Morgunblaðið - 03.01.1993, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1993
29
Drengjakór Laugames-
kirkju - Jólatónleikar
Metsölublað á hverjum degi!
Drengjakór Laugarneskirkju
ásamt stjórnanda sínum, Ronald
V. Turner og fríðu fylgdarliði svo
sem Sigrúnu Hjálmtýsdóttur, Guð-
rúnu S. Birgisdóttur flautuleikara,
Guðrúnu Másdóttur óbóleikara,
David Knowles píanó- og orgel-
leikara og Bjöllusveit Laugarnes-
kirkju. Það er áreiðanlega ekki
einfaldur hlutur að halda úti starf-
andi drengjakór þar sem árlega
falla út svo og svo margir af starf-
andi meðlimum og nýir koma í
staðinn og þjálfunartíminn aðeins
örfá ár, en töfrandi hópur er þetta,
þegar vel tekst til og það gagn-
stæða þegar útkoma er á hinn
veginn. Kórinn mun sá einasti
sinnar tegundar á íslandi, að því
er ég best veit, hefur starfað í
nokkur ár og þegar farið a.m.k.
eina utánlandsferð, og heyrði und-
irritaður kórinn fyrir þá söngför.
Samanburður er, af framangreind-
um ástæðum, ekki sanngjarn, því
hugsanlega er nú um allt annan
hóp að ræða, en fyrir nokkrum
vonbrigðum var ég með söng
drengjakórsins, sl. mánudag.
Raddbeitingu drengjanna fínnst
mér ábótavant, raddirnar fókusa
ekki vel og þar af leiðandi er
hljómur kórsins mattur og hljóm-
lítill. E.t.v. er það, að einhveiju
leyti ástæðan fyrir því að flest
lögin, sem kórinn söng, hljómuðu
óhreint. Fleiri ástæður hljóta þó
að liggja að baki, sem kenna verð-
ur söngstjóranum. Allt kapp er
best með forsjá, og óþarfi ætti að
vera að láta þennan óhreina söng
bitna á drengjunum. Mér er ekki
grunlaust um að þessi óhreini
söngur sé taktslagi söngstjórans
að kenna að einhveiju leyti. SJög
hans eru mjög stór og markeruð
og henta illa mjúkum söngröddum
drengjanna, áberandi var og, að
hreinast sungu drengirnir þegar
stjórnandinn hvíldi þessi umfangs-
miklu taktslög; þá fengu strákarn-
£
Sigrúh Hjálmtýsdóttir
ir tíma til að hlusta á samhljóm-
inn. Einnig er nauðsynlegt fyrir
stjórnanda, að vera ekki alltaf með
höfuðið ofan í nótunum, drengirn-
ir þurfa áreiðanlega' meira augn-
samband. Þessi gagnrýni er sett
fram eingöngu til þess að hlutirn-
ir megi batna. Drengjakór Laugar-
neskirkju er metnaðarmál, ekki
aðeins kirkjunnar heldur okkar
allra, og söngstjórinn hefur innt
mikið starf af höndum í þágu kórs-
ins og á sannarlega þakkir skildar
fyrir, en ágalla þarf hann að fá
að vita, það er eina leiðin að mark-
inu. Sigrún Hjálmtýsdóttir prýddi
vitanlega tónleikana með sinni
glæsilegu rödd, sem stundum
minnir á rödd einnar okkar bestu
söngkonu fyrr og síðar, Guðrúnar
Á. Símonar. Óbóleikarinn í „Slá
þú hjartans“ var tæplega fullnægj-
andi, og David Kvowles leyfði sér
að sofna á verðinum augnablik,
en Guðrún gerði margt fallega á
flautuna sína.
Drengjakór Laugarneskirkju.
Oddny' Ólafsdóttir,
Edda Sigurbergsdóttir og
Ingibjörg Siguröardóttir
misstu satntals
34 kg affitu.
Líkamsrœkt er ntí
peirra lífsstíiL
og pú nœrð ánœgjulegum árangri
Hefst 9. janúar
- mæting 5x í viku í leikfimi
- fitumælingar og vigtun
- fræðslufundur
þátttakendur skila matardagbók og fá
- matardagbók umsögn og rádgjöf um breytt matarædi
- Ijúffengar mataruppskriftir m. léttu fæði
- aðhald og hvatning
Skemmtilegir tímar í góöum félagsskap og þú losnar viö óvelkomna fitu
og lærir að tileinka þér nýjan lífsstíl svo að aukakílóin veröi ekki framar
vandamál. Þú færö allar upplýsingar í síma 68 98 68.
Verð
kr. 9.900,-
OpiA í dag
kl. 12-15.
ÁGÚSTU OG HRAFNS
SKEIFAN 7 108 REYKJAVlK S. 68 98 68
★ Morgunhópur
★ Daghópur
★ Kvöldhópur
★ Vaktavinnufólk velkomið
★ Barnagæsla
7 til 9 ára,
10. hver nemandi fær Barbie-spólu.
J A Z Z
A'JA’QVt
0.(í
2ja til 6 ára
BÖRNIN EIGA ÞAÐ BESTA SKILIÐ!
Skemmtilegur dans, þjálfun í
líkamsburði, skilningur á tónlist og
vöðvastyrking. Námskeiðin hefjast
11. janúar. Innritun hefst 4. jan. í
Hafnarfirði bjóðum við upp á
námskeið í jazz og
barbie-dansaerobic.
Upplýsingar og imuitun í
sínium 687701 og 687801.