Morgunblaðið - 03.01.1993, Síða 52
% _ ^ flr tir A* ^
KJÖRBÓK -ÍMB ’
m Landsbanki Bk íslands ÆBLMm Banki allra landsmanna FORGANGSPÓSTUfí UPPLÝSINOASÍMI 63 71 90
MORGUNBLAÐID, AÐALSTRÆTI 6, 101 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SIMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1993
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Aukið eiginfjárhlutfall banka og sparisjóða
Landsbankinn fær
1.250 milljóna króna
lán og fjárveitingu
LANDSBANKINN hefur fengið 1.250 milljóna víkjandi lán hjá Seðla-
banka Islands til að uppfylla nýjar reglur um aukið eiginfjárhlut-
fall banka og sparisjóða. Stjórnendur bankans stefndu að því, sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins, að hagræða í rekstri nægilega
til að uppfylla reglur um 8% eigið fé, en það tókst ekki á nýliðnu
ári. Ríkisstjórnin mun fyrir apríllok leggja bankanum til fjármuni
þannig að hlutfallinu sé náð. Ein peningastofnun önnur, Sparisjóður
Kópavogs, þurfti að sögn Þórðar Ólafssonar, forstöðumanns banka-
eftirlitsins, að taka lán vegna breytingarinnar, 40 milljónir frá Trygg-
ingasjóði sparisjóða.
Síðan 1986 hefur eiginfjárhlutfall
—banka og sparisjóða þurft að vera
5%, en ný löggjöf um 8% er í sam-
ræmi við alþjóðasamþykkt frá 1988.
Þá lýstu íslendingar því yfir að stefnt
yrði að líkum reglum hér og í millitíð-
inni hafa Evrópubandalagslönd,
Bandaríkin og Japan tekið þær upp.
Bankar hafa víða lent í erfiðleikum
með að uppfylla skilyrðið um 8%,
ekki síst japanskir en þarlendir full-
trúar áttu þó hlut að samþykktinni
sem kennd er við Alþjóðagreiðslu-
bankann í Sviss (BIS).
Hún gerir ráð fyrir ákveðinni
áhættuflokkun útlána og segir
Brynjólfur Helgason, aðstoðarbanka-
stjóri Landsbankans, að íslenska
bankaeftirlitið beiti strangasta mati
á starfsemi peningastofnana. Aðrir
viðmælendur sögðu að í því fælist
að eignir séu metnar lágt og skuldir
Jeppamenn
hætt komn-
ír á fjöllum
Húsavík.
„ÉG MAN lítið, þetta gerðist
svo snöggt. Þetta átti að verða
svo stutt ferð að ég var ekki
í galla, svo mér var orðið
dálítið kalt. Strákurinn er
brattur, hann heimsótti mig i
gær, en ég þarf að vera hér
á sjúkrahúsinu einhverja
daga til að jafna mig betur,“
sagði Jóhannes Jóhannesson,
en hann varð fyrir því óhappi
ásamt Heiðari Vali Hafliða-
syni að hann féll í fjallajeppa
sínum með snjóhengju í
Krubbsfjalli niður í svokall-
aða Krubbsskál, um 60 metra
fall. Þeir félagamir meiddust
furðu lítið.
Nokkrir fjallajeppaeigendur
hugðu að fara í stuttan fjalla-
leiðangur fyrir austan Húsavík.
Þeir fóru af stað í góðu veðri,
en það fór versnandi og þegar
komið var að hádegi hugðu þeir
að snúa við.
Jóhannes var í fremsta bíln-
um og framar í Krubbsfjallinu
en hann hélt, er snjóhengja féll
skyndilega undan bílnum. Fé-
lagar hans sáu strax hvað gerst
hafði og ökumaður næsta bíls
náði að stöðva bílinn áður en
hann fór sömu leið. Ferðalang-
arnir gátu kallað á hjálp um
farsíma og fór Björgunarsveitin
Garðar af stað ásamt lögreglu
á snjósleðum og snjóbíl með
lækni. Þeir fundu fljótt jeppann
og Jóhannes, sem var við bílinn
rifbrotinn og dálítið skrámaður.
Heiðar Val fundu þeir á snjóbíln-
um, en hann hafði lagt af stað
gangandi til byggða.
- Fréttaritari.
hátt. Fyrir lánum með ríkisábyrgð
þurfi til dæmis ekkert eigið fé, en
lán með veði í skipum teljist í 100%
áhættu þannig að fyrir hveijar
hundrað milljónir sem lánaðar séu
þurfi átta að vera til. Það sé nokkuð
erfítt fyrir Landsbankann sem hefur
65-70% lánaviðskipta vegna sjávar-
útvegs.
Gripið var til nokkurra sparnaðar-
og hagræðingarráða í Landsbankan-
um á síðasta ári vegna fyrirhugaðra
breytinga á reglum um eigið fé.
Heimildir Morgunblaðsins segja að
sitthvað hafi vaidið því að þær dugðu
ekki til, gengisfellingin í desember
meðal annars. En rætt verður um
fækkun starfsmanna og lokun útibúa
á árinu og lagðar verða fram tillögur
um hagræðingu nú í janúar. Þá
hyggst ríkisstjórnin tryggja að bank-
inn uppfylli skilyrðin um 8% eigið fé
af heildareignum, útlánum og öðru,
lánum í samræmi við reglurnar og
mun leggja fram peninga til þess á
fyrsta ársfjórðungi, sennilega með
heimild til töku víkjandi láns erlendis.
Aðrir bankar hér á landi hafa til
þessa komist hjá vandræðum vegna
nýju laganna, Islandsbanki hefur til
dæmis aukið hlutafé sitt talsvert á
tveimur árum. Sú leið er ekki fær,
ríkisbanka eins og Landsbankanum,
en athugað var um fjárveitingu, sam-
einingu sjóða við efnahag bankans
og erlent víkjandi lán. Lán Seðla-
bankans þótti einfaldasta lausnin.
Eigið fé bankans er rúmir sjö millj-
arðar og telja áhrifamenn í banka-
ráði að fjárveiting ríkisins á árinu
þurfi að vera talsvert miklu meiri en
sem nemur láni Seðlabankans. Það
er jafnhátt greiðslum Landsbankans
í afskriftasjóð sinn á síðasta ári.
Gamla árið kvatt
Morgunblaðið/Kristinn
ísal tapaði þremur millj-
ónum á dag á nýliðnu ári
Engar líkur taldar á betra ástandi 1993
ENGAR horfur eru á að staða á álmörkuðum skáni á árinu 1993
að sögn Einars Guðmundssonar tæknilegs framkvæmdastjóra Álvers-
ins í Straumsvík. Tap Isal á nýliðnu ári nam um milljarði eða um 3
milljónum á dag. Álbirgðir hafa hlaðist upp á liðnum mánuðum og
nema nú yfir þriðjungi af heildar heimsmarkaðsþörf næsta árs. Ein-
ar segir íjóst að einhvers staðar verði að draga verulega úr fram-
leiðslu. I Straumsvík verður farið úr 89 þúsund tonnum í 84 þúsund
tonn á komandi ári með áframhaldandi lokun 22 kera.
Einar segir helstu spár benda til
að ástandið batni ekki fyrr en 1994
eða 1995. „Menn sáu þetta í raun
fyrir, meðan framleiðslan er svona
mikil eru litlar líkur á verðhækkun-
um. A síðustu tveimur árum hefur
heilmikið komið á markað af áli frá
fyrrum Sovétlýðveldum og margar
verksmiðjur á Vesturlöndum hafa
minnkað eða hætt framleiðslu.
Þýsku ríkisverksmiðjumar ætla til
dæmis að minnka álframleiðsluna
um fjórðung.“
Þrátt fyrir þetta tóku þijú ný
álver til starfa á árinu, í Kanada
og Frakklandi, og framleiðir hvert
þeirra 220 þúsund tonn á ári.
Jafnmiklu var bætt við framleiðslu
álvers í Bahrain við Persaflóa. Ál-
birgðir hafa aukist um 50Ó þúsund
tonn á árinu, nema nú 3,2 milljónum
tonna sem er 17% af ársnotkun.
Hjá Alusuisse-Lonza samsteyp-
unni, sem á Álverið, hefur undan-
farið verið dregið töluvert 'úr fram-
leiðslu og þremur litlum álverum
verið lokað í Þýskalandi, Austurríki
og Sviss. Hjá stærri verum Alusu-
isse í Þýskalandi, Noregi og Sviss
hefur verið skorið niður og munar
mest um lokun eins kerskála af
þremur í verksmiðju í Essen. Þar
falla brott 45.000 árstonn. Lokun
22 kera af 320 í Staumsvík þýðir
brottfall um 7% afkastagetu.
Einar segir að ekki hafi verið
ákveðið um frekari skerðingu. Tap
ísal á nýliðnu ári nemur um millj-
arði, að minnsta kosti 3 milljónum
á dag. í fyrra tapaði Álfélagið 1,4
milljörðum og segir Einar að fram-
leiðslan hafí þrátt fyrir allt verið
heldur meiri á liðnu ári en 1991.
Það hafi notið góðs notið góðs af
hagstæðu orkuverði sem er háð
heimsmarkaðsverði aðfanga. Á
næsta ári á að færa framleiðslu
niður í 84 þúsund tonn.
Heimsmarkaðsverð á áli hefur
lækkað um 5% frá 1991, það hefur
verið 1.280 dollarar á tonn að með-
altali á árinu en var 1.220 dollarar
í byijun desember. Meðalkostnaður
við álframleiðslu er 1.600-1.700
dollarar á tonn.