Morgunblaðið - 06.01.1993, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1993
Krístján Jóhannsson um frumraun sína í Vínaróperunni
Þetta tók mikið á og
ég var mjög hrærður
KRISTJÁN Jóhannsson tenórsöngvari kom fram í fyrsta
skipti í Vínaróperunni, Wiener Staatsoper, á mánudags-
kvöld í hlutverki Mario Cavaradossi í Toscu eftir Verdi.
Honum og Maras Zanpieri, sem söng Toscu, var ákaft
fagnað af áhorfendum í lok sýningarinnar og þau klöpp-
uð upp hvað eftir annað. Hljómsveitarstjóri á sýning-
unni var Michael Halász. „Það var greinilegt að beðið
var eftir mér með eftirvæntingu og áhorfendur fóru
varlega í sakirnar til að byija með. Það var verið að
þreifa á mér í fyrstu en á síðari hluta sýningarinnar
var greinilegt að ég hafði brotið ísinn og aðal fagnaðar-
lætin komu undir lokin,“ sagði Kristján Jóhannsson við
Morgunblaðið í gær.
„Ég get ekki sagt annað en
að ég sé ánægður með þessa
frumraun. Það var mikil
stemmning í húsinu og mjög
gaman að syngja þama. Austur-
ríkismenn eru frábrugðnir til
dæmis Bandaríkjamönnum og
ítölum. Þeir klappa helst ekki
.eftir einstaka aríur heldur bíða
þar til í lok sýninga með að sýna
viðbrögð sín.“
Hefur sungið hlutverkið 150
sinnum
Kristján hefur sungið þetta
hlutverk í Toscu rúmlega 150
sinnum og sagði það því henta
sér mjög vel fyrir frumraun af
þessu tagi. „Æfíngar voni ekki
miklar og því gott að ég kunni
hlutverkið út og inn. Það er eig-
inlega orðið hluti af mér og
maður getur gengið inn í það
hvenær sem er og með hveijum
sem er. Síðast söng ég í Toseu
í Flórens undir stjórn Mehta á
síðasta leikári.“
Aðspurður um hvernig tilfinn-
• ing það hafi verið að syngja í
Vínaróperunni í fyrsta skipti
sagði Kristján: „Þetta var mjög
sterk tilfínning. Ég var samt
yfirvegaður og rólegur og leið
vel. Það má segja að ég hafi
verið búinn að taka út tauga-
skjálftann daginn áður á æfing-
um. Það snertir mann mjög að
ganga um í þessu fræga húsi
og syngja þar aðalhlutverk fyrst-
ur íslendinga. Þetta tók mikið á
og ég var mjög hrærður."
„Af viðtökunum að dæma
kunnu menn mjög vel að meta
Kristján. Það voru gífurleg fagn-
aðarlæti í lok sýningarinnar sem
ætluðu aldrei að taka enda,“
sagði Unnur Úlfarsdóttir, sendi-
herrafrú í Vín í samtali við Morg-
únblaðið. „Það var sérstaklega
undir lokin í síðasta þættinum
sem reyndi mikið á hann og
menn fögnuðu ákaft, hrópuðu
og kölluðu.“
Fjöldi íslendinga á
sýningunni
Unnur sagði að töluverður
fjöldi íslendinga hefði verið á
sýningunni, jafnt íslendingar
búsettir í Vín sem fólk sem hefði
komið sérstaklega á sýninguna.
„Þetta var mjög glæsileg sýning
að öllu leyti, glæsileg sviðsmynd
og stór kór. Lokaþátturinn var
áhrifamestur og þar reis Kristján
hæst í turnaríunni svokölluðu.
Hann stóð sig frábærlega þar.
Vínarbúar eru mjög kröfuharðir
óperuáhorfendur og kunna gott
að meta. Það ætlaði t.d. allt um
koll að keyra þegar Zanpieri
söng aríuna Vissi d’arte í öðrum
þætti. Hún og Kristján voru köll-
uð upp í lokin hvað eftir annað,“
sagði Unnur.
Bjöm Sveinsson, sem búsettur
er í Lúxemborg, var einnig við-
staddur sýninguna og sagði hana
hafa verið stórglæsilega. „Þetta
er í fyrsta skipti sem ég sé Krist-
ján á sviði en við ólumst upp á
sama stað og ég þekki hann frá
í gamla daga. Þetta var því mik-
il upplifun fyrir mig persónulega.
Mér finnst Kristján mun þrosk-
aðri sem söngvari nú en áður
og honum tókst vel upp í þessu
hlutverki. Það var eins og aðrir
áhorfendur í salnum vissu ekki
hvemig þ'eir áttu að taka honum
fyrst; fólk var ragt við að láta
hrifningu sína í ljós í upphafi. í
Kristján Jóhannsson. Myndin er tekin að loknum tónleikum Barna-
heilla í Hallgrímskirkju 22. desember.
lok sýningarinnar vom hins veg-
ar aðalsöngvaramir klappaðir
margoft upp. Pjöldi heimamanna
beið eftir Kristjáni í búningsher-
berginu eftir sýningu og þegar
hann fór út vildu margir fá eigin-
handaráritun frá honum. Það er
greinilegt að fólk hér þekkir
Kristján,“ sagði Björn.
„Einn af þeim bestu“
Hann sagðist hafa gert sér
ferð sérstaklega til Vínar og
hann sæi ekki eftir því. „Þó að
þetta hafi verið 1.200 kílómetra
leið var ferðin þess virði. Sýning-
in var alveg stórkostleg og það
var ótrúleg tilfinning að vera
viðstaddur í salnum. Maður fékk
gæsahúð þegar Kristján söng.
Hann er kominn á stall með
söngvurum á borð við Luciano
Pavarotti, Placido Domingo og
José Carreras og þaðan verður
hann ekki hrakinn. Hann er einn
af þeim bestu,“ sagði Björn.
Kristján kemur aftur fram í
Vínaróperunni á laugardaginn
en næst framundan hjá honum
er að syngja í Cavalleria Rustic-
ana á Italíu og síðan í II Trovat-
ore í Metropolitan í New York í
febrúar.
--------------m—7—i-r—sr;
Vísitala
jöfnunarhlutabréfa
—
'ÚJ
'\fí
7 V i r
-
k-“
n. f r ]
y*>f~
oV-i'
jsfÍ/
•tv/l
Samkvæmt ákvæðum 5. og 6. málsl. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 75/1981 um tekju- og
eignarskatt hefur ríkisskattstjóri reiknað út vísitölu almennrar verðhækkunar í
sambandi við útgáfu jöfnunarhlutabréfa á árinu 1993 og er þá miðað við að
vísitala 1. janúar 1979 sé 100.
1. janúar 1980 vísitala 156
1. janúar 1981 vísitala 247
1. janúar 1982 vísitala 351
1. janúar 1983 vísitala 557
1. janúar 1984 vísitala 953
1. janúar 1985 vísitala 1.109
1. janúar 1986 vísitala 1.527
1. janúar 1987 vísitala 1.761
1. janúar 1988 vísitala 2.192
1. janúar 1989 vísitala 2.629
1. janúar 1990 vísitala 3.277
1. janúar 1991 vísitala 3.586
1. janúar 1992 vísitala 3.835
1. janúar 1993 vísitala 3.894
Við útgáfu jöfnunarhlutabréfa skal annars vegar miða við vísitölu frá 1. janúar
1979 eða frá 1. janúar næsta árs eftir stofnun hlutafélags eða innborgunar
hlutafjár eftir þann tíma, en hins vegar skal miða við vísitölu 1. janúar þess árs
sem útgáfa jöfnunarhlutabréfa er ákveðin.
RSK
RfKISSKATTSTJÓRI
'\ — J .VI
V axtahækkumn
var óhjákvæmileg
- segir Kjartan Gunnarsson, vara-
formaður bankaráðs Landsbankans
VARAFORMAÐUR bankaráðs Landsbankans segir að bókun
Steingríms Hermannssonar bankaráðinu gegn vaxtahækkun
bankans fyrir áramót séu fyrst og fremst pólitískar yfírlýsing-
ar. Vaxtahækkunin um áramótin hafi verið óhjákvæmileg ef
litið sé til hagsmuna bankans.
ans í bankaráðinu.
Bankaráð Landsbankans sam-
þykkti að hækka útlánsvexti bank-
ans um áramótin en Helgi Seljan
fulltrúi Alþýðubandalagsins og
Steingrímur Hermannsson fulltrúi
Framsóknarflokksins í bankaráð-
inu greiddu báðir atkvæði gegn
hækkuninni. Steingrímur lét bóka
andstöðu sína við hækkunina og
taldi að hægt væri að bæta hag
bankans á annan hátt.
Kjartan Gunnarsson varafor-
maður bankaráðsins og fulltrúi
Sjálfstæðisflokksins þar sagði við
Morgunblaðið að vaxtahækkunin
hefði verið talin óhjákvæmileg út
frá hagsmunum Landsbankans.
„Landsbankinn hækkaði vexti
minna um áramótin en aðrir bank-
ar og er áfram með lægstu útláns-
vextina enda stærsti bankinn. En
hann er um leið með þyngstu byrð-
arnar og mestu erfiðleikanna og
það eru ekki hagsmunir Lands-
bankans, ríkissjóðs eða viðskipta-
vina bankans að hann sé á ein-
hverjum brauðfótum,“ sagði Kjart-
an.
Hann bætti við, að bankamir
réðu litlu um vaxtaþróun í landinu.
Þar réðu fyrst og fremst ríkið og
lífeyrissjóðirnir. „Ef forustumönn-
um í atvinnulífi, hvortheldur at-
Sama segir fulltrúi Kvennalist-
vinnurekendum eða verkalýðsleið-
tögum, væri alvara með kröfu sinni
um lækkun raunvaxta þá myndu
þeir lækka þá ávöxtunarkröfu sem
þeir gera til handa lífeyrissjóðun-
um, sem eru orðnir meginupp-
spretta lánsfjármagns á Islandi.
Hjá þessum forustumönnum liggur
því mikill þungi ábyrgðarinnar á
háu raunvaxtastigi í landinu,"
sagði Kjartan.
Vaxtahækkun Landsbankans
var samþykkt í bankaráðinu með
fulltrúum Sjálfstæðisflokks, Al-
þýðuflokks og Kvennalista. Kristín
Sigurðardóttir fulltrúi Kvennalist-
ans sagðist, í samtali við Morgun-
blaðið, taka ákvarðanir í bankaráði
Landsbankans á faglegum grunni.
„Pólitískar ákvarðanir eiga ekkert
erindi þangað. 3ankinn er aðeins
fyrirtæki og það er ekki hægt að
reka fyrirtæki af neinu viti á póli-
tískum grunni," sagði Kristín.
Hún sagðist telja að vaxtahækk-
unin um áramótin hefði verið óhjá-
kvæmileg, bæði með tilliti til af-
komu bankans og vegna umhverf-
isins. „Við sækjumst eftir innlán-
um og allt umhverfið var orðið
þannig að hækkunin var óhjá-
kvæmileg svo hægt sé að keppa á
þeim markaði,“ sagði Kristín.