Morgunblaðið - 03.02.1993, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1993
13
Þróunaraðstoð við Malaví
Af hverju áskorun um frestun?
eftir Arna
Gunnarsson /
íslendingar hafa veitt stjórnvöld-
um í Malaví margvíslega aðstoð á
síðustu árum. Þessi aðstoð hefur að
mestu snúist um fiskveiðar og fiski-
rannsóknir og hefur um margt tek-
ist vel. Stjórn Þróunarsamvinnu-
stofnunar hefur ekki rætt stjórn-
málaástandið í Malaví þegar ákvarð-
anir hafa verið teknar um fjárfram-
lög vegna þróunaraðstoðar við land-
ið. Undirritaður hefur hins vegar
haft efasemdir um réttmæti þessarar
aðstoðar í ljósi þeirrar harðstjómar,
sem ríkt hefur í Malaví. Ekki hefur
þó verið ástæða til að gera ágreining
um málið m.a. vegna þess að forseti
landsins til lífstíðar, Banda, hafði
lofað fijálsum kosningum og heimil-
að starfsemi stjórnarandstöðu-
flokka.
Á fundi í stjórn Þróunarsamvinnu-
stofnunar 19. janúar sl. var tilkynnt
að utanríkisráðherra, Jón Baldvin
Hannibalsson, og formaður og fram-
kvæmdastjóri Þróunarsamvinnu-
stofnunar færðu til Malaví í byijun
febrúarmánaðar. Þennan fund gat
undirritaður því miður ekki setið.
Sama dag og utanríkisráðherra fór
utan eða daginn eftir birtist frétt í
einu dagblaðanna þess efnis að Pet-
er Calaso, einn merkasti og virtasti
foringi stjórnarandstöðunnar f
Malaví, hefði verið fangelsaður og
pyntaður. Þá varð mér ljóst að Ka-
músu Banda, forseti Malaví, ætlaði
að svíkja gefin loforð um fijálsar
kosningar, sem eiga að fara fram í
mars næstkomandi. Hann myndi
sem fyrr fjarlægja alla óþægilega
stjórnarandstæðinga og viðhalda
áfram ógnarstjórn eins flokks, sem
hefur fangelsað, pyntað og drepið
alla þá sem krafist hafa lýðræðis.
Allar Norðurlandaþjóðimar, nema
íslendingar, og flestar þjóðir Evr-
ópubandalagsins hafa stórlega dreg-
ið úr eða stöðvað alveg þróunarað-
stoð við Malaví og bíða með frekari
ákvarðanir þar til að loknum kosn-
ingunum í mars. Helle Degn, þróun-
armálaráðherra Dana, flutti ræðu
fyrir hpnd Evrópubandalagsríkjanna
í Harare í síðustu viku og lét þar
þung orð falla um stjórnmálaástand-
ið í Malaví. Þetta var á svonefndri
SADC-ráðstefnu, sem Jón Baldvin
Hannibalsson sat rétt áður en hann
fór til Malaví. Og það var þangað,
sem undirritaður sendi honum
skeyti, greindi frá fangelsun Peters
Calesos, sem ráðherrann hafði ugg-
laust ekki frétt um áður en hann fór
að heiman, og skoraði á hann að
fresta afhendingu íslenska fiskibáts-
ins. Þetta skeyti var sent ráðherra
og samflokksmanni um margra ára
skeið og var af persónulegum toga
spunnið. í því fólst engin gagnrýni,
aðeins ábending um það, sem undir-
ritaður taldi að betur mætti fara.
Þetta skeyti kom stjórn Þróunarsam-
vinnustofnunar nákvæmlega ekkert
við, og allar hugleiðingar um það
að bera hefði átt málið undir stjóm-
ina eru út í hött. Undirritaður er
þama að tala við flokksbróður í
Athugasemd
frá samstaifs-
aðilum Dyr-
hólaeyjar
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá sam-
starfsaðilum um Dyrhólaey:
„Vegna fréttar í Tímanum föstu-
daginn 29. janúar, þar sem rætt er
við formann Ferðamálaráðs íslands
um málefni Dyrhólaeyjar, skal eftir-
farandi ítrekað: Dyrhólaey er einka-
eign jarðanna í Dyrhólahverfi. Um-
sjón með eyjunni, þar með talin inn-
heimta aðgangseyris af gestum
þangað, heyrir ekki undir Ferða-
málaráð."
„Þetta skeyti kom stjórn
Þróunarsamvinnustofn-
unar nákvæmlega ekk-
ert við, og allar hugleið-
ingar um það að bera
hefði átt málið undir
stjórnina eru út í hött.
Undirritaður er þarna
að tala við flokksbróður
í stjórnmálaflokki sem
hann hefur verið félagi
í í 38 ár.“
stjórnmálaflokki sem hann hefur
verið félagi í í 38 ár.
Þetta er ekki í fyrsta skipti að
undirritaður gerir formanni sínum
grein fyrir skoðunum sínum. Og svo
mun verða áfram. Slíkt er hluti af
tiltölulega heilbrigðu pólitísku kerfi.
í Malaví yrði undirritaður auðvitað
fangelsaður. En öll þessi umræða
hvétur til þess að stjórn Þróunarsam-
vinnustofnunar taki upp umræðu um
stjórnmálaástand á hveijum tíma í
þeim löndum, sem aðstoð hennar
beinist til. Þetta gera flestar þró-
unarstofnanir. Undirritaður mun
einnig sjá til þess að 'stjórn Þrún-
arsamvinnustofnunar fái í hendur
tvær nýútkomnar skýrslur Amnesty
International um ógnarstjórnina í
Malaví og jafnframt skýrslu banda-
ríska utanríkisráðuneytisins um
sama mál.
Um skeytasendinguna er það að
lokum að segja að undirritaður taldi
að með því að fresta afhendingu á
fiskibátnum til Malavístjórnar, t.d.
fram yfir kosningar, væri lagt lítið
lóð á vogarskálar lýðræðis og mann-
réttinda. En vafalaust hefur utanrík-
isráðherra talið sig bundinn af samn-
ingum og að frestunaráskorunin
væri of seint fram komin. Þessi
umræða hefur þó komið Malaví á
landakort fjölmiðlanna og er það vel.
Höfundur er framkvæmdastjóri
og stjómarmaður í Þróunar-
samvinnustofnun íslands.
Árni Gunnarsson
VIÐ HJÁ LÖÐRI
SMYRJUM
A ALLT NEMA
REIKNIN6ANA
í tilefni dagsins bjóðum
við löðrandi gott verð
á þvotti bóni og
undirvagnsþvotti í
þvottastöðinni Löðri.
FYRIR HflDEGI KR-
490
EFTIR HÁDEGI KR-
590
í NÝRRIOG GLÆSILEGRI
SHELL SMURSTÖÐ VIÐ
VESTURVÖR 6, KÓPAVOGI
SEM OPNAR í DAG
...já við hjá Löðri höfum bætt um betur og
tekið í notkun nýja Shell smurstöð með frábærri
aðstöðu, jafnt fyrir viðskiptavini sem bfla.
Hjá Löðri er jafnan góð og greið aðkoma, næg
bflastæði rjúkandi kaffi og gott afdrep á meðan
beðið er eftir bflnum.
Á nœstunni opnum við pústþjónustu,
sérstaka olíuúðun á undirvagn
og hjólbarðaverkstœði.
Við hlökkum til að sjá þig
...og bílinn þinn.
GOD 06 GREIÐ AÐKOMA