Morgunblaðið - 03.02.1993, Síða 7

Morgunblaðið - 03.02.1993, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1993 7 Snæugla sést á höfuðborg- arsvæðinu JÓHANNES Zoega, fyrrver- andi hitaveitusfjóri, telur sig hafa séð snæuglu á flugi við heimili sitt á Laugarásvegi fyrir skömmu. Einnig hafa borist fregnir um að sést hafi til snæuglu í Fossvoginum og við Elliðavatn. Fuglinn er sjaldséður hér á landi, sér- staklega nálægt byggð, en Ævar Petersen fuglafræðing- ur segir að um tíu ábendingar berist á hveiju ári um að sést hafi til snæuglu hér á landi. „Þetta er mjög stór fugl og ég hélt í fyrstu að þetta væri öm,“ sagði Jóhannes. Smáfuglarnir þutu upp „Það var hrein tilviljun að ég sá hana en ég var staddur úti á hlaði og sá hana svífa héma fyrir ofan húsið. Hún kom úr norðvestri og renndi sér héma inneftir og snéri svo við og kom aftur sömu leið. Hún flaug það lágt að hún var rétt yfir húsþök- unum svo smáfuglamir þutu upp og hvarf svo til vesturs. Ég held að það fari ekki á milli mála að þetta var snæugla. Hún var mjög ljós en þó dröfnótt og hauslagið var greinilegt,“ sagði Jóhannes, en hann kveðst einu sinni áður hafa séð snæuglu hér í Reykja- vík fyrir fjöldamörgum ámm. Brotist inn í 12 fyrirtæki á Skúlagötu Þrír hettu- klæddir þjófar flúðu af vettvangi BROTIST var inn í 12 fyrirtæki á Skúlagötu 26 í fyrrinótt. Maður á miðjum aldri sem þar er búsett- ur heyrði til þjófanna stóð þá að verki. Þeir voru þrír saman og allir hettuklæddir en er þeir urðu mannsins varir flúðu þeir af vett- vangi. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni voru miklar skemmdir unnar í innbrotinu því þjófarnir spörkuðu upp öllum hurðum að fyr- irtækjunum og voru búnir að róta mikið til í hirslum er að þeim var komið. Meðal þeirra sem þarna hafa skrifstofur má nefna Neytendasam- tökin og Kvikmyndaskóla íslands. Þjófarnir munu ekkert hafa haft upp úr krafsinu enda truflaðir í miðjum klíðum en Rannsóknarlög- reglan hefur málið nú til meðferðar. V^terkurog kJ hagkvæmur auglýsingamiöill! 150-200 milljóna króna tap af innanlandsflugi Flugleiða Farþegum fjölgar en fargjöld lækka FARÞEGUM í innanlandsflugi hjá Flugleiðum fjölgaði um 10.800 á síðasta ári. Rúmlega 257 þúsund farþegar ferðuð- ust með félaginu á árinu og er það 4,4% fjölgun frá árinu á undan. í rekstraráætlunum Flugleiða var einungis gert ráð fyrir lítilsháttar fjölgun farþega. Tekjur félagsins eru svipaðar og árið áður, þrátt fyrir farþegafjölgun og hafa tekjur á hvern farþega minnkað um 7,5% milli ára. Rekst- ur ársins hefur ekki verið gerður endanlega upp, en Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi Flugleiða, segir að útlit sé fyrir 150-200 milljóna króna tap af rekstrinum en það er svipuð fjárhæð og árið á undan. Einar segir að á fundum með starfsfólki um sparnað í rekstri hafí Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, komist svo að orði að innanlandsflugið væri komið fram á bjargbrúnina vegna hallarekst- urs. Ákveðið hefði verið að það yrði meginverkefni Leifs Magnús- sonar, nýs framkvæmdastjóra þró- unarsviðs, að koma á breytingum i rekstri innanlandsflugsins. Þar væri einkum horft til samnýtingar á þeim starfshópum sem vinna við innanlandsflugið. Sparnaður við Fokker 50 Þegar innanlandsflugið fékk nýju Fokker 50-vélarnar á síðasta ári var afsláttur af lægstu fargjöld- um í innanlandsflugi aukinn úr 40 í 50% og skilmálarnir rýmkaðir þannig að fleiri farþegar gætu nýtt sér þessi fargjöld. Einar segir að það sé helsta ástæða lækkandi meðalfargjalda. Hann segir ljóst að tilkoma nýju vélanna hjálpi til við að koma rekstri innanlands- flugsins í viðunandi horf. Það dygði hins vegar ekki til og þar sem tal- ið væri að markaðurinn þyldi ekki þá fargjaldahækkun sem þyrfti til að brúa bilið væri lögð svo mikil áhersla á aukna hagræðingu. Einar segir að töluverður auka- kostnaður hafi fallið á rekstur inn- anlandsflugsins vegna vélaskipt- anna á síðasta ári og því kæmi lækkun rekstrarkostnaðar vegna þeirra ekki að fullu fram fyrr en í ár. SAS Lukkupotturinn er fullur af ævintýrum! SAS býður upp á ótrúlega lág far- gjöld til borga um alla Evrópu á verði sem er um 40% lægra en á venjulegum fargjöldum. Börn og unglingar frá 2ja til 18 ára aldurs fá þar að auki 50% afelátt. Til að spila í SAS Lukkupottinum þarf að kaupa farmiðann 7-14 dögum ffyrir brottför og dvelja a.m.k. aðfararnótt sunnudags í því landi sem ferðast er til. Hámarksdvöl er einn mánuður. Þegar ferðast er til borga utan Norðurlandanna er hægt að stoppa í Kaupmannahofn á báðum leiðum. SAS LUKKUFARGJOLD Verð miðaö viö einstakling: 31.160 34.520 41.550 46.720 52.930 58.110 61.210 Kaupmannah. Helsinki Berlín Amsterdam* Brussel* Aþena Bilbao* Stokkhólmur Turku Hamborg* Dusseldorf Budapest Kiev Oporto* Osló Tampere Hannover Frankfurt* Munchen* Mílanó Palma* Bergen Vaasa Stuttgart París* Lissabon Valencia* Stavanger Leipzig Ríga Madrid Kristiansand Vín* Malaga Váxjö Vilníus Róm Vásterás Zúrich* Feneyjar Gautaborg Barcelona Alicante* Malmö Genf* Istanbúl Kalmar Prag Nice Jönköping Tallinn Norrköping Örebro 1310 kr. fsl. flugvallarskattur er ekki innifalinn í uppgefnu verði. SAS flýgur frá íslandi til Kaupmannahafnar mánudaga, miðvikudaga og laugardaga. Flug til íslands er á sunnudags-, þriðjudags- og föstudagskvöldum. *Til eru ódýrari gjöld en þá má ekki stoppa í Kaupmannahöfn og barnaafsláttur er fyrir börn yngri en 12 ára. Kynntu þér SAS Lukkupottinn á söluskrifstofu SAS eða á ferðaskrifstofunni þinni og fljúgðu á vit ævintýranna í Evrópu! M/J4S SAS á íslandi - valfrelsi í flugi! Laugavegi 172 Sími 62 22 11

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.