Morgunblaðið - 03.01.1993, Síða 2

Morgunblaðið - 03.01.1993, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1993 Ungur maður skaut fjórum skotum af haglabyssu í fjölbýlishúsi en miðaði ekki á fólk Ekki talinn hættu- legur og sleppt eftir yfirheyrslu 21 ÁRS gamall maður, sem var handtekinn á nýársnótt eftir að hafa hleypt af fjórum skotum úr haglabyssu í húsi við Seilugranda, var látinn laus að loknum yfirheyrsl- um, án þess að óskað væri eftir gæsluvarðhaldi. Að sögn talsmanns RLR þóttu ekki rök til þess að óska eftir gæslu- varðhaldi yfir manninum þar sem málið var talíð upplýst og ekki var talin ástæða til að óttast að hætta gæti stafað af honum. Lögreglan var kölluð að fjöl- býlishúsi við Seilugranda um klukkan fimm á nýársnótt. Þar hafði verið samkvæmi í tveimur íbúðum og samgangur á milli. Komið hafði til átaka og byssu- maðurinn, sem bjó í annarri íbúð- inni, hafði sótt tvíhleypta hagla- byssu sem hann átti og hleypt af á gangi blokkarinnar þannig að skot kom í dyrakarm. Síðan fór maðurinn út úr húsinu og skaut þar einu skoti á bíl, öðru upp í loft og loks inn um rúðu inn í íbúð þar sem fólk var fyrir. Þeg- ar því skoti var hleypt af var skot- stefnan upp á við, að sögn RLR, þannig að sýnt þykir að maðurinn hafi ekki miðað á fólk eða ætlað að hæfa neinn með skotinu, þótt fyrir innan og skammt frá hafí verið fólk í samkvæmi. Að sögn RLR hafði maðurinn afhent félaga sínum byssuna áður en lögreglan kom á staðinn og gafst hann upp fyrir lögreglunni, sem hafði sent á staðinn fjölmennt lið, þar á meðal tvo vopnaða vík- ingasveitarmenn. Slegist á slysa- deild MIKIÐ annríki var á slysa- deild Borgarspítalans á nýársnótt. Auk þess sem starfsfólk hafði vart undan að gera að sárum fólks sem þangað leitaði með ýmiss konar áverka fylltist biðstofa slysadeildarínnar af ölvuðu fólki og þurfti lögreglan nokkrum sinnum að hafa af- skipti af slagsmálum á bið- stofunni. Eins og jafnan um helgar var lögreglumaður á vakt á slysadeildinni til að reyna að tryggja starfsfólki vinnufrið og halda aftur af ölvuðu fólki sem þangað leitar. Að sögn Eyjólfs Jónssonar lögregluflokksstjóra sem þar var á vakt var mikill erili alla nóttina og þurfti hann nokkrum sinnum að óska eftir liðsauka starfsfélaga sinna til að flytja á brott ölvaða ólátaseggi. Eyjólfur sagði að talsvert hefði verið um það að menn sem þurft hefðu að láta gera að sárum sínum hefðu fengið með sér á staðinn fjölmennan hóp kunningja, sem hefðu síðan ekki séð ástæðu til að draga úr drykkju- eða gleðilátum þótt þeir væru komnir inn á sjúkra- hús. Auk þess hefði það þrívegis gerst um nóttina að menn sem lent höfðu í slagsmálum og þurftu að leita læknis hefðu hitt andstæðinga sína á bið- stofu slysadeiidarinnar og þá talið nauðsynlegt að taka upp þráðinn í átökunum þar sem frá var horfíð. Maðurinn var færður í fanga- geymslur og síðan til yfirheyrslu hjá RLR. Að sögn lögreglunnar upplýstist málið við yfírheyrslu. Ekki var talið að krafa um gæslu- varðhald yrði samþykkt af dómara þar sem hvorki rannsóknarhags- munir kröfðust þess að maðurinn, sem ekki hefur áður komið við sögu lögreglu, væri hafður í haldi né var fólki talin stafa af honum hætta þrátt fyrir þetta athæfi hans. murgunuiauiu/ ingvitr uuuiuuuubbun Skotmaður handtekinn Byssumaðurinn gafst upp fyrir lögreglunni sem huldi andlit hans með jakka þegar hann var færður út úr húsinu og í lögreglubíl. Rannsóknir á mangangrýti á Reykjaneshrygg Vinnsla mangansets á Reykja- neshrygg ekki hagkvæm nú HAFSBOTNSNEFND iðnaðarráðuneytisins hefur sent frá sér skýrslu um rannsóknir á mangangrýti á Reykjaneshrygg sem áttu sér stað árin 1990 og 1991. Tilgangur þessara rannsókna var að athuga hvernig manganútfellingar myndast, hversu þéttur málmurinn er í botnlögum og hversu útbreiddur hann er. Meðal þeirra niðurstaðna sem fengist hafa er að vinnsla mangangrýtis á þessum slóðum er ekki hagkvæm nú en gæti orðið það á næstu öld. Samstarfshópur vísindamanna frá Hafrannsóknastofnun, Nátt- úrufræðistofnun ísiands, Raunvís- indastofnun Háskólans og Orku- stofnun vann að þessum rannsókn- um með leiðangri Hafrannsóknar árið 1990 og leiðangri rannsóknar- skipsins Áma Friðrikssonar árið 1991. Að því er fram kemur í þeim kafla skýrslunnar, sem fjallar um möguleika á málmvinnslu, er ljóst af bræðslutilraunum að vinna má málma úr setbergi eins og því sem fannst á Reykjaneshrygg. Hins- vegar er mangan ekki mjög dýr málmur og þarf þéttleiki hans að vera nokkuð hár til að vinnsla borgi sig. Hingað til hefur mangan ein- göngu verið unnið úr námum á þurru landi þar sem þéttleiki þess er allt að 52% úr því bergi sem unnið er. Mangankúlur og mang- anset á hafsbotni hafa vakið at- hygli vegna þeirra verðmætu málma sem oft fylgja, á borð við kóbalt, nikkei og kopar. Þéttleiki þessara málma er minni á Reykja- neshrygg en í mangankúlum og seti á botni Kyrrahafsins. Aftur á móti er vinnsla á Reykjaneshiygg auðveldari þar sem dýpi er minna, eða 100-400 metrar á móti 2000- 4000 metrum í Kyrrahafi. Síðan segir í skýrslunni: „Af öllum þessum þáttum má draga þá ályktun að vinnsla mangansets á Reykjaneshrygg geti ekki verið hagkvæm eins og staðan er í dag. Hvað mangan varðar er talið að góðar námur á landi muni endast í a.m.k. eina öld til viðbótar, Með aukinni notkun hinna ýmsu málma í framtíðinni og eftir því sem geng- ur á birgðir í vinnanlegum námum á landi má búast við að horft verði af meiri alvöru til málma á hafs- botni og verður Reykjaneshryggur þá engin undantekning." Höfundar skýrslunnar komast að þeirri niðurstöðu að til að hægt sé að meta vinnsluhæfi mangans á Reykjaneshrygg þurfí að kort- leggja þau svæði þar sem mangan- ríkt set er að fínna en þessi svæði eru einkum í nágrenni við jarðhita- svæði á hryggnum. Einnig er lagt til að fylgst verði náið með rann- sóknum Bandaríkjamanna á Neck- erhryggnum í Kyrrahafí þar sem verið er að kanna svæðið með málmvinnslu í huga. Morgunblaðið/Júlíus Slökkviliðið að störfum við Bíldshöfða 18 í gærmorgun. Lager brann í eldsvoða TALSVERT tjón varð þegar lager fyrirtækisins Georgs Ámundasonar við Bíldshöfða 18 í Reykjavík skemmdist í eldi sem kom þar upp af ókunnum orsökum aðfaranótt laugardagsins. Að sögn slökkviliðs virð- ist sem eldur hafi logað um nóttina án þess að þess yrði vart og var eldurinn að mestu kulnaður þegar slökkviliðið kom á staðinn. Innra byrði á rúðum var sprungið og mátti litlu muna, að sögn slökkviliðs, að húsið, þar sem eru mörg fyrirtæki, yrði alelda. Tilkynnt var um eldinn um klukk- an 10 á laugardagsmorguninn. Þeg- ar slökkviliðið kom að var allt, sem geymt var á um það bil 100 fer- metra lager fyrirtækisins, mikið brunnið, auk þess sem skrifstofur fyrirtækisins og önnur húsakynni voru mikið skemmd af sóti. Þá hafði reykur komist upp á efri hæð húss- ins, meðal annars í húsakynni út- gáfufyrirtækisins Fróða. Eldsupptök eru óljós, en sam- kvæmt upplýsingum Morgunblaðs- ins er talið hugsanlegt að glóð hafi leynst í ruslapoka. 15 íslendingar hlutu fálkaorðu FORSETI íslands sæmdi á ný- ársdag eftirtalda Islendinga heiðursmerkjum íslensku fálkaorðunnar: Árni Björnsson,_ riddarakross fyrir læknisstörf, Ásgeir Péturs- son fyrrverandi sýslumaður og bæjarfógeti, riddarakross fyrir störf í opinbera þágu, Ásgerður Búadóttir listakona, riddarakross fyrir myndlist, dr. Björn Guð- brandsson læknir, riddarakross fyrir friðun fugla, Guðmundur Þorsteinsson dómprófastur, ridd- arakross fyrir störf að kirkjumál- um, Halldór Þormar prófessor, riddarakross fyrir vísindastörf, Jón Nordal tónskáld, stórriddara- kross fyrir tónlist, Kristjana Ragnheiður Ágústsdóttir, ridd- arakross fyrir störf að félags- og skólamálum, Ólafur Davíðs- son ráðuneytisstjóri, stórriddara- kross fyrir störf í opinbera þágu, Ólafur Jensson framkvæmda- stjóri, riddarakross fyrir störf að íþróttamálum fatlaðra og þroska- heftra, Salome Þorkelsdóttir for- seti Alþingis, stórriddarakross fyrir störf í opinbera þágu, Stein- dór Hjörleifsson leikari, riddara- kross fyrir leiklist, Torfí Jónsson oddviti og bóndi, Torfalæk í Torfalækjarhreppi, riddarakross fyrir störf að félags- og sveitar- stjómarmálum, Þráinn Þórisson fyrrverandi skólastjóri, Skútu- stöðum, Mývatnssveit, riddara- kross fyrir störf að fræðslu- og uppeldismálum, Viggó E. Maack skipaverkfræðingur, riddara- kross fyrir störf að siglingamál- um. Auk þess afhenti forseti Ís- lands Knut Gdegárd skáldi stór- riddarakross fálkaorðunnar fyrir framlag hans til eflingar menn- ingartengsla milli íslands og Noregs.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.