Morgunblaðið - 03.02.1993, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRUAR 1993
Veitingahús
Til sölu af sérstökum ástæðum veitingahús með
fullu vínveitingaleyfi, upphækkuðum palli fyrir lif-
andi tónlist og góðu dansgólfi. Tilvalið fyrir hug-
myndaríka einstaklinga eða vinsæla hljómsveit
sem vill hagnast vel á eigin vinsældum og hug-
kvæmni. Sanngjarnt verð, góð greiðslukjör.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
r^7TTTTT77?T?7T^riTVTT71
SUÐURVE R I
SÍMAR 812040 OG 814755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
TIL SÖLU
Til sölu af sérstökum ástæðum einn besti söluturn lands-
ins, staðsettur í miðbæ Reykjavíkur.
Velta er um 3,5 til 4,0 milljónir á mánuði.
35-40% af veltu er smurbrauð, sem smurt er á staðnum.
Fyrirtoekjasala
Fyrirtoekjaþjónusta
Baldur Brjánsson
framkvstj.
Ilðfnarstmti 20. 4. Iupó. sími 025080
Sýnishorn úr söluskrá
• Auglýsingastofa, mikil verkefni.
• Framleiðslufyrirtæki í matvörum.
• Bónstöð og smá bílaviðgerðir.
• Framleiðslufyrirtæki í járniðnaði.
• Bílasala í Skeifunni. Gott verð.
• Snyrtivöruverslun, nýjar innréttingar.
• Sólbaðsstofa, skipti möguleg.
• Flárgreiðslustofa í miklum vexti.
• Sérverslun í Kringlunni.
• Barnafatabúð í Hafnarfirði.
• Skóverslun, einstök greiðslukjör.
• Sérverslun með herraföt og gjafavörur.
• Lítið og huggulegt kaffihús.
• Veislueldhús og smurbrauðsstofa.
• Stór heldverslun, mikil vaxandi velta.
• Til sölu 30 ára barnafataverslun.
• Ýmsir söluturnar með mismikla veltu.
SUÐURVERI
SÍMAR 812040 OG 814755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
Fasteignasala,
Suðurlandsbraut 10
Ábyrgð - Reynsla - öryggi
Hilmar Valdimarsson.
SÍMAR 687828 og 687808
Einbýli - raðhús
LÆKJARTÚN - MOS.
Til sölu einbhús 136 fm. 52 fm tvöf.
bílsk. 1000fm verölaunalóö. Mikið end-
urn. og falleg eign.
DALHÚS
Til sölu glæsil. einbhús á tveimur hæö-
um 208 fm. 40 fm innb. bílsk. Fráb.
staðsetn.
LÁTRASTRÖND
Mjog golt raðhús m. innb. bilsk.
samtals 175 fm. Heitur pottur f
garði.
4ra—6 herb.
NEÖSTALEITI
Til sölu stórgl. 4ra-5 herb. 121
fm íb. á 3. hæð. Parket. Þvherb.
og búr innaf eldhúsi. Tvennar
svallr. Mikið útsýni. Stæðl I lok-
uðu bílhýsi.
ELDRI BORGARAR
Vorum aö fá í sölu stórgl. 102 fm ib. á
2. hæö viö Skúlagötu 40A. Tvískiptar
stofur, hol, 2 svefnherb., eldhús, baö-
herb., þvhús og geymsla. Allar innr.
mjög vandaöar. Parket. Mikil sameign.
Saunabað og heitur pottur. Bílastæði í
lokuöu bílahúsi. Fráb. útsýni yfir flóann.
íb. er ætluö 60 ára og eldri.
BÓLSTAÐARHLÍÐ
Góö 4ra herb. 105 fm íb. á 3. hæð.
Bílskréttur.
HRAUNBÆR
Mjög góö 4ra herb. ib. á 2. hæö.
Sérþvhús í kj.
DALSEL
Til sölu góð 4ra herb. 106 fm íb. á 1.
hæð. Nýtt bílskýli. Góð langtímalán
áhv. Verð aðeins 7,5 millj.
HRAUNBÆR
Falleg 112 fm íb. á 2. hæö. Eikarinnr.
í eldhúsi. Parket á stofu og gangi. Þvhús
og búr innaf eldhúsi.
HRÍSATEIGUR
Góð 4ra herb. 80 fm íb. á 1.
hœö. Mikiö endurn. eign.
ÁLFTAMÝRI
Til sölu góö 3ja herb. endaíb. á 4. hæö.
Suðursvalir. Ahv. 2,3 millj. húsnstjlán.
2ja herb.
EINSTÖK EIGN
Vorum aö fá í sölu innarl. v. Kleppsveg
glæsil. 2ja herb. 70 fm íb. i kj. Mjög
góð sametgn.
HRAUNBÆR
Vorum aö fá í sölu mjög góða 2ja herb.
63 fm íb. á 3. hæö. Suöursv.
At vinntihúsn.
LAUGAVEGUR
Vorum aö fá í sölu verslunar- og/eða
iðnaðarhúsn. á götuhæð í húsinu nr.
105 viö Laugarveg (Hlemms- og hverfis-
götumegin). Húsnæöið er 650 fm,
14564 rm. Laust nú þegar.
Hilmar Valdimarsson,
Sigmundur Ðöðvarsson hdl.,
Brynjar Fransson.
Klais o g Bjöm Stein-
ar í Hallgrímskirkju
________Tónlist_____________
Ragnar Björnsson
Fyrst skal forráðamönnum Hall-
grímskirkju, svo og okkur hinum,
óskað til hamingju með hið nýja
rúmlega 70 radda orgel kirkjunnar.
Sem kunnugt er, er orgelið það
stærsta á landi voru og með flest-
ar raddirnar og mun svo vafalaust
verða um nokkra framtíð nema að
langþráð tóniistarhús rísi af grunni
innan tíðar og að þar þurfi hljómm-
ikið orgel til þess að fylla rýmið.
Vafalaust verður lengi deilt um
ágæti Klais-orgelsins og er ekkert
nema gott um það að segja, gagn-
rýni þarf að vera inni í dæminu,
annað merkir stöðnun. Raddskipan
orgelsins er rómantísk og hentar
því best rómantískri músík, e.t.v.
franskri 19. og 20. aldar rómantík
og nútímaverkum frönskum best.
Að íslensk veðrabrigði, fuglalíf á
vötnum, hveravatn og kalt jökul-
vatn fínnist í hljómi orgelsins, eins
og Klais segist hafa stefnt að, er
ómögulegt að heyra, enda alveg
út hött, hljóðfærið á að skila tón-
list í sinni réttu mynd og engu
öðru. Þótt stór orgel séu í fáum
tilfellum jafnáhugaverð flytjand-
anum og minni orgel, 40-55 radd-
ir, þá eru raddmörgu orgelin í sum-
um tilfellum nauðsynleg og sann-
arlega eiga allir þeir miklar þakkir
skildar sem ódeigir héldu gönguna
út og færðu okkur orgel í stærri
kantinum.
Björn Steinar Sólbergsson er
mjög duglegur, án efa einn af okk-
ar efnijegustu yngri organistum.
Utan íslands er Björn aðallega
lærður í Frakklandi og kannski
þess vegna virðist einmitt frönsk
tónlist henta vel skapi Björns.
Björn valdi sér enda verk þriggja
franskra stórorganleikara frá því
tímabili sem áður var nefnt, frá
síðari hluta 19. aldar og langt fram
á 20. öld. Charles-Marie Jean Al-
bert Widor var fyrstur með fjóra
þætti úr einni orgelsinfóníu sinni,
þeirri nr. 5. Widor var, eins og
margir samlandar hans fyrr og síð-
ar, mikill „improvisator" og bera
verk hans þess merki, stundum
nokkuð lausbeisluð í formi, stund-
um nokkuð langdregin en stundum
líka glæsileg áheyrnar. Þar má
nefna tokkötuna sem einna þekkt-
ust er þáttanna fjögurra. Kannske
hefði tokkatan notið sín betur örlít-
ið hægari, en með sterkari mixtúr-
um. Tilbrigðin, fyrsti þáttur, var
mjög vel formaður hjá Birni, í öðr-
um þættinum fannst mér undir-
raddirnar heldur veikar, og lang-
dregnu adagioinu er erfitt að
bjarga.
Þáttinn úr Fæðingu frelsarans,
Björn Steinar Sólbergsson
Les mages, eftir Messiaen, fannst
mér Björn spila aðeins of hratt.
Svo undarlegt sem það er virkar
þátturinn svolítið langdreginn í
þessu tempói, hvað ekki gerist í
hægara tempói, ef manni tekst að
halda þolinmæðinni. Maurice
Duruflé var síðasti stórorganleik-
arinn sem Björn lék verk eftir, tvo
þætti úr Svítu op. 5, Preludiu sem
var sláandi fléttuleikur og tokkötu
sem Björn iék með „bravúr". Utan
Messiaen voru engar stórmerkar
tónsmíðar á ferðinni að þessu sinni,
en kannski fáum við næst að heyra
Litaize eða Alain, sem báðir voru
miklu kraftmeiri tónskáld.
011 0107H LÁRUS Þ. VALDIMARSSON framkvæmdastjóri
L I I JU’LIÚ/U KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. löggiltur fasteignasali
Til sýnis og sölu meðal annarra eigna:
Ný úrvalsíbúð við Reykás
118 fm á 2. hæð Tvöf. stofa, 3 rúmg. svefnherb., góður sjónvskáli.
Sérþvhús. Tvennar svalir. Allar innr. og tæki af bestu gerð. Gamla
góða húsnæðislánið 2,5 millj.
Nýlegt steinhús við Jöldugróf
Hæð 132 fm með 5-6 herb. íbúð. Nýtt parket. Kjaliari 132 fm, nú 2ja
herb. íb. og eins herb. íb. m.m. Sérbyggður bílskúr 49 fm. Góð lán
áhv. Eignaskipti möguleg.
Á vinsælum stað við Stóragerði
Endaíbúð 4ra herb. á 1. hæð um 97 fm. Nýi. eldhúsinnr. Sérhiti. Tvenn-
ar svalir. Góð sameign. 40 ára húsnæðislán kr. 2,3 millj.
Skammt frá Hótel Sögu
3ja herb. endurnýjuð íb. á 3. hæð tæpir 80 fm. Risherb. með snyrt-
ingu fylgir. Rúmg. geymsla í kj. Laus strax.
Á úrvalsstað í Mosfellsbæ
Glæsilegt nýtt parhús á einni hæð með góðum bílsk. og sólskála sam-
tals 169,5 fm. Allar innr. og tæki af bestu gerð. Mjög góð lán fylgja.
Eignask. mögui.
í gamla góða vesturbænum
5 herb. íbúð 116,1 fm á 2. hæð. Nýtt sérsmíðað eldhús. Nýl. parket.
Nýtt bað. 3 rúmg. svefnherb., 2 saml. stofur. Góð lán fylgja.
• • •
Viðskiptum hjá okkur
fylgir ráðgjöf og traustar
upplýsingar.
Opið á laugardaginn. LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
Sýnishorn úr söluskrá:
• Fiskbúð í austurbæ Rvíkur. Góð tæki og áhöld.
• Söluturn og myndbandaleiga v/Langholtsveg.
Verð 1,5 millj.
• Barnafataverslun í þekktum verslunarkj. Góð kjör.
• Mjög góður og vel staðsettur söluturn í Breiðholti.
• Innflutnings- og framleiðslufyrirtæki í járniðnaði.
• Bóka- og ritfangaverslun í verslunarkjarna í Kópav.
• Heildverslun með innfl. og dreifingu á hreinlætisv.
• Pylsuvagn, staðsettur í miðbæ Rvíkur.
• Lítil kjörbúð í eigin húsnæði í miðbæ Rvíkur.
• Söluturn í eigin húsnæði í vesturbæ Kópavogs.
• Söluturn og myndbandaleiga í austurbæ Rvíkur.
Verð 1,5 millj.
Fjöldi annarra fyrirtækja á skrá
Höfum á skrá fjársterka kaupendur
VIÐSKIPTAÞfÓNUSTAN
Róð/jöf ■ Bókhalcl ■ Skattciaðxtoð ■ Kuup og salu fyrirtcekja
Síðumúli 31 ■ 108 Reykjuvík ■ Sími 68 92 99 ■ h'ax 68 19 45
Kristinn H. Ra/’narsson, viðskiptufrceðin/’ur
AIMENNA
FASIEIGNASALAN
Slagverks-
tónleikar í
Gerðubergi
Slagverksleikararnir Guð-
mundur Steingrímsson, Maarfen
van der Valk, Sigtryggur Baldurs-
son og Steingrímur Guðmundsson
flytja frumsamda slagverkstónlist
í menningarmiðstöðinni Gerðu-
bergi í dag, miðvikudaginn 3.
febrúar. Tónleikarnir hefjast
klukkan 20.30 og verða flutt verk
fyrir indverskar tablatrommur,
afríkanska djembetrommu, mar-
okkóska handtrommu og fleiri
ásláttarhljóðfæri, verk fyrir tvær
snertiltrommur og klappverk.
í fréttatilkynningu segir: Guð-
mundur Steingrímsson er einn elsti
og reyndasti trommuleikari Islands.
hann nam trommuleik hjá Svavari
Gests og ýmsum bandarískum
trommuleikurum seint á fimmta ára-
tugnum og hefur leikið með helstu
djassleikurum á íslandi, til dæmis
Gunnari Ormslev, Guðmundi Ingólfs-
syni, Viðari Alfreðssyni og Birni
Thoroddsen. Guðmundur hefur einn-
ig leikið með erlendum djasstónlist-
armönnum, auk þess sem hann hefur
leikið inn á fjölda hljómplatna.
Maarten M. van der Valk nam slag-
verksleik við Tónlistarháskólann í
Amsterdam og lauk þaðan prófí 1975.
Maarten hefur leikið með helstu sinfó-
níuhljómsveitum Hollands, m.a. Conc-
ertgebouw-hljómsveitinni. Auk þess
var hann pákuleikari Sinfóníuhljóm-
sveitar Islands um nokkurra ára skeið
og er enn leiðbeinandi hjá Sinfóníu-
hljómsveit æskunnar.
Sigtryggur Baldursson er líklega
þekktastur sem trommuleikari Syk-
urmolanna og sem söngvarinn Bog-
omil Font. hann byijaði að stunda
trommuleik í nýbylgjunni svonefndu
og hefur m.a. leikið með hljómsveit-
unum Þey og Kukli, auk Sykurmol-
anna. Sigtryggur hefur leikið inn á
fjölda hljómplatna með ýmsum tón-
listarmönnum.
Steingrímur Guðmundsson stund-
aði nám í trommuleik hjá Pétri Öst-
lund, í indverskum tablaleik í Ali
Akbar College of Music í San Franc-
isco og hjá ýmsum kennurum í Crea-
tive Music Studio í New York. Stein-
grímur er stofnandi hljómsveitarinn-
ar Súldar og hefur leikið með ýmsum
hljómsveitum og hljóðfæraleikurum
heima og erlendis. Hann er nú
trommuleikari í hljómsveit Bogomils
Fonts, Milljónamæringunum.