Morgunblaðið - 26.01.1993, Blaðsíða 48
MORGUNBLADID. ADALSTRÆTl 6, 101 REYKJAVlK
SÍMI 691100, SlMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
VZterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
JltargpsiiMiifófe
ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1993
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Flugleiðir í vanda vegna flóttamanna
Rífa vegabréf-
in í fhigvélinni
BRÖGÐ hafa verið að því undanfarið að farþegar Flug-
leiða á leið til Bandaríkjanna frá Evrópu, einkum fólk frá
þriðjaheimslöndum, reyni að komast vestur um haf á föls-
uðu vegabréfi, en eyðileggi síðan vegabréf og flugmiða á
leiðinni til þess að geta beðið um pólitískt hæli vestra án
þess að vera snúið til baka. Flugleiðir reyna nú að bregð-
ast við þessum vanda, enda sekta bandarísk stjórnvöld flug-
félögin um rúmar 180.000 krónur fyrir hvern skilríkjalaus-
an farþega sem þau flytja inn í landið.
Að sögn Einars Sigurðssonar,
blaðafulltrúa Flugleiða, hafa
starfsmenn félagsins undanfarna
mánuði haft afskipti af fjórum til
'fimm farþegum á dag vegna gruns
um að skilríki þeirra væru fölsuð
eða ekki væri allt með felldu að
öðru leyti. í þessum tilfellum reyna
Flugleiðamenn að taka Ijósrit af
vegabréfi og flugmiða viðkomandi
farþega er hann skiptir um flugvél
í Keflavík, því geti flugfélagið sýnt
fram á að farþeginn hafi haft þessa
pappíra er hann lagði af stað vest-
ur, sleppur það við sektina.
Margir Sómalir og Tamílar
Einar segir að einkum sé um
að ræða fólk frá stríðshijáðum
löndum þriðja heimsins og hefur
til dæmis verið mikið um að Sóm-
alir og Tamílar hafi reynt að kom-
ast ólöglega til Bandaríkjanna.
Einar nefnir sem dæmi að árvök-
ull starfsmaður Flugleiða hafi tek-
ið eftir tveimur farþegum í flugvél
á leið vestur, sem voru áberandi
taugaóstyrkir og lögðu leið sína á
salemið með skömmu millibili. Þar
fundust vegabréf þeirra og önnur
ferðaskjöl sundurrifin í ruslakörf-
unni. Rifrildunum var haldið til
haga og slapp félagið því við að
greiða sekt vegna mannanna. I
grein í nýjasta hefti Flugleiðafrétta
segir að SAS-flugfélagið hafí fyrir
skömmu þurft að greiða 72.000
dollara í sekt vegna farþega í einu
flugi, en það samsvarar 4,6 millj-
ónum króna.
Morgunblaðið/Kristinn
Býður kuldabola birginn
ÝMSUM þykir nóg um kuldann, sem fylgir heimskautaloftinu sem rík-
ir hér í þorrabyrjun, en yngsta kynslóðin lætur sér fátt um fínnast.
Óánægja meðal fyrirtækja í sjávarútvegi með ýmiss konar félagsgjöld
Ejjafyrirtækin greiddu
20 milliónir á einu ári
Hagnaður Landssambands íslenskra útvegsmanna nam um 40 millj. í fyrra
ÞEIR Sighvatur Bjarnason, forstjóri Vinnslustöðvarinnar
hf., og Sigurður Einarsson, forstjóri Isfélags Vestmanna-
eyja hf., hafa í sameiningu ritað þeim félaga- og hagsmuna-
samtökum atvinnurekenda sem fyrirtæki þeirra eiga aðild
að bréf, þar sem þeir fara þess á leit að gerð verði könnun
á greiðslu félagsgjalda fyrirtælqa þeirra, jafnframt því sem
þeir lýsa þeirri skoðun sinni að þeir telji upphæðirnar sem
fyrirtækin greiða í félagsgjöld töluvert háar. Kristján Ragn-
arsson, formaður LÍÚ, segir sjálfsagt og eðlilegt að hin
ýmsu félagsgjöld verði tekin til athugunar.
„Við vildum beina því til yðar,
að þér kannið, hvort hægt er að
lækka þessi félagsgjöld með því að
lækka kostnað yðar eða lækka fé-
lagsgjöldin með einhveijum öðrum
hætti", segir orðrétt í bréfi sem
sent var stjómum Landssambands
íslenskra útvegsmanna, Samtaka
fiskvinnslustöðva, Félags íslenskra
fiskimjölsframleiðenda og fram-
kvæmdastjóm Vinnuveitendasam-
bands íslands.
Sighvatur Bjamason og Sigurður
Einarsson sögðu í samtölum við
Morgunblaðið í gær að þeir í Vest-
mannaeyjum teldu óeðlilegt að
hagsmunasamtök, eins og til dæmis
LÍU, væm að safna í digra sjóði
með háum félagsgjöldum þegar
ekki áraði betur en nú.
Sjóðir LÍÚ um 500 milljónir
„Á síðastliðnu ári var hagnaður LÍÚ
um 40 milljónir króna og þeir eiga
fleiri hundmð milljónir í sjóðum,"
sagði Sighvatur. Samkvæmt upp-
lýsingum Morgunblaðsins standa
sjóðir LIÚ nú í um hálfum milljarði
króna.
Sighvatur sagði að bréf þeirra
Sigurðar væri ein aðferð þeirra til
að leita hagræðingar og spamaðar
í rekstri, en samtals greiddu þessi
tvö fyrirtæki í félagsgjöld eitthvað
á annan tug milljóna á ári, og sam-
tals mætti áætla að sjávarútvegur-
inn í Vestmannaeyjum greiddi um
20 milljónir króna í félagsgjöld á
ári. „Vinnslustöðin ein greiddi á sl.
ári um sex milljónir króna í hin
ýmsu félagsgjöld. Við eram líka að
fylgja eftir þeirri samþykkt siðasta
aðalfundar LÍÚ að sameina undir
einn hatt hagsmunasamtök eins og
LÍÚ, Samtök fiskvinnslustöðva og
Félag íslenskra fískimjölsframleið-
enda, sem Einar Oddur Kristjáns-
son gerði tillögu um. Sú tillaga
hans var einnig samþykkt á síðasta
aðalfundi Samtaka fiskvinnslu-
stöðva, en síðan hefur ekkert gerst
í málinu,“ sagði Sighvatur.
Félagsgjöldin verða skoðuð
Kristján Ragnarsson sagði að
sameiningarmálin hefðu enn ekki
farið af stað af neinni alvöru.
„Hvorugur hefur haft frumkvæði
að því að sameiningarviðræður LÍÚ
og Samtaka fiskvinnslustöðva hæf-
ust. Við munum þurfa og viljum
eiga framkvæði að slíkum viðræð-
um, miðað við það að ekkert heyr-
ist frá Samtökum fískvinnslu-
stöðva,“ sagði Kristján.
„Þeir biðja um könnun á ýmsum
félagsgjöldum og það er sjálfsagt
og eðlilegt að velta því fyrir sér og
sjá hvað hægt er að gera í þeim
efnum,“ sagði Kristján.
Morgunblaðið/Þorkell
Skoðaði 24 tjónabíla
fyrir hádegi
MIKIÐ hefur verið um hvers kyns smáárekstra í
umferðinni á höfuðborgarsvæðinu undanfarið. Að
sögn Péturs Más Jónssonar, deildarstjóra tjónadeild-
ar VÍS, hafa verið miklar annir ailan janúarmánuð
enda færð og veður verið með þeim hætti að hætta
á hvers kyns smáóhöppum í umferðinni er meiri en
endranær. Svo mikið var að gera í gær að fyrir
hádegi skoðaði Óskar Þór Þráinsson, skopunarmaður
í tjónaskoðunarstöð Vátryggingafélags íslands, sem
sést hér á myndinni, 24 tjónabíla og hafði ekki áður
skoðað jafnmarga á jafnskömmum tíma.
Samræmd
próf í fram-
haldsskóla
NEFND um mótun mennta-
stefnu leggur m.a. til að sam-
ræmd próf í kjarnagreinum
verði tekin upp í framhalds-
skólum. Olafur G. Einarsson
menntamálaráðherra kveðst
vera ánægður með tillögur
nefndarinnar, sem hann segir
að hafi í för með sér grundvall-
arbreytingar á námi á fram-
haldsskólastigi. Hann vonast
til að frumvarp um þetta efni
verði lagt fram á næsta þingi.
Nefndin leggur jafnframt til að
rekstur grunnskóla færist alfarið til
sveitarfélaga. Ólafur sagði að sá
rekstur væri í höndum sveitarfélaga
annar en launakostnaður kennara,
sem ríkið stæði straum af. Sá kostn-
aður er um fimm milljarðar kr. á
þessu ári. Sagði Ólafur að sveitarfé-
lögin fengju þennan kostnað til baka
með tilfærslu á tekjuliðum frá ríki
til sveitarfélaga.
I tillögunum er gert ráð fyrir að
þrjár brautir verði innan framhalds-
skólanna, fornáms-, gagnfræða- og
framhaldsnámsbrautir, og fari það
eftir námsárangri á grannskólaprófí
á hvaða braut nemendur geta skráð
sig. Lagt er til að nám til stúdents-
prófs verði stytt.
Sjá nánar bls. 5.
Blaðauki
um Valtý
í DAG, 26. janúar, era 100 ár
liðin frá fæðingu Valtýs Stef-
ánssonar, sem varð ritstjóri
Morgunblaðsins árið 1924
ásamt Jóni Kjartanssyni og
gegndi því starfi lengur en
nokkur annar, eða til ársins
1963 er hann lést. í dag fylgir
því blaðauki um Valtý og
Morgunblaðið eftir Matthías
Johannessen ritstjóra.
Pirelli sýn-
ir áhuga
FORSVARSMENN alþjóðlega fyr-
irtækisins Pirelli sýna nú áhuga á
að hefja einhvers konar rekstur
eða starfsemi hér á landi, og viðr-
uðu þessa hugmynd á fundi með
borgarsljóra í gærdag.
Nefnd manna frá Pirelli afhenti
fyrr um daginn Landsvirkjun form-
lega niðurstöðu framathugana á
sæstrengslögn frá íslandi til Evrópu,
sem samkvæmt skýrslu þeirra þykir
tæknilega framkvæmanleg.
Sjá miðopnu.