
Mörk Hauka: Páll Ólafsson 10/7, Halldór
Ingólfsson 5, Petr Baumruk 5, Siguijón
Sigurðsson 2, Sveinberg Gíslason 2, Jón
Öm Stefánsson 1, Aron Kristjánsson 1.
Varin skot: Leifur Dagfinnsson 8 (þaraf 2
til mótheija), Magnús Ámason 3/3.
Utan vallar: 4 mínútur (þar af fékk fyririið-
inn Pétur V. Guðnason rautt spjald um
miðjan síðari hálfleiks.)
Áhorfendur: Fékkst ekki uppgefið en voru
trúlega um 1.300.
Dómarar: Rögnvald Erlingsson og Stefán
Arnaldsson hafa oftast dæmt betur.
Þór - Selfoss 25:30
Akureyri:
Gangur leiksins: 0:1, 3:3, 8:11, 11:15,
13:16, 13:19, 21:23, 22:25, 22:29, 25:30.
Mörk Þórs: Jóhann Samúelsson 7, Atli
Rúnarsson 6, Sævar Árnason 4/2, Finnur
Jóhannsson 3, Sigurpáll Árni Aðalsteinsson
2/2, Rúnar Sigtryggsson 2, Andrés Magn-
ússon 1.
Varin skot: Hermann Karlsson 11 (þaraf
4 til mótheija).
Utan vallar: 8 mínútur.
Mörk Selfoss: Sigurður Sveinsson 13/4,
Einar Gunnar Sigurðsson 4, Siguijón
Bjarnason 4, Gústaf Bjamason 3, Jón Þórir
Jónsson 3, Einar Guðmundsson 3.
Varin skot: Gísli Felix Bjarnason 17/3 (þar-
af 3 til mótheija)
Utan vallar: 8 mínútur.
Áhorfendur: Fékkst ekki uppgefið.
Dómarar: Kristján Þór Sveinsson og Þor-
lákur Kjartansson dæmdu ágætlega.
HK-ÍBV ’ 23:26
Digranes:
Gangur leiksins: 0:3, 1:3, 1:6, 3:6, 3:8,
6:11, 7:13, 9:14,11:14,13:18,15:20,16:21,
19:21, 19:22, 22:22, 22:26, 23:26.
Mörk HK: Michal Tonar 6/1, Hans Guð-
mundsson 5, Guðmundur Albertsson 5/1,
Frosti Guðlaugsson 3, Jón B. Erlingsson
2, Eyþór Guðjónsson 1, Guðmundur Pálma-
son 1.
Varin skot: Magnús Ingi Stefánsson 7 (þar
af þijú þar sem knötturinn fór aftur til
mótheija).
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk ÍBV: Zoltan Belany 9/4, Björgvin
Rúnarsson 6/3, Guðfinnur Kristmannsson
5, Sigurður Gunnarsson 2, Erling Richards-
son 2, Jón Logason 1, Sigbjörn Óskarsson 1.
Varin skot: Sigmar Þröstur Óskarsson
19/3 (þar af 4/1 þar sem knötturinn fór
aftur til mótheija).
Utan vallar: 10 mínútur.
Dómarar: Guðmundur Sigurbjörnsson og
Jón Hermannsson.
Áhorfendur: Ekki vitað.
Fram - KA 30:24
Laugardalshöll:
Gangur leiksins: 1:0, 1:1, 4:1, 4:2, 8:3,
13:5, 14:6, 16:8, 16:9. 17:9, 18:13, 20:15,
20:17, 24:17, 25:19, 28:22, 29:24, 30:24.
Mörk Fram: Páll Þórólfsson 14/5, Karl
Karlsson 5/1, Jason Ólafsson 4, Pétur Ingi
Amarson 4, Jón Örvar Kristinsson 2, Andri
V. Sigurðsson 1.
"Varin skot. Sigtryggur Albertsson 11/2
(Þar af tvö skot sem fór til mótheija),
Hallgrímur Jónasson 1/1 (skotið fór aftur
til mótheija).
Utan vallar: 8 mín.
Mörk KA: Alfreð Gíslason 11/4, Óskar
Elvar óskarsson 5, Jóhann Jóhannsson 4,
Pétur Bjarnason 2, Ármann Sigurvinsson
1, Erlingur Kristjánsson 1.
Varin skot: Iztok Race 3, Björn Björnsson
6/2 (Þar af 1/1 til mótheija).
Utan vallar: 4 min.
Dómarar: Sigurgeir Sveinsson og Gunnar
Viðarsson.
Áhorfendur: Um 250.
ÍR-Valur 19:20
íþróttahús Seþaskólans:
Gangur leiksins: 0:4, 4:5, 7:8, 7:11, 9:13,
12:13, 14:15, 16:16, 16:18, 17:18, 18:20,
19:20.,
Mörk ÍR: Matthías Matthíasson 6, Branilav
Dimitrijv 3, Ólafur Gylfason 3, Jóhann
Ásgeirsson 3/3, Róbert Rafnsson 2, Sigfús
Orri Bollason 2.
Varin skot: Magnús Sigmundsson 9.
Utan vallar: 4 mínútur.
Mörk Vals: Jakob Sigurðsson 4, Valdimar
Grímsson 4/1, Jón Kristjánsson 4/2, Geir
Sveinsson 3, Dagur Sigurðsson 2, Ölafur
Stefánsson 1, Ingi Jónsson 1, Júlíus Gunn-
arsson 1.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson
8, Axel Stefánsson 1.
Utan vallar: 2 mínútur.
Dómarar: Ingvar Georgsson og Jóhann
Júlíusson tóku ekki nógu strangt á brotum
og dæmdu sjaldnast vítaköst þegar ástæða
var til.
Áhorfendur: 290.
Víkingur - Stjarnan 29:21
Vfkin:
Gangur leiksins: 0:1, 3:3, 8:8, 12:8, 14:10,
14:11, 20:14, 23:16, 25:20, 29:20, 29:21.
Mörk Víkings: Kristján Ágústsson 7, Birg-
ir Sigurðsson 7, Árni Friðleifsson 6/1,
Gunnar Gunnarsson 4, Dagur Jónasson 3,
Lárus Sigvaldason 2.
»- 06 B-STI6 KSÍ
KSÍ heldur A-stigs þjálfaranámskeið í íþrótta-
miðstöðinni í Laugardal 6.-8. nóvember nk.
og B-stigs námskeið 20.-22. nóvember nk.
Námskeiðin eru bæði bókleg og verkleg.
Meðal efnis er:
Lífæra- og lífeðlisfræði
Leikfræði
Sálarfræði
Þjálffræði
Kennslufræði
íþróttafræði
íþróttameiðsl
Næringarfræði
Verð: kr. 10.000,-
Skráning og nánari upplýsingar eru veittar
á skrifstofu KSÍ, sími 814444.
Góð þjálfun - betri knattspyrna
Fræðslunefnd KSÍ.
Þorvaldur skoraði
Þorvaldur Örlygsson kom Nottingham Forest í fjórðu umferð ensku
deildarbikarkeppninnar í gærkvöldi með því að gera eina mark
leiksins gegn Crewe á útivelli. Þorvaldur þramaði knettinum í netið
af stuttu færi eftir hornspymu er aðeins sex mínútur vora til leiksloka.
KNATTSPYRNA
Fulltrúi Feyenoord
kemur til viðræðna
Reynir
Eiríksson
skrifar