Morgunblaðið - 06.01.1993, Page 43

Morgunblaðið - 06.01.1993, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1993 43 IÞROTTAMAÐUR ÁRSINS 1992 Mesti heiður sem mér - hefur hlotnast á ferlinum JT' HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ Tuttugu og þrír fengu stig Tuttugu íþróttafréttamenn tóku þátt í kjörinu og vaidi hver 10 íþróttamenn. Efsti maður á lista fékk 20 stig, sá næsti 15 stig, þriðji 10 stig, fjórði sjö, fimmti sex o.s.frv. Alls fengu 23 íþrótta- menn stig og var röðin eftirfarandi: Nöfn, félag, íþróttagrein og stig: 1. Sigurður Einarsson, Ármanni - spjótkast..................235 2. Kristján Arason FH - handknattleikur.....................210 3. Geir Sveinsson, Val/Avidesa - handknattleikur............183 4. Eyjólfur Sverrisson, VfB Stuttgart - knattspyma..........179 5. Úlfar Jónsson, Keili - golf..............................137 6. Einar Vilhjálmsson, ÍR - spjótkast.........................97 7. Sigrún Huld Hrafnsdóttir, Ósp - sund.......................94 8. Ólafur Eiríksson, ÍFR og KR - sund........................86 9. Bjarni Friðriksson, Ármanni - júdó.........................52 10. Sigurbjörn Bárðarson, Fáki - hestaíþróttir.................49 11. Jón Kr. Gíslason, ÍBK - körfuknattleikur...................39 12. Ragnheiður Runólfsdóttir, ÍA - sund........................18 13. Sigurður Sveinsson, Selfossi - handknattleikur.............15 14. Jónína Olesen, Karatafélagi Reykjavíkur - karate...........13 Broddi Kristjánssön, TBR - badminton.......................13 16. Vésteinn Hafsteinsson, HSK - kringlukast...................11 17. Valdimar Grímsson, Val - handknattleikur...................10 18. Arnar Gunnlaugsson, ÍA - knattspyrna........................7 19. Kristinn Björnsson, Leiftri - skíði.........................4 20. Martha Ernstdóttir, ÍR - hlaup..............................2 Lilja María Snorradóttir, Sundfélagi Hafnarfjarðar - sund...2 Inga Lára Þórisdóttir, Víkingi - handknattleikur............2 Unnur Stefánsdóttir, HSK - hlaup............................2 Þrettán landsleikir fyrir HM í Svíþjód Islenska handknattleikslandsliðið mun leika þrettán landsleiki fyr- ir heimsmeistarakeppnina í Svíþjóð, sem hefst 9. mars með leik Svíþjóð- ar og íslands. Landsliðið tekur þátt í Lotto-keppninni í Noregi 23. til 27. janúar, en þar keppa einnig landslið Noregs, Hollands, Italíu, Rúmeníu og Rússlands. Þá tekur landshðið þátt í fjögurra þjóða móti í Frakklandi ásamt landsliðum Frakklands, Sviss og Tékkóslóvakíu 18. til 20. febrúar. Pólveijar koma til Reykjavíkur og leika tvo landsleiki 22. og 23. fabrú- ar. Síðan verða leiknir þrír lands- leiki gegn Dönum 26. til 28. febr- úar. Pólverjar áttu upphaflega að leika þijá landsleiki, en Þorbergur Aðalsteinsson, landsliðsþjálfari, þótti það of mikið álag á leikmenn sína, eftir keppninisferðina til Frakklands og fram að leikjunum gegn Dönum. Pólverjar koma því til með að leika einn leik gegn félagsliði. SIGURÐUR Einarsson, spjótkastari úr Ármanni, var útnefndur íþróttamaður ársins 1992 af Samtökum fþróttafréttamanna f hófi, sem Samtökin héldu f Rúgbrauðsgerðinni f gærkvöldi. „Þetta er mesti heiður sem mér hefur hlotnast á ferlinum," sagði Sigurð- ur við Morgunblaðið eftir að úrslitin í kjörinu lágu fyrir. „Ég er þakklátur fyrir þann sóma sem mér er sýndur og er stoltur af honum. Ég vona að ég verði verðugur titilberi á árinu. Þessi útnefning á örugglega eftir að efla mig enn meira á keppnisbraut- inni.“ Sigurður Einarsson sýndi á árinu að sjötta Sætið á heimsmeist- aramótinu í Jaþan árið á undan var engin tilviljun. Hann Eftir er hæfíleikaríkur og Val B. krafmikill íþrótta- Jónatansson maður, sem náð hef- ur í fremstu röð í heiminum með mikilli vinnu. Stefn- an hjá honum á árinu var eins og hjá svo mörgum öðrum, að komast á Ólympíuleikana og standa sig þar. Lengi vel leit út fyrir að Sig- urði ætlaði ekki að takast ætlunar- verkið, en lágmarkinu náði hann ekki fyrr en tiltölulega skömmu fyrir leikana en þá var stefnan líka rækilega tekin upp á við. Hann varð ellefti inn í tólf manna úrslitin og degi síðar, þegar úrslitakeppnin fór fram, bætti hann sig enn. Náði fimmta sæti, sem er besti árangpr íslendings í frjálsíþróttakeppni á Ólympíuleikum síðan 1956 er Vil- hjálmur Einarsson hampaði silfur- peningnum í Melbourne - en fyrir það afrek hlaut hann einmitt fyrst- ur sæmdarheitið íþróttmaður árs- ins. Titillinn aftur til Alabama Þetta er annað árið í röð sém titillinn; íþróttamaður ársins, fer til Alabama í Bandaríkjun- um. Sigurður Einarsson, ný- kjörinn íþróttamaður ársins, er nú búsettur í Alabama og kom gagngert frá Bandaríkj- unum til að vera við útnefning- una. Ragnheiður Runólfsdóttir, íþróttamaður ársins 1991, var við nám í Alabama er hún hlaut útnefningu og er þetta því annað árið sem bikarinn eftir- sótti fer vestur um haf. Tveir aðrir sem hlotið hafa útnefningu voru einnig við nám í Alabama. Óskar Jakobs- son og Einar Vilhjáhnsson. Geröi mér vonir Sigurður, sem er búsettur í Alab- ama í Bandaríkjunum ásamt banda- risku eiginkonu sinni, Deboru og tveggja ára dóttur, Önnu Viktoríu, sagðist alveg eins hafa átt von á að hljóta útnefningu að þessu sinni. „Ég vissi að það voru margir aðrir sem stóðu sig vel á árinu og því gat allt gerst í þessu. En mér fannst samt að erfitt yrði að líta framhjá árangri mínum á Ólympíuleikunum og því gerði ég mér vonir. Þetta er að sjálfsögðu stærsta sund mín í íslenskri íþróttasögu. Vonandi hvatning fyrir þá yngri Ég hafði ekki gert mér í hugar- lund á mínum yngri árum að ég ætti eftir að standa í þessum fót- sporum. En ég er frekar raunsær maður og reyni að klífa stigann eitt skref í einu og það hefur gefist mér vel hingað til. Það hlýtur að vera draumur hvers íþróttamanns að hljóta þessa viðurkenningu í sínu heimalandi. Ég vona að þetta verði hvatning fyrir unga íþróttamenn á íslandi að stunda fijálsíþróttir og ýmsar einstaklingsgreinar sem gefa þeim góðan félagsskap." -Hvað er framundan hjá íþrótt- manni ársins á árinu? „Stóra stundin er að standa sig vel á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Stuttgart. Einnig mun ég taka þátt í fimm til sex stigamót- um Alþjóðafijálsíþróttasambands- ins af 18. Það hefur gefist mér vel að taka þátt í fáum mótum og und- irbúa mig vel fyrir hvert mót. Ég er mjög bjartsýnn fyrir komandi keppnistímabil og hef þegar hafið undirbúninginn af fullum krafti.“ Skapti Hallgrímsson, formaður Samtaka íþróttafréttmanna, lýsti kjörinu og sagði m.a. í ræðu sinni: „Óhætt er að fullyrða að íslenskir íþróttamenn hafi á nýliðnu ári, sem svo oft áður, staðið í fremstu röð margir hveijir og sýnt það og sann- að hversu íslensku víkingarnir eru megnugir. íþróttamenn héðan frá þessu landi elds og ísa eru víða þekktir fyrir ódrepandi baráttuvilja; fyrir að leggja sig alla fram hvað sem á dynur; að koma fram sem glæsilegir fulltrúar lands síns og þjóðar. Á því var engin breyting á nýliðnu ári.“ Tíu efstu í kjörinu fengu glæsi- lega bókargjöf sem bókaútgáfan Mál og menning gaf. SAS flugfé- lagið gaf íþróttamanni ársins flugmiða og þrír efstu í kjörinu fengu eignarbikara. Morgunblaðið/Þorkell Sigurður Elnarsson, spjótkastari, hampar hér verðlaunagripnum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.