Morgunblaðið - 30.12.1992, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1992
Heiðursverðlaun Ásusjóðs
Olafur Halldórsson
handritafræðingnr
fær verðlaunin í ár
Heiðursverðlaun úr Ásusjóði, minningarsjóði um Ásu Guðmunds-
dóttur Wright, voru veitt í gær. Að vanda fór afhendingin fram
í Norræna húsinu. í þetta sinn komu þau í hlut Ólafs Halldórsson-
ar handritafræðings fyrir áratugastarf að handrita- og textarann-
sóknum. Verðlaunahafi hlýtur heiðursskjal, minningarpening um
gefandann og 175 þúsund krónur.
Sturla Friðriksson, formaður
sjóðsstjómar, afhenti verðlaunin,
sem nú voru afhent í 24. skipti,
en Ása gaf Vísindafélagi íslend-
inga peningagjöf á hálfrar aldar
afmæli þess 1968. Gjöfín var til
minningar um eiginmann hennar
og ættingja. Svo vill til að í ár
er öld liðin frá fæðingu Ásu.
Framan af bjuggu Ása og Good-
man eiginmaður hennar í Eng-
landi, en fluttust síðan til Trinidad
í Vestur-Indíum.
Olafur Halldórsson nam íslensk
fræði við Háskóla íslands og
dvaldi síðan við fræðistörf á Árna-
safni í Kaupmannahöfn um árabii
og var einnig sendikennari þar.
Árið 1963 varð hann sérfræðing-
ur á Handritastofnun íslands, sem
nú heitir Stofnun Árna Magnús-
sonar og starfaði þar til 1990.
Hann hefur fengist við textaútg-
áfur og rannsóknir á rithöndum
í handritum. Um þessar mundir
er hann meðal annars að fást við
útgáfu á Ólafs sögu Tryggvason-
ar hinnar mestu, en 1. og 2. bindi
Ámi Sæberg
Frá afhendingu heiðursverðlauna Ásu Wright í Norræna húsinu.
Til vinstri er Sturla Friðriksson að afhenda Ólafi Halldórssyni
verðlaunin.
hennar hefur hann áður gefið út.
Við móttöku verðlaunanna
sagðist Ólafur minnast forvera
sinna, sem hefðu skilað drjúgu
ævistarfí, þrátt fyrir bágar að-
stæður miðað við hjálpartæki
fræðimanna nútímans. Einnig
sagðist hann efast um að sín kyn-
slóð hefði lagt eins mikla rækt
við unga fólkið og hún hefði notið
af hálfu fræðimanna eins og Jóns
Helgasonar, Einars Ólafs Sveins-
sonar og Sigurðar Nordals.
Bundin innlán hafa auk-
ist um 18,6% á einu ári
Almenn spariinnlán hafa minnkað um 1% á tímabilinu
VERÐTRYGGÐ innlán í innlánsstofnunum hafa aukist um 18-24%
á tímabilinu frá nóvember 1991 til nóvember 1992. Bundin innlán
hafa að meðaltali aukist um 18,6%, þar af hafa innstæður skiptikj-
arareikninga aukist um 24% og almerinra verðtryggðra reikninga
um 17,6%. Samtímis þessu hefur upphæð almennra sparilána dreg-
ist saman um 1%, sem þó er mætt með aukningu veltiinnstæðna.
Að sögn Ólafs K. Ólafs, viðskiptafræðings hjá Seðlabanka íslands,
er skýringanna að hluta að leita í því að bankarnir bjóða bestu
kjörin á verðtryggðum innlánsreikningum og skiptikjarareikning-
um. Heildaraukning innlána á tímabilinu nóvember 1991 til nóvem-
ber 1992 var hins vegar 4,3%, sem jafngildir um 3% raunaukn-
ingu, en hún var 2,5% tímabilið þar á undan.
Upphæð almen'nra spariinnlána
innlánsstofnana hefur staðið nokk-
urn veginn í stað síðastliðið ár. í
nóvemberlok í ár nam upphæðin
um 86 milljörðum króna með áætl-
Rafmagnsveita
Reykjavíkur
ll,7%fjölg-
un lokana
á þessu ári
TÍÐNI lokana hefur fjölgað um
11,7% hjá Rafmagnsveitu
Reykjavíkur á milli áranna 1991
og 1992.
Þetta kemur fram í svari raf-
magnsstjóra við fyrirspurn Guð-
rúnar Ögmundsdóttur fulltrúa
Kvennalista í borgarráði. Spurt
var um tíðni lokana síðastliðna sex
mánuði og óskað efíir samanburði
frá sama tíma í fyrra. Fram kem-
ur að frá því í júní hafa lokanir
verið 1.393, þar af flestar í sept-
ember eða 344 en 289 í október.
Á sama tímabili í fyrra voru lokan-
ir 1.247, þar af flestar í septem-
ber 266 en 263 í október. Fjölgun
milli ára er því 11,7%.
Þá segir, að teknu tilliti til fjölg-
unar á mælum milli ára, láti nærri
að lokanir hafi verið um 10% fleiri
á umræddu tímabili árið 1992 en
árið 1991. Sé litið á lokanir allt
frá árinu 1988 hafi lokunum fjölg-
að úr 2.657 það ár í um 2.900
árið 1992 en sú tala er áætluð.
uðum áföllnum vöxtum, og hafði
þá lækkað um 1% frá nóvember í
fyrra, að sögn Ólafs. Hins vegar
hafí átt sér stað veruleg aukning í
bundnum innlánum, sem jukust um
LAUGARDAGINN 19. desember
sl. voru brautskráðir 25 stúdentar
frá Fjölbrautaskólanum í
Garðabæ og einn skiptinemi lauk
þaðan prófi. Athöfnin fór fram í
skólanum.
Þorsteinn Þorsteinsson skóla-
meistari flutti ávarp og afhenti nem-
endum prófskírteini. Einnig fluttu
ávörp Ámi Emilsson, formaður
skólanefndar, og Sigurður Björnsson
fyrir hönd 10 ára stúdenta. Stefán
E. Sigurðsson nýstúdent flutti skól-
18,6% frá nóvember 1991 til nóv-
ember 1992, í tæpa 36 milljarða
króna. Þá hafi veltiinnlán aukist
um 6,2% á sama tímabili, í um 26
milljarða, sem útskýrir að hluta
minnkun almennra spariinnlána,
þar sem einstaklingum eru boðin
sparibókarkjör á tékkareikningum.
Þá jókst upphæð almennra verð-
tryggðra innlánsreikninga um 2,7
milljarða króna án áfallinna vaxta
frá nóvember í fyrra til nóvember
í ár, eða um 17,6%, að sögn Ólafs.
Upphæð skiptikjarareikninga hafí
hins vegar aukist um 3,3 milljarða,
eða 24%.
„Það má segja að vaxtarbroddur-
inn sé í bundnum, verðtryggðum
anum og starfsmönnum hans kveðjur
frá nemendum.
Gísli Ragnarsson aðstoðarskóla-
tneistari og Kristín Bjarnadóttir
áfangastjóri veittu nemendum viður-
kenningu fyrir góðan námsárangur.
Tveir nemendur, Ijóla Ólafsdóttir og
Unnur Arna Jönsdóttir, hlutu verð-
laun fyrir besta námsárangur, þar
sem engin leið reyndist að gera upp
á milli þeirra. Þær hlutu einnig báð-
ar verðlaun fyrir ágætan árangur í
íslensku, stærðfræði, þýsku, íþrótt-
reikningunum og skiptikjarareikn-
ingum,“ sagði Ólafur. „í lok nóvem-
ber 1989 tilkynnti Seðlabanki ís-
lands innlánsstofnunum að skipti-
kjarareikningar skyldu eingöngu
vera bundnir, þar sem lög um verð-
tryggingu sparifjár heimila ekki
verðtryggingu innstæðna til
skemmri tíma en sex mánaða. Það
á þátt í að skýra mikinn vöxt í
bundnum reikningum árið 1990.
Það eru auk þess einfaldlega góð
kjör á verðtryggðum innlánsreikn-
ingum og skiptikjarareikningum'hjá
bönkunum. Bankar og sparisjóðir
hafa einnig leitast við að bjóða
bestu kjör á þessum reikningum,
meðal annars vegna samkeppni við
aðrar sparnaðarleiðir á fjármagns-
markaði."
um og skólasókn, auk þess sem Fjóla
hlaut verðlaun fyrir góða frammi-
stöðu í líffræði, efnafræði og jarð-
fræði, ensku og dönsku, en Unnur
Arna fyrir sögu, bókfærslu og hag-
fræði.
Auk þess fékk Elfur Logadóttir
viðurkenningu fyrir ágætan árangur
og miklar framfarir í þýsku og ensku,
Helena Ámadóttir fyrir dönsku,
Steinar Ingi Matthíasson fyrir íþrótt-
ir og skólasókn og Grétar Strange
fyrir íþróttir.
Enginn bar-
lómur þrátt
fyrir bágt at-
vinnuástand
Húsavík.
„ATVINNUÁSTANDIÐ á árinu
var ekki nógu gott. En ég held
að Húsavík hafi náð að halda
nokkuð í horfinu, meðan margir
aðrir bæir hafi sigið meira niður
en við. En skráning okkar nær
yfir alla sýsluna óg sýnir hún of
mikið atvinnuleysi," sagði Ágúst
Óskarsson starfsmaður verkalýðs-
félags Húsavíkur.
Fyrir atbeina Verkalýðsfélags
Húsavíkur tókst á árinu að koma á
samstarfi milli Húsavíkurbæjar og
Atvinnuleysistryggingarsjóðs um
að vinna að gróðurvernd og upp-
græðslu í landi Húsavíkurbæjar og
voru þau verkéfni unnin í samstarfi
við Húsgull, sem er áhugamannafé-
lag Húsvíkinga. Við þetta unnu 27
manns, sem annars hefðu verið á
atvinnuleysisskrá og bótum. Þetta
var tilraun, sem tókst það vel, að
nú er til athugunar hjá fleiri bæjum
að koma á slíkri vinnu á næsta ári.
Starfsemi Fiskiðjusamlags Húsa-
víkur gekk nokkuð vel og meiri
vinna var í desember en undanfarin
ár en það var að þakka kaupum á
svonefndum „Rússafíski", því bol-
fiskafli fer ár hvert minnkandi.
Árið 1988 fékk FH til vinnslu um
6.200 tonn af bolfiski en á þessu
ári nær innleggið ekki 4.400 tonn-
um. Aftur á móti hefur það úr
bætt að rækjuaflinn hefur aukist
úr 1500 tonnum 1986 upp í um
3.800 tonn í ár og hefur það skap-
að nokkuð jafnvægi í atvinnu hjá
Fiskiðjusamlaginu.
Þó útlitið sé ekki gott heyrir
maður ekki mikinn barlóm í bæj-
arbúum og horfa margir Húsvíking-
ar björtum augum til framtíðarinn-
ar.
Fréttaritari.
Tösku stol-
ið af konu
RÁÐIST var á fullorðna konu
fyrir utan heimili hennar á Tóm-
asarhaga og tösku stolið af
henni. Konan slapp ómeidd und-
an árásarmanninum. Leit að hon-
um í gær bar ekki árangur.
Lögreglan fékk tilkynningu laust
eftir kl. 17 í gær um að ráðist hefði
verið að fullorðinni konu þar sem
hún var á gangi'á Tómasarhaga.
Maður vatt sér að konunni, þreif
af henni tösku og hvarf á braut. Í
töskunni var veski með ávísana-
hefti og greiðslukorti auk einhverra
peninga.
------» ♦ ♦-----
Félagið Ísland-Palestína
Utifundur á
Lækjartorgi
FÉLAGIÐ Ísland-Palestína, með
stuðningi fjölmargra samtaka
launafólks, gengst fyrir útifundi
á Lækjartorgi í dag, 30. desem-
ber, kl. 17.15.
Fundurinn er haldinn til stuðn-
ings mannréttindabaráttu Palest-
ínumanna og kröfunni um að 415-
menningarnir, sem eru í útlegð, fái
þegar í stað að snúa heim til sín.
I frétt frá samtökunum segir, að
fundurinn sé einnig haldinn til
stuðnings kröfunni um að íbúar
herteknu svæðanna fái alþjóðlega
vernd á vegum Sameinuðu þjóð-
anna.
Ræðumenn verða Steingrímur
Hermannsson alþingismaður og
Ögmundur Jónasson formaður
BSRB. Tónlist flytja KK og Stella
Hauks. Fundarstóri verður Sveinn
Rúnar Hauksson iæknir.
(Fréttatilkynning)
Stúdentahópurinn með Þorsteini Þorsteinssyni skólameistara t.v. og Gísla Ragnarssyni, aðstoðarskóla-
meistara t.h.
25 stúdentar útskrifaðir frá
Pj ölbrautaskólanum í Garðabæ