Morgunblaðið - 03.02.1993, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 03.02.1993, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1993 Samvinnufer ðir semja við Atlanta um allt leiguflug Ferðaskrifstofan Samvinnuferðir-Landsýn hf. hefur samið við flugfélagið Atlanta hf. um allt leiguflug ferðaskrifstofunnar á þessu ári. Um er að ræða 17.000 sæti, einkum til sólarlanda. Atlanta mun einnig fljúga leiguflug á eigin vegum frá Austurríki og Þýskalandi sem Atlantsflug hafði áður með höndum. Samningsupphæðin er um 250 milljónir króna. Samvinnuferðir gera ráð fyrir að verð á sólar- landaferðum hækki frá síðasta ári vegna óhagstæðrar gengisþróun- ar. Morgunblaðið/Kristinn Samningur handsalaður ÞÓRA GUÐMUNDSDÓTTIR annar aðaleigandi At- Við borðið sitja Amgrímur Jóhannsson framkvæmda- lanta og Vilhjálmur Jónsson stjómarformaður Sam- stjóri Atlanta og Helgi Jóhannsson framkvæmdastjóri vinnuferða-Landsýnar handsala samningi um leiguflug. Samvinnuferða. Hættir sem formaður Félags ferðaskrifstofa Segir af sér formennsku í kjölfar ríkisútboðsins HELGI Jóhannsson framkvæmdastjóri Samvinnuferða-Landsýn- ar hefur sagt af sér formennsku í Félagi íslenskra ferðaskrif- stofa í kjölfar útboðs á ferðum fyrir ráðuneyti og ríkisstofnanir „Ástæðan fyrir afsögninni er skoðanaágreiningur um vinnu- brögð innan félagsins,“ sagði Helgi. „Vera mín sem formaður var farin að valda Samvinnuferð- um-Landsýn vemlegum skaða. Sem formaður félagsins hef ég eðlilega farið í einu og öllu eftir þeim reglum sem gilda. Þær hafa hins vegar aðrar ferðaskrifstofur brotið og meðal annars fengið út á það viðskipti við ríkið. Komi það í ljós að aðrar skrifstofur komist upp með að bijóta reglumar munu Samvinnuferðir-Landsýn sannar- lega endurskoða sína afstöðu. Ég tel að við þannig aðstæður gæti ég ekki lengur verið formaður fé- lagsins," sagði Helgi. Samvinnuferðir yom ekki í hópi þeirra aðila sem ríkisfyrirtækjum og ráðuneytum er heimilt að skipta við eftir útboðið, en þar eru bæði Flugleiðir og ferðaskrifstofan Úr- val-Útsýn sem er í eigu Flugleiða. Samvinnuferðir hafa haldið því fram að í þeim tilboðum sem tek- ið var, hafí verið boðinn afsláttur af heildarviðskiptunum, sem sé óheimilt samkvæmt gildandi al- þjóðasáttmálum sem ferðaskrif- stofurnar em aðilar að. Umræddar reglur em í samn- ingi milli alþjóðasambands flugfé- laga, IATA, og alþjóðasambands ferðaskrifstofa, UPTA. Flugleiðir hafa sagt að IÁTA hafí árið 1990 einhliða samþykkt að fella niður allar hömlur flugfélaga á ráðstöf- unum ferðaskrifstofa á söluþókn- un þeirra frá flugfélögum. Fulltrúi IATA hefur þó staðfest það við Félag íslenskra ferðaskrifstofa að enn sé í gildi samningur við al- þjóðasamband ferðaskrifstofa þar sem þessar hömlur eru lagðar á. Þessar hömlur vilji Evrópubanda- lagið hins vegar ekki sætta sig við og LATA hafí samþykkt að öll ákvæði um umboðslaun verði felld úr næsta samningi. Því muni IATA ekki gera athugasemdir þótt ferðaskrifstofur fari ekki eft- ir þessu samningsákvæði. Einhliða túlkun IATA Um þetta sagði Helgi Jóhanns- son, að þótt IATA vildi fá fram breytingar á þessu samnings- ákvæði hefði ekki náðst um það samkomulag við UPTA og því sé þama um einhliða túlkun IATA að ræða. „IATA segir að í framtíð- inni verði til ný regla en það stað- festir um leið að gömlu reglumar eru í fullu gildi. Og fyrir tveimur mánuðum lét IATA íslenska ferða- skrifstofu skrifa undir samning sem innihélt einmitt umrætt ákvæði. Það má einnig benda á, að BSP, sem hefur eftirlit með farseðlaútgáfu um allan heim, hefur staðfest að ferðaskrifstofum sé óleyfilegt að framselja umboðs- laun til þriðja aðila,“ sagði Helgi. Verkefnavæðing stofnana samgöngu- og landbúnaðarráðuneyta Dregið á skipulegan hátt úr ríkisrekstri ÞRIGGJA tnanna starfshópur á vegum samgöngu- og landbúnaðar- ráðherra hefur forystu og leiðsögn um verkefnavæðingu stofnana viðkomandi ráðuneyta á komandi mánuðum. Hugtakið verkefna- væðing hefur þegar verið kynnt fyrir fulltrúum stofnananna. Með verkefnavæðingu er leitast við að draga á skipulegan hátt úr ríkis- rekstri, lækka kostnað ríkisins en viðhalda engu að síður nauðsyn- legri þjónustu hverrar stofnunar að sögn starfshópsins. Hann skipa: Benedikt Jóhannesson, stærðfræðingur sem jafnframt er formaður nefndarinnar, Sigurður B. Stefánsson, hagfræðingur, og Jón Birg- ir Jónsson, aðstoðarvegamálastjóri. Samvinnuferðir og Atlánta skrif- uðu undir samning um leiguflugið í gær. Atlanta hefur ekki áður flog- ið reglulega fyrir íslensk fyrirtæki og sagði Vilhjálmur Jónsson, stjómarformaður Samvinnuferða, þegar skrifað var undir samninginn í gær, að mjög gleðilegt væri að þetta fyrirtæki væri komið á ís- lenskan markað. Þegar Amgrímur Jóhannsson, framkvæmdastjóri og annar aðaleigandi Atlanta, var spurður hvort félagið væri að und- irbúa sig undir samkeppni við Flug- leiðir á innlendum markaði, svaraði hann að samningurinn við Sam- vinnuferðir væri gerður með við- skiptasjónarmið í huga. „Það var ekki markmið okkar að snúa okkur að íslandi með samkeppni í huga þótt það sé skemmtilegt að fá verk- efni á íslenskum markaði. Við höf- um hingað til verið á þeim markaði sem gefur eitthvað af sér og tilboð okkar í þetta leiguflug var miðað við það,“ sagði Arngrímur. Hann tók fram, að Atlanta myndi kaupa ýmsa þjónustu af Flugleiðum, t.d. viðhald. Aðaleigendur Atlanta eru hjónin Amgrímur Jóhannsson og Þóra Guðmundsdóttir. Að sögn Arn- gríms þýðir þessi samningur um 12% viðbót við umsvif Atlanta. Húsavík Grænlend- ingar læra leikstjórn TVEIR grænlenskir leikarar hafa dvalist hérlendis í nokkrar vikur, þar sem þeir hafa lagt stund á leiksljórnamám hjá Brynju Benediktsdóttur leik- stjóra. Námið stunda Grænlend- ingarnir á Húsavík, en þeir eru styrktir af grænlensku heima- stjórninni og Norrænu menning- armiðstöðinni í Nuuk, auk þess sem Leikfélag Húsavíkur og Húsavíkurbær sjá þeim fyrir húsnæði og uppihaldi. Leikararnir heita Agga Olsen og Rink Egede og koma frá eina atvinnuleikhúsinu á Grænlandi, sem staðsett er í Nuuk, höfuðstað Grænlands, stað sem hefur álíka marga íbúa og Akureyri. Leikhúsið heitir Silamiut, en auk þess að vinna við leikhúsið, starfa þau einnig við grænlenska sjónvarpið. Þau hafa oft farið í leikferð til Kanada og Alaska ásamt félögum sínum, sem er kjaminn í Þjóðleik- húsi Grænlendinga. Helgi Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri Samvinnuferða, sagði, að fjögur tilboð hefðu borist í leiguflugið, frá Atlanta, Flugleið- um og tveimur spænskum flugfé- lögum. „Annað erlenda tilboðið var mjög gott en það hefur verið stefna okkar að skipta við íslenska aðila ef mögulegt er. Tilboð Flugleiða var einnig gott en tilboð Atlanta var þó að öllu leyti aðgengilegra því auk þess að bjóða lægsta verð gerir það ráð fyrir morgunflugi og það kýs almenningur helst," sagði Helgi. Hann sagði það einnig hafa styrkt tilboð Atlanta að með því að taka því hefði myndast grunvöll- ur fyrir Atlanta að starfrækja leiguflug til Austurríkis og Þýska- lands með þarlenda ferðamenn til íslands. Atlanta mun selja þessar ferðir í gegnum þýska ferðaskrif- stofu, að sögn Arngríms Jóhanns- sonar og er um að ræða nærri 5.000 sæti. Samkeppni Samvinnuferðir sömdu á tveimur síðustu ámm við Atlantsflug um stóran hluta af leiguflugi félagsins. Þegar Helgi var spurður hvort það væri stefna Samvinnuferða að reyna að semja við önnur flugfélög en Flugleiðir til að halda uppi sam- keppni í innlendum flugrekstri svaraði hann að allir innlendir aðil- ar hefðu fengið að bjóða í þetta leiguflug á undanfömum árum og besta boðinu ávallt verið tekið. Þannig hefði verið samið við Flug- leiðir um hluta af leigufluginu í fyrra. „En um leið og við fögnum samkeppni á þessum markaði bend- um við á að það er nauðsynlegt að hér sé sterkt áætlunarflugfélag en einnig þarf að vera til sveigja fyrir orlofsferðamarkaðinn. Við emm því ekki að ráðast að Flugleið- um með neinum hætti með þessum samningi eins og dæmin sýna. Flugleiðir era okkar lang stærsti viðskiptaaðili með um 800 milljóna veltu sem er nærri fjórföld velta okkar við Atlanta," sagði Helgi. Einhver verðhækkun Þegar Helgi Jóhannsson var spurður hvort gera mætti ráð fyrir hækkun á verði sólarlandaferða á þessu ári sagði hann, að samn- ingurinn við Atlantsflug gerði það að verkum að verð í dollurum myndi haldast óbreytt frá síðasta ári. Hins vegar hefði gengi dollars hækkað veralega og því yrði einhver hækk- un á ferðaverðinu óumflýjanleg. Atlanta annast leiguflugið með Boeing 737-flugvél sem félagið hefur nýlega fest kaup á. Vélin er með nýjum innréttingum og tekur 130 manns í sæti. Atlanta hefur nú með höndum verkefni í Indónes- íu, Víetnam, Laos, Finnlandi og Þýskalandi, fyrir alls sex flugvélar. Á blaðamannafundi með starfs- hópnum, ráðherra og Ingimari Jó- hannssyni, úr landbúnaðarráðueyt- inu sem aðstoðað hefur nefndina, kom fram að verkefnavæðingin fælist fyrst og fremst í að laga stofnanir ríkisins að því umhverfi sem einkafyrirtæki búa við. Vegna þess að þau eiga sér yfirleitt ekki neina keppinauta á fijálsum mark- aði yrði slík aðlögun að vera með óbeinum hætti. Skilgreina þurfi markmið stofnananna og kanna hvaða verkþætti þurfi að vinna til að ná þessum markmiðum. Síðan þurfi að svara því hvort ekki megi vinna verkþættina með ódýrari hætti en gert hafi verið. Starfshópurinn hefur skipt leið- inni að þessu markmiði í fjögur þrep: að skilgreind verði ákveðin verkefni hjá stofnununum sem hægt yrði að bera saman við verk- efni hjá einkaaðilum, að settir verði upp kostnaðarstaðlar þar sem met- ið yrði hvað verkið myndi kosta hjá einkaaðila, að boðin verði út þau verkefni sem nú þegar era unnin utan stofnunarinnar og að boðin verði út verkefni sem nú eru unnin innan stofnunarinnar. Væri þá gert ráð fyrir að stofnunin mætti sjálf bjóða í verkið sam- kvæmt ákveðnum staðli. Fijáls samkeppni Sigurður B. Stefánsson minnti á að áður hefði aðeins verið litið til einkavæðingar í formi sölu eigna eða hluta ríkisins í hlutafélögum. Með verkefnavæðingunni væri ver- ið að víkka þetta hugtak út þannig að árangur fijálsrar samkeppni gæti líka náð til opinberrar þjón- ustu. Væri það gert með því að líkja eftir aðstæðum þar sem sam- keppni ríkti. Samráð Á fundinum kom fram að fyrir- huguð verkefnavæðing hefði verið kynnt fyrir fulltrúum stofnananna 29. janúar síðastliðinn og hefðu þeir tekið vel í fyrirhugaðar að- gerðir. Ætlunin er að vinna að þeim í sem mestu- samráði við hveija stofnun fyrir sig. SIGLFIRDINGAFELAGID f Reykjavík og nágrenni verður haldið í Hraunholti, Dalshrauni 15, Hafnarfirði, laugardaginn 6. febrúar. Miðasala og borðapantanir verða í versluninni Kili hf., Ármúla 30, miðvikudaginn 3. og fimmtudag- inn 4. febrúar frá kl. 13-18. Tryggið ykkur miða í tíma! Skemmtinefndin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.