Morgunblaðið - 29.10.1992, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 29.10.1992, Qupperneq 48
EIMSKIP VIÐ GREIÐUM ÞÉRLEIÐ \ MORGUNBLAÐID, ADALSTRÆTÍ 6, 101 REYKJAVÍK SÍMl 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1565 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85 FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1992 VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR. Neita að greiða hluta innritunar- gjalds í HÍ NOKKRIR stúdentar við Háskóla íslands ætla að láta reyna á það hvort þeim sé skylt að greiða hluta innritunargjaldsins í skólann til Stúdentaráðs og Félagsstofnunar Háskólans, en að sögn Harðar Helgasonar laganema hafa þeir neitað að greiða gjaldið á þeirri forsendu að það sé mannréttinda- brot að skylda stúdenta til að vera í frjálsum félögum innan Háskól- ans. Innritunargjaldið er 22.300 kr. en af því renna um 5.000 kr. til Stúdentaráðs og Félagsstofn- unar. „Mér var sent hótunarbréf í síð- ustu viku þar sem mér var tilkynnt að ég yrði tekinn út af skrá nú á fostudaginn nema ég greiddi fyrir þann tíma það sem á vantar. Eg hef ákveðið að sjá til hvaða aðgerða verð- ur gripið gagnvart mér,“ sagði Hörð- ur. Þórður Kristinsson forstöðumaður kennslusviðs Háskólans sagði að skrásetningargjaldið væri innheimt samkvæmt lögum og reglugerð um Háskólann og stúdentar yrðu að greiða það að fullu til að vera skrá- settir í skólann. Þeir sem ekki greiddu gjaldið yrðu því teknir út af stúdentatali. Skoðunarferð um höfnina Morgunblaðið/Sverrir Nauðsyn á námi í lokuðum kennslustofum er nokkuð sem ekki verð- ur á móti mælt, en það er hins vegar skemmtileg tilbreyting að komast út undir bert loft. Þar er líka ýmislegt að sjá og skoða eins og þessir hressu krakkar úr Foldaskóla komust að í skoðunarferð um höfnina í vikunni. Þeir eru þarna að príla í gamalli járnbrautar- lest á Miðbakka. Bæjarráð Njarðvíkur og Keflavíkur Uppsagnir verði dregn- ar til baka Á sameiginlegum fundi bæjar- ráða Keflavíkur og Njarðvíkur í gærkvöldi var samþykkt bókun þar sem fullri ábyrgð vegna upp- sagna starfsmanna íslenskra að- alverktaka er lýst á hendur rik- inu, sem er meirihlutaeigandi í fyrirtækinu, fyrir að hafa staðið að uppsögnunum án samráðs. Að sögn Kristjáns Pálssonar bæj- arstjóra Njarðvíkur verður óskað eft- ir fundi með stjóm Aðalverktaka og utanríkisráðherra um málið og hvert framhald þess verður. „í bókuninni er farið fram á að ríkið sjái til þess uppsagnimar verði dregnar til baka og fundnar verði leiðir innan fyrir- tækisins eða annars staðar fyrir þetta starfsfólk," sagði Kristján. Sjá einnig á miðopnu. Gengi í þremur verðbréfasjóðum Fjárfestingarfélagsins Skandia lækkað um þríðjung Bankaeftirlit gerir ekki athugasemdir við gengið Fallið frá kröfu um riftun á kaupsamningi Skandia og Fj árfestingarfélagsins ÁKVEÐIÐ hefur verið að lækka gengi á hlutdeildarskírteinum i þrem- ur af fjórum verðbréfasjóðum Fjárfestingarfélagsins Skandia um tæp- lega þriðjung, en lokað hefur verið fyrir innlausn hlutdeildarskírteina úr sjóðunum í rúmar þijár vikur. Hátt í þrír milljarðar króna eru í sjóðunum og þegar þeim var lokað var gert ráð fyrir að eignir þeirra væru 5-7% of hátt skráðar, eða um 160 miHjónir. Innlausn hlutdeildar- skirteina hefst á fimmtudaginn í næstu viku en fyrst um sinn verður ekki hægt að kaupa hlutdeildarskírteini i sjóðunum. Bankaeftirlitið gerir ekki athugasemdir við þessa niðurstöðu eða þá útreikninga og forsendur sem liggja henni til grundvallar, að sögn Þórðar Ólafssonar, forstöðumanns Bankaeftirlitsins. Verðbréfasjóðurinn er langstærst- ur sjóða Fjárfestingarfélagsins og voru eignir hans metnar á tæpa 2 milljarða króna í ársfjórðungsyfirliti til Bankaeftirlitsins í lok júní í sum- ar. Verðbréfaeign var talin 1.767 milljónir og aðrar eignir tæpar 220 milljónir. Gengi hlutdeildarskírteina í sjóðnum lækka um 33,5% eða um rúmar 600 milljónir, gengi skírteina Karfi fellur um 10% á tveimur vikum í Japan VERÐ á karfa hefur fallið um 10% á Japansmarkaði undanfarnar tvær vikur en mjög gott verð hefur verið á þessum markaði í ár. íslending- ar eru nú orðnir næststærstir á þessum markaði og áætlaður útflutning- ur á karfa til Japans í ár nemur 15.000 tonnum. Á undanfömum fjórum árum hef- ur útflutningur á úthafskarfa á Jap- ansmarkað tífaldast. Hann nam 270 tonnum árið 1989 en í ár verður hann um 2.800 tonn. Þessar upplýs- ingar komu fram í erindi Teits Gylfa- sonar, sölustjóra hjá íslenskum sjáv- arafurðum, á 18. þingi Sjómanna- sambands íslands. I máli hans kom fram að vegið meðalverð á karfa á Japansmarkað í ár sé 180 krónur fyrir kílóið og 100 kr. fýrir kg af úthafskarfa. Frá því í fyrra og þar til í ár hefur sala á karfa til Japans aukist úr 49.300 tonnum í 54.500 tonn en þar af hefur hlutur íslend- inga vaxið úr 11.500 tonnum í 15.000 tonn. Teitur telur ekki fjarri lagi að áætla að 90 kr. á kíló sé langtíma- verð fyrir úthafskarfa á þessum markaði. Um hið mikla verðfall undanfarnar tvær vikur segir hann að enn sé ekki séð fyrir endann á því en skýringar liggi ekki á lausu. Hvað varðar aðra markaði en Jap- an segir Teitur að þeir hafi nú náð fótfestu í Suður-Evrópu með karfa og selji til landa eins og Portúgals og Ítalíu um 1.000 tonn. Svipað verð fáist fyrir karfann á þessum markaði og fæst í Japan. í Marksjóðnum lækkar um 32% og gengi í Tekjusjóðnum lækkar um 31,6%. Friðrik Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri Fjárfestingarfélagsins Skandia, segir að þessi viðbótargeng- islækkun sé tilkomin vegna þess að meta hafi þurft allar eignir miðað við staðgreiðsluverð. Hins vegar eigi hann von á því, þar sem eignamatið sé mjög strangt, að gengi skírtein- anna eigi eftir að hækka verulega á næstunni. Hann sagði ennfremur að krafa Skandia um riftun á kaupum verðbréfafyrirtækisins af Fjárfest- ingarfélagi íslands hafi verið dregin til baka og fari ágreiningur aðila um kaupverð fyrir gerðardóm sam- kvæmt ákvæðum í kaupsamningi. Þær breytingar urðu á stjóm verð- bréfafyrirtækisins að Ragnar Aðal- steinsson, stjórnarformaður, og Gísli Örn Lárusson, forstjóri tryggingarfé- lagsins Skandia, gengu úr stjóm en í stað þeirra tóku sæti í stjóminni Leif Victorin og Friðrik Jóhannsson. í frétt frá Samtökum fjárfesta er opnun verðbréfasjóðanna fagnað og því að aflétt hafi verið óvissu eigenda hlutdeildarskírteina í sjóðunum. Samtímis harma samtökin gengis- fellingu skírteinanna sem sé óneitan- lega meiri en efni standi til miðað við eðlilegar aðstæður. Hver og einn hljóti að gera upp við sig hvað beri að gera en miðað við fyrirliggjandi upplýsingar sé rík ástæða til að fara sér að engu óðslega. Leif Victorin, forstjóri Skandia í Svíþjóð, segir I frétt frá félaginu að það harmi að nauðsynlegt reyndist að stöðva viðskiptin með verðbréf sjóðanna. Gripið hafi verið til þess ráðs til að tryggja hagsmuni allra eigendanna og jafnframt að þeir sættu ekki mismunun. Rekja mætti það sem að var í starfsemi sjóðanna til fjárfestinga sem gerðar voru áður en Skandia keypti fyrirtækið og þeir beri fullt og óskipt traust til stjómar verðbréfafyrirtækisins, stjórnenda þess og annarra starfsmanna sem unnið hafi ótrauðir að því að hægt yrði að heija viðskipti á ný á traust- um gmndvelli. Sjá einnig fréttir á bls. 4. íþróttafélög Síðasta skatt- ár lagt fram Skattrannsóknarstjóri hefur siðustu daga óskað eftir að fá nú þegar bókhald og bókhaldsgögn ýmissa íþróttafélaga á höfuðborg- arsvæðinu frá 1989. Félögin hafa skilað ársskýrslum sínum, en segja að erfitt geti verið að afla allra gagna og hafa því óskað eft- ir að fá lengri frest. Nokkur íþróttafélög hafa í vikunni fengið bréf frá skattrannsókn- arstjóra, þar sem óskað er eftir að nánast öll gögn og upplýsingar varð- andi rekstur viðkomandi félags á árunum 1989, 1990, 1991 og það sem af er árs 1992 verði afhent nú þegar. Félögin telja vandkvæði á því að fara svo langt aftur I tímann, en eru tilbúin að leggja fram öll gögn á síðasta reikningsári. Sjá nánar bls. 47.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.