Morgunblaðið - 03.01.1993, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 03.01.1993, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1993 Minning Laufey Eiríksdóttir frá Vestmannaeyjum Fædd 5. júní 1926 Dáin 14. desember 1992 Látin er Laufey Eiríksdóttir frá Dvergasteini í Vestmannaeyjum. Hún hafði verið sjúklingur síðustu ár og sjálfsagt hefur hvíldin verið henni kærkomin. Laufey og Doddi, eiginmaður hennar, voru nágrannar okkar fyrstu árin eftir gos í Vestmanna- eyjum og kynntumst við þeim sæmdarhjónum vegna vinskapar okkar og Kolbrúnar dóttur þeirra og eiginmanns hennar Sverris Gunnlaugssonar. Ég átti oft leið fram hjá heimili Laufeyjar og Dodda á Vestur- veginum með dætur mínar, þá á fyrsta og öðru ári, og ef hún sá okkur kom- hún hlaupandi út á tröppur með kleinur eða annað góðgæti til að stinga upp í þær og spjalla við okkur, enda rötuðu þær fljótt að tröppunum hjá Lau- feyju. Það kom okkur því ekki á óvart að þegar afi úr Reykjavík, ókunnugur hér í bæ, fór út að ganga með steipurnar þá leiddu þær hann rakleiðis til Laufeyjar og þar var hann auðvitað drifínn inn í kaffí og nýbakaðar kleinur. Þannig var Laufey, ávallt gestrisin og vildi öllum gott gera, enda margir sem komu við hjá henni í kaffisopa og spjall á Vest- urveginum. Hún var kona með stórt hjarta og mikla þjónustulund. Hún hugsaði einkar vel um heimli sitt og fjölskyldu. Þegar heiisan brast hjá henni fyrir um tíu árum endurgalt fjölskyldan henni þjón- ustulundina og var einstakt og lærdómsríkt að fylgjast með hvað Doddi og börnin hugsuðu vel um velferð hennar þegar hún þurfti á þeim að halda. Hún fékk alltaf heimsóknir á sjúkrahúsið tvisvar á dag þar sem þau sýndu henni mikla natni og virðingu fram á síðustu stund. Kveð ég í Guði góðan lýð gleðilegrar þeim nætur býð þakkandi öllum þeirra styrk þjónustu, hjálp og kærleiksverk. (H. Pétursson) Lífsstarfí mætrar konu er lokið og með þessum fáu kveðjuorðum langar okkur að kveðja Laufeyju Eiríksdóttur um leið og við vottum Dodda, eiginmanni hennar, börnunum og fjölskyldum þeirra innilega samúð og biðjum góðan Guð að styrkja þau í söknuðinum og sorginni. Lóa og Magnús Kristinsson. Lækkar lífdaga sól. Löng er orðin mín ferð. Fauk í faranda slqól, fegin hvíldinni verð. Guð minn, gefðu þinn frið, gleddu’ og blessaðu þá, sem að lögðu mér lið. Ljósið kveiktu mér hjá. (H. Andrésdóttir.) Föstudaginn 11. desember sl. er ég var staddur úti á sjó hringdi ég heim eins og aðra daga. Jón Kristinn, yngri sonur minn, svaraði í símann og færði mér þær sorgar- fréttir að nú væri hún amma Lauf- ey að skilja við og að mamma væri hjá henni. Það er nú svo, að þó maður hafi vitað að hverju stefndi hjá tengdamóður minni, henni Lau- feyju, og væri búinn að eiga von á þessum sorgarfréttum nokkuð lengi þá verður manni ónotalega við og er ekki sáttur við gerðir almættisins. En þeim breytir víst enginn og það tel ég víst að hún Laufey mín verður hvíldinni fegin eftir langa sjúkrahúslegu. Já, svo langa og tilgangslausa, að manni fannst, og maður hugsaði oft hvað himnafaðirinn væri að draga. En Laufey mín var ekki tilbúin þennan föstudag. Hjartað var sterkt og það var kominn mánudagurinn 14. desember er lífsneistinn slokknaði hjá þessari sæmdarkonu, Laufeyju Eiríksdóttur frá Dvergasteini í Vestmannaeyjum. Ég ætla mér ekki hér í þessum fátæklegu orðum að rekja ættir né uppeldisár Laufeyjar. Hins veg- ar vil ég með þakklæti minnast þeirra ára og samverustunda er við áttum saman, en þær voru því miður allt of fáar. Ég kom fyrst að Vesturvegi 4 árið 1968 en þar höfðu Laufey og eiginmaður henn- ar, Þorsteinn, í daglegu tali kallað- ur Doddi, reist sér myndarlegt heimili. Ég fann strax hve góður andi ríkti á því heimili. Laufey hafði svo snyrtilega hlúað að sínum með alkunnum dugnaði og alúð en raunar sagði hún mér síðar að oft hefði verið úr litlu að spila. Börnin voru orðin fimm, staðið var íi stækkun á húsinu og húsbóndinn lengi frá vinnu vegna slyss. Já, það var oft erfitt á Vesturvegi 4 í þá daga, en þetta hafðist með Guðs og góðra manna hjálp eins og Lauf- ey sagði. En ég vil bæta við dugn- aði hennar og atorku, en það voru eiginleikar sem Laufey var ríku- lega gædd. Þar að auki var hún sérdeilis skapgóð kona, það var Fædd 30. apríl 1908 Dáin 21. desember 1992 „Og ég sá nýjan himin og nýja jörð, því að hinn fyrri himinn og hin fyrri jörð voru horfin og hafið er ekki framar til. Og ég sá borg- ina helgu, nýju Jerúsalem, stíga niður af himni frá Guði, búna sem brúði, sem skartar fyrir manni sín- um. Og ég heyrði raust mikla frá hásætinu er sagði: „Sjá tjaldbúð Guðs er meðal mannanna og hann mun búa hjá þeim og þeir munu vera fólk hans og Guð sjálfur mun vera hjá þeim, Guð þeirra.“ Þessi orð heilagrar ritningar voru tengdamóður minni mikils virði. Hún trúði þessum orðum og voru þau hluti af lífi hennar. Þau voru von hennar og framtíðarsýn. Hún vissi að sá tími kæmi að þau myndu rætast. Þegar Kristur kæmi aftur og hin nýja jörð yrði staðreynd, þá á ný myndi fjöl- skyldan hennar sameinast á ný. Hún var fædd í Vestmannaeyjum þann 30. apríl 1908. Foreldrar alltaf stutt í brosið og léttleikann og hefur það vafalaust hjálpað henni yfir margan hjallann. Já, það var alltaf gott að koma á Vesturveginn og það hefur sjálf- sagt fleirum en mér fundist því margir áttu leið þar um og þáðu góðgerðir hjá Laufeyju minni. Þá var smáfólkið fljótt að finna að gott var að koma í eldhúsið hjá Laufeyju en þar var alltaf nóg til í lítinn munn og næg hlýja. Ég veit að eldri sonur minn, Þor- steinn, býr um ókomin ár að þeirri hlýju og góðvild sem hann fékk hjá ömmu og afa í Vestmannaeyj- um. Laufey og Doddi eignuðust fimm börn. Þau eru: Þorsteinn, kvæntur Brynju Friðþórsdóttur og eiga þau tvö börn; Kolbrún, gift undirrituðum og eigum við tvo syni; Kristín, gift Óskari Árnasyni en þau eiga tvö börn; Eiríkur, kvæntur Karen Sigurðardóttur sem eiga tvö börn og Gunnar, ókvæntur og barnlaus. Hugurinn reikar aftur í tímann hennar voru hjónin Kristján Þórð- arson og Guðný Elíasdóttir, kennd við Reykjadal í Vestmannaeyjum. Af systkinum sínum er upp kom- ust var hún önnur í röðinni. Elstur var Ingólfur, þá hún, síðan kom Magnús, Jóhann, Anna og að lok- um Elías. Tvö börn höfðu verið í systkinahópnum til viðbótar en þau höfðu látist ung. Þijú systkina hennar lifa hana, Jóhann er býr í Vestmannaeyjum, Anna er dvelur á dvalarheimili aldraðra í Garði en bjó lengst af í Keflavík og El- ías er býr í Kópavogi. Æskuheimil- ið var gott heimili þó að lífsbarátt- an hafi verið erfið og á æskuárun- um alast þau systkini upp við það að leggja heimilinu lið. Hún talaði svo oft um æsku- og unglingsárin sín og víst er um það að hún leit til baka með gleði til þessa tíma. Ég fékk þá tilfinningu fyrir því að það hefði verið nær alltaf gam- an á þeim árum því systkina- og vinahópurinn var stór og samhéld- inn. Æskuárin liðu og við taka unglings- og fullorðinsár. Þá en það var föst venja að ijölskyld- an borðaði og eyddi aðfangadags- kvöldi saman á Vesturveginum og var þá oft þröng á þingi en glatt á hjalla. Þessum sið varð að halda áfram, ekki var öðru við komið af hálfu Laufeyjar og Dodda þó Lauf- ey væri þess ekki megnug að sinna heimilisverkum vegna veikinda. Þá kom hið góða og sérstæða sam- band þeirra hjóna berlega í ljós. Doddi sá um matseldina og halda sameiginleg jól fyrir fjölskylduna. Laufeyju var kippt úr amstri dagsins á besta aldri, en hún var rúmlega fimmtug er alsheimer- sjúkdómurinn kvaddi dyra hjá henni. Við tóku erfið ár. Hægt og bítandi braut þessi sjúkdómur hina kraftmiklu konu niður. Sex síðustu árin lá Laufey í Sjúkrahúsi Vest- mannaeyja þar sem hún naut frá- bærrar ummönnunnar hjúkrunar- fólks, eiginmanns og íjölskyldu. Hvem'einsta dag sl. sex ár klukk- an þrjú og sex þijátíu síðdegis var Doddi mættur á spítalann til Layf- eyjar sinnar. Því fékk enginn breytt, svona varð þetta að vera. „Það er hægt að stilla klukkuna eftir honum Dodda,“ sagði hjúkr- unarfólkið. Og það er ég alveg viss um að umhyggja Dodda og sam- band þeirra Laufeyjar í millum hefur lengt lífdaga Laufeyjar. Nú er stíði Laufeyjar við sjúk- dóm sinn lokið. Hún er komin í þá höfn er bíður okkar allra. Ég vil þakka henni samverustundirnar og bið algóðan Guð að geyma hana. Doddi minn, missir þinn er mikill og sorg þín djúp. Hægt er þó að hugga sig við að Laufey er örugg- lega í góðri höfn. Ég vil senda þér og fjölskyldu þinni mínar dýpstu samúðarkveðj- ur. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Sverrir Gunnlaugsson. stundaði Maja alla algenga vinnu sem til féll. Én það sem lék í hönd- um hennar var saumaskapur, vann hún við karlmannafatasaum og ýmsar breytingar á fatnaði. Þótti henni aldrei neitt tiltökumál þó svo að hún tæki notaðan fatnað og breytti svo að flíkin leit út sem ný. Nítján ára gömul er hún þegar ástin sækir hana heim og þann 14. maí að lokinni vetrarvertíð gengu þau í hjónaband sjómaður- inn hennar og hún. Hét hann Sig- urður Jónsson, fæddur 2. janúar 1903 og alinn upp á Ólafsfirði og þar dvelja þau nær tíu ár. Þar fæðast þeim þrír synir, en þau verða fyrir þeirri sáru raun að missa fyrsta drenginn sinn, aðeins 7 mánaða gamlan. Það sár greri aldrei. Það áfall ásamt því að mjög erfitt var um atvinnu og lítið að hafa varð til þess að þessi timi í lífi hennar var henni mjög erfiður. Þau snúa aftur til Vestmannaeyja og fá íbúð í foreldrahúsum henn- ar. Þar fæðist þeim fjórði drengur- inn. Árið 1958 festa þau kaup á húsi því við Kirkjuveg 70b, er verð- ur heimili þeirra upp frá því og + Hjartkær maöurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, STEINGRÍMUR GUÐMANNSSON frá Snæringsstöðum, Svínadal, lést í Landakotsspítala 19. desember. Útförin fer fram frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 5. janúar kl. 13.30. AuAur Þorbjarnardóttir, Guðrún Steingrímsdóttir, Benedikt Sv. Steingrfmsson, Hjördís Þórarinsdóttir, Guðmann Steingrímsson, Concordía Guðmannsdóttir, Þorbjörn Ragnar Steingrímsson, Hulda Jóhannesdóttir, Albert Guðmannsson, Guðrún Guðmannsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma okkar, INDIANA FINNBJÖRG LEIFSDÓTTIR, Eyjaholti 14, Garði, verður jarðsungin frá Akraneskirkju mánudaginn 4. janúar kl. 11.00. Sigurbjörn Jónsson, Eli Halldórsson, Auður Þorvaldsdóttir, Sigrún Halldórsdóttir, Benedikt Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, RAGNHEIÐUR ARNÓRSDÓTTIR, Langholtsvegi 206, lést á hjartadeild Landspítalans 25. desember. Jarðarförin fer fram frá kirkju Óháða safnaðarins þriðjudaginn 5. janúar kl. 13.30. Axel Helgason, Sigrún Axelsdóttir, Ólafur Axelsson, Ruth Halla Sigurgeirsdóttir, Sigþrúður B. Axelsdóttir, Davi'ð Davfðsson, barnabörn og barnabarnabarn. María Kristjáns- dóttir - Minning + Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, TRYGGVI JÓNSSON, Naustahlein 5, Garðabæ, sem andaðist 26. desember sl., verður jarðsunginn frá Garðakirkju, mánudaginn 4. janúar kl. 13.30. Elfn Ólafsdóttir, Ásrún Tryggvadóttir, Hallfríður T rygg vadóttir, Margrét Tryggvadóttir, Ingþór Friðriksson, Þóra Tryggvadóttir, Lárus Ragnarsson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.