Morgunblaðið - 03.01.1993, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 03.01.1993, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1993 Aramótaávarp Davíðs Oddssonar forsætisráðherra Við höfum tröllatrú á innri styrk menn- ingar okkar og tungu Góðir íslendingar. Um þessi áramót, eins og áður, spyrjum við hvert og eitt, hvernig hið liðna ár hafi reynst. Svörin verða mörg og ólík. Fyrst og síðast horfum við í eigin rann og til þeirra sem næst okkur standa. Hefur fjöl- skyldan komist hjá stóráföllum, veikindum eða ástvinamissi? Næst koma önnur mál innan fjölskyld- unnar, eða meðal náinna vina. Var stofnað til hjónabands, var flutt í nýtt heimili - fæddist barn, nýr ljós- geisli í lífíð - var þreytt prófraun eða gerðist annað sem miklu skipt- ir? Efnahagsmálin - eilífðarþrasefni dægurbaráttunnar - eru líka ofar- lega á blaði. Hafa kjörin þrengst, gengur okkur verr að standa í skil- um, eða hefur okkur tekist að laga persónuleg fjármál okkar að breytt- um aðstæðum? Höfiim við getað losað okkur við óþarfa eyðslu - höfum við jafnvel náð að grynnka á skuldum - jafnvel leggja eitthvað fyrir - aukið sparnað? Og við þessi áramót er einnig spurt: Hefur ein- hver í fjölskyldunni misst vinnu? Þess háttar spurning hefur ekki verið áleitin á íslandi undanfarin áramót - þvert á móti svo fjarlæg, að hún var horfin af spurningalista heillar kynslóðar. Atvinnutækifær- um hefur ekki fjölgað á íslandi í 6 ár, en vinnufúsum höndum hefur fjölgað á sama tíma. Góðærið var grátlega illa nýtt. Eins og við munum var þing Alþýðusambands íslands haldið fyr- ir fáeinum vikum. Skömmu fyrir það spáðu forsvarsmenn Alþýðu- sambandsins því, að atvinnuleysi gæti á næstunni orðið á milli 20 og 25 af hundraði, ef ekkert yrði að gert. Slíkar spár, svo hrollvekj- andi sem þær eru, setja ábyrgir aðilar ekki fram af léttúð og að lítt athuguðu máli. Þess vegna gekk enginn þess dulinn, að óhjákvæmi- legt yrði að grípa til umfangsmik- illa aðgerða - og það var gert. Það er hafið yfir vafa, að í þijá áratugi hefur ekki verið gripið til aðgerða til að styrkja íslenskt atvinnulíf með jafn varanlegum hætti og nú var gert. Ég legg áherslu á þetta orð - varanlegur - vegna þess að löng- um hefur það einkennt aðgerðir af þessu tagi að tjaldað hefur verið til einnar nætur. Starfsskilyrði. at- vinnulífsins hafa nú verið bætt svo um munar. Létt hefur verið af þeim gjöldum upp á þúsundir milljóna króna. Þar er um varanlega áðgerð að ræða. Jafnframt hefur verið stofnað til þess, að sátt geti náðst um stjórnun á íslenskum sjávarút- vegi - einni mikilvægustu atvinnu- grein landsmanna - og honum gert kleift að laga sig að breyttum að- stæðum fýrir eigin rammleik. í þriðja lagi er ýtt undir atvinnuskap- andi starfsemi án þess að skuld- bindandi framtíðarkvaðir séu lagðar á ríkið. Þetta eru höfuðþættir efna- hagsaðgerðanna. En auðvitað er það svo, að ailir verða að leggja sitt fram til að þessar aðgerðir nái því marki að styðja við atvinnulífíð og fjölga atvinnutækifærum í land- inu. Reynt hefur verið að stilla þannig til, að þeir sem betur mega beri hlutfallslega þyngri byrðar en hinir sem minna hafa umleikis og í sumum tilvikum mega ekki við neinu. Baráttan fyrir atvinnuöryggi í landinu kostar mikið, en allir vilja leggja sitt af mörkum svo sú bar- átta vinnist. Auðvitað sýnist sitt hverjum um þessar aðgerðir og útfærslu þeirra. Um hitt er tæpast deilt, að menn telja ekki lengur hættu á stór at- vinnuleysi á borð við það sem Al- þýðusambandið óttaðist. Atvinnu- leysi mun enn vaxa nokkuð frá því sem nú er, en síðan fara minnkandl á ný, þegar árangur aðgerðanna fer að koma fram. Haldist vinnufriður og sæmileg sátt í þjóðfélaginu mun- um við ná þessum árangri án þess að verðbólguófreskjan losni úr þeim hlekkjum sem hún hefur verið í undanfarin misseri. Verðbólgan á næsta ári á því að geta verið með því lægsta sem þekkist á Vestur- löndum. í Bretlandi og Danmörku er atvinnuleysið nú um 11 af hund- raði, eða þrisvar sinnum meira en hér á landi - það er enn meira í Finnlandi og fer vaxandi í Svíþjóð og Noregi. Öll þekkjum við hina miklu erfiðleika sem frændur okkar Færeyingar búa við, þar sem ekki var gripið í taumana í tæka tíð. Segja má, að allur hinn vestræni heimur sé nú að ganga í gegnum kreppu og áhrifa hennar gætir auð- vitað hér á landi, svo háð sem við erum alþjóðaviðskiptum. Það eykur okkar erfiðleika að þorskafli hefur dregist meira saman á tveimur árum en áður hefur gerst. En þrátt fyrir þetta getum við borið höfuðið hátt og höfum fyllstu ástæðu til að bera höfuðið hátt. Okkur hefur í raun tekist betur að bregðast við erfiðum aðstæðum en flestum nágrannaríkja okkar. Þar segir gamla íslenska seiglan til sín, hert í alda baráttu við óblíð náttúru- öfl. Okkur íslendingum hefur geng- ið betur að halda verðbólgu í skefj- um en mörgum nágrannanum, okk- ur hefur gengið betur að halda aft- ur af atvinnuleysi en þeim og okkur er að takast að draga úr skuldasöfn- un við útlönd. Þessar fullyrðingar eru ekkert smáþjóðamont, heldur beinharðar staðreyndir. Þessum árangri megum við ekki fórna á altari sundurþykkju og deilna á komandi ári. En er þá allur okkar vandi leyst- ur? Því fer fjarri - við höfðum allt- of lengi ýtt honum á undan okkur. Við höfum vissulega tapað stórkost- legum fjármunum á undanförnum árum með ógætilegum fjárfesting- Davíð Oddsson um. Því neitar enginn lengur. Þótt við verðum lengi að borga niður slíkar skuldir, þá höfum við að minnsta kosti haft þrek til að gera dæmin upp og eigum því að geta lært af mistökunum. Ég býst við að okkur íslendingum sé flestum þannig farið að þykja þetta land hið fegursta sem við höfum augum litið, þótt víða sé fagurt. En þetta land villir ekki á sér heimildir. Það er harðbýlt og gerir miklar kröfur til þeirrar þjóð- ar, sem það fóstrar. Undir slíkum kröfum viljum við rísa - það gerðu okkar forfeður - afar og ömmur og kynslóðirnar á undan þeim við mun erfiðari skilyrði en okkur eru búin. Við þurfum að leggja harðar að okkur en þær þjóðir sem búa við mildari náttúru, til að hafa lífs- kjör á borð við 'þær. Slík Iífskjör viljum við hafa og getum haft - en það kostar vinnu - mikla vinnu. íslendingar hafa aldrei veigrað sér við vinnu. Þvert á móti telja flestir íslendingar að vinnan sé stór hluti af sjálfri lífsgleðinni og lífsfylling- unni. Þess vegna er það gróið okk- ur í merg og bein, að atvinnuleysi sé böl, sem við munum aldrei una. Sprenglærðir erlendir hagfræðing- ar hafa sagt okkur, að við Islending- ar getum ekki einir þjóða á Vestur- löndum komist hjá stórfelldu at- vinnuleysi meðan efnahagskreppan gengur yfir. Við svörum og segjum að flest annað verði undan að láta - verkfúsar hendur verði að fá við- nám fyrir vilja sinn til verka. Stundum er sagt að sundurlynd- isfjandinn og dægurþrasið séu lök- ustu eiginleikar íslensku þjóðarinn- ar. Kannski hefur fámennið og ná- býlið hér sitt að segja. Hvað sem um það er, þá fer ekki á milli mála, að nú er ekki rétti tíminn til að blása í þær glæður og gera þær að átakaeldum, sem enginn sæi fýrir endann á. Ég hef satt best að segja þá trú, að allir ábyrgir menn muni á því ári sem senn geng- ur í garð, gera sitt ýtrasta til þess að tryggja að atvinnulífinu í landinu verði ekki stefnt í voða. Það er engum blöðum um það að fletta, að við Islendingar höfum á marga lund siglt mótvindinn betur en aðr- ar þjóðir, en um áframhald þeirrar siglingar varðar mestu að áhöfnin á þjóðarskútunni sói ekki þreki sínu og þrótti í innbyrðis deilur og átök. Én þótt fámennið og nábýlið ýti kannski undir bresti í fari okkar, svo sem deilur og þrasgirni um stórt og smátt, hefur það einnig aðrar hliðar. Við eigum fyrir vikið oftar eina sál en aðrar þjóðir. Það nístir hvert íslenskt hjarta þegar sagt er frá því að alvarlegt slys hafí orðið á sjó eða Iandi. Og við gleðjumst sem einn maður þegar fréttir ber- ast af velgengni listamanna okkar á erlendri grund, ellegar af sigrum á borð við þá, sem fatlaðir og þroskaheftir íþróttamenn unnu í okkar nafni síðastliðið sumar. Því þrátt fyrir karp og skammdegis- ólund, já, þrátt fyrir allt, hefur hver íslendingur sterka tilfinningu fyrir því, að þjóðin öll eigi samleið - ein örlög, menn varði hér meira um hag og velferð náungans en gerist og gengur meðal annarra þjóða. Við horfum nú upp á örar breyt- ingar í veröldinni, bæði fjær og nær. Flest okkar fögnuðu hruni kommúnismans í Evrópu, helstefn- unnar sem laðaði margan til fylgi- lags við sig, jafnt hér á landi sem annars staðar. En við sjáum ekki enn fyrir endann á þeim ógnarhrær- ingum. Það krauma víða eldar og sums stáðar er beinlínis styijöld, með ólýsanlegum hörmungum fyrir það saklausa fólk sem kremst und- ir í hildarleiknum. Þrátt ‘fyrir að nokkuð hafi slegið í hin efnahagslegu baksegl erum við íslendingar enn taldir meðal rík- ustu þjóða og til þess fólks sem býr við best kjör. Þess vegna vprðum við á því ári sem nú kveður meiri fjármunum í hvers konar neyðarað- stoð við hijáðar þjóðir, en nokkru sinni áður. Ég veit að Íslendingar vilja ekki að stundarsamdráttur í okkar kjörum bitni á þeim sem við hreina neyð búa. Það hefur ekki farið fram hjá neinum að samstarf Evrópuþjóða er að aukast jafnt og þétt. Við höf- um fylgst náið með þeirri þróun, eins og okkur er bæði rétt og skylt. Nú virðist staðan sú, að öll eða nær öll Evrópuríki munu vilja gerast aðilar að Evrópubandalaginu. Við íslendingar höfum verið nokkuð einhuga um að taka þá áhættu, sem því kann að fylgja, að standa utan við Evrópubandalagið, þegar öll önnur Vestur-Evrópuríki gerast fullgildir aðilar. Það er hins vegar mat ríkisstjórnarflokkanna og ýmissa annarra þingmanna að nauðsynlegt sé að tryggja, að ís- lendingar geti eigi að síður notið þess ávinnings sem af slíku sam- starfi er, án þeirra kvaða og galla sem af aðild leiðir. Því miður hafa orðið tafir á að samningur um Hið evrópska efnahagssvæði sé stað- festur og gangi í gildi. Þar er ekki við íslensk stjórnvöld að sakast. En sá dráttur veldur því, að verulegir fjármunir hafa tapast. Við verðum að vona að þær tafir og það tjón verði sem minnst. Ljóst er, að af íslands hálfu er stefnt að því að meginefni samningsins verði full frágengið af okkar hálfu þegar í byijun næsta árs. Það er oft á það bent að íslenska þjóðin sé fámenn og þjóðarauður því ekki mikill. Við höfum aldrei látið slíkt tal aftra okkur frá því að taka þátt í nauð- synlegum erlendum samskiptum af myndugleik. Hugleysi eða minni- máttarkennd hefur aldrei varðað veg okkar þegar slík álitamál hafa verið til ákvörðunar, þrátt fyrir að slíkar raddir hafí oft verið hávær- ar. Við höfum tröllatrú á innri styrk menningar okkar og tungu, og höf- um því talið okkur þola náin tengsl við aðrar þjóðir og ólíka menningar- heima. Vantrú og hrakspár um annað hafa sem betur fer reynst bábilja. Svo mun enn fara. Góðir íslendingar. Ég nefndi í upphafi míns máls að á þessari stundu gerum við upp árið sem er að kveðja, hvert um sig. En við gerum það líka sem þjóð. Og hver er niðurstaðan? Þrátt fyrir erfiðleika getum við bærilega við unað. Við höfum unnið góðan varnarsigur. Framtíðin er hinsvegar sem fyrr æði torráðin gáta. En næsta ár leggst vel í mig. Ég tel að það verði skuggaskil og margt snúist til betri vegar á því ári. Við höfum sannarlegá tekið á mörgum erfiðum málum, og óhætt er að segja að þjóðin hafi sýnt ríkan vilja til að vinna sig út úr vandanum. Þann skortir ekki margt sem ekki skortir viljann. Fyrir hálfum mán- uði gengu jólakortin milljónum saman á milli íslenskra heimila. Við jólakveðjuna í kortinu var gjarnan bætt frómum óskum um að viðtak- andinn mætti eiga farsælt nýtt ár. Aldagömul, óslitin og þrotlaus bar- átta hefur kennt íslenskri þjóð að hún geti ekki ein ráðið öllu um framtíð sína og farsæld. En sú bar- átta hefur jafnframt kennt þjóð- inni, að hún getur haft rík áhrif á gæfusmíðina. Við skulum hvert og eitt gera okkar til þess á næsta ári að rísa undir þeim vanda og þeirri vegsemd að vera íslendingar. Þá getum við sem þjóð litið stolt um öxl um áramótin 1993 og 1994. Góðir Islendingar. ’Ég óska ykkur gleðilegs árs og Guðs friðar. Almanak Haskólans Nýtt ár - Nýtt almanak Almanak Háskólans er ómissandi handbók á hverju heimili. Fæst í öllum bókabúðum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.