Morgunblaðið - 30.12.1992, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1992
ísafjarðardjúp
Ævintýralega góð byrj-
un á rækjuvertíðinni
TORFI Björnsson skipstjóri og útgerðarmaður sem stundað hefur
rækjuveiðar í ísafjarðardjúpi síðastliðin 35 ár segir að rækjuvertíðin
í haust hafi farið ævintýralega vel af stað og að líklega hefði þetta
orðið met vertíð ef ótíð í desember hefði ekki hamlað veiðum.
Hjalti Karlsson hjá Hafrann-
sóknastofnun á ísafirði sagði blaðinu
að úthlutað hefði verið sama kvóta
fyrir þennan vetur og þann síðasta'
eða 2.500 tonn. Um áramót í ár var
búið að veiða 905 tonn á móti 989
tonnum í fyrra og liggur munurinn
aðallega í rysjóttu tíðarfari sem hef-
ur valdið miklum frátöfum frá veið-
um og rýrari afla í Jökulfjörðum en
í fyrra. Helsta veiðisvæðið í vetur
hefur verið í miðdjúpinu, en nú í
desember hefur veiðin verið að fær-
ast út Djúpið og menn komnir lang-
leiðina norður undir Bjarnarnúp. Sjó-
menn telja líklega ástæðu vera þá
að nú er óvenju lítið um ungfisk
þarna og því hafi rækjan rýmra um
sig auk þess sem meira kemur í hlut
sjómanna þegar minna fer í þorsk-
kjaftinn. Uppistaðan í veiðunum er
tveggja ára rækja en þó er enn mik-
ið af þriggja ára rækju í afianum.
Einhver kurr er í sjómönnum
vegna lágs verðs fyrir rækjuna og
er útlit fyrir að nokkrir bátar að
minnsta kosti fari á línu eftir ára-
mótin og notfæri sér tvöfalda kvót-
ann til febrúarloka.
Söluhorfur á rækjunni eru nokkuð
góðar að sögn Guðmundar Agnars-
sonar framkvæmdastjóra Rits hf.
fyrirtækisins sem stofnað var um
eignir tveggja rækjuverksmiðja sem
urðu gjaldþrota fyrr á árinu. Hann
segir að sérstaklega minni rækjan
seljist strax, en þar er verðið að vísu
enn frekar lágt, stærri rækjan er
þyngri í sölu, en fyrir þann fæst
töluvert hærra verð. Að sögn Guð-
mundar er meðalverð nú um 30-40%
lægra í erlendum gjaideyri en það
var 1986 þegar það var hæst. Mik-
ill hluti framleiðslunnar er soðin nið-
ur fyrir markaði í Frakklandi og
Þýskalandi og fæst þar hagstætt
verð fyrir minnstu rækjuna.
Guðmundur sagði það áhyggju-
efni að ekki fengjust skip til að veiða
úthafsrækjuna og taldi hana ólíklegt
að það næðist að veiða þær 47 þús-
und lestir sem heimild væri fyrir á
kvótaárinu.
Halldór Jónsson hjá sama fyrir-
tæki sagði að loðnuflotanum hefði
verið úthlutað á bilinu 1. mars til
1. apríl af úthafskvótanum vegna
erfiðleika þegar loðnan brást. Nú
halda þessi skip þessum mikla kvóta,
sem þau hafa takmarkaðan áhuga
fyrir að veiða vegna vaxandi loðnu-
veiða.
Úlfar
m. / VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma htti veður Akureyrl 6 alskýjað Reykjevík 0 snjókoma
Bergen léttskýjaó
Helslnki 2 iéttskýjaö
Kaupmannahöfn 3 skýjað
Narssarosuaq +15 léttskýjaö
Nuuk +16 snjókoma
Osló +6 þokuruóningur
Stokkhólmur 4 hélfskýjað
Þórshöfn 7 alskýjað
Afgarve 14 léttskýjað
Amsterdam 0 léttskýjað
Barcelona 8 skýjað
Berifn +4 kornsnjór
Chicago 4 rigning
Feneyjar 3 heiðskírt
Frankfurt +2 heiðskirt
Glasgow +3 hrímþoka
Hamborg +2 þokumóða
London 2 heiðskírt
LosAngeles 13 rigning
Lúxemborg 0 heiðskírt
Madríd vantar
Malaga vantar
Mallorca vantar
Montreal +2 alskýjað
NewYork 4 þoka
Orlando 13 þokumóða
París 0 heiðskírt
Madeira 16 skýjað
Róm 10 hálfskýjað
Vín +6 þokumóða
Washlngton 3 súld
Winnipeg +27 snjókoma
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Landað úr einum af rússnesku togurunum sem lönduðu í Sand-
gerði.
Sovéskir togarar
landa í Sandgerði
Keflavík.
Fiskvinnslustöðvar á Suðurnesjum hafa að undanförnu verið
að vinna fisk úr rússneskum togurum. Nú hafa þrír togarar
landað liðlega 500 tonnum af frystum fiski, tveir í Sandgerði
og einn í Njarðvík og sá fjórði sem er með um 400 tonn bíður
löndunar í Keflavík. Togararnir koma úr Barentshafi og er
afli þeirra að mestu þorskur.
Fiskvinnslufyrirtæki í Sand-
gerði, Garði, Kefiavík og Njarð-
vík hafa únnið fiskinn sem er
aðalega unninn í blokk fyrir
Bandaríkjamarkað og sagði Sig-
urður Garðasson hjá Vogum hf.
í Njarðvík að vel hefði gengið
að vinna fiskinn sem hefði skap-
að kærkomna atvinnu. Sigurður
sagði að nú störfuðu um 30
manns hjá Vogum hf. og það
hefði ekki gerst í mörg ár að fisk-
ur væri unninn á milli jóla og
nýárs — og einnig væri fyrirsjá-
anleg atvinna í janúar af þessum
sökum. Sigurður sagði að fiskur-
inn hefði sína kosti og galla og
menn hefðu lært það fljótt að
skoða hráefnið vel áður en það
væri keypt.
-BB
Rörsprengjur í Hafnarfirði
Ein rúða sprakk
inn en önnur út
ÖFLUG rörsprengja var sprengd við leikskólann Smáralund við Smára-
hvamm í Hafnarfirði í fyrrinótt. Sprengjan var fest á gluggakarm og
sprengdi eina rúðu í húsinu þannig að glerbrotum rigndi inn fyrir en
slíkur var krafturinn frá sprengjunni að brot úr henni þeyttust í glugga
á gagnstæðum gafli og sprengdu rúðuna út.
Engan sakaði enda sprengjan
sprengd að næturlagi og ekki er vit-
að hveijir þama voru að verki, að
sögn lögreglu. Þetta er fyrsta rör-
sprengjan sem vitað er til að sprengd
hafi verið í bænum í vetur. Undanfar-
in ár hafa nokkrir unglingar á höfuð-
borgarsvæðinu slasast alvarlega við
það að búa tii eða sprengja slíkar
rörsprengjur.
Fyrir þremur árum slösuðust tveir
unglingar í Hafnarfírði þegar neisti
hljóp í púður þegar þeir voru að koma
fyrir sprengiefni og kveikjuþræði í
rörbút. Annar þeirra hlaut mikinn
augnskaða. Í fyrra meiddist ungling-
ur í Kópavogi alvarlega á hendi þeg-
ar neisti hljóp í púðurkorn sem leynd-
ist milli gengja í rörsprengju sem
hann var að skrúfa snitttappa á.
Lögregluvarðstjóri sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær að lögreglan
vildi hvetja foreldra til að vera á
varðbergi gagnvart því að börn
þeirra séu að eiga við rörsprengjur.
„Þetta eru stórhættulegar sprengjur,
alveg jafnhættulegar og hand-
sprengjur til að nota í hernaði. Svona
lagað á ekkert erindi í hendurnar á
börnum og unglingum,“ sagði lög-
reglumaður sem rætt var við í gær.
Búist við svipaðri
flugeldasölu og í fyrra
ÆTLA má að að landsmenn kveðji gamla árið og heilsi því nýja með
160-170 tonnum af flugeldum, að verðmæti um 200 miHjónir króna,
að sögn Björns Hermannssonar, framkvæmdasljóra Landsbjargar.
Flugeldasalan fyrir áramótin virðist vera með svipuðu sniði og undan-
farin ár, að mati viðmælenda Morgunblaðsins, þótt sums staðar megi
merkja nokkra verðlækkun frá því í fyrra. Salan hófst í fyrradag á
höfuðborgarsvæðinu en daginn áður úti á landi.
Björn Hermannsson, fram-
kvæmdastjóri Landsbjargar, stærsta
söluaðila flugelda á landinu, sagðist
búast við að íslendingar sendu um
160-170 tonn af flugeldum í loftið
um áramótin, að heildarverðmæti um
200 milljónir króna.
Stefán Bjarnason, sem er í for-
svari fyrir flugeldasölu Slysavarna-
deildarinnar Ingólfs í Reykjavík, seg-
ir að samkeppni, ásamt hagstæðum
innkaupum vegna lágs gengis
Bandaríkjadals, hafi stuðlað að því
að verð hafí að meðaltali lækkað um
10-15% þótt einstaka vörur hafí
lækkað um ailt að 25%. Að sögn
Stefáns seldust nánast allir flugeldar
upp í fyrra og taldi hann því að bú-
ast mætti við að menn tækju inn
meira í ár.
Lúðvík Georgsson hjá Knatt-
spyrnufélagi Reykjavíkur sagðist
vonast til þess að salan yrði svipuð
og í fyrra. í sama streng tók Ragnar
Engilbertsson hjá Ellingsen.