Morgunblaðið - 03.01.1993, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 03.01.1993, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1993 Aramót nirflanna eftir Kristínu Marju Baldursdóttur Útgjöld jólamánaðar eru oft- ast hrikaleg, einkum eftir ára- mót þegar auralaust skamm- degið blasir við og reikningar af öllum toga bíða glottandi í röðum. Fyrir nirfla eins og mig er það beinlínis átakan- legt að horfa upp á þá hita- sótt kaupæðis sem hellist yfir menn fyrir jólin. Ekki svo að skiija að ég kannist ekki við þá veiki, því í mörg ár eyddi ég hverri krónu í desember og tók svo janúarmánuð út með þjáningum, aukakilóum og blankheitum. Þar tii einn daginn að ég sneri vörn í sókn og janúar, kvöl mín og mar- tröð, varð uppáhaldsmánuður- inn. Heiðurinn af þessum skyn- samlegu umskiptum átti fyrrver- andi nágrannakona mín í Þýska- landi, Frau Knoblauch. Sú ágæta frú hefur haft það fyrir sið í mörg ár að hringja til íslands um áramót hver til að athuga hvort ég hafi lifað árið af, og hvort ég eigi enn sama bílinn og sama manninn. Síðan spyr hún mig alltaf hvert ég ætli í sumarfríinu og áður en ég get svarað því segir hún mér hvert hún hafí farið á síðasta ári og hvert hún ætli á nýja árinu. í þetta sinn, það var fyrir fjór- um árum, var Frau Knoblauch á leið til Sviss á skíði, en ætlaði síðan að fljúga til Kanada með vorinu. Ég sem hafði ekki efni á að fara til Keflavíkur spurði hana hryssingslega hvort hún ætti aura fyrir þessu. Hún sagð- ist nú haida það, hún tæki bara út af bókinni sinni fyrir því. Þá spurði ég hvort hún væri ekki blönk eftir jólin og vonaðist til að heyra nokkrar hryllings- sögur þar að lútandi svo mér sjálfri liði betur. En Þjóðveijar hafa aldrei kunnað þá list að Ijúga til að láta öðrum iíða vel, ekki þegar Qármái eru annars vegar. Hún sagðist bara hafa tekið út af bókinni sinni fyrir jólaútgjöldum. Ég var í sárum eftir þetta sím- tal. Einkum vegna þess að eitt sinn hafði ég búið við hlið Frau Knoblauch og átt bankabækur með innistæðum. Ekki vantaði það að maður hefði sparað allan sinn búskap hér heima, en aldrei séð árangur. Að vísu barist við verðbólgu og okur, eitthvað sem þýska frúin þekkir ekki, en tími óðaverðbólgu var liðinn og því sá möguleiki fyrir hendi að hafa stjóm á hlutunum. Settist ég nú niður og gerði áætlun eins og Rommel forðum í eyðimörkinni, því þótt sá gamii hefði tapað striðinu vann hann margar orustur. Það fyrsta var að hafa yfirsýn yfir allan vígvöll- inn. Tók ég hvítt blað að stærð A4 og lagði það þversum fyrir framan mig. Deildi því í fjóra reiti sem báru heitin: Skuldir, áætlaðar tekjur, greiðslur á ár- inu og áætlaður rekstur. Aðferð þessi er líklega ekki mjög vís- indaleg að mati fjármálasérfræð- inga en hún dugar verkstjórum heimilá mjög vel. Fyrsti reiturinn, skuldir, er mjög leiðinlegur. Þar eru öll langtíma- og skammtímalán skráð og er síðan horft á tölum- ar þar til undan svíður. Menn verða að þekkja óvini sína. í reit tvö eru áætlaðar tekjur skráðar og er þá hægt að miða við tekj- ur síðasta árs. Ekki er gert ráð fyrir aukatekjum. Liður þijú, greiðslur á árinu, er einnig mjög hvimleiður og þarf mesta rýmið. Hann skiptist í föst gjöld og daglegan rekstur. Föst gjöld era afborganir af lánum, fasteigna- gjöld, tryggingar, hiti, rafmagn, sími, sjónvarp og þess háttar. Þegar kemur að daglegum rekstri vandast málið ef menn hafa ekki haldið búreikninga. Þeir sem hafa ekki gert það verða að áætla þá upphæð sem fer í mat, fatnað, bensín, strætó, vasapeninga, tannlækna, gjafír og guð má vita hvað, og byija síðan frá þeim degi að skrá hveija krónu sem hverfur úr buddunni. í §órða liðnum, áætlaður rekstur, era síðan öll væntanieg gjöld dregin frá áætluðum tekj- um. Ef í ljós kemur, að um hugs- anlegan afgang verði að ræða, ber að taka ákvörðum í hvað honum skuli varið. Sumarieyfi, nýr bíll, flísar á bað, kommóða í barnaherbergi, skiptir ekki máli, aðeins að sjá einhvem árangur stritsins. Ef afgan gur verður enginn og allt í mínus verða menn að fá sér sterkt k affí og þaulhugsa málin á nýjan le ik. Umrætt blað var sett ofan í skúffu og geymt. Upphófst nú ár hins mikla nirfíls, sem tímdi ekki að gefa í bíó og hafði æ sjaldnar hrygg á sunnudögum. En málið snerist um að vinna orastu og því bar að sýna hörku og grimmd. Á þessu ári var fyrsta sparisjóðsbókin opnuð. Svo hófst jólavertíðin á nýjan leik og spariféð kom að góðum notum þótt það dygði ekki alveg. Ég horfði með hryllingi á heim- ilismenn fá hitasóttina sígildu fyrir jólin, en sagði ekki orð. Beið eins og varúlfur eftir ára- mótum. Á nýársdag, um leið og forset- inn hafði Iokið ræðu sinni, settist ég skjáifandi að skrifborðinu. Dundaði fyrst við að telja smá- aura úr sparigrisnum til að draga stóru stundina á langinn, en dró svo fram hemaðaráætlun Rornmels. í ljós kom, að ég hafði ekki unnið orustuna alveg, en var í gífurlegri sókn. Ég var sigri hrósandi, var allt að því vinsamleg við Frau Knobl- auch í símanu, og sá fram á yndislegan janúarmánuð með hertum spamaði og nýrri áætlun. Kristín Marja Baldursdóttir Morgunblaðið/Þorkell Morgunblaðið/Ámi Sæberg Stoltir Húsasmiðjustarfsmenn mættu með börn ársins til ljósmyndara. Barneignir í fyrirtækinu voru jafn miklar og í ailri Vestur-Skaftafellssýslu. BARNEIGNIR Frjósemi í Húsasmiðj unni Aramótauppgjör í fyrirtækjum snýst alla jafna um krónur og aura, birgðir, eignir og skuldir. I Húsasmiðjunni fór fram nú í árslok annars konar „vöratalning" en menn eiga að venjast í verslunarfyr- irtækjum. Glöggir starfsmenn þóttust sjá að árið 1992 hefði starfsfólk reynst einkar fijósamt og barn- eignir langt yfír landsmeðaltali. Hjá Húsasmiðjunni starfa um 200 manns og fædd- ust þeim á árinu 18 böm, þar af einir tvíburar. Nýbakaðir foreldrar í hópi starfsmanna era því 17 talsins og telst fólksfjölgun í þessum hópi um 9%, meðalfjölgun landsmanna á sama tíma reyndist rétt um 1%. Af þessu tilefni voru stoltir foreldrar kallað- ir með böm sín á fund ljósmyndara. UMSKIPTI Bon Jovi kúvendir Rokkhljómlistamaðurinn Jon Bon Jovi er nýr maður þessa daganna. Jafnvel hans nánustu voru í vafa er hann birtist einn daginn stuttklipptur og í jakkaföt- um! Það kannaðist eitthvað við andlitið og röddina, en.... Eins og myndirriar bera með sér er breytingin mikil, en helstu kennileyti kappans hafa löngum verið sítt dökKt hárið, skeggbrodd- amir, leðuijakkinn og gallabux- umar. Bon Jovi, sem lengi leiddi samnefnda léttþungarokkssveit, héfur nýlega sent frá sér hljóm- plötuna „Notorious", eða „al- ræmdur". Hann fylgir gripnum nú eftir og gerir til þess eitt og annað til þess að vekja á sér athygli, t.d. umrætt uppátæki. Hann segir hins vegar að hann hafí verið orðinn dauðþreyttur á því að allir rokk- hljómlistamenn væra „eins“ og því ákveðið að breyta til. Það hafí að vísu verið dýrara en hann átti von á, því þetta kostaði allt saman nokkur sett af alklæðnaði.... Franz Xaver Gruber á mál- verki eftir Sebastian Stief frá 1848, og gítar sér Mohrs. SÖNGUR HEIMS UMBÓL Frans Xaver Graber, höf- undur jólasálmsins heimsfræga, hvílir í kirkju- garðinum í Hallein í Austur- ríki, beint á móti húsinu þar sem hann bjó í 30 ár. Meðal eftirlátinna eigna hans voru þijú afrit af handritinu með „Heims um ból“. Einnig er enn til gítarinn sem sóknarprestur- inn Joseph Mohr notaði til að leika undir eftir að kirkjuorgel- ið hafði bilað, þegar sálmurinn var fyrst fluttur árið 1818 í þorpinu Obemdorf fyrir norð- an Salzburg. Mohr samdi texta sálmsins, sem nú er sunginn um allan heim á ýmsum tungu- málum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.