Morgunblaðið - 03.01.1993, Page 28

Morgunblaðið - 03.01.1993, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JANUAR 1993 VASKHUGI Nú er rétti tíminn til að bæta vinnuumhverfið þitt svo um mun- ar. Með Vaskhuga uppfyllir þú ekki aðeins kröfur hins opinbera um skattskil, heldur er staða rekstrarins alltaf á hreinu. Vaskhugi er eitt forrit með öllum kerfum, sem venjulegur rekstur þarfnast, þ.e. sölukerfi, fjárhagsbókhaldi, birgða-, viðskipta- manna- og verkefnabókhaldi, hefti, ritvél og mörgu fleira. Tugir gagnlegra skýrslna sýna sölusögu, útistandandi kröfur, skulda- stöðu, virðisaukaskatt o.fl. o.fl. Vaskhugi prentar sölureikninga, gíróseðla, póstkröfur, víxla, lím- miða o.s.frv. Allt þetta fæst með einföldum skipunum. Og það besta er að Vaskhugi kostar aðeins 48.000 kr. Prófaðu Vaskhuga í 15 daga án skuldbindinga. Hringdu og fáðu sendar upplýsingar um þetta frábæra forrit, eða komdu við og skoðaðu möguleikana. Vaskhugi hf. Grensásvegi 13, sími 682680, fax 682679. „Oft verður grátt að gamm“ Leiklist Bolli Gústafsson Leikfélag Akureyrar ÚTLENDINGURINN Höfundur: Larry Sue Þýðandi: Böðvar Guðmundsson Leikstjóri: Sunna Borg Leikmyndahöfundur: Hallmund- ur Kristinsson Búningahöfundur: Freygerður Magnúsdóttir Ljósahönnuður: Ingvar Björns- son Leikritið Útlendmgurinn er ekki nýstárlegt verk. Segja má, að það sé dæmigert afturhvarf til þess hefð- ÚTSALAN HEFST Á MORGUN OPNUM KL. 12 KRAKKAR KRINGLAN 8-12, S. 681719 bundna forms, sem gamlir leikhús- sunnendur voru famir að óttast um, söknuðu í nýjum verkum og fengu ekki bætta í þeirri áráttu leikhúss- manna, að breyta viðamiklum skáld- sögum í sviðsverk. Útlendingurinn er stofuleikur, sem ekki krefst margbrotinrTar tækni. Höfundur leggur megin- áherslu á skýra gerð persónanna, lætur friðsamlega kímni þróast hægt og breytast í nokkra spennu, uns gamanið fer að kárna. Eigi að síður hlýtur þó leikurinn farsælan endi. Þá er ástæða til að geta þess, að boðskap skortir verkið ekki og er hann tímabær um þessar mundir, þegar draugur kynþáttafordóma leikur lausum hala og magnast þar sem síst skyldi. Sagan endurtekur sig, og þrátt fyrir allt hjal um fram- farir, þá munar manneðlinu hægt til fullkomnunar. Á það minnir höf- undur Útlendingsins, Lany Sue, og jafnframt, að á öllum tímum fínnast menn, sem kinoka sér ekki við að vinna grimmdarverk undir yfirskini guðhræðslu. Larry Sue lifði skamma ævi, lést í fiu^slysi árið 1985 aðeins 39 ára, en þau fáu leikverk, sem honum auðnaðist að skrifa hafa vak- ið athygli víða um heim. Böðvar Guðmundsson hefur snúið verkinu á íslenska tungu og sem vænta mátti er þar ekki kastað til höndum. Leikstjórn Sunnu Borg er örugg, en fyrri hluti sýningarinnar virðist óþarflega hægur með köflum. Við- horf til þess breytist hins vegar nær leikslokum, svo seinfæmin í upphaf- inu verður metin sem réttur tónn, þegar á heildina er litið. Átök við uppgjörið voru vel af hendi leyst af stjórnanda. Hallmundur Kristinsson sýnir sem fyrr, að LA er vel sett meðan það nýtur hans. Hann hefur glöggt aug^ fyrir þeim stíl, sem er við hæfi hveiju sinni, og hið ameríska veiðihótel Bettýjar Meeks er nákvæmlega eins og það á að vera; græna veggfóðrið með vínbeijaklösunum og Ijósbrúnir bitamir, gluggaskotið, ljóst, rósótt húsgagnaáklæði; já, heildarsvipur- inn er sannverðugur. Þegar ég lít um öxl, þá man ég ekki eftir að næmt auga Hallmundar hafi brugð- ist við sviðsgerð og hún ævinlega borið vitni sérstakri vandvirkni. Og þá veit ljósahönnuðurinn, Ingvar Björnsson, hvað við á, svo veður- breytingar og dægraskipti em sann- færandi, leikur ljóss og skugga aldr- ei tilviljanakenndur. Freygerður Magnúsdóttir er höfundur vel hann- aðra búninga, sem hæfa hinni bandarísku umgerð verksins. Þráinn Karlsson fær tækifæri til þess að bæta nýrri persónu í safn minnisstæðra hlutverka á farsælum leikferli. Charlie Baker þjáist af sjúklegri óframfærni og Þráni bregst ekki bogálistin, að draga upp grát- broslega mynd af þeim aumkunar- verða náunga. Segja má að Þráinn leiki sér að því að tefla á tæpasta vað, ýkt látbragð persónunnar nálg- ist fáránleika á stundum. En þessi kynlegi Baker nær tökum á áhorf- endum, ekki síst á sagnalist sinni á annarlegu tungumáli, og gerir Út- lendinginn að gamanleik með góðum stuðningi barnslega einlægrar hótel- stým, Bettýar Meeks, sem Sigurveig Jónsdóttir leikur af engu minni virkt. Sigurveig hefur þá réttu útgeislun gamanleikarans, sem gerir mikið úr fábrotnu hlutverki. Aðalsteinn Bergdal leikur Froggy LeSueur holl- vin Charlies. Froggy er lífsreyndur hermaður og heimsmaður, fljótur að bregðast við hverskonar vanda. Hlutverkið er ekki viðamikið, en Aðalsteinn túlkar persónuna á skýr- an og sannfærandi hátt. Sigurþór Albert Heimisson leikur einfaldan pilt, Ellard Simms, sem leynir á sér þegar á reynir og hann fær að njóta sín. Leikur hans er ömggur og með einkar góðum tilþrifum í samleik þeirra Þráins við morgunverðarborð- ið. Systur hans, Katrínu Simms, leik- ur Bryndís Petra Bragadóttir af ör- yggi, óþreyjufullum æskuhita, en ber stundum óþarflega hratt á. Jón Bjami Guðmundsson leikur unnusta hennar, séra Davíð Marshall Lee, sléttan og felldan sóknarprest, sem reynist ekki allur, þar sem hann er séður. Á sannfærandi hátt túlkar Jón Bjarni þau umskipti, þegar sauða- gæran er að falla af úlfmum. Björn Karlsson leikur hinn dæmigerða „töffara", einsýnan ofbeldismann, sem veður áfram í heimsku sinni. Bjöm gerir ekki meira úr hlutverk- inu, en efni standa til. Sýning LA á Útlendingnum ber vott um vandvirkni og óhætt er að segja að vel hafi verið skipað í hlut- verk. 10 ára og eldri FJÖR / / / HJA SOLEYJ VETUR! NYTT! AERÓiæNYTT! 10 til 13 ára

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.