Morgunblaðið - 30.12.1992, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 30.12.1992, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1992 CAPUT-hópurinn með tónleika á Kjarvalsstöðum 3. janúar Nýir tónlistarstraumar í upphafi árs CAPUT-hópurinn í Nútíma listasafninu i Amsterdam. CAPUT-músíkhópurinn mun halda tónleika á Kjarvalsstöð- um sunnudaginn 3. janúar 1993. Hópurinn er nýkominn úr sinni fyrstu tónleikaferð til Evrópu, en hann hélt tónleika í Bonn 10. desember, í Amsterdam 12. desember og í Mílanó 13. des- ember. Á efnisskrá eru: Þrefaldur dú- ett eftir Finnann Timo Laiho og Kotva eftir Harri Suilamo, sem eru þekkt tónskáld í Finnlandi; Opus incertum eftir ítalann Pietro Borradori og Les idoles du soleil eftir landa hans Fausto Romitelli; Tvö verk fyrir sjö hljóðfæri eftir Hollendinginn Andries van Ros- sem og landi hans Ivo van Emme- rik er með 0 - sjö verk fyrir þrjú hljóðfæri; Kvartett II eftir Hauk Tómasson og Tvær bagatellur eft- ir Atla Ingólfsson, sem er starf- andi tónskáld á Ítalíu. Ýmis efnilegustu tónskáld ítala, Finna og Hollendinga sömdu tón- list fyrir hópinn til flutnings í þess- ari tónleikaferð - ung tónskáld sem hafa sópað til sín verðlaunum út um allan heim. Að sögn Kol- beins Bjarnasonar, flautuleikara, sem er í forsvari fyrir hópnum — er það sjaldgæft að erlend tón- skáld skrifí fyrir íslenskan tónlist- arhóp. „Þetta er fyrst og fremst spenn- andi tónlist," segir Kolbeinn. „Inn- an um eru kannski verk sem eiga eftir að slá í gegn. Tíminn, sagan og fólkið á eftir að skera úr um, hvert af þessum verkum lifír. Maður verður að treysta dómi sögunnar, þó hann hafí ekki alltaf verið réttlátur. Markmið okkar er að flytja nýja tónlist, frumflytja verk íslenskra tónskálda og kynna það nýjasta í erlendri tónlist." Tíu hljóðfæraleikarar taka þátt í þessum tónleikum: Ásdís Valdi- marsdóttir, lágfíðla; Bijánn Inga- son, fagott; Bryndís Halla Gylfa- dóttir, selló; Gerður Gunnarsdótt- ir, fiðla; Guðni Franzson, klari- nett; Kolbeinn Bjarnason, flauta; Snorri Sigfús Birgisson, píanó; Svanhvit Friðriksdóttir, horn; Ste- ef v. Oostenhout, slagverk; Kjart- an Ólafsson, hljóðgervill. Stjóm- andi er Guðmundur Óli Gunnars- son. Um tuttugu ungir íslenskir hljóðfæraleikarar eru í CAPUT, sem starfa ýmist á íslandi eða erlendis. Margir af fremstu hljóð- færaleikurum okkar eru í CAPUT og „nafnið ber þess vitni, að við gerum niiklar kröfur til okkar sjálfra, en CAPUT þýðir höfuð eða það sem stendur upp úr,“ segir Kolbeinn. „Við höfum öll svo mik- ið að gera, að það var merkilegt að geta fundið heila viku til æf- inga. Þetta var stíf en mjög skemmtileg vika.“ Hópurinn hittist í Amsterdam 4. desember og fékk frábæra æf- ingaaðstöðu í Gaudeamus-stofn- uninni. „Við æfðum saman í um 7 tíma daglega, síðan hver ein- stakur á sitt hljóðfæri, svo segja má að æfíngar hafí staðið í 10-12 tíma á sólarhring,“ segir Kolbeinn. „Æfðum tíu verk og erlendu tón- verkin svo fersk, að tónskáldin voru ýmist að senda breytingar, eða koma fljúgandi til okkar og vera með okkur á æfingum, stund- um með allt aðrar hugmyndir, stundum passaði þetta allt saman. Ómetanlegt fyrir okkur að fá tækifæri til að vinna með erlend- um tónskáldum.“ Og sjaldgæft tækifæri fyrir ís- lendinga að heyra splunkunýja tónlist frá ólíkum löndum, fá að skynja hvort tónlistin er bundin þjóðlegri hefð. Má merkja þjóðleg einkenni á hveiju verki fyrir sig? „Verkin eru mjög ólík, skoðanir okkar mjög skiptar. Ég get ekki annað en sagt mína persónulegu skoðun, en mér fannst ég sjá sterk þjóðareinkenni. Við Íslendingar skiljum Finnana best. Þeir eru næstir okkur í hugsun, dálítið þungir og dramatískir, eins og Timo Laiho. Hollendingar eru fín- legri og hógværari, gengur ekki eins mikið á í þeirra tónsmíðum. En hollenska tónlistin vinnur á, þegar maður fer að spila hana. Italir eru eins og þeir hafa ver- ið í mörg hundruð ár - alltaf að- skrifa„virtuosa“ eða glæsilega tónlist, kannski ekki mjög djúpa en hraða, eins og hjá Vivaldi í Árstíðunum. Við frumflytjum ekki íslensk verk á þessum tónleikum, en spil- um nýleg verk eftir Atla Ingólfs- son og Hauk Tómasson. Ég á erf- itt með að heyra eitthvað sérstak- lega íslenskt í þeim verkum. Atli er orðinn einna suðrænastur af okkar tónskáldum. Hann er stjómarmaður í Nuove Sincronie (Samtökum ungra tónskálda í Mílanó). Það var fyrir hans milli- göngu og á vegum samtakanna að þessi tónleikaferð var farin." Voruð þið alltaf með sömu efn- isskrá? „Nei, við höguðum henni eftir aðstæðum á hveijum stað og tón- leikarnir voru skemmtilega ólíkir. í Amsterdam spiluðum við í Nú- tíma listasafninu, þar sem alltaf eru biðraðir fyrir utan. I Bonn vorum við í tónleikasal, sem ný- búið er að byggja við hlið Beetho- ven-hússins, þar sem hann fædd- ist. Stór myndastytta af Beethov- en horfði á móti okkur inn um gluggann og lét okkur ekki í friði alla tónleikana. Mjög gott að vita af Beethoven svona nálægt, en hann var míkið nútímatónskáld á sínum tíma. í Mílanó spiluðum við aftur á móti í kiaustursal frá 15. öld, með munka á sveimi í kringum okkur og freskumyndir á veggjum. Mað- ur hlustar allt öðruvísi á tónlist í slíku umhverfi. Tónleikarnir í Mílanó voru tekn- ir upp af útvarpinu þar. Vona að þeir eigi eftir að hljóma í útvarp- inu hér,“ segir Kolbeinn brosandi. Hann segir að hópurinn hafí verið beðinn um upptökur á tveimur geislaplötum og búið sé að bjóða þeim í tónleikaferð til Ítalíu næsta vetur. Um dóma dagblaðanna í Bonn segir Kolbeinn, að komið hafí fram tvær ólíkar skoðanir. Annar gagn- rýnandinn sagði, að hópurinn væri ekki með íslensk sérkenni, tónlistin hljómaði eins og öll al- þjóðleg nútímatónlist. Hinn sagði, að nýja tónlistin á íslandi væri náttúrleg, tiltölulega einföld - jafnvel með þjóðlegum- streng.„Gaman að heyra svona gjörólík sjónarmið," segir Kol- beinn. Og nú er bara að bíða eft- ir viðbrögðum íslenskra gagnrýn- enda. Þetta er í þriðja sinn sem CAPUT-hópurinn spilar 3. janúar. „Þriðji janúar er okkar tónlistar- dagur. Fólk er svo opið fyrir nýrri tónlist í upphafí árs.“ O.SV.B. Gallerí 11, Skólavörðustíg Myndaröðin „Astand“ og verkið „Borð og tveir stólar“ Ástand 1 - eggtempera á tré (160 x 100 cm) eitt frásagnarverkanna á sýningunni. SÝNING á verkum Ingu Svölu og Olgu Bergmann verður opn- uð í Gallerí 11, Skólavörðustíg 4a, 30 desember, kl. 17.00. Olga Bergmann sýnir temperamál- verk eða myndaröð sem hún nefnir Ástand. Inga Svala sýnir verkið Borð og tveir stólar. Inga Svala og Olga voru bekkjarsystur og útskrifuðust úr málaradeild Myndlista- og hand- íðaskóla Islands vorið 1991. Verk þeirra eru mjög ólík og einmitt þess vegna fínnst þeim að þau njóti góðs hvort af öðru. Inga Svala er nú í framhalds- námi í Hochschule fúr die Bildende Kunste í Hamborg. Þetta er í fyrsta sinn sem hún sýnir á íslandi, en hún hefur fyrr á þessu ári sýnt verkið Borð og tveir stólar á tveim- ur sýningum í Hamborg. Olga Bergmann er búsett í Stokkhólmi. Þetta er einnig í fyrsta sinn sem hún sýnir í heimahögum, en hún hefur áður tekið þátt í sýn- ingum í Stokkhólmi, Gautaborg og á Gotlandi. Inga Svala sýnir annað verkið í röð verka, þar sem kjarni málsins er duftið. Vinnuferlið er mikilvæg- ur hluti þessara verka, hveiju er breytt í duft og hver niðurstaðan- verður. Og á þessari sýningu vinn- ur Inga úr ýmiskonar textum. Olga Bergmann sýnir tempera- málverk, máluð eru á tré, í mynda- röð sem hún nefnir Ástand. „Myndaröðin er einskonar frásögn sem ég vona að sé ekki með öllu venjuleg," segir Olga. „Þetta er frásögn af mínu eigin hugará- standi, sett fram rneð notkun tákna, sem er mjög persónuleg. En ég tel samt að hún hafi nægi- lega almenna skírskotun, til að 'verða ekki mitt .einkamál - með Borð og.tveir stólar voru malaðir niður efni fyrir efni, - borðið sér - stólarnir sam- an. Duftið var sett í 500 gramma glerkrukkur. Á hverri krukku er miði með upplýsing- um um verkið og innihald krukkunnar. \ öðrum orðum - að aðrir freistist Sýning Olgu og Ingu Svölu til að fylgjast með þessu frásagnar- stendur til 13. janúar og er opin málverki.“ ' kl. 14-18. » »

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.