Morgunblaðið - 03.01.1993, Síða 35

Morgunblaðið - 03.01.1993, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1993 35 Gunnar Jörundsson, Akranesi- Minning Fæddur 10. nóvember 1915 Dáinn 25. desember 1992 Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið. (V. Briem.) Hann afí okkar, Gunnar Jörunds- son, er látinn. Hann iést í Sjúkra- húsi Akraness að morgni jóladags. Á kveðjustund sem þessari er margs að minnast, minningarnar hrannast upp um góðan og.hlýjan afa, sem vildi okkur öllum svo vel og fylgd- ist alltaf svo vel með okkur. Það er skrítið að hugsa til þess að jóla- dagur skuli allt í einu breytast í þennan sorgardag hjá okkur öllum. Á jóladag var alltaf glatt á hjalla hjá ömmu og afa. Þá hittist fjöl- skyldan og við krakkamir mættum að sjálfsögðu með nýju leikföngin okkar, sem við höfðum fengið í jóla- gjöf. Það var alltaf svo gott að koma til ömmu og afa fyrst á Sunnubrautina og síðan á Skarðs- brautina, en síðustu árin bjuggu þau á Dvalarheimilinu Höfða og höfðu þar yndislega íbúð. Oft sat afi og lagði kapal og kenndi okkur marga slíka og ólatur var hann við að kenna okkur að spila á spil. Ekki má gleyma afmæl- unum hans afa, þau voru alveg ein- stök. Þá voru „pylsupartý" eins og í bamaafmælunum. Þannig var hann afí alltaf að hugsa um að gera eitthvað skemmtilegt og gott fyrir okkur. Haustið 1980 hélt hann á einni okkar, þeirri yngstu, undir skím og var það stór dagur hjá honum. Hún hefur alltaf verið mikil afa- stelpa og haft svo mikla ánægju af að heimsækja afa og spjalla við hann og það kunni hann að meta. Við vitum að hún á eftir að sakna þessara stunda með afa. Hann afí lét sér ekki síður annt um langafabörnin sín, sem hann var svo hreykinn af, og hvað hann var stoltur þegar hann var að sýna gestum myndir af þeim. Þegar afí og amma bjuggu á Skarðsbrautinni komu þau daglega í heimsókn til okkar á Garðabraut- ina. Þeirra heimsókna söknuðum við þegar þau fluttu inn á Höfða. Öll okkar ár hafa þau afi og amma verið hjá okkur á aðfangadags- kvöld. Eins var það um þessi jól og áttum við yndislegt kvöld með þeim, en það kvöld dró ský fyrir sólu þegar afí veiktist og var flutt- ur á sjúkrahús og lést þar að morgni jóladags — kallið var komið. Gæfuspor var stigið þegar afí gekk að eiga hana ömmu okkar, Jóhönnu Guðjónsdóttur, yndislega og glaðlega konu. Það var 21. nóv- ember 1942. Hún sér nú á eftir lífs- förunaut sínum eftir 50 ára farsælt og gott hjónaband, þar sem aldrei féll skuggi á. Þau eignuðust tvö börn, Reyni sem giftur er Sigríði V. Gunnars- dóttur, og Ólöfu sem gift er Viðari Einarssyni. Bamabörnin eru 8 og bamabamabörnin 5. Þegar komið er að kveðjustund viljum við systumar þakka afa fyr- ir allar stundirnar sem við áttum með honum og fyrir alla umhyggju og kærleika sem hann sýndi okkur. Við biðjum algóðan Guð að styrkja ömmu á sorgarstund. Öllum aðstandendum vottum við samúð okkar og segjum: Minningin um afa er ljós í lífí okkar. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þðkk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Nína Borg, Jóhanna Ólöf og Berglind Reynisdætur. Sigurður G. Baldvins son - Kveðjuorð Stundum segir maður að engar fréttir séu góðar fréttir. Víst er um að þó færist að feigðarósi þá óttast maðúr að heyra um endalok sem manni fínnast vera svo óskap- léga ótímabær. Þannig var mér farið þegar ég fékk þá sorglegu frétt að heiman, þangað sem ég var staddur, að hetjulegri baráttu Didda vinar míns við erfiðan sjúk- dóm væri lokið. Didda kynntist ég fyrir aðeins fáum árum. Það gu- staði af honum. Reffilegur með þessa hressilegu takta og kjarnm- þar til gosið verður í Eyjum og þau þurftu að flýja. Á þessum tíma kem ég inn í fjölskylduna sem verðandi eiginkona yngsta sonar- ins. Inni á heimilinu þeirra hófum við okkar búskap. Allir drengirnir þeirra höfðu fest ráð sitt og barna- börnin voru orðin mörg. Þau voru glöð og ánægð yfír hópnum sínum. Arið 1937 sameinast hún söfnuði Sjöunda dags aðventista í Vest- mannaeyjum þar sem hún fann trúarþörf sinni farveg. Þeim söfn- uði tilheyrði hún allt til enda. Hún trúði boðskap Biblíunnar, hún hafði sjálft reynt kærleika frelsar- ans og vonaði að aðrir yrðu þess einnig aðnjótandi. Hún var Guði þakklát fyrir líf sitt og hún var þakklát fyrir hversu góða heilsu Siguijón fékk, sem fengið hafí sitt fyrsta hjartaáfall 1960. Þau hjónin nutu sérstaklega áranna sem þau áttu saman eftir að gosið verður í Eyjum. Þá búa þau á Kleppsvegi 32 í Reykjavík ásamt góðu fólki úr Eyjum. Siguijón lést árið 1978 og fímm árum síðar lést Kristján sonur þeirra aðeins 52 ára gam- all. Líf hennar fer að taka breyt- ingum. Hún óskaði sér alltaf að komast til Vestmannaeyja á ný og fer hún á dvalarheimili aldraðra þar í bæ. Hún lést í sjúkrahúsi Vestmannaeyja 21. desember sl. Þar hafði hún dvalið undanfarin ár við sérstaklega góða umhugs- un. Hennar er saknað af öllum sínum stóra hópi, því afkomend- umir eru orðnir margir. Nú bíður hún endurkomu frelsarans. Bless- uð sé minning hennar og Guði falin. Sigríður Kristjánsdóttir. Höfóar til .fólksíöllum starfsgreinum! iklu sagnir. Þannig kom hann til dyranna. Vildi standa sig vel og búa fjölskyldu sinni örugga fram- tíð: Stundum ör og lá mikið á. Skildi stundum ekki hvað verald- legu gæðin gátu látið á sér standa. Átti ekki alltaf afgang af þolin- mæðinni en ávallt yfrið nóg af elsku og hlýju í garð fjölskyldu sinnar og hafði ríka þörf fyrir að tjá mér hug sinn í þeim efnum. Stutt dvöl mín á heimili Didda og Þórdísar í Colorado Springs var mér mjög ánæjguleg. Aksturinn upp til Aspen varð að endalausri upprifjun á skemmtilegum endur- minningum, þaðan sem af nægu var að taka. Hressilegar sögur manns sem hafði ekki farið með veggjum í gegnum lífið. Síðan tók- ust við léttilega á um frammistöðu ÍBK og Vals. Það var alltaf stutt í húmorinn og brosið. Kvatt hefur góður drengur sem átti að eigin mati margt ógert. Það gekk fyrst og fremst út á að koma framtíð fjölskyldunnar í ör- ugga höfn. Hugurinn bar Didda oft meira en hálfa leið og það gustaði oft af honum. Það var svo ótal margt sem Didda langaði til að gera, ekki síst það sem glatt gæti aðra. Málefni í gamla heima- bænum Keflavík voru þar ofarlega á blaði. Diddi hefur kvatt, en menn eins og hann gleymast ekki. Hann er sá sem fyrstur mun fagna þeg- ar fjölsklydan vinnur sigur í þeirri ströngu keppni sem lífíð er. Ég sendi mínar innilegustu samúðar- kveðjur til fjölskyldu og vina. Halldór Einarsson. Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tekin til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta tilvitnanir í ljóð eftir þekkt skáld, og skal þá höfundar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birt- ar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð og með góðu línubili. i Atvinnuhúsnæði óskast Viðskiptavinir okkar óska m.a. eftir: 900 fm skrifstofu- og lagerplássi (hluti). Staðsetning í Reykjavík, gjarnan miðsvæðis. Múlahverfi, 5-600 fm skrifstofuhæð (lyfta). Múlahverfi, 4-500 fm pláss með góðri lofthæð. Umrædd rými mega vera fullbúin eða tilbúin undirtréverk. EIGISAMIÐLLMNH -Sími 67-90-90 - Suhmuíla 21 ii ÚTSALAN HEFST 4. JANÚAR / nTíO I II '/ CT|n AUSTURSTRÆTI8. SÍMI 622570 \0\ TWJxJWJ LAUGAVEGI 31, SÍMI 25580 BUSETI Sími 25788' SKRIFSTOFAN ER OPIN KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA NEMA MIÐVIKUDAGA KL. 10-16. LOKAÐ í HÁDEGINU KL. 12-13. FÉLAGSLEGAR ÍBÚÐIR: (f. félagsmenn INNAN tekju- og eingamarka) ENDURSÖLUÍBÚÐIR TIL ÚTHLUTUNAR: Stoóur: Stæró: m! Hæó: Laus í: Sýning íbúðar: Suóurhvommur 13, Hofn. 4ro 103,0 3 jan. '93 14. janúar Frostofold 20, Reykjavík 4ra 88.0 7 vor '93 13. janúar Gorðhús 6, Reykjovik 4ro 115,0 3 jon/feb. '93 13. janúar Goróhús 8, Reykjovik 3ja 79,0 3 jan. '93 13. janúar Berjorimi 7, Grafarvogi 2ja 67,5 2 opríl/moi '93 13. janúor Eióismýri 22, Seltjornarnesi 3jo 73,4 3 febr. '93 12. janúar Eióismýri 24, Seltjornarnesi 2jo 58,9 1 mars '93 12. jonúar Hringið eða komið til að fá nánari upplýsingar um skoðunardaga íbúða. NÝJAR ÍBÚÐIR TIL ÚTHLUTUNAR: Staður: Fj. íbúða: Stærð: m! Afhentar: Skólotún 6, Bessostaðohr. 2 4ro 113,5 júli '93 ATHUQIÐ Aðeins félagsmenn, innan elgna- og tekjumarka, geta sótt um þessar íbúðir. ALMENNAR ÍBÚÐIR: (F. félagsmenn YFIR tekju- og eignamörkum) NYJAR ÍBÚÐIR TIL ÚTHLUTUNAR: Stoður: Fj. íbúðo: Stærð: m! Afhentor Birkihlið 2 og 2A, Hafn. 2 4ro 96,2 sept. '93 Félagsmenn YFIR eigna- og/eða tekjumörkum geta sótt um þessar íbúðir. Bent er á að búsetugjald (leiga) er munn hærra en í félagslegu íbúðun- um. Umsóknir í allar þessar íbúðir verða að hafa borist skrifstofu Búseta fyrir kl. 16 þann 15. janúar '93. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu. Áríðandi að skattayfirlit siðustu þriggja ára fylgi með umsókn. Hvernig sðtt er um fbúð: Umsóknir um íbúðir þurfa að berast skrifstofu félagsins fyrir 15. hvers mánaðar á eyðublöðum sem þar fást. Umsóknir gilda fyrir hverja auglýsingu fyrir sig og falla síðan úr gildi. Félagsmaður, sem sækir um nú og fær ekki íbúð, verður að sækja um á ný. Tll að umsókn sé gild, þarf umsækjandi að fá staðfesta yfirlýsingu skattstjóra sins umdæmis á þar til gert eyðublað (bakhlið á umsókn) um eignir og tekjur sl. þriggja skattára. Fái viökomandi umsækjandi ekki úthlutað nú, mun skrifstofa Búseta geyma yfirlýsingu skatt- stofu þar til næsta skattár byrjar, eöa til 1. ágúst 1993. Einnig þarf að greiða eldri félagsgjöld til að umsókn sé gild. VISA/EURO-þjónusta. PAÐ NÆGIR AÐ HRINGJA INN GRIÐLSU- KORTSNÚMERIÐ. BÚSETI Homrogoróum, Hóvollogölu 24,101 Reykjovik, simi 25788.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.