Morgunblaðið - 06.01.1993, Side 29

Morgunblaðið - 06.01.1993, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1993 29 ^ Sr. Stefán V. Snæv arrfv. prófastur því við bræður sína dúxana, að það gætu ekki allir verið efstir á prófi. Tók hann virkan þátt í félagslífi skólans og gamni skólasveina og lifa enn sögur af þeim félögum við MA. Einkanlega varð þeim Kristjáni Eldjám til vina og fór hann oft með honum um helgar að Tjörn í Svarf- aðardal. Stúdentsprófí lauk Stefán frá MA vorið 1936, og settist þá um haustið í guðfræðideild Háskóla íslands. Stefán lauk embættisprófi í Alþingishúsinu við Austurvöll við skarkalann frá hernámi Breta hinn 29. maí 1940. Séra Stefán hóf embættisstörf sem kandidat í nokkra mánuði á Höskuldsstöðum á Skaga. Síðla maímánaðar 1941 gerði Sigurgeir biskup boð fyrir séra Stefán og kvaðst vilja setja hann prest á Völl- um í Svarfaðardal. Það komu vomur á hinn unga prest, óttaðist að sig mundi græningjann þverra andagift til að þjóna sex kirkjum. En þetta var tækifæri og þetta var dalurinn hans Kristjáns, sem hann hafði heill- ast af á menntaskólaárum sínum. Hann sló því til, fímm ár skyldi hann halda þetta út. 15. júní 1941 var séra Stefán vígður til Valla- prestakalls og tveim dögum síðar hélt hann inn í nóttlausan faðm Svarfaðardalsins. Þar með voru ör- lög hans ráðin. Séra Stefán sat á Völlum til ársins 1968 og þjónaði upphaflega kirkjunum á Völlum, Tjöm, Urðum, Upsum, Hrísey og Stóra-Árskógi, eða þar til Hríseyj- arprestakall var stofnað árið 1952. Árið 1967 var prestsetur Valla- prestakalls flutt til Dalvíkur, en nokkru áður hafði Upsakirkja verið endurbyggð ofantil í kauptúninu á Dalvík af miklum myndarskap. Á Dalvík þjónaði séra Stefán til ársins 1984, er hann lét af embætti fyrir aldurs sakir. Svarfaðardalur er að margra mati ein fegurst sveit á Islandi. Há fjöll umlykja dalinn og sögufrægar hlíðarnar brosa á móti sól. Um lág- lendið liðast Svarfaðardalsá lygn til ósa og gefur dalnum friðsælan helgiblæ. Skammt undan við Velli er stórbýlið Sakka í Svarfaðardal, annálað myndarheimili. Ekki er mér kunnugt um hvort það voru heima- sætumar á Sökku eða búrið hjá frú Rósu, sem fyrst drógu að sér at- hygli frænda míns, en hvort tveggja hafði um árabil sérstakt aðdráttar- afi á unga presta. Búrið hélt velli, en eina heimasætuna, Jónu Magneu Gunnlaugsdóttur Gíslasonar, bónda, heillaði prestur með sér sunnar í dalinn. Þau Stefán og Jóna gengu í hjónaband 1. júní 1947. Það kvon- fang var séra Stefáni slíkur happa- fengur, að ég heyrði hann aldrei óska sér neins frekar. Svo einstök er sú kona. Börn þeirra Jónu og Stefáns eru Stefanía Rósa kennari, gift dr. Ingimar Einarssyni þjóðfé- lagsfræðingi, Gunnlaugur Valdimar yfírkennari og Ingibjörg Amfríður fóstra. Barnabörnin eru tvö. Séra Stefán var tæplega meðal- maður á hæð, þéttur á velli og beinn í baki. Hann var öfgalaus maður, yfírlætislaus og einstaklega þægi- legur í viðmóti. Hann var húmoristi með afbrigðum og geislaði jafnan af hlýju og innri gleði. Séra Stefán fór fremur spart með guðsorðið en átti alltaf frá einhveiju broslegu að segja til að hefja viðmælandann frá hverdeginum. Mér er ekki grunlaust um að honum hafí þótt umbjóðandi sinn svolítið formfastur og smá- munasamur við mannfólkið, en mundi láta óátalið að hann létti örlít- ið geð sóknarbamanna, svona utan kirkju. Gamansemi hans snérist einkum um eigin persónu, þó ná- grannamir ættu líka til að kveikja glettnisglampann í augum hans. Hann átti sérlega auðvelt með að umgangast fólk og var jafnvígur á Lúkasaraguðspjallið, aflabrögð sjó- manna og júgurbólgu í kúm. En séra Stefán var einnig mikill tilfinn- ingamaður. Á erfíðum stundum fann hann til með sóknarbörnum sínum og sum prestverk voru honum því alla tíð erfið, einkum ef ung böm áttu í hlut. Yst sem innst var hann mannvinur, sem ekkert aumt mátti sjá. Þegar séra Stefán kom fýrst á Velli var bóndi á jörðinni og hélst sú skipan næstu fímm eða sex árin. Um það leyti er Stefán festi ráð sitt, tók hann einnig við búskap á jörðinni, en jafnframt fluttu til hans foreldrar hans ásamt aldraðri móð- ursystur. Á Völlum var því heimilis- bragur með nokkrum sérstökum hætti, sem þar bjó stórfjölskylda að fyrri tíma hætti. Húsakostur var fremur þröngur, en hjartarúm ómælt. Á heimili prests varð fljót- lega mikill gestagangur og kirkju- gestum var ávallt gefið kaffí að lok- inni athöfn. Á Völlum var ekki farið í manngreinarálit og fengu biskup og síðustu húsgangar dalsins sama viðurgjöming, hinir síðarnefndu kannski örlítið meiri sápu. Gamla konan móðursystir prests gekk fast eftir hreinlætinu og urðu þingmenn og prófessorar að þvo sér refjalaust áður en gengið var til náða. Dansk- ir fjósamenn undruðust hver borg- aði allt þetta og enn meir þegar þeim var sagt að þetta færi bara af prestlaununum. Fannst þeim að ekki mundi vera ónýtt að vera prest- ur á íslandi. Sá sem þetta ritar kom fýrst í Velli á fögru sumarkvöldi árið 1947. Prestur var þá úti á hlaði og þreytti hástökk við kaupakonurnar. Eg varð þess fljótlega var að starfssvið prests var með nokkuð öðrum hætti en ég átti að venjast. Séra Stefán hafði fengið jeppa fyrstur manna í dalnum og virtist oft þurfa að bregða sér frá einhverra erinda fyr- ir sveitunga sína. Ef sækja þurfti ljósmóður, eða kýr fékk doða, var gjaman hringt í prest. I vægari dómstilfellum var líka leitað til prests, enda átti hann ágætt apótek heima á Völlum, sem fór vaxandi með áranum. Náin vinátta var með séra Stefáni og Daníel lækni á Dal- vík og má vera að samvinna þeirra um líkamlega velferð Svarfdælinga hafí eitthvað farið út fyrir ramma heilbrigðislaga, einkanlega ef vetr- arnauð var mikil. Fór þá prestur oft í sjúkravitjanir með apótekið með- ferðis og gaf skammta og sprautur eftir nákvæmri fyrirsögn Daníels læknis í gegnum síma. Fyrir kom líka að séra Stefán aðstoðaði Daníel lækni við ýmiss konar læknisaðgerð- ir. Fór nokkuð orð af þessari sam- vinnu þar sem Daníel sá um hand- verkið en prestur um kaffilögun og eina eða tvær gamansögur úr hvers- dagslífínu til að hressa sjúklinginn, ef hann var með sæmilegri rænu. Þannig liðu árin á Völlum í sam- felldri þjónustu við sóknarbömin og vöku yfír andlegri og líkamlegri velferð þeirra. Ég hef fyrir satt að prestur hafi aldrei þegið greiðslu fyrir það veraldarvafstur, sem hann annaðist fyrir sveitunga sína. Það mislíkaði hins vegar gildum bænd- um í Svarfaðardal og á jólum bár- ust jafnan nokkur hangiketslæri heim að Völlum. Var ekki laust við að svolítill metingur væri um það hver sendi presti feitasta lærið. Þeg- ar prestsetrið flutti út á Dalvík, varð mikil breyting á högum þgírra Stefáns og Jónu. Hlýjan oggestrisn- in fluttist að vísu með þeim á Hóla- veginn, en starfsvettvangur séra Stefáns varð nú hefðbundnari og meira tóm fyrir safnaðar- og æsku- lýðsstarf. Mér er kunnugt um að það veganesti trúar og vonar hafí dugað mörgum unglingnum vel í misvindi lífsins. Segja má að í þessu starfí hafí séra Stefán verið kominn nær upprana sínum, og vart leið sá dagur að hann gengi ofan á bryggj- ur. Og sagan frá Völlum endurtók sig. Sjómönnum á Dalvík þótti ekki við hæfí að prestur keypti físk. Ætti hann ekki leið ofan á bryggju virtist fiskurinn eiga leið um Hóla- veginn. . Þó heilsu séra Stefáns væri tekið að hraka síðari árin á Dalvík, hygg ég að fjölskyldan hafí notið þeirra í ríkum mæli. Nú gafst líka tóm til að syngja í kór og grípa í smíðar í kjallaranum, enda komnar heilsu- gæslustöðvar og menn á snjósleð- um, sem gáfu sprautur á vetram. Þegar séra Stefán lét af embætti árið 1984 flutti fjölskyldan suður á Seltjamarnes, þar sem þau hjónin bjuggu sér enn notalegt heimili í samvinnu við bömin sín. Þar átti séra Stefán fagurt ævikvöld í faðmi elskulegrar fjölskyldu sinnar. Tíðar læknisaðgerðir og spítalavistir megnuðu ekki að deyfa lífsgleði hans, enda kveið hann ekki umskipt- unum. Svo var hún Jóna líka hjá honum. Með séra Stefáni Snævarr er genginn einstakur persónuleiki, hú- moristi, mannvinur og drengur í gegn. Allri sinni ævi varði hann til að þjóna öðrum, gleðja þá, hjúkra þeim og styrkja. Hann ætlaðist aldr- ei til lau'na, en var þó glaðastur allra. Nær hálfa öld vakti hann í trú og bæn yfír sóknarbömum sínum, fjöl- skyldum og vinum. Allt sem lífsand- ann dró átti hann vini og heilladís- irnar umvöfðu hann til hinstu stund- ar. Ég heyri hann kveðja með orðum Ólafs Jóhanns: Af flestu því hef ég fátt eitt gert sem fólki hér þykir mest um vert, en ef til vill sáð í einhvem barm orði sem mildar kvöl og harm. Megi andi hans svífa yfír vötnum. Pétur Stefánsson. Ég lifi og þér munuð lifa. Enginn getur óttast dauðann sem á bjargfasta trú. Föðurbróðir minn, sr. Stefán Snævarr, andaðist á há- degi annars dags jóla, 78 ára að aldri. Hann vissi að dauðastundin nálgaðist og hann kveið ekki um- skiptunum. Konan hans, Jóna Gunn- laugsdóttir Snævarr, sat við rúm- stokkinn og hélt í hönd hans er hann lagði aftur augun hinsta sinni. Skömmu áður hafði hann kvatt hana, umvafið hana elsku sinni, hlýju og kærleika og þakkað henni samfylgdina í 45 ár. Hinn einlægi trúmaður kvaddi á fæðingarhátíð frelsarans, þegar jól- in bregða birtu inn í myrkrið og skammdegissólin stóð í hádegisstað. Það var bjart yfir þessari stundu, þrátt fyrir allt. Hann var sjálfur orðinn nær blindur og líkaminn ör- magna. Lengi hafði hann barist fyr- ir lífí sínu, hvergi smeykur og gefíð þeim ró, sálarstyrk, huggun og gleði sem vildu lina honum þjáningarnar. En nú var kveðjustundin komin og hann stóð við það sem hann hafði ávallt sagt, að hann kviði ekki sólar- laginu. Kveðjustundin var jafnfal- leg, látlaus og einlæg og lífí hans allt. Sr. Stefán Snævarr fæddist á Húsavík 22. mars 1914, en fluttist misserisgamall til Norðfjarðar. Hann var fjórða barn foreldra sinna, Valdemars V. Snævars skólastjóra og sálmaskálds og Stefaníu Erlends- dóttur húsfreyju. Hann lauk stúd- entsprófí frá Menntaskólanum á Akureyri 1936 og guðfræðiprófí frá Háskóla íslands 1940. Vígðist hann til Vallaprestakalls 1941 og þjónaði því þar til hann lét af störfum fyrir aldurs sakir 1984. Prófastur Eyja- fjarðarprestakalls varð hann 1967. Árið 1947 gekk hann að eiga Jónu Magneu Gunnlaugsdóttur frá Sökku í Svarfaðardal og saman eignuðust þau þrjú börn, þau Stefaníu Rósu, Gunnlaug Valdemar og Ingibjörgu Arnfríði. Bamabörnin voru tvö, böm Stefaníu Rósu og manns hennar Ingimars Einarssonar, þau Stefán Þór og Inga Jóna. Frændi, eins og við systkinin köll- uðum hann, sagði ævinlega að örlög sín hefðu ráðist á einni klukku- stund. Herra Sigurgeir Sigurðsson biskup hafði kallað hann til sín og gefíð honum þennan skamma um- hugsunarfrest til að taka setningu sem prestur á Völlum í Svarfaðar- dal. Hann sagðist hafa notað tímann til að hringja í föður sinn sem var mikill kirkjunnar maður og hvatti hann óspart, en svo gekk hann nokkra hringi kringum Landakots- kirkju rétt við biskupsstofu. Ég sé hann fyrir mér við þessar aðstæður og veit að aldrei hafa eðliskostir hans notið sín eins og á örlaga- stundu sem þessari. Hann hefur gengið nokkuð þungstígur, hægum skrefum og einbeitt sér óskiptur að þessari ákvörðun. Engan tíma mátti missa og ekki hefur fumið eða stressið flækst fyrir honum, þaðan af síður að hann hefði fjargviðrast yfír hinum nauma fresti sem hann fékk til að gera upp líf sitt. Hann hafði aldrei átt heima í sveit, þekkti fáa þama „norður við Dumbshaf" og vissi ekki einu sinni hvort prests- starfið ætti við sig eða hvort hann „græninginn" gæti þjónað sex kirkj- um — hann hélt út í algjöra óvissu. Guðfræðingurinn nýútskrifaði hafði vanist höfuðborginni á námsáranum og aðeins einu sinni komið til Dal- víkur, ári eftir jarðskjálftann mikla þar 1934 og var aðkoman þá dapur- leg. Svona ákvörðun tekur enginn fyrir mann og hann vissi að mikið reið á að hún væri rétt, þvi sá ræð- ur miklu sem upphafinu veldur. Hann bað til Guðs eins og svo oft áður og hét því tveim vikum síðar fyrir framan altari Dómkirkjunnar þegar hann vígðist til Vallapresta- kalls, að hann skyldi vera þama í fímm ár á hverju sem gengi. Hann hefði aldrei hvikað frá því sem hann hét Guði fyrir framan altarið, en á það reyndi aldrei, að sitja á hveiju sem gengi, því honum var strax svo vel tekið í sveitinni og leið þar vel frá fyrsta degi og síðar á Dalvík til síðasta dags. Árin urðu gott betur en fimm, því hann vildi þaðan aldrei hverfa. „Dumbshafíð“ varð gæfa hans og gleði og vettvangur starfs- ævinnar allrar. Þangað sótti hann kvonfang sitt og þar fæddust börn- in og söfnuðurinn varð sem íjöl- skylda hans. „Það er yfír okkur vakað“, var viðkvæði Stefaníu móð- ur hans, en hún og Valdemar, for- eldrar Stefáns, fluttust til Valla ásamt Ámínu, systur Stefaníu, árið 1945 og bjuggu þar til dauðadags. Hver er aðall þessa manns sem hér er kvaddur? Gleðin, hlýjan og róin. Hann hafði svo gott skap og frá honum streymdi svo takmarka- laus hlýja og yfir honum var svo óendanleg ró. Hann hafði alltaf eitt- hvað afgangs af sjálfum sér til að gefa öðrum, það var alltaf réttur tími til að leita til hans og alltaf eitthvað til hans að sækja. Það var svo mikið pláss í hjarta hans að þar rúmaðist allt, bæði alvaran og fóm- arlundin og líka kímnin og kerskn- in. Hann fór með friði í einu og öllu, heilsteyptur og samviskusamur. All- ir bára traust til hans og enginn fór_ bónleiður til búðar. Mörgum hjálp- aði hann með hljóðri nærveru sinni, því það var svo gott að vera nálægt honum. Hann var algjörlega laus við að gera sig til og var alltaf eins við alla, söfnuðinn úr predikunarstól og mann sem varð á vegi hans. Það var stutt í kímnina og tilsvörin oft ógleymanleg. Aldrei nokkum tíma tók hann sjálfan sig hátíðlega, held- ur gat endalaust gert grín að sjálf- um sér og þannig komist nær sókn- arbörnum sínum sem aldrei þurftu að setja sig í stellingar til að tala við prestinn sinn. En prestsstarfíð tók hann hátíðlega og hempan fór honum vel og hver messa varð hátíð- arstund og virðuleg, því þannig var, hann látlaus og virðulegur í senn. Hann hvatti menn einatt til að vera þeir sjálfir og reyna ekki að vera „sniðugir" eins og hann kallaði það og sagði dæmisögu þessu til áréttingar. Eitt sinn á fyrstu prests- árunum varð ungur maður í sveit- inni bráðkvaddur á skíðum. Stefán bjó sig til að heimsækja foreldrana og komst ekki leiðar sinnar nema á skíðum. Á leiðinni hugsaði hann um það hvernig hann gæti best veitt foreldranum huggun og þá hug- kvæmdist honum að taka af sér skíðin áður en hann kæmi á bæinn til að minna ekki á aðstæður við dauðdaga sonarins. En í sama mund mætti hann manni á skíðum, sem kom á móti honum og var þá faðir piltsins. Upp úr þessu sagði séra Stefán að sér hefði ekki dottið oftar í hug að reyna að vera „sniðugur" heldur vera eins og honum væri eðlilegt. Það er svo margt að þakka. Sú frænka sem hér minnist frænda síns, sér hann enn ljóslifandi fyrir sér í bjartri bemskuminningunni á Völlum þar sem hún var í sveit löngu fyrir skólaskyldualdur. Minninga- brotin eru barnaleg og óljós, sólin skein í heiði og allt var sjálfsagður hlutur. Vellir vora stórhýsi í minn- ingunni og þar bjuggu afí, amma og Ína ömmusystir uppi á lofti, sem kallað var „á sal“. Amma sagði mest lítið en var brosmild og hlý og stutt í grínið. Hún skemmti okk- ur með því að leyfa okkur að standa,— á fótunum á sér og þannig gekk hún með okkur fram og aftur í eld- húsinu. Hún vaknaði alltaf fyrir all- ar aldir og fór niður í kjallara og kveikti upp í ofninum. ína ömmu- systir fór með sálma og vakti yfir andlegri velferð okkar og færði ná- kvæma dagbók. Afí stóð úti á hlaði með hendur fyrir aftan bak og sön- glaði og sagðist vera að semja sálma. Hann var með yfirskegg og svolítið framsettur og við reyndum að ná utan um hann. Hann átti tré- kistu með gersemum í, m.a. brúnt breitt pappírslímband sem máttP sleikja og bragðið af því man ég enn. Stofan á Völlum var salar- kynni í augum bamsins og þar kom öll sveitin saman og frændi gat allt. Stundum var hann hempuklæddur með fínan kraga sem var svo gaman að koma við og stundum var hann á jeppa eða í íjósinu og seinna hélt frænkan litla að „heilagar kýr“ sem hún lærði um í barnaskólanum væra kýmar hans frænda. Hann var líka göldróttur, því hann fann upp lyf gegn heimþrá. Þegar sú litla ætlaði að beygja af og vildi fara heim til mömmu, kom brauðbíllinn frá Akur- eyri einatt í hlaðið og frændi keypti sælgæti sem læknaði heimþrá og ekki þurfti meira til að breyta skeif- unni í bros. Inga Fríða, sú yngsta, var jafnaldra mín og hin systkinin nokkuð eldri og saman lékum við okkur og dunduðum kringum full- orðna fólkið eða voram inni í stóra eldhúsinu þar sem hveiti var breytt í kaffibrauð eins og hendi væri veif- að. Jóna prestsfrú gekk í öll verk og stjómaði búskapnum, auk þess að vera „læknir, lögfræðingur, prestur“. Löngu seinna bjó ég smátíma að vetrarlagi hjá Jónu og Stefáni á-'*'~ Dalvik. Við frændi fóram á göngu daglega og hann þekkti alla á staðn- um og vék Sér að hverjum manni. Á kvöldin hlustuðum við á tónlist af hljómplötum sem frændi safnaði, einkum einsöng karla. Hann söngur sjálfur svo vel og hafði næmt tó- neyra. Eftir þá dvöl var ég þess enn vissari að frændi væri göldróttur og læknaði fleira en heimþrá. Og aldrei þreyttist hann við að kóma inn í líf manns á örlagastundu. Þeg- ar frænkan fyrir tveim árum tók við nýju embætti tók hann sig til, nær lesblindur, og skrifaði besta bréf sem hún hefur fengið á ævinni. Það tók hann að vísu viku að skrifa bréfíð og hann gerði það með aðstoð *>» sérstakrar vélar sem stækkaði letrið upp á skjá, þannig að pennaoddur- inn varð á stærð við stór skæri. í bréfinu riíjaði hann upp margt sem á dagana hafði drifið og gaf mér þau hollu ráð sem hann best kunni: „Vertu umfram allt heiðarleg, ávallt þú sjálf og mundu að „aðgát skal höfð í nærvera sálar“.“ Séra Stefán frændi minn sagðist ekki hafa fengið köllun til prests- starfsins en hafa ákveðið að læra guðfræði ef hann kæmist í háskóla þrátt fyrir lítil efni. Trú hans var átakalaus og einlæg, hluti af honum sjálfum og öllu sem hann sagði og gerði. Trúin varð að bjargfastri lífs- skoðun hins fulltíða manns og síðar' * að lífsakkeri öldungsins. Hann trúði á hinn algóða guð sem gefur hinum ófullkomna manni styrk og fyrirgef- ur trúmanninum nær skilyrðislaust. Guð sem umvefur börn sín kærleika og er alls staðar nálægur. Hann tók upphaflega prestvigslu til að láta gott af sér leiða og sagði að allt hið góða í lífinu mætti rekja til kristninnar. Um prestsstarfíð sagði hann sjálfur að hann hefði leitast við af fremsta megni að vera þjónn. Presturinn ætti ekki að vera númer eitt, heldur væri söfnuðurinn aðalat- riðið. Sjálfur leitaðist hann aldrei ’ * við að vera númer eitt, bestur í bekknum eða fyrstur í mark. Að hætti fommanna ræktaði hann með sér skapstyrk, leitaðist við að vera drengur góður. Hann kveið ekki sólarlaginu og bað ekki um einkunn- ir. Hann bað þess bara í hljóði að líf sitt hefði skilað meira sólskini ^ en skuggum. Sigríður Ásdís Snævarr. s

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.