Morgunblaðið - 30.12.1992, Side 40
40
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1992
Minning
Jón V. Asgeirsson
Fæddur 19. desember 1912
Dáinn 22. desember 1922
Tengdafaðir minn, Jón Ásgeirs-
son, lést 22. þ.m. í Landakotsspít-
ala eftir stutt er erfið veikindi. Með
honum er genginn góður drengur
sem var hvers manns hugljúfi.
Jón fæddist á Akureyri 19. des-
ember 1912. Foreldrar hans voru
Ásgeir Pétursson útgerðarmaður á
Akureyri og Siglufírði og Guðrún
Halldórsdóttir kona hans. Jón átti
tvær eldri systur, Ragnheiði Bryn-
dísi, sem giftist Sigurði Sigurðssyni
berklalyflækni og síðar landlækni
og Margréti Kristrúnu (Grétu) sem
giftist Per Olof Hanson, forstjóra í
Gautaborg. Þau eru öll látin. Jón
átti einnig bróður sem lést í frum-
bemsku og uppeldisbróður sem
einnig lést ungur.
Þegar Jón var ungur drengur
fluttist hann til Kaupmannahafnar
með fjölskyldu sinni, en móðir hans
hafði smitast af berklum og leitaði
sér lækninga þar. Hún lést í Kaup-
mannahöfn árið 1941 en Ásgeir ári
síðar, þá fluttur til íslands.
Eftir að Jón lauk skyldunámi hóf
hann nám sem lærlingur í herra-
fataverslun í Kaupmannahöfn. Það
var þriggja ára nám og er hann
hafði lokið því fór hann til London
og dvaldist þar vetrarlangt í versl-
unarskóla. Síðan lá leið hans til
Hamborgar til enn frekara verslun-
arnáms. Að því loknu háfði hann
aflað sér ágætrar menntunar til að
vinna við útgerðarfyrirtæki föður
síns en til þess stóð hugur hans.
Árið 1937 fluttist hann alkominn
-til íslands og hóf störf við útgerð
föður síns á Siglufirði. Tveimur
árum áður hafði hann kynnst eftir-
lifandi eiginkonu sinni, Sigríði Frið-
finnsdóttur, hárgreiðslukonu úr
Reykjavík. Þau giftu sig vorið 1936
í Kaupmannahöfn.
Jón og Silla, en það er Sigríður
ævinlega kölluð, eignuðust fjögur
börn. Þau eru Guðrún Ásgerður
skrifstofumaður, maki, Sigurbjart-
ur Helgason, Ásgeir læknir, maki,
Ragnhildur Benediktsdóttir, Þor-
valdur Friðfinnur sparisjóðsútibús-
stjóri, maki, Guðrún Erla Aðal-
steinsdóttir og Margrét Ásta sölu-
maður í Belgíu, maki, Brynjólfur
Jónsson.
Jón og Silla bjuggu sín fyrstu
búskaparár á Siglufirði en fluttust
síðan til Reykjavíkur 1941. Jón tók
við rekstri útgerðar og síldarsöltun-
ar við lát föður síns 1942. Var
rekstur umfangsmikill því gert var
út bæði frá Siglufirði og Reykjavík,
en síldarsöltun var fyrir norðan.
Minnkandi afli í lok fimmta áratug-
arins knúði hann til að hætta út-
gerð og verulegur samdráttur varð
í síldarsöltun á þessum árum. Jón
fluttist til Danmerkur 1950. Hann
stundaði þar viðskipti með saltfísk
sem hann keypti á íslandi og seldi
áfram til Suður-Evrópu, aðallega
Spánar. Var hann einn brautryðj-
anda slíkra viðskipta. Vel gekk í
fyrstu, en þetta var á tímum hafta
á íslandi, og missti hann því sölu-
umboðið. Jón fluttist heim með §öl-
skyldu sína 1952 eftir rúmlega
ttveggja ára útlegð, ríkari af reynslu
en snauðari af veraldlegum auði,
en hann hafði lagt allt sitt í stofnun
fyrirtækisins í Danmörku.
Árið 1952 hóf Jón síðan störf á
skrifstofu Bæjarútgerðar Reykja-
víkur og starfaði þar óslitið í þijá-
tíu og tvö ár eða þar til hann hætti
fyrir aldurs sakir. í Bæjarútgerð
Reykjavíkur vann hann störf sín
af þeirri kostgæfni og nákvæmni
sem honum var eðlislæg enda áv'ann
hann sér virðingar og vinsældar
samstarfsfólks á skrifstofunni og
ekki síður sjómannanna sem hann
starfaði mikið fyrir.
Jón og Silla voru mjög samhent
hjón alla tíð. Þau virtust alltaf gera
alla hluti saman. Heimili þeirra í
Drápuhlíð 42 hefur verið gest-
kvæmt enda sérlega fallegt og nota-
legt og voru þau góð heim að sækja.
Mér er í fersku minni hve vel mér
var tekið af tengdaforeldrum mín-
um er ég sextán ára unglingur fór
að venja komur mínar á heimili
sonar þeirra. Kynslóðabil þekktist
ekki á því heimili og ævinlega talað
við mann eins og fullorðna mann-
eskju.
Tengdafaðir minn var vel greind-
ur, glaðlyndur, jafnlyndur og
skemmtilegur. Hann var stálminn-
ugur og fylgdist vel með bæði
heimsmálum og landsmálum. Hann
hafði fastmótaðar skoðanir og fór
ekki dult með þær. Það var alltaf
gaman að spjalla við hann því hann
var fróður um margt og hafði einn-
ig þann góða hæfileika að geta séð
spaugilegu hliðar tilverunnar.
Jón var glæsilegur maður, hár
og grannur og eltist vel. Mér fannst
ávallt hann hafa yfír sér blæ heims-
mannsins, enda alinn upp á er-
lendri grund af stórhuga foreldrum
og hafði ferðast víða.
Jón og Silla hafa átt saman langa
og góða ævi þar sem gagnkvæm
ást og virðing hafa verið í fyrir-
rúmi. Árin sem tengdafaðir minn
var á eftirlaunum voru honum sér-
lega dýrmæt og ánægjuleg. Hann
var við góða heilsu og ferðuðust
þau hjónin oft til útlanda og nutu
þess í ríkum mæli.
Nú þegar Jón tengdafaðir minn
er allur fyllist hugur minn ljúfum
minningum frá yfír þijátíu ára sam-
leið með þessum góða manni.
Blessuð sé minning hans.
Ragnhildur Benediktsdóttir.
Elskuiegur móðurbróðir minn,
Jón Vilhelm Ásgeirsson, er látinn.
Hann lést í Landakotsspítala 22.
desember eftir stutta en stranga
legu.
Jón var sonur hjónanna Guðrúnar
Maríu Halldórsdóttur frá Rauða-
mýri við ísafjarðardjúp og Ásgeirs
Péturssonar frá Neðri-Dálksstöðum
á Svalbarðsströnd. Ásgeir var þjóð-
kunnur útgerðarmaður á Akureyri
og Siglufirði. Jón fæddist á Akur-
eyri 19. desember 1912 og ólst þar
upp við mikið ástríki foreldra sinna
og tveggja eldri systra. Hann átti
einn bróður og einn uppeldisbróður,
en þeir dóu báðir ungir. Er Jón var
unglingur fluttu afí hans og amma
heimili sitt til Kaupmannahafnar
vegna veikinda hennar. Jón stund-
aði þar nám við verslunarskóla og
vann síðan við verslunarstörf. Síðar
flutti hann til Siglufjarðar og vann
við síldarverkunarstöð föður síns.
Eftir hrun síldarstofnsins flutti
hann sig um set til Kaupmanna-
hafnar og dvaldist þar um skeið,
en flutti svo heim og hóf störf hjá
Bæjarútgerð Reykjavíkur. Starfaði
hann þar óslitið til ársins 1984 er
hann lét af störfum fyrir aldurs
sakir.
27. maí 1936 kvæntist Jón Sig-
ríði Friðfinnsdóttur, f. 1. júní 1910.
Þau eignuðust fjögur börn, en þau
eru: Guðrún Ásgerður bókari, maki
Sigurbjartur Helgason vélvirki, og
eiga þau fjögur börn, Ásgeir lækn-
ir, maki Ragnhildur Benediktsdóttir
skrifstofustjóri, og eiga þau þijár
dætur, Þorvaldur Friðfínnur spari-
sjóðsútibússtjóri, maki Guðrún Að-
alteinsdóttir bókari, og eiga þau tvo
syni og Margrét Ásta fískkaupmað-
ur í Belgíu, maki Brynjólfur Jónsson
flugvirki, og eiga þau einn son.
Nonni var greindur og góður
maður. Hann var mjög glaðlyndur
og sá alltaf hið spaugilega við tilver-
una. Þó var spaug hans ávallt
græskulaust. Hann hafði yndi af
tónlist eins og systur hans báðar.
Hann var einn þeirra manna sem
tókst að varðveita barnið í sjálfum
sér.
Um tíma bjó Nonni á heimili for-
eldra minna þegar ég var tánings-
stúlka. Ég varð mjög hænd að þess-
um lífsglaða frænda mínum og varð
hann mér nánast sem stóri bróðir.
Við fórum margar skemmtilegar
ferðir niður að höfn að skoða skipin
sem þar lágu við bryggju og oft tók
hann mig með sér á Melavöllinn.
Jón var mikill fjölskyldumaður
og barngóður og naut sín best í
faðmi fjölskyldunnar. Nonni og Silla
áttu yndislegt heimili þar sem alltaf
var gott að koma. Fyrstu endur-
minningar mínar um heimili þeirra
eru frá bemskuárum mínum þegar
þau bjuggu í sama húsi og afí á
Laufásvegi 20. Þær voru margar
heimsóknimar á Laufásveginn og
allar ánægjulegar. Fjölskyldur
Nonna og Bryndísar, móður
minnar, vom mjög samrýndar og
nutu þess að koma saman og var
þá oft glatt á hjalla.
Minnisstæð verður mér seinasta
heimsókn mín og frænku minnar í
Drápuhlíðina til Nonna og Sillu í
haust. Þar tóku á móti okkur öldmð
hjón sem áttu að baki 56 ára hjóna-
band. Elska þeirra og glaðværð
minnti helst á nýgift ungmenni. Svo
samhent vom þau við að reiða fram
veitingar að þar var nánast sem
færi ein manneskja. Okkur frænk-
unum reyndist erfítt að slíta okkur
frá þessum skemmtilegu gestgjöf-
um og yndislegu heimili þeirra.
Samúð mín og fjölskyldu minnar
er hjá Sillu og fjölskyldu hennar.
Megi Guð létta þeim söknuðinn.
Blessuð sé minningin um góðan
mann.
Sigrún Erla Sigurðardóttir.
Erfklnkkjur
Glæsileg Ivaili-
híaðborð íidlegir
salir og nijög
gpð þjóniLstíL
Upplýsingár
í sínia 2 25 22
FLUGLEIDIR
1ÍTEL LIFTLEIIIt
t
Maðurinn minn, mágur og svili,
JÓN ÞÓRARINN BJÖRNSSON
bakarameistari,
Kleppsvegi 40,
andaðist á heimili sínu 28. desember.
Sólveig Jóhannsdóttír,
Adam Jóhannsson, Sigurlína Björnsdóttir.
t
Elskuleg sambýliskona mín, móðir, tengdamóðir og amma,
MARGRÉT KRISTÍN HELGADÓTTIR,
lést í Landspítalanum 28. desember.
Jón B. Ólafsson,
Helgi Aðalsteinsson, Gunnar Aðalsteinsson,
Sumarliði Aðalsteinsson, Anna Margrét Aðalsteinsdóttir,
tengdabörn og barnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
JÓN ÁRNASON,
Efri-Ey,
Meðallandi,
lést 25. desember á heimili sínu.
Jarðarförin fer fram frá Langholtskirkju í Meðallandi laugardaginn
2. janúar kl. 13.00.
Ingibjörg Ingimundardóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN V. ÁSGEIRSSON,
Drápuhlið 42,
verður jarðsunginn frá Háteigskirkju í dag, miðvikudaginn 30. des-
ember, kl. 10.30.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Minningarsjóð Slysavarna-
félags fslands.
Sigriður Friðfinnsdóttir,
Guðrún Á. Jónsdóttir, Sigurbjartur Helgason,
Ásgeir Jónsson, Ragnhildur Benediktsdóttir,
Þorvaldur F. Jónsson, Guðrún E. Aðalsteinsdóttir,
Margrét Á. Jónsdóttir, Brynjólfur Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
MAGNÚSHANNESSON
múrari,
Reykjamörk 8,
Hveragerði,
verður jarðsunginn frá Hveragerðiskirkju laugardaginn 2. janúar
nk. kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Magnús Kjartan Hannesson.
t
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
STEINÞÓR ELÍAS JÓNSSON,
Vestra Skagnesi í Mýrdal,
lést í Landspítalanum að morgni 28. desember.
Sigriður Steinþórsdóttir,
Guðbrandur Steinþórsson, Ásta J. Claessen,
Jón Emil Guðbrandsson,
Jóhanna Lára Guðbrandsdóttir,
Elias Þór Guðbrandsson.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
GYÐA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Skálagerði 7,
andaðist í Landakotsspítala að kvöldi jóladags.
Vigdís Bjarnadóttir,
Margrét Bjarnadóttir,
Jórunn Erla Bjarnadóttir,
Guðríður Bjarnadóttir,
Hreinn Bjarnason,
Guðmundur Már Bjarnason,
Hafdís Harðardóttir,
Rögnvaldur Pétursson,
Hörður Valdimarsson,
Lárus Gunnólfsson,
Margrét Burr,
Guðlaug Nielsen,
Hjálmar Guðmundsson.
t
Innilegar þakkir færum við öllum, sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
SIGRIÐAR Á. D. SÍMONARDÓTTUR.
Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólkinu á elliheimilinu Grund.
Margrét Ólafsdóttir, Orri Gunnarsson,
Ásta Ólafsdóttir,
Friðrik Ólafsson, Auður Julfusdóttir,
ömmubörn og langömmubörn.