Morgunblaðið - 03.02.1993, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1993
• • #
Milljónatjón varð þegar fiskverkunarhús Onfirðings hf. brann á Flateyn
Að sögn Kristjáns Einarssonar
slökkviliðsstjóra gekk slökkvistarf
erfiðlega í byrjun vegna þess hversu
slæmt veður var, enda fraus vatnið
í slöngunum. Um sex klukkutíma tók
að slökkva eldinn. Rannsóknarlög-
reglan á ísafirði er nú á Flateyri og
kannar upptök eldsins, en í gær lágu
niðurstöður þeirrar rannsóknar ekki
fyrir.
Engin starfsemi hefur verið í
verkuninni undanfamar vikur, en
beitningaraðstaða var í húsinu. Um
80 bjóð voru í frystigeymslu og eru
það veiðarfæri vélbátsins Vísis.
Veiðarfærunum tókst að bjarga úr
eldinum, en ekki er vitað hversu
mikið tjónið varð á þeim, því loft
frystiklefans hrundi yfir þau.
Þá tókst naumlega að bjarga Su-
bam-bifreið sem geymd var í hús-
inu, áður en það varð alelda.
Hjálmur bjargaðist
Lán þótti að nærliggjandi hús
skyldu sleppa. Um tíma var óttast
um skrifstofur útgerðarfyrirtækisins
Hjálms hf., en vindáttin snerist, svo
eldurinn náði ekki að læsa sig í bygg-
inguna. Magnea
Morgunblaðið/Magnea Guðmundsdóttir
Barist við eldinn
Slökkviliðsmenn beijast við eldinn í fiskverkunarhúsi Önfírðings hf. á
Flateyri. Húsnæði þetta var áður í eigu Kaupfélags Önfirðinga. Það var
byggt árið 1950, á granni, þar sem áður stóð fiskverkunin Snæfell, sem
brann árið 1949.
Innflutningur á sj ávarafurðum til EB-Ianda
Tollaívilnanir vefjast
fyrir fastafulltrúum
Brussel. FVá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
FASTAFULLTRÚAR aðildarríkja Evrópubandalagsins fjalla
í dag um tillögur frá framkvæmdastjórninni um sérstakar
tollaívilnanir vegna innflutnings á nokkrum sjávarafurðum
til bandalagsins. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er
þetta í þriðja sinn sem fastafulltrúarnir fjalla um málið en
tillögur framkvæmdastjórnarinnar eru fram komnar vegna
þeirra tafa sem orðið hafa á samþykkt samningsins um Evr-
ópska efnahagssvæðið.
Það vefst fyrir fulltrúm aðildar-
ríkjanna að ákveða hversu lengi
þessar ívilnanir þurfa að standa til
boða. Ljóst er að innflutningur sam-
kvæmt þeim verður heimill frá 1.
apríl nk. en ætlunin er að þær falli
úr gildi um leið og samningurinn
um EES hefur verið staðfestur.
Samkvæmt heimildum í Brassel
verður gengið út frá svipuðu magni
og á síðasta ári og nánast óbreytt-
um tollum. Aðildarríki Evrópu-
bandalagsins hafa árlega samþykkt
sérstakar tollaívilnanir á nokkrar
innfluttar sjávarafurðir til að
tryggja hráefni fyrir fiskvinnslu-
stöðvar innan bandalagsins. Þessar
ívilnanir hafa gengið í gildi 1. apríl
og gilt til ársloka.
6% tollur
Á síðasta ári var t.d. heimilt að
flytja 60 þúsund tonn af saltfiski
til EB á 6% tolli. Um áramótin þeg-
ar innflutningsheimildirnar runnu
út voru 11 þúsund tonn af þessari
heimild ónýtt. Reiknað var með því
að samningurinn um EES gerði
þessar tollaívilnanir ónauðsynlegar
þar sem bæði Noregur og ísland
fengu tollfijálsan aðgang að mörk-
uðum EB fyrir flestar þessara af-
urða.
Judy Feeney um brottnámstilraun
Ema vildi láta
dætumar fyrir fé
„Þetta er fáránleg og viðbjóðsleg
lygi,“ segir Erna Eyjólfsdóttir
JUDY Feeney, eiginkona Donalds Feeney, sem nú situr í gæslu-
varðhaldi á meðan kannað er hvort kæra eigi hann fyrir barns-
rán, sagði í samtali við fréttaritara Morgunblaðsins í Banda-
ríkjunum að Erna Eyjólfsdóttir hefði samþykkt að láta dætur
sínar af hendi gegn 5.000 dollara greiðslu, en sett fram það
skilyrði að látið yrði líta út fyrir að stúlkunum hefði verið rænt
til að hún byði ekki álitshnekki. „Þetta er fáránleg og viðbjóðs-
leg lygi. Þetta er bara ein af mörgum lygum sem þetta fólk
kemst upp með. Það eru engin takmörk fyrir því sem það seg-
ir,“ sagði Erna í samtali við Morgunblaðið.
Judy Feeney, sem rekur fyrir-
tækið Corporate Training Unlim-
ited (CTU) ásamt manni sínum,
Don Feeney, sagði í viðtali við
Morgunblaðið í gær, að útsendar-
ar sínir hefðu í upphafi þóst vera
á vegum kvikmyndafyrirtækis, en
eftir að kynni tókust með Jacquie
Davis, starfsmanni CTU í Eng-
landi, og Ernu hafi verið ákveðið
að láta grímuna falla. Hún kveður
Ernu þá hafa viljað fara til Eng-
lands án barnanna og fá 5.000
dollara greiðslu og hafi það verið
samþykkt. Um leið hafi verið gerð
áætlun.
Erna sagði að þessari sögu
hefði greinilega verið haldið fram
við þá sem færu með rannsókn
málsins hér því hún hefði verið
yfirheyrð margsinnis og meðal
annars verið spurð við yfirheyrsl-
urnar hvort hún hefði tekið við
greiðslu fyrir dætur sínar. „Þetta
er slíkur viðbjóður að við liggur
að ég vilji ekki niðurlægja mig
við að svara þessu,“ segir Erna.
„Ég er alltaf að heyra eitthvað
nýtt á hveijum degi. Það eru ótrú-
legustu sögur. Maður vill ekki
trúa því að fólk leyfi sér að segja
svona. Ég vildi óska þess að ég
gæti afsannað þetta allt, en ég
veit ekki hvernig ég á að fara
að því. Það eina sem ég get gert
er að tala. Ég öfunda þessa mann-
eskju ekki þann dag sem hún
þarf að standa frammi fyrir
guði,“ sagði Erna.
Fjölmennt í Kvennaathvarfinu
Fraus í slöngum
o g illviðri tafði
slökkvistarfið
Flateyri.
MILLJÓNATJÓN varð í gærmorgun þegar 1200 fermetra
fiskverkunarhús Önfirðings hf. á Flateyri brann til kaldra
kola. Það var á sjöunda tímanum sem eldsins varð vart í
mótorhúsi. A augabragði logaði öll byggingin og varð ekki
við neitt ráðið.
Tap var á innanlandsflugi Flugleiða
í fyrra. Farþegum hefur fjölgað,
en fargjöld lækkað 7
Sönglist________________________
Leikfélag Akureyrar setur upp
óperu eftir 30 ára hlé 26
Gullfossstemmning
Á árshátíð Eimskipafélagsins var
líkt eftir siglingu með gamla Gull-
fossi 34
Leiðarí
Aðgerðir gegn atvinnuleysi 22
SH flutti út 84.500 tonn 44
fyrir 19 miUjarða 1992
r . ,. . — arwsns tTiM-Sn 4 (
— SSmvSsZ ,1
I ygaas-frryÆegag j
Úr verinu
► SH flutti út 84.500 tonn fyrir
19 milljarða 1992 - Tvö belgísk
skip veiða nú á íslandsmiðum -
Talið að viðhaldskostnað fiski-
skipa megi lækka um allt að 30%.
Myndasögur
► Grettir - Hermann - Högni
hrekkvísi - Smáfólk - Leikhom-
ið - Hringspil - Stafarugl - Felu-
mynd - Völundarhús - Drátthagi
blýanturinn.
Helmingi fleiri komu
nú í janúar en í fyrra
MIÐAÐ VIÐ fjölda koma kvenna og barna í Kvennaathvarfið það
sem af er þessu ári mætti ætla að komur tæplega tvöfölduðust frá
fyrra ári á árinu öllu að sögn Jennýjar Önnu Baldursdóttur hjá
Samtökum um kvennaathvarf. Skráðar komur voru 217 árið 1991
og 372 árið 1992. Komur voru 21 í janúar 1992 en 47 í janúar síðast-
liðnum. Þrettán börn komu í athvarfið í janúar árið 1992 en 39 í
janúar 1993.
Jenný sagði að Samtökin hefðu
ekki á reiðum höndum einhlíta skýr-
ingu á þessari gífurlegu fjölgun.
Hins vegar væri ljóst að kynning,
t.d. í tengslum við Landssöfnun til
styrktar Kvennaathvarfí, hefði skil-
að sér í ríkum mæli og konurnar
hefðu verið að velta því fyrir sér
hvort efnahagsástandið í þjóðfélag-
inu hefði þau áhrif á ofbeldi gagn-
vart konum kæmi fyrr í ljós en ella.
Hún sagði að þegar aðstandendur
Kvennaathvarfsins hefðu tekið við
nýrra og stærra athvarfi fyrir jólin
hefðu þeir ekki getað ímyndað sér
að raða þyrfti niður í herbergi af
jafn mikilli nákvæmni í nýja húsinu
og raun bæri vitni, en oft hefðu
8-10 konur og 14-20 börn verið í
húsinu. Engu að síður lagði hún ríka
áherslu á að engum væri snúið frá
athvarfinu og það væri aldrei fullt.