Morgunblaðið - 03.01.1993, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1993
Innri markaður EB orðinn að veruleika
Búistvið 16.000
milljarða sparnaði
með viðskiptafrelsi
Brussel. Reuter.
INNRI markaður Evrópubandalagsins (EB) varð formlega að veruleika
á miðnætti á nýársnótt. Kveikt var í bálköstum og ljósvitar voru tendr-
aðir víða í aðildarríkjunum tólf á slaginu tólf til að fagna þessum tíma-
mótum. Áætlað er að viðskiptahindranir, sem verða afnumdar innan
EB, hafi kostað um 16.000 milljarða ÍSK á ári.
EB-ríkin náðu fyrst samkomulagi
um innri markaðinn fyrir sjö árum
og markmiðið er að koma á fullu
frelsi í flutningum á vamingi, þjón-
ustu, ijármagni og vinnuafli milli
aðildarríkjanna tólf. Fullt viðskipta-
frelsi næst þó ekki þegar í stað á
öllum sviðum því ýmsum breytingum
verður frestað í mánuði og jafnvel
ár, allt frá frjálsri samkeppni á líf-
tryggingamarkaðnum til viðskipta
með banana og japanska bíla.
Vegabréfaskoðun á landamærum
innan bandalagsins verður ekki af-
numin algjörlega þegar í stað vegna
ótta aðildarríkja við aukið fíkniefna-
smygl og starfsemi hryðjuverkasam-
taka. Bretar áskilja sér til að mynda
rétt til að leita á fólki sem kemur
til Bretlands vegna baráttunnar gegn
írska lýðveldishernum (IRA).
Tollgæsla á landamæmnum innan
EB verður lögð niður, en Belgar
ætla þó að halda uppi eftirliti til að
koma í veg fyrir ólöglegan innflutn-
ing á hættulegum úrgangi.
Ferðamenn verða strax varir við
breytingamar því þeir mega nú hafa
með sér allt að 90 lítra af léttvíni,
tíu lítra af sterku víni og 800 sígar-
ettur milli EB-ríkjanna. Ekkert
reglubundið eftirlit verður á landa-
mæmnum með þessum innflutningi
en Iögreglumenn geta þó krafið
ferðamenn um sannanir fyrir því að
vörar séu ætlaðar til einkanota.
aðildarríkjanna hafí annaðjivort ekki
heyrt af innri markaðinum eða óttist
afleiðingar hans.
Innri markaðinum er ætlað að
stórauka viðskipti innan EB. í
skýrslu, sem gerð var fyrir fram-
kvæmdastjórn EB árið 1988, er áætl-
að að viðskiptahindranir innan
bandalagsins hafi kostað 200 millj-
arða Ecu á ári, tæpa 16.000 millj-
arða ISK, eða um 5% af vergri þjóð-
arframleiðslu EB-ríkjanna. Mörg
smáfyrirtæki hafí ekki lagt út í út-
flutning til EB-ríkja vegna viðskipta-
hindrana, sem verða nú afnumdar.
Fögnuður
Bush Bandaríkjaforseti heilsar börnum á munaðarleysingahæli
fögnuðu þau forsetanum með söng og dansi.
Baidoa
Baidoa. Ríflega 700 börn eru á hælinu og
George Bush Bandaríkjaforseti eyðir áramótunum í Sómalíu
Bandaríkjamenn ekki í
hlutverki heimslögreglu
Unrrarliohu nrr Itniilnn Reiiter
Aukin viðskipti
Áformin um innri markaðinn vora
fyrst gerð opinber árið 1985 og
hundrað fyrirtækja og þrýstihópa
hafa sett upp skrifstofur í Brassel á
undanfömum áram til að gæta hags-
muna sinna. Nýjustu skoðanakann-
anir, sem gerðar vora fyrir fram-
kvæmdastjóm EB, gefa hins vegar
til kynna að hartnær þriðjungur íbúa
Mogadishu og Baidoa, Reuter.
TVEGGJA sólarhringa heimsókn George Bush Bandaríkjaforseta til
Sómalíu Iauk á laugardag. Forsetinn ávarpaði bandaríska hermenn
i Mogadishu og heimsótti munaðarleysingahæli í Baidoa. Bush segir
að þátttöku bandarískra hersveita í hjálparstarfi í Sómalíu megi
ekki túlka á þann veg að Bandaríkin séu reiðubúin að senda her-
menn þangað sem neyðin kalli hveiju sinni. „Við getum einfaldlega
ekki gert það. Við eigum ekki peninga til þess. Atvikið yrði að hafa
sérstöðu, vegna þess hversu umfangið er mikið,“ sagði forsetinn.
Aðspurður sagði Bush að verð-
andi forseti, Bill Clinton, væri sér
sammála um að Bandaríkin gætu
ekki tekið að sér hlutverk lögreglu
á alþjóðavettvangi. Jafnframt
greindi þá ekki á um að hermenn
yrðu ekki kallaðir heim frá Sómalíu
fyrr en hlutverki þeirra væri lokið,
að stilla til friðar og tryggja fram-
gang hjálparstarfsins.
Forsetinn virtist leggja sig fram
við að hrósa eftirmanni sínum. „Við
vorum ekki alltaf sammála í kosn-
ingabaráttunni, en ég sagði alltaf
að hann væri vinur minn. Hann er
vinur minn. Hann var kosinn af
bandarísku þjóðinni og ég styð hann
eindregið,“ sagði Bush.
Bush kom til Mogadishu á
fimmtudag, með herflutningavél af
gerðinni C-141 frá Riyadh í Saudi-
Arabíu. Ekki var talið óhætt að
fljúga Boeing 747 þotu forsetaemb-
ættisins til Sómalíu þar sem hún
hefði orðið of áberandi skotmark á
flugvellinum í Mogadishu. Meðan á
dvölinni stóð hafði Bush og fylgdar-
lið hans aðsetur á skipinu USS Tri-
poli, sem liggur við festar utan við
höfuðborgina.
Á föstudag ávarpaði forsetinn
hermenn í Mogadishu og svaraði
spurningum þeirra stundarkorn. Síð-
ar um daginn heimsótti hann munað-
arleysingjahæli í Baidoa, sem nefnd
var „borg dauðans" áður en hersveit-
ir stilltu til friðar 16. desember sl.
Hundruð borgarbúa fögnuðu forset-
anum er hann ók frá flugvellinum
til hælisins, þar sem gat að líta ríf-
lega 700 börn sem bjargað hefur
verið frá hungurdauða.
Samkvæmisdansar:
Suður-amerískir og standard dansar,
barna-, unglinga- og hópdansar.
Byrjendur - framhald.
Funk og jass dansar
með Hip Hop ívafi:
Helena og Nanna með
glæný og spennandi spor.
Aldursflokkar 10-12 ára
og 13-16 ára.
Barnadansar:
Skemmtilegir og spennandi
íyrir 3ja til 5 ára börn.
Tekin verða stjörnupróf D.I
í barnadönsum fyrir jTau sem vilja
Tjútt - Swing - Rock'n roll:
Kennt með öðrum dönsum
eða í sértímum.
Mæting 2 sinnum í viku
í Skeifunni 11B.
Mæting 1 sinni í viku
í Garðabæ.
10 tíma námskeið kr. 6.000
Einkatímar.
Lærðir kennarar:
Meðlimir í FÍD og DSÍ
Símar: 39600/686893
Innritun daglega frá kl. 13-19
Nemendur sem voru fyrir jól, vinsamlegast mætið í Skeifuna 11B sunnudaginn 3. janúar frá kl. 13-19 og staðfestið bókanir