Morgunblaðið - 30.12.1992, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 30.12.1992, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1992 23 Lokafrágangur á sjúkrahúsinu á ísafirði Tilboði tekið í trássi við bmkaupastofnun SIGHVATUR Björgvinsson heilbrigðisráðherra hefur að fenginni um- sögn byggingardeildar heilbrigðisráðuneytisins ákveðið að taka tilboði Eiríks og Einars Vals sf. um lokafrágang á lyflækninga- og hjúkrunar- deild Heilsugæslustöðvarinnar og Fjórðungssjúkrahússins á Isafirði. Aður hafði framkvæmdadeild Innkaupastofnunar ríkisins mælt með því að lægsta tilboðinu, frá Auðuni Guðmundssyni hf., yrði tekið. Auðunn Guðmundsson sagði í Heilbrigðisráðherra fékk málið í samtali við Morgunblaðið að þetta hendur byggingardeild heilbrigðis- væri ekki í fyrsta sinn sem þessu tiltekna verktakafyrirtæki væri út- hlutað verkum á kostnað lægstbjóð- anda. Hann segir að hér sé um póli- tíska úthlutun verkefna að ræða og hyggst hann leita réttar síns fyrir dómstólum ef þörf krefur. Tilboð í verkið voru opnuð 29. október. Að undangenginni rannsókn á fjárhagsstöðu tilboðshafa mælti Innkaupastofnun, 13. nóvember, með því að tilboði Auðuns yrði tekið. Það hljóðaði upp á rúmar 57 milljónir kr. en tilboð Eiríks og Einars Vals var rúmar 58 milljónir. Heil- brigðisráðuneytið fór fram á frekari skoðun á tilboðshöfum en Innkaupa- stofnun ítrekaði fyrra álit sitt. I bréfi sem Smári Haraldsson bæjarstjóri ritar Innkaupastofnun 25. nóvember er. mælt með að samið verði við Auðun. ráðuneytisins, sem mælti með því að gengið yrði til samninga við Eirík og Einar Val sf. Sighvatur Björgvinsson heilbrigð- isráðherra sagði að almennt væri farið að tillögum Innkaupastofnunar í svona málum en þó væru undan- tekningar á því. „Það var farið yfír tilboðin og það kom í ljós að mati Innkaupastofnunar og byggingar- deildar að kostnaðaráætlun var alltof lág. Tilboðin sem bárust eru .rétt rúmlega 90% af kostnaðaráætlun," sagði Sighvatur. „Niðurstaða bygg- ingardeildar heilbrigðisráðuneytisins var sú, að teknu tilliti allra athugana sinna, að mælt var með því að tekið yrði tilboði næstlægsta tilboðshafa. Mér kemur ekki til hugar að bygg- ingardeildin taki pólitíska afstöðu til svona mála frekar en framkvæmda- deild Innkaupastofnunar." Tvöföldun bruna- áverka um áramót í KRINGUM áramót brennast að jafnaði tvöfalt fleiri daglega en á öðrum árstímum og eru brunaá- verkar langalgengastir hjá börn- um á aldrinum 10-14 ára. A öðr- um árstímum eru brunaáverkar algengastir hjá börnum undir fimm ára aldri. Herdís Storgaard, fulltrúi Slysavarnafélags íslands, segir að aldrei verði um of brýnt fyrir foreldrum barna og unglinga að koma í veg fyrir að börn þeirra fikti með flugelda og heimagerðar sprengjur. Hún segir að um hver áramót hafi orðið a.m.k. eitt alvar- legt slys vegna heimagerðra sprengja þar sem fórnarlömb hafa misst einn eða fleiri fingur eða hlotið aðra alvarlega áverka. Orsök þessara slysa er röng notk- un, ógætileg meðferð skotelda og heimatilbúnar sprengjur. Slysa- varnafélag íslands og slysadeild Borgarspítalans vilja brýna fyrir for- eldrum og forráðamönnum að láta ekki unglinga meðhöndla skotelda nema undir eftirliti fullorðinna. „Mörg slysin eru minniháttar en það er talsvert um alvarleg bruna- sár, oftast nær á höndum en einnig á fótum og _ andliti," sagði Herdís Storgaard. „Aramótin eru spennandi og böm og unglingar sækja í flugeld- ana strax eftir jól. Foreldrar gera sér kannski ekki grein fyrir því að börn á aldrinum 10-14 ára mega alls ekki vera ein með flugelda. Margir leyfa það án þess að gera sér grein fyrir þeim hættum sem fylgja því. Það sem er hættulegast eru þess- ar heimatilbúnu sprengjur, þegar börn hella púðri úr skoteldum í rör og útbúa þannig sprengjur," sagði Herdís. Þorgeir Baldursson tekur við viðurkenningunni úr hendi Árna Vilhjálmssonar prófessors. Valinn maður árs- ins í viðskiptalífinu ÞORGEIR Baldursson, forstjóri Prentsmiðjunnar Odda, hefur verið valinn maður ársins í íslensku viðskiptalífi af tímaritinu Frjálsri verslun og Stöð 2. Þetta er í fimmta sinn sem þessi útnefning fer fram og er tilgangurinn sá að vekja athygli á því sem vel er gert i íslensku viðskiptalífi, og hvelja íslenska athafnamenn og fyrirtæki til dáða, segir í tímaritinu. Dómnefndina skipuðu þeir Árni Vilhjálmsson, prófessor í viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands, Erlendur Einarsson, fyrrum for- stjóri Sambands íslenskra sam- vinnufélaga, Sigurður Helgason, fyrrum forstjóri og stjórnarformað- ur Flugleiða, Páll Magnússon, sjón- varpsstjóri Stöðvar 2, Jón G. Haukssori, ritstjóri Fijálsrar versl- unar og Magnús Hreggviðsson, stjórnarformaður Fróða en hann var jafnframt formaður dómnefnd- annnar. Fram kemur í Frjálsri verslun að undir stjórn Þorgeirs Baldurs- sonar hafi Prentsmiðjan Oddi skilað feikigóðum árangri í rekstri á und- anförnum árum, sem og á þessu ári. Að baki árangrinum liggi þrot- laus vinna og útsjónarsemi. Fyrir- tækið sé með starfsemi í Bandaríkj- unum til að afla verkefna og síðast- liðið vor hafi Oddi keypt bókabúðir Sigfúsar Eymundssonar. Rekstur þeirra hafi gengið vel. Nýir eigendur munu uppfylla, skilyrði laga - segir Ragnar Aðalsteinsson stjórnarformaður Skandia íslands RAGNAR Aðalsteinsson, formað- ur stjórnar Skandia Islands, segir að hinir nýju sænsku eigendur tryggingafélagsins muni uppfylla þegar í stað kröfur Iaga um eig- infjárstöðu þess. Eftir sé að reikna út hversu mikið fé þurfi og því sé of snemmt að nefna tölur. Ragnar vildi í sam.ali við Morgun- blaðið ekki tjá sig um það hverjar hann teldi orsakir þess, að Gísli Örn Lárusson seldi félagið aftur til Skan- dia í Svíþjóð. „Málinu er lokið með samkomulagi," var allt og sumt sem Ragnar vildi segja um þau mál. Aðspurður um framhaldið hjá fé- laginu með sænsku eignarhaldi sagði hann að á miðju ári 1991 hefði Skandia ísland sett sér það markmið að selja einkum einstaklingstrygg- ingar eða einkavátryggingar. „Það markmið er óbreytt. Hinn erlendi hluthafi hefur mikinn áhuga á líf- tryggingum og lífeyristryggingum og þær verða næsta skref.1' Ragnar sagði að fyrri samningar um endurtryggingar við Skandia í Svíþjóð myndu nú framlengjast og endurtryggingamál félagsins væru í góðu lagi. Einnig skuldbyndu hinir sænsku eigendur sig til að uppfylla fjárhagslegar kröfur samkvæmt ís- lenzkum lögum. „í lögum eru ákvæði um gjaldþol og greiðsluþol. Eftir er að reikna út með Tryggingaeftirlitinu hvað þurfí að gera til að uppfylla gjaldþolskröfurnar. Fyrirtækið er út af fyrir sig gjaldfært, þ.e. hefur rétt- an höfuðstól, hvernig sem á það er litið. En það er út af fyrir sig ekki nóg, það þarf að hafa ákveðna eig- infjárstöðu, sem fer meðal annars eftir því hvað fyrirtækið ætlar í mikla markaðssókn. Nú þarf að gera áætl- un fyrir næsta ár og hún hefur áhrif á mat á þörf fyrir nýtt hlutafé," sagði Ragnar. Ekki náðist í Gísia Örn Lárusson í gær. íslensku afbrota- mennirnir í Flórída Báðir hafa játað og bíða dóms Frá Atla Steinarssyni, fréttaritara Morgunblaðsins HINN síðari af íslendingunum tveimur, sem setið hafa i varð- haldi frá því í nóvember fyrir ólöglegan innflutning og sölu hormónalyfja í Flórída, kom fyrir rétt síðdegis í dag. Þar lagði verj- andi hans fram beiðni undirritaða af íslendingnum um að fá að breyta fyrri yfirlýsingu sinni um sakleysi af umræddum verknaði í sekt. Réttarhöldin gengu fyrir sig á mjög svipaðan hátt og þegar sá fyrri kom fyrir dómara í gær. Dómarinn lagði margar spurningar fyrir hinn seka, spurði hann um menntun hans og feril; hvort hann hefði á einhverju skeiði ævinnar verið ánetjaður vímu- efnum, hvort hann væri andlega heil- brigður og hvort hann hefði nokkru sinni þurft að leita sér aðstoðar sál- fræðings. Sakborningurinn svaraði öllum spurningum fljótt og vel og kvað andlegt atgervi sitt gott og hann hefði aldrei verið háður vímu- efnum og væri ekki undir áhrifum nokkurra lyfja nú. Hann kvaðst aðspurður hafa notið góðrar lögfræðilegrar aðstoðar vetj- anda síns og hann hefði sjálfur af fúsum vilja, ákveðið að breyta fyrri yfirlýsingu sinni um sakleysi í viður- kenningu á réttmæti ákærunnar á hendur honum. Hún er að því leyti frábrugðin ákærunni á hendur hins Islendingsins að þessi viðurkennir innflutninginn og söluna, hinn viður- kenndi að hafa átt og selt ólögleg hormónalyf. Dómarinn spurði hvort hann gerði sér grein fyrir því, hvaða réttindum hann afsalaði sér með því að lýsa yfir sekt sinni og fela ákvörðun um refsingu í hendur dómara, m.a. þeim að geta ekki áfrýjað refsidómnum. Sakborningurinn játti því. Dómarinn sagði að hámarksrefs- ing við brotinu væri 5 ára fangelsi og 250 þús. dollara sekt. Hann spurði saksóknara hvaða refsingu hann færi fram á og fékk þau svör að krafist væri 5 ára fangelsis og tveggja ára undir eftirliti eftir það. Veijandinn kvaðst vonast eftir væg- ari refsingu. Fréttatilkynning Skandia íslands Eðlileg lansn málsins HER fer á eftir fréttatilkynning Skandia Islands, sem send var út í gær: „Gísli Örn Lárusson, sem fyrir stuttu keypti öll hlutabréf í Skandia ísland, hefur nú selt til baka öll hluta- bréf til Skandia í Svíþjóð! Skandia ísland verður þar með dótturfélag Skandia Group-samsteypunnar og að fullu í eigu hennar. Þar sem erf- itt hefur verið að reka Skandia ís- land áfram á þann hátt, sem gert var ráð fyrir, þegar fyrri samningur- inn var gerður, er þetta eðlileg lausn málsins. Markmið Skandia með kaupunum er að tryggja áframhaldandi rekstur Skandia Island og að gæta þannig hagsmuna vátryggingartaka og hlut- hafa í félaginu. Sem lið í þessu mun Skandia nú leggja nauðsynlegt fjár- magn til Skandia ísland, svo að upp- fylltar séu íslenskar kröfur um eigið fé. I tengslum við kaupin lætur Gísli Lárusson Jiegar í stað af störfum hjá Skandia Island. Friðrik Jóhannsson verður til bráðabirgða framkvæmda- stjóri Skandia ísland. Ragnar Aðal- steinsson verður áfram stjórnarfor- maður. Leif Viktorin, forstjóri Skandia Norden, sagði svo í útskýringum sín- um: „Við höfum nú fundið viðunandi lausn, sem tryggir hagsmuni vá- tryggingartakanna. Það var einnig tilgangur okkar með viðræðunum, sem áttu sér stað fyrr í þessum máriuði, að Skandia ísland kæmist að öllu leyti í eigu Skandia. Þá tókst okkur ekki að ná samkomulagi við viðsemjanda okkar. Þar sem við höf- um nú komist að niðurstöðu, getum við haldið áfram vinnu að þeirri stefnu, sem við mörkuðum fyrir rekstur okkar á íslandi. í þeim felst að bjóða varkárum viðskiptavinum á sviði einkavátrygginga tryggingar gegn samkeppnishæfum iðgjöldum og samvinnu við Skandia Norden. Svo sem áður hefur verið ákveðið, getum við nú fyrir alvöru stefnt að nýjum og áhugaverðum lausnum á líftryggingum, er miða að lækkun iðgjalda, í samvinnu við dótturfélag okkar Fjárfestingarfélagið Skandia, sem er að öllu leyti í okkar eigu.“ Sjálfsbjörg - landssamband fatlaðra Hátúni 12 - Sími 29133 - Pósthólf 5147 - 105 Reykjavík - Island Jólahappdrætti Sjálfsbjargar 1992 DregiÖ hefur verið í jólahappdrœtti Sjálfsbjargar, l landssambands fatlaöra 1992. Útdráttur fór fram 23. desember 1992. Vinningar og litdregin númer eru sem hér segir: 1. vinningur nr. 64577 Bifreið af gerðinni Toyota Corolla frá Toyota, P. Samúelsson hf, að’ verðmæti kr. 1.144.000 2.-29. vinningur nr. 3340 10948 36920 50216 66465 4670 11481 36989 53292 67294 6659 15838 37053 54724 67363 8897 23771 40485 56334 69503 10247 33030 41413 56775 10589 36190 47460 63105 Heimilistæki af Siemens gerð frá Smith og Norland, að eigin vali, að verðmæti kr. 300.000 eða draumaferð á vegum ferðaskrifstofunnar Alís til Eng- lands eða Bandaríkjanna að verðmæti kr. 300.000 Samtals 29 vinningar að verðmæti kr. 9.544.000. Vinningar eru skattfrjálsir. Vinningsnúmer birt án ábyrgðar. Vinninga ber að vitja á skrifstofu Sjálfs- bjargar, Hátúni 12,105 Reykjavík, sími 91 -29133. Sjálfsbjörg þakkar landsmönnum stuöninginn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.