Morgunblaðið - 03.01.1993, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 03.01.1993, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1993 ATVIHNUAUG/ YSINGAR Stýrimaður óskar eftir plássi. Er vanur netum, nót og trolli. Sími 91-40972. LANDSPÍTALINN Ríkisspítalar Reyklaus vinnustaður KOPAVOGSHÆLI AÐSTOÐARMAÐUR Staða sérhæfðs aðstoðarmanns við endur- hæfingadeild Kópavogshælis er laus nú þeg- ar af sérstökum ástæðum. Um dagvinnu er að ræða og aðeins er ráðið í 6 mánuði eða lengur. Sérstök menntun er ekki nauðsynleg en skilyrði að viðkomandi sé léttur í lund og tilbúinn til að takast á við margvísleg verkefni. Upplýsingar gefur Guðný Jónsdóttir, yfir- sjúkraþjálfari, í síma 602725 milli kl. 9.00 og 16.00. RÍKISSPÍT ALAR Ríkisspítalar eru einn fjölmennasti vinnustaður á fslandi með starfsemi um land allt. Sem háskólasjúkrahús beitir stofnunin sér fyrir markvissri meðferð sjúkra, fræðslu heilbrigöisstótta og fjölbreyttri rannsóknastarf- semi. Okkur er annt um velferð allra þeirra, sem við störfum fyrir og með, og leggjum megináherslu á þekkingu, kærleik og viröingu fyrir einstaklingn- um. Starfsemi Rikisspitala er helguð þjónustu við almenning og við höfum ávallt gæði þjónustunnar, gagn hennar og hagkvæmni að leiðarljósi. Áfangaheimili - 50% starf Áfangaheimili fyrir konur sem lokið hafa áfengis- og vímuefnameðferð óskar eftir starfsmanni í 50% stöðu. Vinnutími mánud., miðvikud. og föstud. frá kl. 9-13, þriðjud. og fimmtud. kl. 16-20. Skilyrði að umsækjandi hafi reynslu af sam- bærilegri vinnu. Umsóknir skulu sendar auglýsingadeild Mbl. fyrir 8. jan. merktar: „Áfangaheimili - 10806“. Aðstoðarmaður - stærðfræði-/ tölfræðisvið Ofangreint fyrirtæki óskar einnig eftir að ráða aðstoðarmann á stærðfræði-/tölfræði- sviði. Starfið felst í ýmiskonar stærðfræðilegum útreikningum, gagnavinnslu, töflugerð o.fl. Unnið er með aðstoð tölvu og Exel töflu- reikni. Hæfniskröfur eru haldbær menntun og reynsla af sambærilegu. Ekki er krafist sér- hæfðrar háskólamenntunar en að viðkomandi séu vel að sér í stærðfræði/tölfræði, vanir að vinna með tölur, nákvæmir og glöggir. Umsóknarfrestur er til og með 8. janúar nk. Ráðningar verða sem fyrst. Ath. reyklaus vinnustaður. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar á skrifstofunni frá kl. 9-15. RÁÐNINGARÞJÓNUSTA LV SMIGS Guðný Harðardóttir Skipholti 50c, 2. hœð, 105 Reykjavík Síml 91-628488 Húsvarsla Félagasamtök í Reykjavík óska eftir að ráða húsvörð. Starfið felst í eftirliti með húsinu, ræstingum í sal og skrifstofuhúsnæði ásamt umsjón með og framkvæmd útleigu á sal. Oft getur verið um erfiða vinnu að ræða. Leitað er að hraustum og reglusömum aðila með góða framkomu. íbúð fylgir starfinu og kemur vel til greina að ráða hjón. Umsóknarfrestur er til og með 6. janúar 1993. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar á skrifstofunni frá kl. 9-15. Skólavörðustíg 1a - 101 Reykjavlk - Sími 621355 Sjúkrahús Siglufjarðar auglýsir eftir hjúkrunarfræðingum Okkur vantar hjúkrunarfræðinga til starfa strax eða eftir nánara samkomulagi. Á sjúkrahúsinu eru 43 rúm, sem skiptast á sjúkradeild, fæðingardeild og ellideild. Að auki er starfrækt skurðstofa, rannsóknastofa og sjúkraþjálfun í nýrri aðstöðu. Hjúkrunin er því afar fjölbreytt og gefandi. Þar að auki er gert ráð fyrir að hjúkrunarfræðingarnir séu sjálfstæðir í starfi og taki mikinn þátt í ákvarðanatöku. Sjúkrahúsið er mjög bjart og rúmgott, góð vinnuaðstaða og gott og samhent starfsfólk sem þar starfar. Siglufjörður er í fallegu umhverfi, samgöngur góðar og daglegar ferðir til og frá staðnum. Tómstundir eru fjölbreyttar og líflegt félags- líf, þar á meðal ýmis klúbbastarfsemi, nýtt íþróttahús og góð sundlaug. Skíðasvæðið er með því besta á landinu. Fjölbreyttar gönguleiðir. Gott barnaheimili, sem flyst í glænýtt hús á næstunni, er á staðnum. Hafið samband, ef þið hafið spurningar varð- andi kaup og kjör, eða komið í heimsókn og fáið upplýsingar um það sem við höfum að bjóða. Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 96-71166 og í hs. 96-71417. Viðskiptafræðingur - endurskoðunarsvið Fyrirtækið er virt þjónustufyrirtæki í Reykjavík. Viðskiptafræðingurinn mun sinna sérhæfð- um störfum á sviði reikningshalds og endur- skoðunar tengdum þjónustu þeirri er fyrir- tækið veitir. Hæfniskröfur eru að umsækjendur fullnægi áðurnefndum menntunarskilyrðum. Sam- bærileg menntun frá erlendum háskólum áhugaverð. Áhersla er lögð á nákvæm og skipulögð vinnubrögð auk góðra samskipta- hæfileika. Ástarsöguhöfundur Ert þú góður penni sem getur skrifað rammíslenskar nútíma ástarsögur? Við erum bókaútgáfa sem höfum áhuga á samstarfi. Bréf merkt: „A - 10170“ sendist auglýsingadeild Mbl fyrir 15. janúar nk. iá! «» Kennari óskast í Hjallaskóla vegna barnseignarleyfis í al- menna kennslu í 5. bekk og í heimilisfræði í % til 1/i starf frá 8. febrúar. Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 42033. Ljósmyndari óskast Vikublaðið Pressan leitar eftir samstarfi við „frílans Ijósmyndara". Markmiðið er að afla fréttaljósmynda til birtingar í Pressunni úr samkvæmislífi, stjórnmálum, viðskiftum o.fl. Myndefnið verður verðlagt eftir fréttagildi. Áhugasamir hafi samband við ritstjóra Pressunnar í síma 643080. Háskólakennari við NOPUS - Norrænu menntunaráætlunina fyrir þróun félagslegrar þjónustu NOPUS óskar eftir að ráða í stöðu háskólakennara. Ráðið er í stöðuna til fjögurra ára og gefst kostur á framlengingu í allt að Qögur ár til viðbótar. Meðal verkefna háskólakennarans er að kenna við stofnunina og sam- ræma framboð á norrænum nám- skeiðum. Háskólakennarinn mun einnig vera viðriðin greiningu og skráningu þeirra sviða þar sem þörf er á þróunar- eða menntunarstarfí. Umsækjandi um stöðu háskólakenn- ara verður að hafa lokið háskólaprófi með félagslegum áherslum. Kröfur um tungumálaþekkingu: Um- sækjandi verður að geta tjáð sig munnlega og skriflega á dönsku, sænsku eða norsku og því til viðbótar að minnsta kosti ensku. Þekking á ritaðri og talaðri finnsku er einnig kostur. Umsækjanda ber að taka fram þær launakröfur sem hann gerir. Umsóknir, ásamt vottorðum vegna háskólaprófs og annarra atriða, sem umsækjandi vill taka fram, ber að senda til: Direktör Jan Ording, Soc- ialstyrelsen, S-106 30 Stockholm, Svíþjóð. Ef nánari upplýsingar óskast er hægt að hafa samband símleiðis eða bréfleiðis við Jan Ording, yfir- mann Socialstyrelsen í síma 90 46 8 783 3141. rmpus NORRÆNA MENNTUNARÁÆTLUNIN FYRIR ÞRÓUN FÉLAGSLEGRAR ÞJÓNUSTU. Nopus er samnorran menntunarstofnun á háskólastigi fyrir menntun, sem og framhalds- og eftirmenntun starfsfó/ks á sviöi félagslegrar pjónustu á Nordurlöndum. Sérstaklcga beinist starfsemin að fólki í stjómunarstöö- um. Stofnunin heyrir undir Norrcena ráðherraráðið og starfar sem sjálfstceö eining í húsakynnum Norrcena heilbrigöisháskólans l Gautaborg frá og meö 1993.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.