Morgunblaðið - 30.12.1992, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 30.12.1992, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1992 Hjónaminning Jóhannes Sveinbjörns■ son og Margrét Þórð- ardóttir, Heiðarbæ I Margrét Fædd 29. nóvember 1907 Dáin 31. desember 1974 Jóhannes Fæddur 22. júní 1905 Dáinn 19. desember 1992 Landafræðitími í grunnskóla fyr- ir mörgum árum. Verkefnið er ein af sýslum landsins. Undirrituð vel- ur Árnessýslu. Af hverju? spyr kennarinn. Jú, þar er nefnilega Þingvallasveitin, fallegsti staður landsins! Og svo fer reyndar að aðrir staðir í sýslunni koma ekki mikið við sögu í þeirri ritgerð! Ekki í fyrsta né síðasta sinn sem sú sveit fékk að njóta sín á prenti í misgóðum ritsmíðum í grunn- skóla. Raunar komst fátt annað að. Yfir sveitinni og árvissum sumar- dvölum hjá afa og ömmu á Heið- arbæ hvíldi alltaf einhver ævintýra- ljómi. Eða var það kannski bara lífið í hnotskum? Það að vera full- gildur meðlimur í litlu samfélagi, fá að taka þátt í raunverulegum störfum daglegs lífs, fá að vera úti í misjöfnum veðrum, umgangast skepnumar og verða vitni að tilurð þeirra og dauða á stundum. Nú hafa bæði afi og amma feng- ið hvíldina. Amma lést fyrir réttum átján árum og afi verður jarðsettur í dag. Og vart er hægt að kveðja Jóhannes afa án þess að minnast um leið Margrétar ömmu. Margrét amma var fædd og upp- alin á traustu og góðu heimili í Eilífsdal í Kjós og hafði hennar fólk búið þar lengi. Foreldrar henn- ar voru Þórður Oddsson og Þórdís Ólafsdóttir og áttu þau 9 böm. Af þeim var amma næstelst. Systkini á lífi eru Guðríður, búsett í Króki í Flóa, Ólafur, sem dvelur á elli- heimilinu Ási í Hveragerði og Ás- gerður, búsett í Reykjavík. Þegar amma nálgaðist tvítugs- aldurinn fór hún í vinnu til Reykja- víkur á vetuma ásamt Guðrúnu systur sinni og vann þá ýmist í fiski eða á heimilum. Á sumrin fóru þær systur hins vegar heim í Eilífsdai að hjálpa til við búskapinn, en Þórð- ur faðir þeirra varð snemma slæm- ur til heilsunnar. Vorið 1932 réðst Margrét amma að Heiðarbæ. Heimilisfólk þar var henni reyndar ekki með öllu ókunn- ugt, enda líka úr Kjósinni og höfðu hún og Halldóra systir afa til dæm- is gengið saman í barnaskóla. Dvöl- in á Heiðarbæ varð lengri en upp- haflega stóð til og giftu þau afi sig 3. júní 1933. Afi fæddist á Hvítanesi í Kjós. Foreldrar hans voni þau Sveinbjöm Einarsson og Sigrún Jóhannesdótt- ir. Afi var næstelstur sex systkina og lifir Regína systkini sín, búsett að Skálabrekku í Þingvaílasveit. Árið 1921 fluttu foreldrar þeirra að Heiðarbæ með bömin, þegar afi var aðeins 16 ára gamall. Á ámnum 1927 til 1936 var afí á vertíð suður með sjó. Eitthvað reyndi hann fyrir sér á sjónum en varð að hætta því sökum hastar- legrar sjóveiki og vann þess í stað við beitningu. Þótti hann með hand- fljótustu mönnum og var þess vegna eftirsóttur til starfans. Þess- ar vertíðir vann hann hjá Magnúsi í Höskuldarkoti og Finnboga í Tjamarkoti. Árið 1927 lést Sigrún, móðir afa. Brátt fóru tvær elstu systumar ,að heiman og það var í framhaldi af því árið 1932 að amma kom að Heiðarbæ. Jóhannes afí tók við búskapnum af Sveinbimi föður sín- um, um það leyti sem hann og amma giftu sig. Afi og amma eignuðust fjögur böm. Þau em: Þórdís, gift Magn- úsi Jónassyni bónda í Stardal, Sig- rún fulltrúi hjá Námsgagnastofn- un, gift Gunnari Guttormssyni, Sveinbjöm bóndi á Heiðarbæ, kvæntur Steinunni Guðmundsdótt- ur og Jóhanna hjúkmnarkona, gift Gesti Ólafi Karlssyni; búsett í Kópavogi. Á Heiðarbæ ólst einnig upp Sig- ríður Kjartansdóttir, gift Þorsteini Guðbjömssyni og búsett í Reykja- vík. Bamabörn ömmu og afa urðu 12 talsins og em 11 á lífi. Afí lifði það að verða langafi og em bama- barnabömin tvö. Á fimmta áratugnum veiktist afí af lömunarveikinni og hafði ekki fulla starfsorku eftir það. Það hlýt- ur að hafa verið honum og ömmu þungbært, þótt ekki féllu um það mörg orð. Það kom því fljótt í hlut Sveinbjamar, sonar hans, að ann- ast öll dagleg bústörf, þótt þeir byggju félagsbúi, en afi sá eftir sem áður um alla aðdrætti og útrétting- ar. Árið 1967 kvæntist Sveinbjöm Steinunni Guðmundsdóttur frá Kollafirði og tók upp frá því alveg við búskapnum. Það hefur varla verið mjög auðvelt fyrir unga konu að hefja búskap á heimili tengda- foreldra en þó held ég að bæði amma og Steinunn hafi jafnan bor- ið gæfu til að láta hlutina ganga upp eins og best varð á kosið. Amma eftirlét Steinunni smátt og smátt stjómtaumana á heimilinu og tók þess í stað að sér ömmuhlut- verkið á þann hátt að fáar hefðu gert það með meiri sóma. Mig lang- ar til að nota tækifærið og þakka Steinunni hér sérstaklega fyrir alla þá alúð, hlýju og umhyggju sem hún auðsýndi ömmu og afa, sér í lagi nú síðustu árin eftir að heilsu afa tók að hraka. Ekki er hægt að minnast afa og ömmu á Heiðarbæ, án þess að geta þess að á Heiðarbæ var og er enn tvíbýli. Á Heiðarbæ II, bjó Einar, bróðir afa. Á milli bæjanna tveggja hefur alltaf verið mikill samgangur og góð samvinna. Á Heiðarbæ I hefur jafnan verið talað um að skreppa „heim í bæ“ þegar farið er yfír bæjarlækinn. Þegar Einar lést árið 1974, aðeins örfáum vik- um á undan ömmu, tók Sveinbjöm sonur hans að öllu leyti við búinu. Þannig búa þeir nú hvor sínu meg- in við bæjarlækinn bræðrasynimir tveir, Sveinbjöm Einarsson og Sveinbjöm Jóhannesson, ásamt fjölskyldum sínum. Við bamaböm Jóhannesar og Margrétar eigum afar dýrmætar minningar um þau; minningar sem ekki verða frá okkur teknar þótt þau séu nú horfin af sjónarsviðinu. Heiðarbæjarbörnin, þau eldri, urðu þeirrar gæfu aðnjótandi að alast upp að hluta til með bæði afa og ömmu en yngri systkinin þekkja aðeins til ömmu af frásögn. Við systumar úr Reykjavík, áttum hins vegar vísan dívaninn inni hjá afa og ömmu sumar eftir sumar og fáum það aldrei fullþakkað. Við munum seint gleyma dívaninum, sem brakaði svo notalega í og stóru klukkunni yfír honum, sem sló svo heimilislega. Ömmu sé ég enn skýrt fyrir mér þar sem hún situr á gamla dívanin- um í herberginu sínu í gamla bæn- um með lopapeysu á pijónunum, raulandi fyrir munni sér. Amma var aldeilis einstök kona. Hún var bæði skarpgreind og spakvitur þótt skólaganga hennar hefði ekki orðið löng. En sú menntun sem sótt er í skóla lífsins reynist oft haldgóð. Amma hafði unun af söng og kunni ógrynnin öll af lögum og kvæðum. Hún var einnig stálminn- ug og er mér sagt að hún hafí getað þulið heilu bækumar utan- bókar, jafnt sögur sem kvæði. Það má nærri geta að böm hennar og bamaböm nutu góðs af, enda mörg þeirra býsna söngvin og hafa gam- an af tónlist. Amma var einnig mikil handavinnukona og þeir vom fáir í fjölskyldunni sem ekki áttu lopapeysu, sokka eða vettlinga, sem amma hafði pijónað. Amma var einstaklega góður uppalandi. Á okkur barnabörnun- um hafði hún sérdeilis gott lag, svo og á öðmm þeim börnum og ungl- ingum sem dvöldust á Heiðarbæ um lengri eða skemmri tíma. Ég er þess fullviss að strákamir sem löngum vom vinnumenn á Heið- arbæ á sumrin, minnast hennar og afa með mikilli hlýju. Við ömmu var hægt að ræða alla skapaða hluti, hún sýndi öllu skilning. Á sinn hátt var hún líka fijálslyndari og umburðarlyndari en gengur og gerist með hennar kynslóð. Skemmtilegt dæmi um það var sumarið 1970, þegar afí og amma fóm í siglingu umhverfis landið með Gullfossi. Þá skildi amma vísvitandi eftir bók á nátt- borðinu sem hún vissi að forvitið stúlkubam myndi finna en vildi ekki að afi vissi af. Á kápunni stóð skýrum stöfum „Krossfiskar og hrúðurkarlar", en innihaldið hafi ekkert með kápuna að gera heldur fjallaði um samskipti kynjanna og aðrar gátur lífsins. Svona var amma. Hjá afa og ömmu var mikil para- dís bókaorma. Á Heiðarbæ var ógrynni bóka og vom afi og amma bæði víðlesin og mikið fyrir bækur. Það jafngilti nánast fjársjóðsleit fyrir bókþyrst stúlkubam að fá að fara upp á háaloft í gamla bænum, þá sjaldan amma gaf leyfi til, og grúska þar í gömlum kössum í leit að bókum, fötum, bréfum eða bara einhvetju spennandi. Það var eins og að hverfa mörg ár aftur í tím- ann og gekk jafnan erfiðlega að ná stúlkukindinni niður aftur þó að ilmur af nýbökuðum vöfflum dygði á endanum oftast til. Eg sé afa skýrt fyrir mér liggj- andi uppi í rúmi, með ótölulegan fjölda kodda undir höfðinu, gler- augun á nefinu, nokkur tóbakshom á bijóstinu, bók í hendi, útvarpið á náttborðinu við hliðina og veður- fréttimar stilltar vel hátt. Við bamabörnin vissum að ef komið var inn í herbergið til afa meðan á veðurfréttum stóð, var hann vart viðræðuhæfur og auðvelt að fá á tilfinninguna að verið væri að tmfla eins konar helgiathöfn. Árin sem afi vann suður með sjó, vom honum afskaplega hug- stæð, enda hafði hann þá fulla starfsorku og þrek. Þegar afi minntist vertíðanna þar, var eins og svipur hans breyttist og yrði svolítið prakkaralegur. Horfínn var þá „afasvipur", kominn glampi í augum og annar maður og yngri kominn í staðinn. Afi var töluvert berdreyminn og dreymdi oft fyrir mannaferðum, veðri og þess háttar. Ekki var laust við að við krakkarnir kímdum yfir þessum draumafrásögnum afa, en ekki varð þó á móti borið að oft rættist það sem afi sagði fyrir um. Það er gaman að minnast allra skemmtilegu orðanna sem afi not- aði í stað þeirra sem nútímabömum er gjarnt að nota, svo sem eins og smjer (smjör), ket (kjöt), beiddi (bað) og fleiri. Af var mjög félagslyndur og hafði mikinn áhuga á fólki, örlögum þess og afdrifum. Hann naut þess að fara á aðra bæi, jafnvel í langa bíltúra í Kjósina og Borgarfjörðinn, og helst þurfti að gera stans á hveijum bæ og drekka kaffisopa. Og þegar hann gat ekki lengur keyrt sjálfur, urðu aðrir til þess að bjóða honum í bfltúra sem hann þáði með þökkum. Afi fylgdist alltaf mjög náið með búskapnum þó að sonur hans væri tekinn við. Hann rölti gjaman út á tún, út að hlöðu eða upp í „grófir“ til að kanna stöðu mála. Svo var líka alltaf hægt að skreppa „heim í bæ“ til að fá einhveijar fréttir. Það var afí sem kenndi barna- bömunum að spila Marías og var ólatur við að stytta okkur þannig stundir á rigningardögum í sveit- inni. Það var líka afi sem kenndi öllum bamabömunum og nú undir það síðasta barnabarnabami að hjálpa sér að taka í nefið með til- þrifum. Síðustu ár afa þegar hann lá á Reykjalundi snerist hugsun hans að mestu um Heiðarbæ og fjöl- skylduna þar. Það voru engar frétt- ir sem ekki snertu á einn eða ann- an hátt Heiðarbæ; veðurfar, sprett- una, heyskapinn, skepnuhald o.fl. Þó að afí hefði helst af öllu viljað vera heima, er ég afar þakklát fyr- ir að hann skyldi fá að vera á Reykjalundi þar sem hann naut alúðar og einkar góðrar umönnunar af hálfu starfsfólks. Út um gluggann sá hann Esjuna og sjónin var enn svo góð að hann gat alveg fylgst með heyskap á bæjum í ijarska út um gluggann, rétt eins og hann gat greint mörkin á rollu- skjátunum í vegarköntunum forð- um. í dag þegar afi verður lagður til hinstu hvílu við hlið ömmu, er mér efst í huga þakklæti fyrir að hafa mátt njóta samvista við þau bæði og gleði yfir öllum þeim skemmti- legu og fallegu minningum sem þau skilja eftir í huga mér. Þær minn- ingar verða varðveittar um ókomna tíð. Hvíli þau í friði. Magga Gunnars. Mig langar að' fara nokkrum orðum um afa minn, Jóhannes Sveinbjömsson, sem lést á Reykja- lundi 19. desember síðastliðinn. Ég var svo heppinn á mínum yngri árum að fá að vera í sveit á Heiðarbæ í Þingvallasveit. Þar fékk ég fljótlega minn fasta svefnstað sem var inni hjá afa. í fyrstu átti ég afskaplega erfitt með svefn. Það stafaði í fyrsta lagi af hrotunum í afa og einnig vegna veggklukkunn-' ar sem hékk á veggnum fyrir ofan mig og sló á hálftíma fresti. Ég vandist þessu samt fljótt og fannst alltaf mjög notalegt að vera í nær- veru gamla mannsins. Það vill svo til að ég er einn af þeim sem geta aldrei komið sér í háttinn á kvöldin og hafði afi mikl- ar áhyggjur af þessu. Þegar hann var að fara að sofa, kom hann fram og sagði við mig: „Jæja, Andri minn. Ég er að fara að sofa. Þú kemur svo fljótlega, er það ekki?“ Ég verð nú að viðurkenna að ég var nú ekki alltaf mjög fljótur að hlýða þessari bón, eins og oft er með börn á þessum aldri. En það var samt alltaf notalegt að fínna það, að honum var ekki alveg sama um hvenær maður fór að sofa. Afi sagði okkur barnabörnunum oft sögur. Þá var skyggnst í fortíð- ina, í þann tíma sem hann var við góða heilsu. Glettnin skein alveg úr augunum á honum þegar hann sagði okkur frá lífi sínu í starfi og leik á þessum tíma. Þetta fannst okkur krökkunum ofsalega gaman að hlusta á og báðum við hann að segja okkur sumar sögurnar aftur og aftur. Ég var oft staddur á Heiðarbæ helgina sem kvenfélagsballið var haldið í sveitinni. Þá vorum við Kolbeinn einir heima hjá afa á meðan ballið stóð yfír. Við hugsuð- um okkur þá oft gott til glóðarinn- ar, að fá nú að horfa á alla sjón- varpsdagskrána fram á nótt. En þá kom það stundum fyrir, að afi kom fram og slökkti á sjónvarpinu vegna þess að myndin var bönnuð bömum. Þetta vorum við nú ekki alltaf sáttir við, en sögðum samt aldrei neitt, því að auðvitað var þetta bara vel meint hjá afa gamla, að banna okkur að horfa á glæpa- myndir. Þeir voru ófáir súkkulaðibitarnir sem afi stakk upp í okkur bama- börnin. Þá kallaði hann oftast á okkur inn til sín og gaf okkur sinn bitann hveiju. Ég man alltaf eftir því hvað við vorum þakklát, því að afí var ekkert að mata okkur á sælgæti á hveijum degi. Þetta var svona um það bil vikuleg uppákoma og urðum við miklu þakklátari fyr- ir vikið og kysstum við afa alltaf fyrir. Afi var ekki vanur að leifa mat og ætlaðist að sjálfsögðu til hins sama af okkur bamabörnunum. Ef við bárum fram einhveijar kvartanir, eins og krakkar gera iðulega, sagði hann: „Það er vel hægt að éta þetta.“ Ég minnist þess alltaf hvað mér þótti gaman að gefa afa í nefið sem krakki. Þá tók hann í höndina á mér og setti smá tóbakshrúgu á handarbakið. Svo saug hann upp í nefið af öllum lífs og sálarkröftum. Þetta fannst okkur krökkunum allt- af jafn spennandi. Það er svo margt sem kemur upp í huga minn á svona stundu, meira en hægt er að rekja hér. Ég kveð afa minn með miklum sökn- uði og jafnframt þakklæti fyrir þær stundir sem ég fékk að njóta í nærveru hans. Andri Þór. Okkur systkinin frá Heiðarbæ langar til að minnast Jóhannesar afa okkar með nokkrum orðum. Margs er að minnast og eigum við afa okkar mikið að þakka því við höfum lært ýmislegt af honum um dagana. Þegar við náðum 5-6 ára aldri hófst okkar skólaganga en „skól- inn“ var einmitt inni í afa her- bergi. Þá hringdi hann lítilli bjöllu á tilsettum tíma og við trítluðum inn til hans með skólatöskuna á bakinu. Svo var sest á rúmstokkinn og við stautuðum okkur fram úr lesmálinu með dyggum stuðningi gamla mannsins. Að nokkrum vik- um liðnum vorum við svo útskrifuð úr „litla skólanum". Það var „ósjaldan" að afi tók í spil með okkur krökkunum og voru spiln Trú og Marías í hávegum höfð. Afi var félagslyndur að eðlisfari og sannur vinur vina sinna. Hann var mikið fyrir ferðalög og hafði óskaplega gaman af því að heim- sækja vinafólk sitt svo maður tali nú ekki um hvað honum þótti vænt um að fá heimsóknir sjálfur. Þegar vora tók fór að fara fiðr- ingur um gamla manninn því það var árlegur viðburður hjá honum meðan heilsan leyfði, að fara „suð- ur með sjó“. Þá sló hann tvær flug- ur í einu höggi; heimsótti gamla

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.