Morgunblaðið - 06.01.1993, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 06.01.1993, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1993 5 Kl RYMINGAR SALA BÚTA SALA IFl - allt að afsláttur DQO GLUGGATJOED m a Morgunblaðið/Kristinn Frá prestvígslu í Dómkirkjunni síðastliðinn sunnudag. í fremri röð frá vinstri stendur sr. Ágúst Sigurðsson, faðir vígsluþega, sem lýsti vígslunni, María Ágústsdóttir nývígður aðstoðarprestur í Dómkirkjunni og hr. Ólafur Skúlason biskup. í aftari röð standa Dómkirkjuprestarnir Jakob Ág- úst Hjálmarsson til vinstri og Hjalti Guðmundsson sitt hvoru megin við Sigrúnu Óskarsdóttur að- stoðarprest í Laugarnessókn, sem voru vígsluvottar við athöfnina. Fyrsti vígsluþegi við Dómkirkjuna í 83 ár MARÍA Ágústsdóttir guðfræðikandidat var vígð til þjónustu við Dómkirkjuna sl. sunnudag af hr. Ólafi Skúlasyni biskupi. María verður • aðstoðarprestur. Hún er fyrsti presturinn sem vígður er til þjónustu við Dómkirkjuna frá því sr. Bjarni Jóns- son var vígður af hr. Þórhalli Bjarnasyni biskupi 26. júní 1910. Síðan þá hafa prestar við Dómkirkjuna verið vígðir til annarra prestsembætta en síðar hafið störf við Dómkirkjuna. Vígsluvottar við athöfnina voru faðir Maríu, sr. Ágúst Sigurðsson á Prestbakka, Dómkirkjuprest- arnir sr. Hjalti GuðmUndsson og sr. Jakob Ágúst Hjálrharsson og Sigrún Óskarsdóttir ' áðstoðar- prestur við Laugarneskirkju. Sr. Hjalti Guðmundsson sagði í samtali við Morgunblaðið að María Ágústsdóttir hefði starfað við barna- og æskulýðsstarf kirkj- unnar undanfarið, en allir guð- fræðinemar þurfa að starfa sem nemar eftir að þeir ljúka námi. Hún lauk síðan námi í haust og þá var ákveðið að hún tæki vígslu, því það eykur möguleika hennar í safnaðarstarfínu. Bútar og gluggatjaldaefni í metratali Kennsla hefst mánudaginn 11. janúar. Skipholti 17a ÐANSSICOiI Kennslustaðir: Reykjavík: Brautarholt 4, Ársel og Fjörgyn. ASTVAiÐSSON AR Hafnarfjörður: Góðtemplarahúsið. ooo Mosfellsbær: Hlégarður. Innritun í símum 20345 og 74444 kl. 13-19 daglega. Suðurnes: Keflavík, Grindavík, Sandgerði og Garður. Innritun í sfma 67680 kl. 20-22 daglega. Kennum alla dansa: Samkvæmisdansa, gömlu dansanay Rockfn Roll, tjútt og nýjustu „Freestyle“ dansana. Aukatímar fyrir þá, sem vilja taka þátt í íslandsmeistarakeppnum. Einkatímar. Sértímar fyrir „prívat“hópa. Fyrir börn 3ja-4ra ára. Léttar hreyfingar og leikir sem örva hreyfiþroska. Barnahópar - unglingar - fullorðnir - hjón (pör). Þrautþjálfaðir kennarar með mikla reynslu og þekkingu á dansi. Ný reglugerð um íbúðarhúsnæði í eigu ríkisins Leiga hækkar í fæstum tilfellum LEIGA á íbúðarhúsnæði i eigu ríkisins hækkar í fæstum tilfell- um vegna gildistöku nýrrar reglugerðar um ibúðarhúsnæði i eigu ríkisins sem tók gildi 1. janúar, að sögn Skarphéðins Bergs Steinarssonar, viðskipta- fræðings í fjármálaráðuneyt- inu. Hann segir að leiga hækki því aðeins að staðir flytjist á milli flokka bústaðasvæða í kjöl- far fækkunar flokka í nýju reglugerðinni eða í þeim tilfell- um þegar menn hafi nýtt sér ákvæði um lækkun leigu vegna t.d fjölskyldustærðar. Ákvæði af þessu tagi eru þrengd í nýju reglugerðinni. Aðspurður sagði Skarphéðinn að ein mesta breytingin sem fælist í nýju reglugerðunni væri að fram- vegis gengi leiga upp í skatta, skyldur og viðhaldskostnað hús- næðis. Skarphéðinn sagði að nauðsyn- legt hefði þótt að semja nýja og skýrari reglugerð þar sem ekki hefði alltaf verið farið eftir ^gömlu reglugerðinni sem skyldi. Aætlað væri að 30-50 milljónir töpuðust árlega vegna þess að menn greiddu ekki leigu samkvæmt reglugerðinni. Nú yrði áhersla lögð á samræmingu og því þyrfti að segja upp öllum gildandi leigu- samningum og endurnýja þá. Yrði það gert á næstunni. Myndu ráðu- neytin halda áfram að sjá um húsnæði innan sinna vébanda en fjármálaráðuneytið sæi um sam- ræmingarhlutann. Ein meginbreytingin sem reglu- gerðin felur í sér er fækkun flokka bústaðasvæða úr sex í þijá og færast þannig nokkir staðir til um flokka. Þannig færast t.d. sveitir í Kjósarsýslu, Eyrarbakki, Stokks- eyri, Hafnir og Hafnarhreppur, úr flokki 0.4 í flokk 1.0 og hækkar húsaleiga á þessum stöðu þegar næstu íbúar taka við af þeim sem fyrir eru. Leiga á íbúðarhúsnæði í eigu ríkisins á Ólafsfirði og í afskekktari sveitum hækkar hins vegar við gildistöku nýs leigu- samnings. MetxuhiHu) á Imrjum degi!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.