Morgunblaðið - 03.02.1993, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1993
Islendingar með 13,5 kg af hassi í Bremerhaven
Ætluðu að smygla hass-
inu til landsins í togara
TVEIR íslendingar, 27 og 32 ára, voru handteknir i Bremerhaven
í Þýskalandi aðfaranótt mánudags, með 13,5 kíló af hassi. Efnið var
falið í farangursgeymslu bifreiðar mannanna, en þeir viðurkenndu
við yfirheyrslur að hafa ætlað að koma því um borð i íslenskan tog-
ara og flytja það þannig til landsins. Mennirnir voru leiddir fyrir
dómara í gær, til að ákveða hvort þeir yrðu hnepptir í gæsluvarðhald.
Frá þessu er skýrt í þýska dag-
blaðinu Nordsee Zeitung í gær. Þar
kemur fram, að mennimir hafi kom-
ist í samband við fíkniefnasala í
Amsterdam og keypt efnið þar, en
ætlað sér að selja það með miklum
hagnaði á íslandi. Ástæða viðskipt-
anna var sú, að mennimir vom
skuldum vafnir og ætluðu að losna
við þær með þessum hætti.
Undarlegt hátterni
Lögreglumenn við eftirlit í Brem-
erhaven stöðvuðu bíl íslendinganna
og fannst háttemi þeirra undarlegt,
þar sem þeir vom mjög tauga-
óstyrkir þegar þeir vom að sýna
skilríki sín. Þá ákvað lögreglan að
líta í farangursgeymslu bifreiðar-
innar, sem var fólksbifreið skráð í
Lúxemborg. íslendingamir reyndu
að hindra að lögreglan kæmi auga
á nokkra böggla í farangursgeymsl-
unni, en sú viðleitni bar lítinn
árangur. í ljós kom að í bögglunum
voru 13,5 kíló af hassi. Efnið höfðu
íslendingamir sprautað með lyktar-
sterkum lit, í því skyni að villa um
fyrir leitarhundum.
Við yfírheyrslur hjá þýsku lög-
reglunni á mánudag viðurkenndu
íslendingarnir að hafa ætlað að
koma efninu um borð í íslenskan
togara í Bremerhavenhöfn og flytja
það þannig til íslands. Ekki kemur
fram í fréttinni hvaða togara var
um að ræða, hvort mennimir vom
skipveijar á honum, eða hvort skip-
veijar vora í vitorði með þeim.
Morgunblaðið hafði samband við
fíkniefnadeild lögreglunnar í Brem-
erhaven í gær, en fékk þær upplýs-
ingar að lögreglumenn, sem unnu
að málinu, væm í fríi og starfsfélag-
ar þeirra þekktu ekki til málavaxta.
Þá hafði fíkniefnalögreglan í
Reykjavík leitað upplýsinga hjá
þýskum starfsfélögum sínum, en
svar hafði ekki borist í gær.
VEÐUR
VEÐURHORFUR I DAG, 3. FEBRUAR
YFIRLIT; Á Grænlandshafi er 969 mb lægð sem þokast norðaustur en
988 mb lægð um 500 km suður af landinu hreyfist hratt norðaustur.
8PÁ: Suðvestan stinningskaldi með éljum vestantil en þurru og sumstað-
ar björtu veðri austantil. Frost á bilinu 0 til 5 stig.
I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG: Hæg breytileg átt, skýjað með köflum og
sumsstaðar él. Frost 1 til 6 stig.
HORFUR Á FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: Allhvass suðaustan og hlýn-
andi veður. Rigning um sunnanvert landið en þurrt að mestu um norðan-
vert landið.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30,
22.30. Svarsími Veðurstofu Islands — Veðurfregnir: 990600.
o
Heiðskírt
r r r
f f
f f r
Rigning
Léttskýjaö
* /• *
* r
r * r
Slydda
■A
Hálfskýjað
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Á
Skýjað
Alskýjað
V ^ V
Skúrír Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstetnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.
10° Hitastig
y súid
= Þoka
riig..
4
FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30ámánudag)
Vfða er mikið hvassviðri og hálka og vont ferðaveður. Fært er á aðalleið-
um í nágrenni Reykjavíkur og Suðurnesjum nema ófært er um Mosfells-
heiði. Flestir vegir á Suðurlandi eru færir og sama er að segja um Aust-
firði nema ófært er í Hvalnes- og Þvottárskriðum vegna grjóthruns og
hvassviðris. Þá er fært um Borgarfjörð og Snæfellsnes nema Kerlingar-
skarð og Fróðárheiði eru ófærar. Sömuleiðis er fært í Dali um Heydal
til Reykhóla en Brattabrekka er ófær. Kleifaheiði og Hálfdan eru ófær.
Fært er frá Reykjavík um Holtavörðuheiði og Steingrímsfjarðarheiði til
ísafjarðar. Breiðdals- og Botnsheiðar eru ófærar. Á Norðurlandi er Öxna-
dalsheiði ófær og fært er frá Akureyri með ströndinni til Vopnafjarðar.
Spáð er áframhaldandi hvassviðri og er vegfarendum ráðlagt að fylgjast
með veðri áður en fariö er á fjallvegi.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
í grænni línu 99-6315. Vegagerðin.
VEÐUR VIÐA
kl. 12.00 í gær
UM HEIM
að ísl. tíma
Akureyri Reykjavík hiti +1 -r1 voður snjóél snjóél
Bergen 3 rigningog súld
Helsinki 4 helðskirt
Kaupmannahöfn 1 lágþokublettir
Narssaresuaq +26 léttskyjað
Nuuk +26 alskýjað
Osló 2 léttskýjsð
Stokkhólmur 3 léttskýjað
Þórshöfn 6 skýjað
Algarve 16 hálfskýjað
Amsterdam 3 þokumóða
Barcelons 12 hálfskýjeð
Berlín vantar
Chicago +7 léttskýjað
Feneyjar vantar
Frankfurt 2 þokumóða
Glasgow 8 rigning
Hamborg +2 frostúði
London 8 mistur
LosAngeles 10 hálfskýjað
Lúxemborg +2 hrímþoka
Madrid 2 skýjað
Malaga 15 alskýjað
Mallorca 14 skýjað
Montreal +25 lágþokublettir
New York +11 iéttskýjað
Orlando 10 heiðskírt
París 1 þokumóða
Madelra 16 skýjað
Róm 11 þokumóða
Vín vantar
Washington 9 heiðskírt
Wlnnípeg +1 skýjað
Morgunblaðið/Þorkell
í blómahafi
Starfsstúlka í Blómavali með íslenskar rósir en þær erlendu sjást ekki
lengur í blómabúðunum, eftir að byijað var að rækta hér allt árið.
Rósir allt áríð
INNFLUTNINGI á rósum hefur með öllu verið hætt eftir að íslensk-
um garðyrkjubændum hefur tekist að Iengja ræktunartímann með
notkun raflýsingar og rækta rósir allan ársins hring. Að sögn Sig-
urðar Moritzsonar hjá Blómamiðstöðinni var undanfarin ár ætfð
lítilsháttar innflutningur á rósum yfir vetrartímann en í vetur
hefur enginn innflutningur verið.
„Þetta gekk þannig fyrir sig blómabændum hefði tekist að
að rósir duttu út á haustin og
innflutt blóm á borð við nellikur
tóku þá við á markaðnum. Núna
er hins vegar töluvert mikið fram-
boð á rósum allan veturinn, en
framleiðslan er þó minnst í desem-
ber og janúar. Okkur hefur hins
vegar tekist að anna eftirspum-
inni þá,“ sagði Sigurður.
Hann sagði að íslenskum
lengja ræktunartímann á fleiri
tegundum en rósum, og til dæmis
hefði ræktunartíminn á nellikum
verið lengdur til muna. „Raunar
höfum við náð að lengja ræktun-
artímann á nánast öllum tegund-
um þó ennþá nái þetta ekki saman
allt árið. Það hefur orðið gífurleg
þróun í þessu undanfarin ár,“
sagði Sigurður.
Skýrsla Ríkisendurskoðunar um
Skógrækt og Landgræðslu ríkisins
Ráðherra er ósátt-
ur við sameiningu
HALLDÓR Blöndal landbúnaðarráðherra er ekki sammála því áliti
sem fram kemur í skýrslu Ríkisendurskoðunar um sljórnsýsluendur-
skoðun Landgræðslu ríkisins að rétt sé að sameina hana Skógrækt
ríkisins. Hann er heldur ekki sammála því að rétt sé að hafa þingskip-
aða stjóm yfir stofnuninni.
„Eins og fram kemur í skýrslunni
leiddi þessi endurskoðun í ljós að
ýmis|egt gott er um rekstur Land-
græðslunnar að segja þó alltaf megi
eitthvað bæta hjá þessari stofnun
eins og öðrum. Ég er sammála mörg-
um almennum atriðum sem fram
koma,“ sagði Halldór í gær þegar
leitað var álits hans á niðurstöðum
Ríkisendurskoðunar.
Hann sagðist þó ekki vera sam-
mála því að rétt væri að sameina
Landgræðslu og Skógrækt ríkisins.
„Verkefni þessara stofnana eru í
grandvallaratriðum óh'k þó það sé
sameiginlegt báðum að huga að
gróðurvemd og ræktun lands. Meg-
inverkefni Landgræðslunnar liggja á
eldgosasvæðunum. Stærstu verkefn-
in nú em sunnan Mývatns, á Hóls-
fjöllum og niður í Axarfjörð. Skóg-
ræktin einbeitir sér að nytjaskógrækt
og samvinnu við bændur, til dæmis
um skjólbelti. Kjörsvæði Skógrækt-
arinnar er á Fljótsdalshéraði, frammi
í Eyjafírði og i uppsveitum Suður-
lands. Ég á jafn erfitt með að sjá
að rétt sé að flytja höfuðstöðvar
Landgræðslunnar austur á Fljóts-
dalshérað eins og höfuðstöðvar
Skógræktarinnar í Gunnholt," sagði
Halldór.
Ekki þingkjörna stjórn
„Það má alltaf endurskoða/lög og
þau era raunar í endurskoðún. Ég
skil hins vegar ekki hvaða jilgangi j
það þjónar að hafa þinœkipaða
stjóm yfír Landgræðslunni J; Ég’ tel
ekki að Landgræðsla,n sé'dæmigerð
stofnun sem það hentár, hins vegar
hef ég skipað fagráðiíLaijdgræðsl-
I' l! Í!
unnar, sem verður landgræðslustjóra
til ráðuneytis um þær áherslur sem
rétt sé að hafa í landgræðslustarf-
inu. Forfhaður þess er Egill Jónsson
alþingismaður", sagði Halldór.
Sjá frétt um úttektina á
miðopnu.
SH verktakar
Urskurði
frestað
ÚRSKURÐI vegna beiðni SH
verktaka um framlengingu á
greiðslustöðvun var frestað
öðru sinni hjá skiptaráðanda
í Hafnarfirði í gær að ósk lög-
manna þeirra kröfuhafa sem
hafa mótmælt framlengingu.
í dag leggja þeir fram grein-
argerð í málinu.
I gær var lögð fram greinar-
gerð lögmanna SH verktaka og
áskorun frá 20 kröfuhöfum fyr-
irtækisins, sem eiga yfir 100
milljóna kr. kröfur á hendur
því, um að fyrirtækinu verði
veitt áframhaldandi greiðslu-
stöðvun, að sögn Eyjólfs Krist-
jánssonar, framkvæmdastjóra
SH verktaka. Tólf lánardrottnar
hafa lagst gegn framlengingu.
Óvíst er hvort málið verður
tekið til úrskurðar í dag.