Morgunblaðið - 03.02.1993, Page 11

Morgunblaðið - 03.02.1993, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRUAR 1993 11 Edward Nyholm Debess Hans Werner Henze Haukur Tómasson Rory Bole Blásín tónlist _________Tónlist______________ Jón Ásgeirsson Blásarakvintett Reykjavíkur kom fram á vegum Myrkra músík- daga á Kjarvalsstöðum sl. sunnu- dag og flutti tónverk eftir Edvard Nyholm Debess, Rory Boyle, Hans Wemer Henze og Hauk Tómasson. Kvintettinn eftir færeyska tón- skáldið Edvard Nyholm Debess sem kallast „Heyst við Frosnátt" var fyrsta verkefnið. Nokkuð ný- næmi er að heyra nútímatónlist frá Færeyjum en þessar haust- stemmningar eftir Debess, sem eru að mörgu leyti áheyrilegar, hófust á einleik á horn og lengi framan af voru alþýðlegar tónhug- myndir kynntar í einrödduðum leik. Smám saman varð tónvefur- inn þéttari og frostnóttin (2. þátt- ur) var á margan hátt faílega unnin en verkinu lauk með glettni og tilvitnunum m.a. í alþýðlega tónlist, einstaka stef eftir Mozart og dægurlög. Verkið er ekki stór- brotið að gerð en á köflum vel samið. Blásarakvintett eftir Rory Bo- yle er nokkuð mislit tónsmíð og var fyrsti þátturinn áberandi besti hluti verksins. Miðkaflinn var helst til of bundinn við ákveðna mið- iægju og sá síðasti, „burleska", var þrátt fyrir nokkur skemmtileg tilþrif helst til of laus í formi. Blásarakvintett eftir Hans Werner Henze er aftur á móti mjög fastmótaður, bæði hvað snertir tónferli og form. Þama mátti heyra togstreituna á milli þess hefðbundna og nýrra leiða í uppbyggingu tónmáls, sem margir Þjóðveijar þurftu að yfir- vinna og líklega má finna þama lykilinn að því, hvers vegna Henze yfirgaf tólftónatæknina upp úr 1960. Síðasta verkið, sem flutt var á þessum tónleikum er eftir Hauk Tómasson og nefnist það „Atrenn- ur að einingu", er lýsir verkinu að nokkru. Það hefst á „óreiðu- kenndri ijölröddun" og þróast „yfir í bókstaflegt sam-spil“. Þetta er mjög vel samið verk, fullt af skemmtilegum tónferlum og það eina sem að mætti finna er hversu niðurlagið er frekar leitandi og ekki nógu markvisst. Ef til vill er samspilið eins konar sátt, sem í raun leiðir til þess að „mál sé að fella allt tal niður að sinni“. At- renna Hauks er gott kammerverk, gætt fínleika og fallega margofnu tónferli. Nóg hefur verið sagt um Blás- arakvintett Reykjavíkur og allt til lofs, enda eru öll verk vel unnin þar á bæ, hvort sem litið er til faglegra eða listrænna lausna og er rétt að láta þess getið að þrátt fyrir að kári blési í kaun, það gnauðaði fyrir dyrum úti og náði að ýla á milli stafs og hurðar á Kjarvalsstöðum, voru tónleikarnir hinir ánægjulegustu. Um leið voru þeir áminning um að enn hefur ekki verið húsað sómasamlega yfir „tónlistargyðjuna", sem í raun þarf að leita skjóls undir vegg, þegar á móti blæs og má þakka fyrir að vera tekin í hús, hafandi „yfir fjallvegu sótt“. Sigrún Eðvaldsdóttir ein- leikari á Sinfóníutónleikum Fjórðu tónleikarnir í Gulri áskriftarröð Sinfóníuhljóm- sveitar íslands verða haldnir á morgun, fimmtudag, og hefjast klukkan 20.00. Hjjómsveitar- stjóri er Petri Sakari, aðal- hljómsveitarstjóri hljómsveitar- innar og einleikari er Sigrún Eðvaldsdóttir. í fréttatilkynningu segir: Petri Sakari er óþarfi að kynna, því hann þekkja flestir tónleikagestir eftir fjögurra ára starf hans sem aðalhljómsveitarstjóri SÍ. Er það mál manna að hljómsveitin hafi tekið stórstígum framförum undir hans leiðsögn þessi fjögur ár. Þess má geta að geisladiskar þeir sem hafa verið gefnir út með Sinfóníu- hljómsveit íslands undir hans stjórn, hafa fengið afbragðsgóðar viðtökur. Sigrún Eðvaldsdóttir er tón- leikagestum einnig að góðu kunn, svo mikið hefur hún verið í sviðs- ljósinu undanfarin ár. Hún hefur unnið til verðlauna í fjölda keppna og komið fram í mörgum löndum sem einleikari og sífellt eykst hróð- ur hennar. Sigrún túlkar tónlistina á einkar persónulegan og litríkan hátt, auk þess sem hún býr yfir mikilli tækni. Nú er ár liðið frá því að Sigrún fékk í hendur þann dýrgrip sem fiðlan hennar er. Fiðl- una þá arna smíðaði Josef Guarn- erius árið 1720 í Cremona á ítal- íu. Er þetta í fyrsta sinn sem þessi Sigrún Eðvaldsdóttir fiðla fær að hljóma á tónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar. Á efnisskrá tónleikanna eru: „Hátíðarforleikur“ eftir Pál ísólfs- son, saminn fyrir opnun Þjóðleik- hússins árið 1950 og hefur þetta verk ekki heyrst á tónleikum hljómsveitarinnar síðan 1965. Þess má geta að í október á þessu ári eru hundrað ár liðin frá fæð- ingu Páls. Þá verða leiknar „Tvær rómönsur fyrir fíðlu og hljóm- sveit,“ eftir Árna Björnsson. Róm- önsurnar eru upprunalega samdar fyrir fíðlu og strengjasveit en eru nú leiknar í fyrsta sinn á tónleikum í hljómsveitarbúningi Atla Heimis Sveinssonar. Næst á efnisskránni eru „Spunarokkurinn" eftir Saint- Sáens og „Stúdía í valsformi fyrir fíðlu og hljómsveit," eftir Saint-Sáens/Ysaýe. Síðasta verkið á tónleikunum er svo „Sinfónía nr. 4,“ eftir Tsjajkovskíj. Stefán íslandi í yfirlitsútgáfu EMI STEFÁN íslandi er í hópi helztu óperusöngvara 1939 - 1978 í nýrri yfirlitsútgáfu EMI-fyrir- tækisins. Útgáfa þessi er á sjö geislaplöt- um og á þeim syngja 139 óperu- söngvarar, sem er skipt niður í hópa eftir þjóðernum, ensk-amer- ískan, franskan, þýzkan, „skandin- avískan", rússneskan, slavneskan og ítalskan. Stefán íslandi er í hópi ellefu söngvara frá Norðurlöndunum. Hann syngur á ítölsku aríu úr þriðja þætti óperunnar Adriana Lecouvreur eftir ítalann Francesco Cilea og er það upptaka, sem gerð var í Kaupmannahöfn í ágúst 1936. Hinir söngvararnir frá Norð- urlöndunum eru norska sópransön- konan Kirsten Flagstad, sænsku söngkonurnar Lorri Lail og Gjurgja Leppeé, sænsku tenórsöngvararnir Nicolai Gedda og Jussi Björling, danski tenórinn Aksel Schiötz, sænsku söngvararnir Hugo Hassio, Bemhard Sönnerstedt og Joel Berglund og finnski bassinn Kim Borg. Með geislaplötunum fylgir lítil bók með upplýsingum um söngvar- ana. Þar segir m.a. eftir að söng- ferill Stefáns hefur verið rakinn í stuttu máli, að hann sé einn þeirra Stefán íslandi mörgu norrænu söngvara, sem hafi aldrei öðlast þá „heimsfrægð", sem hann átti skilda. OTTÓ NASHYRNINGUR Skúli Hilmarsson, ívar Guðmundsson og Leifur Gunnarsson í hlut- verkum sínum. _________Leiklist____________ Hávar Sigurjónsson Leikfélag Kópavogs sýnir: Ottó nashyming eftir Ole Lund Kierkegaard. Leikgerð og söngtextar: Hörð- ur Siguröarson. Leikstjóri: Þómnn Magnea Magnúsdóttir. Leikmynd og búningar: Örn Alexandersson. Tónlist: Jósep Gíslason. Leikendur: Ágúst Kristmanns, Leifur Örn Gunnarsson, ívar Guðmundsson, Einar Þór Samú- elsson, Sylvía B. Gústafsdóttir, Jóhanna Pálsdóttir, Skúli Rún- ar Hilmarsson o.fl. Það færist sífellt í vöxt að áhugaleikfélögin á höfuðborgar- svæðinu setji upp leiksýningar fyrir böm, sjálfsagt sumpart vegna þess að börn og foreldrar þeirra eru tryggir leikhúsgestir og samkeppnin við atvinnuleikhúsin er áþreifanlegri hér en á lands- byggðinni. Leikfélag Kópavogs hefur á undanförnum árum verið iðið við að koma upp leiksýningum fyrir börn. Sögur Ole Lund Kirkegaard hafa átt upp á pall- borðið hjá þeim ekki síður en öðr- um og þetta er önnur, ef ekki þriðja, uppfærslan á leikgerð sögu eftir hann hjá Kópavogsleikfélag- inu. Leikfélagið hefur greinilega eflst af þessu starfi og innan þess eru nú komnir fram einstaklingar sem ráðast í þau verkefni að semja leikgerð, tónlist og leikmynd við þessa sýningu, og segir það heil- mikið um þann kraft sem er í fé- laginu. Um árangurinn af þessu þrennú má segja að sjálfsagt sé að taka viljann fyrir verkið og að í aðalatriðum hafí tekist vel til. Sagan um Ottó nashyrning er bráðskemmtileg eins og sögur Ole Lund eru allar, en líklega er sam- ansemin heldur við hæfi eldri bama en yngri, þar sem oft er spilað á andstæðurnar milli hins fáránlega og eðlilega, og gjaman höfð endaskipti á þessum fyrir- bærum. Líklega hefði mátt sníða sýninguna betur við hæfí yngri sem eldri barna með því að leik- stjórinn hefði lagt í hana meira af uppákomum, gert hana sjón- rænni ef svo má segja. En kannski var ekki talin ástæða til þess. Tónlistin í sýningunni er heldur sviplítil og flutningur hennar einn- ig og vafalaust hefði gert gæfu- mun að hafa fleiri hljóðfæri en píanó til undirleiks. Lítið leikfélag hefur kannski ekki ráð á slíku og því verður að taka viljann fyrir verkið eins og áður sagði. Söngur leikenda gerði heldur ekki mikið fyrir tónsmíðar Jóseps Gíslasonar. Af leikendum stóðu þeir Leifur Örn Gunnarsson og Ivar Guð- mundsson sig prýðilega í hlutverk- um strákanna Topps og Viggós; Skúli Rúnar Hilmarsson sem hr. Björn var einnig bráðskemmtileg- ur og Jóhanna Pálsdóttir var hressileg sem móðirin Emilía. á áttu þau Einar Þór Samúelsson og Sylvía B. Gústafsdóttir ágætan sprett sem hr. Hólm og frú Flóra. Ottó nashyrningur er frambæri- leg leiksýning fyrir börn og vafa- laust hafa þau af henni nokkra skemmtan. Þó er eins og vanti herslumuninn að úr verði gripandi sýning sem taki áhorfandann traustataki og geri gulan nashyrn- ing á þriðju hæð í fjölbýlishúsi að eðlilegasta hlut í heimi. — _

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.