Morgunblaðið - 03.01.1993, Page 4

Morgunblaðið - 03.01.1993, Page 4
4 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1993 INIMLENT Skandia í sænskri eigu Skandia-samsteypan í Svíþjóð hefur keypt öll hlutabréfín í trygg- ingafélaginu Skandia íslandi af Gísla Erni Lárussyni for- stjóra. Gísli hafði skömmu áður keypt Skandia út úr fyrirtækinu, en hann átti þriðjung í því á móti Svíum. Leif Viktorin, forstjóri Skandia Nord- en, sagði að það hefði verið mark- mið Skandia allan tímann að eign- ast allt fyrirtækið. Sighvatur Björgvinsson tryggingaáðherra segist telja að hagsmunir við- skiptavina Skandia íslands séu nú tryggðir. Fækkar á Vestfjörðum Vestfírðingar hafa ekki verið færri síðan 1880 og hefur þeim fækkað um 7,4% undanfarinn ára- tug. Landsmönnum fjölgaði um 1,01% á síðasta ári og eru þeir nú 262.202. Gengið inn í kaup á Gylli Flateyrarhreppur og íshúsfélag Ísaíjarðar stofnuðu með sér hluta- félag til að neyta forkaupsréttar að togaranum Gylli, sem seldur hafði verið austur á fírði. Togar- inn á að leggja upp afla á Isafirði, en áhöfnin verður að mestu leyti frá Flateyri. Dagsbrúnarstuldurinn upplýstur Lögreglan hefur upplýst inn- brot á skrifstofur Verkamannafé- lagsins Dagsbrúnar og þjófnað á milljónum króna í peningaseðlum og ávísunum, sem voru í peninga- skáp félagsins. Peningana átti að nota til að greiða út'atvinnuleysis- bætur. Peningaskápurinn fannst í Kópavogshöfn. Sömu menn og grunaðir eru um verknaðinn eru taldir hafa stolið tölvubúnaði í innbroti í fyrirtæki við Kletta- garða. Vextir hækka Bankamir hækkuðu nafnvexti um áramótin um allt að 2%. Vext- ir verðtryggðra útlána banka hafa aldrei verið hærri en á síðasta ári, 9,3% að meðaltali. Innbrotum fjölgar um þriðjung Á gamla árinu fjölgaði innbrot- um í Reykjavík um þriðjung. Kærum vegna þjófnaða og bfl- þjófnaða fjölgaði einnig, en færri voru kærðir fyrir ölvunarakstur en árið 1991. Yfir 90 uppsagnir samninga Degi fyrir áramót höfðu 90 launþegafélög tilkynnt ríkissátta- semjara að þau segðu upp kjara- samningum. Þar af eru 60 félög innan Alþýðusambands Islands. Búizt var við tugum uppsagna í viðbót fyrir áramót. ERLENT STARTH samkomu- lag í höfn Utanríkisráðherrar Rússlands og Bandaríkjanna gengu frá nýj- um afvopnunarsamningi, START II, á þriðjudag. Kveður hann á um að kjamavopnum ríkjanna verði fækkað um tvo þriðju og öllum íjölodda eldflaugum á landi eytt. George Bush Bandaríkja- forseti og Boris Jeltsín Rúss- landsforseti undirrita samninginn í Sotsíj nú um helgina. Sea Shepherd í Noregi Paul Watson, leiðtogi um- hverfishreyf- ingarinnar Sea Shepherd, segist bera ábyrgð á til- raun til að sökkva norskum hvalveiðibáti á annan í jólum. Báturinn lá við bryggju í bænum Steine. Slökkvil- PaulWatson iði bæjarins tókst að bjarga bátn- um í tæka tíð. írösk þota skotin niður Bandaríkjamenn skutu niður íraska herþotu 27. desember. Þot- an var yfír suðurhluta íraks á svæðinu þar sem írökum hefur verið bannað að athafna sig í lofti. EB einn markaður Víða var kveikt í Ifelköstum í Evrópubandalaginu um þessi ára- mót til að fagna því að bandalag- ið er nú einn markaður þar sem ríkir frjálst flæði fjármagns, vinnuafls, vöm og þjónustu. Bret- ar, írar og Danir hafa þó ákveðið að fella ekki niður skoðun vega- bréfa fólks sem kemur frá öðmm EB-ríkjum. Þýska flugfélagið Lufthansa ákvað að lækka far- gjöld um allt að helming um ára- mótin. Panic ætlar að sitja áfram Milan Panic, forsætisráðherra Serbíu og Svartfjallalands, ætlar að sitja áfram í embætti fram í febrúar þótt þing landsins hafi rekið hann úr embætti. Van- traustið á Panic var eitt síðasta verk gamla þingsins því nýtt þing var kjörið 20. desember síðastlið- inn. Bush í Sómalíu George Bush Bandaríkjafor- seti dvaldi um áramótin í Sómalíu með bandaríska herliðinu þar í landi. Kom fram í samtöium hans við hermenn að þeir Bill Clint- on, verðandi for- seti Bandaríkj- anna, væru sám- mála um að Bandaríkjamenn gætu ekki tekið að sér hlutverk alheimslögreglu. íhlutunin í Sóm- alíu helgaðist af því einstaklega hrikalega ástandi sem þar væri. Tvö ný Evrópuríki Tvö ný Evrópuríki litu dagsins ljós um áramótin, Tékkneska lýð- veldið og Slóvakía. Svo virtist sem almenningur í þessum löndum væri ekki í sérstöku hátíðarskapi og vár dræm þátttaka í opinberum hátíðarsamkomum. Vladimir Meciar, forsætisráðherra Slóvak- íu, mæltist til þess á nýársdag að allir þingmenn landsins sverðu stjórnarskránni hollustueið en margir stjórnarandstæðingar á þingi greiddu á sínum tíma at- kvæði gegn henni og sögðu að hún færði ríkisstjórninni allt of mikil völd. Morgunblaðið/Bjöm Blöndal Frá höfninni í Njarðvík á nýársnótt. Sjómenn á Suðumesjum hafa tekið því rólega um jólin og ára- mótin en afli úr rússneskum togurum hefur haldið uppi talsverðri atvinnu hjá stærri frystihúsunum. Suðumes Áramótin friðsamleg ^ Keflavík. ÁRAMÓTIN fóru friðsamlega fram í Keflavík og Njarðvík og líkti lögreglan nýársnóttinni við veiyulega helgi. Flugeldur orsakaði þó smávægilegt Ijón í ibúðarblokk þegar hann braut rúðu og eld- ur kviknaði. Nærstaddir höfðu þar snör handtök og slökktu eldinn áður en hann náði að magnast. Lögreglumenn sem voru á eftirlits- ferð í ómerktum bíl aðfaranótt gamlársdags handtóku tvo menn sem þeim þóttu gransamlegir og leiddi það ti! þess að nokkurt magn fíkniefna fannst í bíl þeirra og síðan við húsleit á heimili annars mannsins. Mennirnir, sem eru 32 og 44 ára, voru saman í bíl og fannst lögreglumönnunum akstur bflsins grunsamlegur þar sem honum var ekið um Njarðvíkur. Þeir stöðvuðu því ferðir mannanna og við leit á þeim og í bílnum fundust bæði fíkniefni og tæki til notkunar þeirra, svo sem sprautur og pípur. Mennirnir voru með 14 skammta af ofskynjunarlyfinu LSD, 20 g af amfetamíni, 10 g af hassi og 2-3 g af kókaíni. Mennimir, sem eru búsettir í Kópavogi, viður- kenndu að eiga efnið og kváðu það ætlað til eigin nota. í fram- haldi var síðan gerð húsrannsókn hjá öðrum þeirra í Kópavogi og þar fannst meira af hassi og tækj- um til fíkniefnaneyslu. Að sögn lögreglunnar virðist sem fíkni- efnaneysla sé að aukast á Suður- nesjum og að æ algengara sé að lögreglumenn á venjulegu eftirlrti hafí afskipti af fíkniefnaneytend- um. Atvinnuleysið á landinu hefur hvergi verið meira en á Suðurnesj- um á sl. ári og er meðaltalið um 6% en um 10% hjá konum. Mest hefur atvinnuleysið verið meðal fiskvinnslufólks og þá sérstaklega í desember og janúar, en landanir rússneskra togara í desember hafa valdið því að hægt hefur verið að halda uppi atvinnu hjá flestum stærri frystihúsunum á svæðinu. Togaramir koma úr Barentshafi og er afli þeirra að mestu þorskur sem er unninn í blokk fyrir Banda- ríkjamarkað. - BB Þorskafli 1992 sá minnsti frá útfærslu laudhelginnar ÞORSKAFLI íslendinga á síðasta ári var sá minnsti í tonnum talið síðan fiskveiðilögsagan var faérð út í 200 sjómílur árið 1975, sam- kvæmt tölum Fiskifélags íslands. Samdráttur í þorskafla á síðasta ári var 13% frá árinu á undan en þorskafli hefur verið að dragast saman jafnt og þétt frá árinu 1987. I töflu sem birtist með áramóta- grein Þorsteins Gíslasonar físki- málastjóra í Morgunblaðinu á gaml- ársdag kemur fram, að þorskafli landsrrianna er áætlaður 268 þúsund lestir á síðasta ári. Á árinu 1976, fyrsta árinu eftir útfærslu landhelg- innar, nam þorskaflinn 284 þúsund lestum og fór síðan vaxandi til árs- ins 1981 og nam þá 461 þúsund lestum. Næstu þrjú árin dró aftur úr þorskaflanum, allt niður í 281 þúsund lestir árið 1984, en síðan jókst hann aftur næstu þijú árin, í 390 þúsund lestir árið 1987. Síðan hefur verið um samdrátt að ræða. Á þessu ári er fyrirsjáanlegur enn frekari samdráttur í þorskveiðum, en aflaheimildir í þorski frá síðasta fiskveiðiári voru minnkaðar um tæp- ar 60 þúsund lestir eða í 207 þúsund lestir. Þorskafurðir standa undir tæplega helmingi útfluttra sjávaraf- urða og rúmlega helmingi alls vöru- útflutnings, að því ér kemur fram í áramótagrein Magnúsar Gunnars- sonar formanns Vinnuveitendasam- bands íslands í Morgunblaðinu á gamlársdag og áframhaldandi fyr- irsjáanlegur samdráttur í þorskveið- um á þessu ári mun því hafa mikil áhrif á afkomu sjávarútvegsins í heild, og þar með þjóðarbúsins. Að auki fór verð á sjávarafurðum lækk- andi á síðasta ári þrátt fyrir minni afla. Kristján Ragnarsson formaður Landssambands íslenskra útvegs- manna segir í sinni áramótagrein, að mælt í SDR hafi verð á landfryst- um afurðum lækkað um tæp 7%, verð á sjófrystum afurðum um 10% og á saltfiski um 13,5%. Hins vegar séu nú fréttir um að sjófrystar afurð- ir hafi hækkað lítillega í verði og eftirspum eftir fiski í Ameríku fari vaxandi. í áramótagrein sinni telur Arnar Sigurmundsson formaður Samtaka fiskvinnslustöðva, að miðað við veiðiheimildir í botnfiski árið 1993, verði verulegur halli á veiðum og vinnslu og útreikningar samtakanna sýni að sá halli geti orðið um 1.500 milljónir króna á botnfiskvinnslunni og annað eins á útgerðinni. Uppástunga um stofnun alþjóðlegs sjávarútvegsskóla í áramótagrein í Morgunblaðinu á gamlársdag stingur Gunnar Svavarsson formaður Félags íslenskra iðnrekenda upp á að hér á landi verði stofnaður sjávarútvegsskóli fyrir útlendinga sem starfi með svipuðum hætti og Jarðhitaskóli Sameinuðu þjóðanna. í grein sinni spyr Gunnar, hvort ekki væri unnt með skipulags- vinnu en litlum tilkostnaði að setja á laggimar einfalt og skil- virkt kerfi til miðlunar á þekkingu íslendinga til þjóða sem komnar eru skemmra á veg í sjávarút- vegi. Um gæti verið að ræða eins konar fræðslumiðstöð í tengslum við opinbera aðila og einkaaðila og helst einnig alþjóðlegar stofn- anir. „Ávinningur okkar af slíku starfi yrði m.a. sá að augu okkar opnuðust fyrir umheiminum og þeim tækifærum sem þar kunna að leynast. Erlendir sjávarútvegs- menn sem hingað koma eru oft undrandi á því hve langt við höf- um náð í veiðum og vinnslu. Auk- in tengsl við slíka aðila víðs vegar í heiminum munu efla sölu á tækni- og rekstrarvömm og tæki- færi aukast til útrásar í sjávárút- vegi annarra landa,“ segir Gunn- ar síðan í grein sinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.