Morgunblaðið - 29.10.1992, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1992
47
STAÐAN
Staðan í 1. deildarkeppni karla:
FH 7 5 1 1 187:161 11
Valur...7 4 3 0 163:148 11
Víkingur7 5 0 2 162:155 10
Sel£oss_7 3 2 2 181:169 8
ÍR 7 3 2 2 169:164 8
Stjaman7 3 2 2 171:170 8
Haukar. 7 3 1 3 186:170 7
Þór. 7 2 2 2 164:180 6
HK 7 2 1 4 167:171 5
ÍBV 7 1 2 4 151:176 4
Fram...7 1 1 5 161:174 3
KA 7 1 1 5 153:170 3
Varin skot: Reynir Reynisson II (þar af
7, sem fóru aftur til mótherja), Alexander
Revine 5/1 (þar af 3, sem fóru aftur tU
mótheija).
Utan vallar: 4 mínútur.
Mörk Stjörnunnar: Magnús Sigurðsson
6/1, Patrekur Jóhannesson 4, Magnús Már
Þórðarson 3, Axel Björnsson 2, Hafsteinn
Bragason 2, Hilmar Hjaltason 2, Skúli
Gunnsteinsson 1, Einar Einarsson 1.
Varin skot: Ingvar Ragnarsson 10/1 (þar
af 3, sem fóru aftur til mótheija), Gunnar
Erlingsson 1.
Utan vallar: 10 mínútur, Axel Björnsson
fékk að líta rauða spjaldið fynr gróft brot
þegar 11 sekúndur voru til leiksloka.
Dómarar: Guðjón L. Sigurðsson og Hákon
B. Siguijónsson, komust ágætlega frá leikn-
um.
Áhorfcndur: 375 fullorðnir greiddu að-
gangseyr.
Knattspyrna
HM-keppnin
2. RIDILL:
Ankara, Tyrklandi:
Tyrkland - San Marinó............4:1
Hakan 2 (38., 89.), Orhan (87.), Hami (90.)
- Baciochi (53.). 30.000.
3. RIÐILL:
Vilnius, Lithácn:
Litháen - Lettland...............
Robertas Fridrikas - Ainars Linards.
5. RIÐILL:
Moskva, Rússlandi:
Rússland - Luxemborg.............2:0
STAÐAN:
Rússland............2 2 0 0 3:0 4
Grikkland .........2 2 0 0 2:0 4
Ungveijaland........2 1 0 0 4:2 2
ísland..............3 1 0 2 2:4 2
Luxemborg...........2 0 0 2 0:4 0
6. RIÐILL:
Vín, Austurríki:
Austurríki - fsrael................3:2
Andreas Herzog 2 (42., 45.), Toni Polster
(50.), Peter Stoeger (69.), Andreas Ogris
(83.) - Itzhak Zohar 2 (53., 77.). 20.000
STAÐAN:
Búlgaría..........3 2 0 1 5: 2 4
Svíþjóð...........2 2 0 0 3: 0 4
Austurríki........2 1 0 1 5: 4 2
I' rakkland.......2 1 0 1 2: 2 2
ísrael............1 0 0 1 2: 5 0
Finnland......... 2 0 0 2 0: 4 0
Sviss
Grasshopper - Lugano...............2:2
Spánn
I'yrri leikurinn í meistarakeppninni:
Barcelona - Atletico Madrid........3:1
Julio Salinas (64.), Aitor Beguiristain 2
(73., 85.) - Patxi Ferreira (16.). 34.000.
Ítalía
Þriðja umferð bikarkeppninnar - saman-
lögð úrslit innan sviga:
Cagliari- AC Milan............0:0 (3:0)
Inter - Foggia...............3:0 (2:0)
Fiorentína - Roma............1-1 (3:3)
Verona - Napolí...............0-3 U:U
Torínó-Bari................ 1-0 (3;1)
Lazio - Cesena...............3:1 (4:2)
Genúa - Juventus.............3:4 (5:3)
England
DEILDARBIKARKEPPNIN, 3. UMFERÐ:
Crewe - Nottingham Forest........0:1
- Þorvaldur Örlygsson (84.)
■Lee Glover tók homspymu sex mín. fyr-
ir leikslok og Þorvaldur þmmaði knettinum
I netið af stuttu faeri.
Aston Villa - Manchester United..1:0
Dean Saunders (75.) Áhorfendur: 36.000.
Blackbum - Norwich...............2:0
Alan Shearer (33.), David May (60.) 14.260
Chelsea - Newcastle.............-2:1
Frank Sinciair (58.), Mick Harford (86.) -
Uobert Lee. 30.193
Derby - Arsenal..................1 ;1
Paul Simpson (vsp. 72.) - Kevin Campbell
(79.)
Everton - Wimbledon..............0:0
9.500
Manchester City - Tottenhain.....0:1
Winnie Samways (40.)
Sheffield United - Liverpool......0:0
17.856.
Southampton - Crystal Palace......0:2
Eddie McGoldrick (9.), John Shalako (19.)
■Aðeins er um einn leik að ræða í 3.
Umferðinni, þannig að sigurvegarar leikj-
anna í gærkvöldi komast I 4. umferðina.
í kvöld
Körfuknattleikur
(irvalsdeild:
Strandgata: Haukar - UMFG ...kl. 20
Handknattleikur
2. deild karla:
Seltj’nes: Grótta-ÍH....kl. 20
Varmá: Afturelding - UBK.kl. 20
ÍÞRÓTTAHREYFINGIN / SKATTAMÁL
Skattrannsóknarstjóri óskareftirýtarlegum gögnum varðandi reksturfélaga
Félögin vilja samstarf
en biðja um lengrifrest
Morgunblaðið/Kristinn
Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ, og Ari Guðmundsson, formaður ÍBR, að lokn-
um fundi með forsvarsmönnum félaga í Reykjavík í gær.
NOKKUR íþróttafélög hafa í
vikunni fengið bréf frá skatt-
rannsóknarstjóra, þar sem
óskað er eftir að nánast öll
gögn og upplýsingar varðandi
rekstur viðkomandi félags á
árunum 1989,1990,1991 og
það sem af er árs 1992 verði
afhent nú þegar. Viðbrögð for-
ystumanna félaganna hafa ver-
ið með ýmsum hætti, en for-
seti íþróttasambands íslands
og formaður íþróttabandalags
Reykjavíkur gengu fyrir hönd
félaganna á fund skattrann-
sóknarstjóra í gær og afhentu
honum bréf, þar sem fram kom
vilji til samstarfs og samvinnu,
en beðið var um lengri frest
og óskað eftir leiðbeiningum
um hvernig best væri staðið
að þessum málum í framtíð-
inni.
Skattrannsóknarstjóri óskaði
eftir og fékk 12. október s.l.
starfs- og kennsluskýrslur ÍSÍ fyr-
ir umrætt tímabil. Staðlað bréf til
nokkurra félaga fylgdi í kjölfarið.
í því er nú þegar óskað eftir árs-
skýrslum og ársreikningum allra
deilda og stjómar félagsins.
í annan stað er óskað eftir af-
hendingu á bókhaldi og bókhalds-
gögnum allra deilda og aðalstjóm-
ar, þar með talin gögn varðandi
greiðslur til þjálfara, leikmanna og
annarra sem þegið hafa greiðslur
fyrir starf, hvort sem um er að
ræða launagreiðslur eða verktaka-
greiðslur. Oskað er eftir starfs-
samningum við þjálfara, leikmenn
og aðra aðila og beðið um upplýs-
ingar um bónusgreiðslur eða
greiðslur fyrir vinnutap. Ennfrem-
ur er farið fram á gögn og upplýs-
ingar um hvers konar fláraflanir
eða kostun; samninga við fyrir-
tæki, einkaaðila og opinbera aðila
um hvers konar auglýsingar, styrki
eða greiðslur og engu skiptir með
hvaða hætti greitt er.
í þriðja lagi er beðið um öll bréf
og skeyti, sem varða starfsemi
félagsins og loks allar aðrar upp-
lýsingar, sem að gagni gætu kom-
ið.
Allir geta átt von á eftirliti
Guðmundur Guðbjarnarson,
skattrannsóknarstjóri, sagði við
Morgunblaðið að sér bæri ekki að
greina frá rannsóknum og könnun-
um, sem verið væri að gera, en
fyrir lægi að verið væri að afla
upplýsinga um bókhald hjá íþrótta-
hreyfingunni. Verkefnið hefði
staðið til og fyrst og fremst væri
verið að kanna framtalsskil félag-
anna, en framhaldið réðist af því
hvað kæmi út úr könnuninni.
Innan ÍSÍ eru 360 íþróttafélög,
en sem komið er hafa innan við
10 þeirra, öll af höfuðborgarsvæð-
inu, verið beðin um að skila gögn-
um. Guðmundur sagði að ákveðinn
hópur væri í úrtakinu en vildi
hvorki greina frá hvað búið væri
að tala við mörg félög eða heildar-
fjöldanum í úrtakinu, en sagði að
svo hefði æxlast til að frekar hefði
verið rætt við félög í Reykjavík.
Aðspurður sagði Guðmundur að
svona athuganir væru ekki tíma-
settar og ekki væri hægt að segja
til um hvenær rannsókninni yrði
lokið. Um væri að ræða venjulega
aðhaldsaðgerð. Verið væri að
skoða atvinnugreinar og í þessu
tilfelli væri íþróttahreyfingin at-
vinnugrein. Varðandi ámóta rann-
sókn á annarri félagastarfsemi
sagði Guðmundur að nú væri verið
að vinna að þessu máli, en allir
aðilar, sem hefðu fjármagn undir
höndum og greiddu laun eða fyrir
fjárfestingu eða væru með virðis-
aukaskattskylda starfsemi, gætu
átt von á eftirliti.
Ársskýrslum þegar skilað
Sá háttur hefur verið hafður á
að starfsmenn skattrannsóknar-
stjóra hafa mætt með umrætt bréf
til formanns viðkomandi félags og
óskað eftir áð fá umbeðin gögn á
staðnum. í öllum tilfellum hafa
formenn ekki haft önnur gögn til-
tæk en ársskýrslur félaga sinna
sem almennt hafa jafnframt að
geyma ársskýrslur einstakra
deilda. Þeir hafa fengið nokkurra
daga frest til að skila öðrum upp-
lýsingum.
Talsmenn félaganna voru á einu
máli um að rétt ætti að vera rétt
og allt aðhald ætti rétt á sér. Rann-
sókn sem þessi hefði legið í loft-
inu, en eðlilegri vinnubrögð hefðu
verið að gera íþróttahreyfingunni
fyrst almennilega grein fyrir til
hvers væri ætlast og fylgja þeirri
kynningu síðan eftir, til dæmis frá
og með næstu áramótum. Ljóst
væri að margar deildir héldu ekki
gögnum lengi til haga og því gæti
reynst erfitt að verða við umbeðn-
um óskum.
Ástæðulaus taugatitringur
EUert B. Schram, forseti ÍSÍ,
og Ari Guðmundsson, formaður
ÍBR, gerðu skattrannsóknarstjóra
í gærmorgun grein fyrir stöðu
íþróttahreyfingarinnar. í bréfí
þeirra, sem þeir afhentu honum
fyrir hönd íþróttafélaganna, er
greint frá starfseminni og bent á
hugsanlega erfiðleika við að afla
umbeðinna gagna. Forystumenn
séu áhugamenn í starfi og frá-
gangur bókhalds sé mismunandi.
Reikningsárið fylgi ekki almanaks-
árinu og í 360 félögum séu margar
deildir. Vegna mismunandi stöðu
er beðið um frest en fram kemur
vilji til samstarfs og samvinnu og
óskað er eftir leiðbeiningum um
hvemig staðið skuli að málum í
framtíðinni.
Síðdegis í gær gerðu Ellert og
Ari forsvarsmönnum Reykjavíkur-
félaga grein fyrir morgunfundin-
um og rætt var um bréfíð, sem
þeir færðu skattránnsóknarstjóra.
Að fundinum loknum sagði Ari
við Morgunblaðið að ársreikningar
félaga lægju fyrir og ekkert mál
væri að leggja þá fram enda hefði
það verið gert, en öðru máli gegndi
um bókhaldsgögn og kæmi þar
margt til eins og mismunandi frá-
gangur, breytileg reikningsár og
óvissa um hveiju væri haldið til
haga. Því væri ekki hlaupið að því
að afla allra umbeðinna gagna á
svipstundu og þess vegna væri
beðið um frest. Hins vegar ætti
að vera auðvelt að leggja fram
bókhald og bókhaldsgögn síðasta
starfsárs, enda ætti það að liggja
fyrir hjá öllum. Því hefði á fundin-
um náðst samkomulag um að félög
legðu fram allar upplýsingar á
þessu reikningsári eða frá 1. októ-
ber 1991 til 30. september 1992.
Ellert sagði að þetta mál hefði
valdið ástæðulausum taugatitringi
innan íþróttahreyfingarinnar.
Rannsóknin væri ekki vegna sér-
staks tilefnis heldur væri um eðli-
lega aðgerð að ræða. Ekkert væri
athugavert við að íþróttastarfsem-
in væri skoðuð rétt eins og önnur
starfsemi, en félög væru valin af
handahófi og ekki yrði farið ofan
í bókhald hjá öllum félögum og
deildum. Hvað launagreiðslur
varðaði taldi hann flest ef ekki öll
félög vera með allt á hreinu og
því þyrftu þau ekki að hafa áhyggj-
ur, en hver einstaklingur, sem
væri á launum, væri ábyrgur fyrir
eigin framtali. Hins vegar hefði
íþróttahreyfingin ekkert að fela,
en ef eitthvað athugvert kæmi
fram yrði það leiðrétt.
KNATTSPYRNA
Þróttur l\l. 12. deild
Úrslit leiksins gegn Völsungi standa
Dómstóll KSÍ kvað upp í gær
að úrslit leiks Þróttar Nes.
og Völsungs í 3. deild, 1:0, skuli
standa. Þar með er ljóst að Þrótt-
ur Nes. leikur í 2. deildarkeppn-
inni næsta keppnistímabil en ekki
Grótta.
Völsungur kærði leik Völsungs
og Þróttar Nes. fyrir að varamað-
ur sem kom inná hjá Þrótti, var
ekki skráður á leikskýrslu. Hér-
aðsdómstóll HSÞ dæmdi í málinu
og dæmdi Völsungi sigur í leikn-
um. Þróttur Nes. áfrýaði dómnum
til dómstóls KSÍ, sem tók málið
fynr í gær. «
í dómnum segir m.a.: „Af öllum
atvikum málsins er ljóst, að mistök
hjá liðstjórn liðs sóknaraðila ollu
því að nafn varamannsins Sófusar
Hákonarsonar í treyju nr. 16 var
ekki skráð á leikskýrslu. Á skýrsl-
una voru aðeins skráð 14 nöfn en
ekki 16, eins og heimilt er. Verður
ekki talið að lið áfrýanda hafí ver-
ið ólöglega skipað í skilningi 2.
mgr. 18. gr. reglugerðar KSI um
knattspymumót, þó að þessi mi-
stök hafi verið gerð við útfyllingu
leikskýrslunnar. Samkvæmt þessu
ber að fallast á kröfur áfrýjanda.“
DÓMSORÐ:
Hinn áfiýjaði dómur er felldur
úr gildi.
Urslit leiks málsaðila 1:0 Þrótti
í hag, skulu standa óbreytt.“
Dóminn skipuðu Jón Steinar
Gunnlaugsson, forseti, Jón Gunnar
Zoéga og Þórður Ólafsson.
Til að rýma fyrir nýjum vörum
í tollvörugeymslu bjóðum við
nokkrar tölvur á aldeilis trá-
bæru verði: 386SX-20 með
42Mb disk á kr.89.800 krónur,
486DX-25 með 120MB diská
aðeins 159.800 krónur stgr.
Úrvals tölvur - ótrúlegt verð!
MICROTÖLVAN
Suðurlandsbraut 12 - Sími 688944 - Fax 679976