Morgunblaðið - 03.01.1993, Síða 23

Morgunblaðið - 03.01.1993, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JANUAR 1993 23 > Nýársprédikun herra Olafs Skúlasonar biskups í Dómkirkjuimi Böl bjargbúa eða kærleikur Krists Guðspjall Mattheusar 6, 5-13. Af mótandi vana gengur vart nokkur fram hjá öðrum án þess að kveðja breytist í ósk: „Gleðilegt nýár.“ Kunnugleika þarf ekki til, til þess að óskin sé framborin, og mikill drumbur má- sá vera, sem þannig er ávarpaður, ef ekki fylg- ir að bragði „sömuleiðis", eða eitt- hvað álíka. Enn ríkulegri hefð gerir allt annað illmögulegt en að prestur ávarpi söfnuð í fyrstu messu árs- ins með líkum hætti og óski þeim sem heyra gleðilegs nýs árs. Það geri ég líka núna. Óska söfnuði í Dómkirkju gleðilegs árs 1993 og á þá ósk í bænarformi einnig fyrir þá, sem nýta sér tækifæri útvarps til þess að taka þátt í þessari guðs- þjónustu með okkur, sem hingað höfum horfið þennan fyrsta dag nýja ársins. Og aumur væri ég og ekki þess verður að hafa í skím hlotið krossins tákn og þar með sæmdarheiti Krists til skýrgrein- ingar, ef ég ekki líka léti í ljósi ósk um það, að þeir hinir megi líka eiga gleðilegt ár, sem hvorki eru hér innan dyra í þessu húsi Guðs né hafa snúið snerli á út- varpstæki á þá bylgjulengd, sem gerir samband hingað mögulegt. Jú, ég óska ekki aðeins, heldur bið ég landsmönnum öllum gleði- legs nýs árs. Og það er ekki að- eins sá, sem hér stendur í stóli og flytur fyrstu prédikun ársins, sem mælir svo frá eigin brjósti, heldur er það bæn kirkjunnar þinnar, sem ég er hér að flytja, kirkjunnar þinnar íslensku og meira en það, kirkju Krists án landamæra og þröngrar skilgreiningar í þjóðir og ættkvíslir. Öllum mönnum biður kirkja Krists í hans nafni blessunar á nýju ári. Hann var vitanlega mót- aður af umhverfi sínu og hlaut afmarkaðan hlut við fæðingu sína og mótun uppeldis, en þegar hann gaf lærisveinum heilagan anda sinn og lætur þá gjöf fýlgja hverri skírn, hverri helgri athöfn, hveiju bænarákalli, hvort heldur er í ein- rómi flutt eða hluti heildar, þá býður hann öllum mönnum allra þjóða og kynkvísla að vera’eitt. Eitt í trú, eitt í kærleika, eitt í hollustu við hinn Almáttka, sem í árdaga skóp og enn er að færa til betri vegar. Stundum með að- stoð okkar, en einnig !íka og ekki sjaldan þrátt fyrir menn. Gleðilegt nýár, og hjómið eitt væri kveðja, ef ekki fylgdi einnig tjáning þakk- ar, þá litið er til baka og það fært til vitundar, sem liðið er og við sungum um í gærkveldi eða á miðnætti, að aldrei kæmi til baka. Þykir minni kynslóð, sem vand- ist við að tengja hvíta kolla nýstúd- enta við sautjánda júní, nokkuð einkennilegt að fagna slíkum áfanga á náms- og þroskaferli að áliðinni jólaföstu. Naut ég þess þó að gleðjast með tveimur nýstúd- entum í þriðju viku aðventu. Og ekkert voru kollarnir síðri, þótt snjór væri utan dyra í stað laufg- aðra tijáa og skammur dagur í stað nóttlausrar voraldar veraldar, þegar við áttum slíka hátíð mörg hver. Og ekki nutu nýstúdentar síður dags í faðmi fjölskyldu og vina og í skóla sínum áður, þótt annar blær væri á heimilum með tré í horni, heldur en þegar sum- arblær lék um vanga. Og óháð mánuði að baki prófum, var rætt um árangur, um einkunn og um framtíðaráform. Að því ýjað, sem betur hefði mátt fara við prófborð, en í tilgreindum dæmum var það svo áfallalítið, að ekki skyggði á gleði. Og vera má jafnvel það sé vel við hæfi að tengja slík próf jólum í næstu nánd áramóta. Af því að hvað eru þessar hátíðir annað, þegar gerst er skoðað en próf, áminning, jafnvel viðvörun með hvatningu? Svo að hvítir kollar nýstúdenta leggja enn frekari áherslu á vægi tímamóta og þar með möguleika til þess að nýta sér áherslur til gagns og heilla í framtíð. Ekki aðeins hjá þeim, sem lokið hafa prófum sínum, í vali greina og þar með framtíðarvið- fangsefna, heldur og hjá okkur hinum, sem eigum slíkt langt að baki, en líka í mati á því, hvar við stöndum og hver sú einkunn mundi vera, sem tengdist nafni okkar við uppgjör áramóta eins og nýstúdentar sjá í einkunnabók sinni. Nei, mikið var það annars gott, þegar við sungum árið 1992 til eilífðarvistar, að við þurftum ekki að þiggja úr hendi þess eða full- trúa þess einhvern vitnisburð um það með hvaða hætti við nýttum okkur mánuði þess tólf, að ekki sé nú vitnað til hærri tölu í dögun- um þijú hundruð sextíu og fímm. Með feginsandvarpi hljóta sumir að fagna því, að ekkert uppgjör í líkingu einkunna eftir próf fylgdi því, að við kvöddum ár. Og þó þykir mér ekki líklegt, að nokkur sé svo runninn í gleymsku bjarg, að hann hafi ekki í það minnsta í andartaki klukkusláttar látið huga reika til þess, sem helst stendur upp úr frá Iiðnu ári. Pétur Gautur gekk í björg og varð þó ekki án iðrímar undir lok. En skáldjöfur leggur honum orð í munn og hæfir hugsun og áminn- ingu við mörk tímaeininga eins og áramóta. En við upphaf fjórða þáttar leikritsins, sem kennt er við Pétur, segir hann: „... allt fellur frá og fer og kemur.“ Við spyijum, hvort það geti komið, sem fallið er frá? Eða megnum við að nýta glötuð tækifæri, sem eilífð hefur eignað sér, á nýju ári annarra tækifæra? Líklega þó, að í orðum felist það helst, að ekkert stendur í stað og ekkert verður að heldur stöðvað í þeim fallvaltleika óstöð- ugleikans, sem einkennir líf og mennsku og þess vegna eigi í túlk- un Péturs að láta það eitt ríkja, sem satt getur andartak, þótt tjaldað sé til einnar nætur einvörð- ungu. En það var líka lífssaga Péturs, sem tröll heilluðu, svo að mennsku varð hætt. En bæn vegna nýs árs í Jesú nafni er ekki bundin af andartaki einu, og allra síst er hún af því mótuð, sem fyllir hug hveiju sinni. Bæn í Jesú nafni tengir þann, sem biður í herbergi sínu, kirkju sinni eða vinnustað, hvort heldur á láði eða legi eða í loftum uppi, við kynslóðir, sem fyrr hafa lotið hin- um upprisna og gerir líka ábyrga fyrir þeim, sem á eftir fylgja og þarfnast þess,_ að bæn sé mörkuð í lífsstefnu. Aramót að skilningi kirkjunnar hvíla því á öðru en fall- valtleika og eftirsókn eftir gleði augnabliks og vara sterkust við því, sem björg einangra þann frá, sem lætur þau umlykja sig. Kirkj- an viðurkennir vissulega, að allt fellur, sem einhvern tímann hefur verið til og er til og ekkert stend- ur að eilífu, en hún segir ákveðið, að það sem fer og kemur eins og fulltrúi þeirrar eftirsóknar, sem hefur það eitt að markmiði, að gleymskan ráði í nautnum eða óhóf, sé í stríði við vilja skapar- ans, sem er óbreyttur frá eilífð til eilífðar, óhagganlegur, hinn sami í gær og í dag og um eilífð. Það er við þessa staðreynd, sem bæn kristins manns miðar, og þá ekki síst, þegar flutt er af tilefni áramóta og uppgjörs, þegar liðið er skoðað og hagnýtt til ákvörðun- ar um framtíð og framtíðarstefnu. Þeir sem ganga í björg eignast kalt hjarta, tillitslaust og miskunn- arlaust, þeir verða sem jötnar, er sól forðast og sækjast eftir myrkri og hata dagsbirtu. En þeir, sem ekki aðeins hafa þegið krosstáknið á bijóst og enni í heilagri skírn, heldur finna fyrir ábyrgð þess, sem fylgja vill Kristi, meta tímann ekki eftir kröfum andartaksins, heldur af viðmiðun við hann, sem upphaf tilheyrir og einn þekkir lok. Þannig glötum við ekki voninni, þótt í móti blási um hríð á landi okkar og enginn viti, hvort svo sé aðeins um sinn eða næði um lengri tíma. En við eigum að leitast við að líta svo langt, að það sem sær- ir, svifti okkur ekki himinsýn, — eða sagt á hversdagslegan og ein- faldan hátt: Við megum ekki láta vonbrigði dagsins draga svo úr okkur þrótt, að við væntum ekki betri stunda. Við eigum að forðast að ganga í björg vonleysis og víls, en varðveita hjarta okkar óhert og umfram allt að leitast við að komast hjá því, að eitur blindi. Ég hræðist heift umræðunnar og hvernig stefnur fá persónulík- ing í afstöðu til einstaklinga. Eða hver er sá, sem óskar eftir að svipta annan vinnu og sér heill í auknu atvinnuleysi? Finnst nokk- ur, sem vill að hinir tekjulægstu telji færri seðla í veski við upp- gjör? Höldum við í alvöru, að sá muni til, sem níðast vill á sjúkum og öldruðum? Hér hjá okkur? Hér á okkar góða, gamla íslandi og meðal þeirra kynslóða, sem ólust upp við sagnir af grimmd, sem niðursetningar máttu sæta og skertan matarskammt handa þurfalingum? Ábyrgð bera allir, en hversu mikla ábyrgð bera þeir umfram aðra flesta, sem taka þátt í umræðu um vanda liðins árs og þess sem framundan bíður, að persónugera ekki erfiðleika og búa til úr spjót til að senda í átt til „sökudólga“. Vill nokkur og þráir nokkur annað en betri tíma með atvinnu handa öllum og hagvöxt bættrar afkomu? Við getum deilt um leið- ir, og við hljótum að gera það, af því að ekki líta allir möguleika sömu augum, hvað þá einn greini ekki leiðir, sem öðrum dyljast. En að væna þann, sem rökræða skal við, um óheilindi, illsku, hatur, segir ljóta sögu um björg, sem lokast vilja yfir og varna sólar og bjartra daga, en gera að tröllum harðs og hatursfulls hjarta. Eða hver er sú „sýn“, sem við hefur blasað og orð í þjóðarsálum, þar sem útrás heiftar brýst títt þannig fram, sem að framan er vísað til. Að biðja við áramót, krefst þess að þeim sé síst gleymt, sem annað hafa sýnt en við hefðum helst kosið. Og hvílíkt fár hefur ekki dunið yfir. Verra miklu en ófærð, sem vel hefur verið tíunduð í frétt- um af snjókomu á fjallvegum og niður í byggð, með stormi og svo straumi vatns, er aftur hlánar. En af annarri ófærð fara færri sögur og er þó ekki síður hættuleg. Það eru pyttirnir í huga og hatur hugs- unar. Eða eins og Oli Ágústsson Herra Ólafur Skúlason. í Samhjálp góðra verka fyrir veg- lausa vímuráfendur hefur komist að orði um lífsstarf sitt: „Ég hef þurft að taka á allri karlmennsku minni til að mæta ijandskapnum, sem sumt fólk hefur ræktað með sér í óreglunni árum saman. Nei- kvæðu tali, illgirni, rógi og skít.“ Ljót er sú lýsing og hefur þó eng- inn efast um, að hún sé sönn, en góðgjarnir leitað huggunar í því, að þarna sé þeim einum lýst, sem Bakkus hefur farið um sínum ómjúku höndum og tælt með sér í björg eins og Pétur Gaut forðum. En er það víst, áð hér sé hug þeirra einna lýst, sem óreglan hefur spillt? Er ekki önnur óregla til og jafn hörmuleg og sú, sem ógæfu- fólkið hans Ola hefur lent í, og þessi sama lýsing mundi líka eiga við: Neikvætt tal, illgirni, rógur og ~ já — skítur. Hversu þykkur er ekki illþefjandi saurinn, sem þetta vesala fólk hefur ausið upp til að smyija samborgara sína með, og hefur í ofstæki sínu hætt að leita sannleikans en lætur að- eins eigin illsku bijótast fram í anda Péturs Gauts, þar sem ekk- ert var varanlegt, aðeins stundar- rugl, þar sem „allt fellur frá og fer og kemur“. Og er þó óvíst, að orðin hverfi, sem meitt hafa eða lýsingar fölni, sem spillt hafa? Og þó ekki sé þessu hörmungar- ástandi til að dreifa, þá er hið neikvæða einhvem veginn meira áberandi og virðist eftirsóknar- verðara fréttaefni en hið jákvæða, sem lætur þá minna yfir sér. Til skýringar segi ég frá kirkju, sem fauk, hrundi í ofveðri, sem lagði inn fjörðinn og svipti gömlu húsi af grunni. Frá þessu var ríku- lega tíundað og sendu báðar sjón- varpsstöðvar vélar sínar og fólk á staðinn og skýrðu vel frá í kvöld- fréttum. Þótti heldur engum und- arlegt og töldu vökula velvakendur vel hafa staðið á verði. En söfnuð- ur missti ekki móðinn og lét ekki lengi rústir einar minna á kirkju sína. Hafist var handa og á ótrú- lega skömmum tíma tókst fá- mennum söfnuði að reisa kirkju sína að nýju og naut til þess mik- ils stuðnings brottfluttra svei- tunga er létu ihug sinn til lítils helgidóms margra minninga hvetja sig til dáða. Og hinn stóri dagur rann upp og skyldi kirkjan að Kolfreyjustað endurvígð og hafði af miklum myndarskap verið að staðið og ekkert til sparað. Og heimamenn létu þá vita, sem miðla þjóð frétt- um. En nú var kirkjan við fjörðinn fagra ekkert sérstök. Það var sjálf- sagt að sýna myndar af rústum og brotnum stoðum, en endur- byggð kirkja fagurrar smíði og snyrtilegs garðs með hellum í kring höfðaði ekki til þeirra, sem fyrr töldu ekki ^ftir sér heimsókn leftir fok og hrun. Og enginn fékk í kvöldfréttum tækifæri til að dást að fórnfýsi og góðu framlagi. Segir þetta ekki töluvert um okkur? Sé það slæmt og neikvætt verðskuldar það umfjöllun, en sé það lofsvert og til fyrirmyndar, hirða fáir um. Hrósirðu einhveijum vekur það litla athygli, segirðu um hinn sama krassandi dæmi ávirð- ingar verður áheyrandi að eyrum vel sperrtum. Og skiptir þá litlu um sannleika og réttsýni að ekki sé nú notað orð lítillar virðingar, sem er tillitssemi. Hrunin kirkja í miklum sviptivindum fer ekki fram hjá neinum. Endurbyggð af fórn- fýsi og í gleði er hún látin liggja milli hluta. Hversu margir hafa gengið í björgin, sem meta ekkert til varanlegra áhrifa, af því að „allt fellur frá og fer og kemur“ og þarf þess vegna að engu öðru að huga en því, sem helst muni líklegt til að ná og halda augna- bliks athygli. Sagði ég gleðilegt nýár, og bætti við, að sjálfsagt sé að þakka fyrir liðið? Jú, það gerði ég og meina það og legg á svo mikla áherslu, að vert er endurtekning- ar, af því að ég hygg slík vá sé fyrir dyrum og hafi jafnvel þrýst sér lengra en að þröskuldi, að all- ir þurfi að gæta vöku sinnar, svo enginn hrasi um óboðinn gest eða valdi því, að annar missi fótanna. Og er ekki síður þýðingarmikið. Gleði vegna nýs árs með þakk- læti fyrir hin öll er því aðeins möguleg, ef varanlegt á að reyn- ast, að tengt sé Kristi svo áhrif hans móti til fegurra mannlífs í sannleika, kærleika og ríkulegri tillitssemi. Og leiði ég þá ekki hugsun og bæn að árinu nýja einu. Við erum vön því, að nafngjöf Jesú sé guðspjall nýársdags, en nú var okkur flutt hin Drottinlega bæn. Sú er m.a. ástæðan, að ég hef beðið presta að miða við aðra textaröð á því ári kirkjunnar, sem hófst með fyrsta sunnudegi í að- ventu. Verður þar með fleira kynnt og að fleiru hugað en sé hin fyrsta röð ein flutt og endurtekin. En ekkert ár verðskuldar kveðju gleði eða þakkaróð sé það ekki tengt Jesú og hljóti áherslu í nafngift hans og þar með allra þeirra, sem honum lúta. En sífelld áminning Faðirvorsins með daglegri iðkun minnir með góðum hætti á upp- haf. Upphaf við fæðingu, sem jól syngja um, og upphaf tíma, er Guð leit allt og sá það var harla gott, og upphaf hvers einstaklings við fæðingu hans og verða þá hver áramót tilefni hins sama. Áð fara með Faðirvorið er ekki að nýta töfraformúlu til tryggingar góðs tíma. En bendir ákveðið til ljóssins, svo myrkur bjargsins hremmi ekki. Og sá sem tileinkar sér hugsun hverrar einstakrar hinna sjö bæna, þarf ekki að velkj- ast í vafa um, í hveiju hið góða, fagra og fullkomna er fólgið, það sem á að vera keppikefli kristins manns. Bæn við áramót um gleði og þakkaróð hvílir því m.a. á hollustu við fyrirmæli og viðmiðun Faðir- vorsins. En má ég einnig með til- liti til orða minna um neikvæðar áherslur, þar sem niðurrif og hrun vekur meiri athygli en uppbygging fagurra verka, líka benda á orð Páls postula er hann gefur okkur mælistiku til að bera að eigin lífi: „... allt sem er satt, allt sem er göfugt, rétt og hreint, allt sem er elskuvert og gott afspurnar, hug- festið það.“ Já, hugfestið það og meira til, látið slíkt móta svo hugs- un, að orð lúti og verk túlki. Sé slíkt haft að leiðarljósi verð- ur nýja árið gleðilegt, þótt margt hljóti að verða með öðrum hætti, en helst er kosið. Og þiggjum í Faðirvorinu góðan mal til þeirrar ferðar, sem í dag hefst og lýkur við uppgjör, er 1994 leysir þetta ár af hólmi. Já, gleðilegt nýtt ár og hafið þökk fyrir liðið. Það segi ég, en ekki aðeins ég, heldur einn- ig kirkjan þín og sá, sem hún þjón- ar, Jesús Kristur. Honum.sé tími þann veg helgaður, að hið varan- lega móti og forði frá innilokun í kalt bjarg harðúðugs hjarta, er hefur andartakið eitt til viðmiðun- ar. Faðir eilífðarinnar blessi nýtt ár og land okkar og þjóð í Jesú nafni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.