Morgunblaðið - 03.02.1993, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 03.02.1993, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1993 19 Stýrimenn á Heijólfi í verkfall Vöruflutningar til Eyja leggjast að hluta niður VERKFALL stýrinianna á Herjólfi hófst klukkan 6 í morgun og liggja allar siglingar skipsins á milli lands og Eyja niðri á meðan verk- fallið stendur. Samningafundur sem fram fór hjá ríkissáttasemj- ara í gærdag milli deiluaðila reyndist árangurslaus og hefur nýr fundur ekki verið boðaður. Ber mikið á milli aðila og eru tald- ar líkur á að verkfallið verði lang- vinnt. Vöruflutningar til Eyja munu að stórum hluta liggja niðri vegna verkfallsins, en Heijólfur hefur m.a. annast alla mjólkur- flutninga til Vestmannaeyja dag- lega. Að sögn Gríms Gislasonar, stjórnarformanns Heijólfs, mun félagið tryggja flutninga mjólkur til Eyja eftir öðrum leiðum á með- an verkfallið stendur. Flug til Vestmannaeyja hefur legið niðri síðan á fimmtudag í síðustu viku. Stýrimannafélag íslands hefur farið með samningsumboð fyrir hönd stýrimanna Heijólfs, en um er að ræða þrjá stýrimenn í tveimur stöðu- gildum. Vinnuveitendasamband ís- lands fer með samninga fyrir hönd útgerðar Heijólfs og neitaði að fall- ast á kröfur stýrimanna um veruleg- ar launahækkanir á um fjögurra klukkustunda löngum sáttafundi hjá ríkissáttasemjara i gær, að sögn Gríms Gíslasonar. Búist við löngu verkfalli „Þetta gæti orðið löng og erfið vinnudeila. Á meðan verða samgöng- ur við Eyjar í miklum ólestri. Þetta mun hafa mikil áhrif,“ sagði Grímur. Að sögn Guðlaugs Gíslasonar, starfsmanns Stýrimannafélagsins, snúast kröfur stýrimannanna um að fá fram leiðréttingu á launakjörum sínum til samræmis við háseta á Heijólfi. Sagði hann að um mikinn launamun væri að ræða, sem mætti rekja um tíu ár aftur í tímann, en hann vildi ekki upplýsa hvað stýri- menn færu fram á miklar launa- hækkanir. Guðlaugur sagði að sam- komulag væri alls ekki í augsýn og því gæti verkfallið orðið langt, en hann vonaðist til að leyst yrði úr deilunni á milli aðila út í Vestmanna- eyjum. Galileo hf. gjaldþrota STJÓRN Galileo á íslandi hf. hef- ur óskað eftir að félagið verði tekið til gjaldþrotaskipta. Ósk fé- lagsins var tekin fyrir i Héraðs- dómi Reykjavíkur í gær, en úr- skurður verður að iíkindum kveð- inn upp í dag. Galileo á íslandi hf. tók til starfa í lok nóvember 1991 og var fyrirtæk- ið tengiliður evrópska ferðaupplýs- ingakerfisins Galileo hér á landi. Eru þau ekki sæt ? Morgunblaðið/Kristinn Algengt er að auk nánustu skyldmenna og vina komi nágrannar, þá sé þar oft um að litast eins og á járnbrautarstöð. Þess má geta vinnufélagar og jafnvel heilu saumaklúbbarnir að heimsækja að gerð var skoðanakönnun meðal sængurkvenna fyrir nokkrum sængurkonur á sængurkvennagöngunum tveimur á Landspítalanum árum um hvort þær vildu að heimsóknartímar yrðu lagðir niður á heimsóknartímum. Kristín Tómasdóttir, yfirljósmóðir, segir að en sú uppástunga var felld. Ekkert lát á fjölda fæðinga á Landspítalanum og met slegið í janúar Stundum eins og á járnbrautastöð í heimsóknartímum Kristín Tómasdóttir, yfirljós- móðir, sagði að því hefði verið spáð í byijun janúar og 270 til Hótel ísland 280 konur myndu fæða böm á spítalanum þennan mánuð. Sá spádómur hefðu ræst því 275 kon- ur hefðu átt börn á fæðingardeild- inni og hefðu nokkrar þeirra átt tvíbura. Undir sömu sæng Þegar tvíburar fæðast á Landspítalanum fá þeir sérstakar tvíburavöggur eins og þessi systkini sem Þuríður Elísa Þorsteinsdóttir átti 29. janúar. Söngdagskrá Geirmundar FRUMSÝND verður á Hótel íslandi, laugardaginn 6. febr- úar, söng- skemmtun byggð á vin- sælum lög- um Geir- mundar Valtýsson- ar. Heitir skemmt- unin „í syngjandi Geirmundur Val- sveiflu". týsson Geirmundur hefur gefið út hljómplötur með lögum sínum sem fengið hafa góðar móttökur sem og hljómsveit hans. Einnig hefur hann sent frá sér fjölda laga sem komið hafa út á safn- plötum, í Eurovision og víðar. Söngvarar á söngskemmtun þessari verða ásamt Geirmundi þær Guðrún Gunnarsdóttir og Berglind Björk Jónasdóttir og Ari Jónsson. Hljóðfæraleikur verður í höndum hljómsveitar Geirmundar Valtýssonar en hana skipa þeir Eiríkur Hilmis- son á gítar, Sólmundur Friðriks- son á bassa, Kristján Baldvins- son á trommur ásamt þeim Magnúsi Kjartanssyni á hljóm- borð og blásurunum Ásgeiri Steingrímssyni og Einari Braga Bragasyni. ALDREI hafa fleiri konur átt börn á kvennadeild Landspítalans í janúarmánuði og í janúar síðastliðinum eða 275. I janúarmán- uði árið 1991 áttu 213 konur börn á spítalanum og sama mánuð árið eftir áttu 234 konur börn á spítalanum. Það ár varð fæðinga- met á spítalanum með 2913 fæðingar eða 113 fæðingum fleiri en þegar þær voru flestar árið 1988. Nýliðið ár var þó ekki metár í fjölda fæðinga á landsvísu. Færri koma í heimsókn á spítalann í nágrannalöndunum Kristín sagði að allt hefðu geng- ið vel þrátt fyrir tvo toppa í fjölda fæðinga fyrst og síðast í mánuðin- um. Að vísu sagði hún að oft hefði verið töluvert að gera og stundum hefði verið um að litast eins og á járnbrautastöð á sængurkvenna- göngunum í heimsóknartímum. Kristín, sem þekkir til á fæðing- ardeildum á Norðurlöndunum, í Þýskalandi í Skotlandi og Eng- landi, sagðist hvergi annars staðar hafa orðið vitni að því að jafn margir gestir kæmu til hverrar sængurkonu og á íslandi og oft á tíðum væri erfitt fyrir sængurkon- urnar að taka á móti öllum fjöldan- um því þær væru þreyttar eftir fæðinguna. Betra væri að aðeins kæmu nánustu ættingjar í heim- sókn á spítalann en aðrir biðu með að beija nýju manneskjuna augum þangað til komið væri af spítalan- um og einhveijar vikur liðnar frá fæðingunni. Fæðingum fjölgar í kreppu Þegar grennslast var fyrir ástæður þess að fæðingum hefði fjölgað svo mjög að undanförnu sagði Kristín að við því væri engin einhlít skýring. Aftur á móti sagði hún að lágdeyða í efnahagslífinu gæti haft einhver áhrif. „Áður þegar komið hefur upp kreppa og krepputal hefur fæðingum líka fjölgað," sagði hún. Hluti af þakinu á Gili fauk út í veður og vind HLUTI af þakinu á íbúðarhúsinu á bænum Gili í Svartárdal fauk út í veður og vind aðfararnótt þriðjudagsins. Að sögn Friðriks Björnssonar bónda á Gili gerðist þetta rétt fyrir mið- nættið og var heimilisfólkið ekki farið að sofa. „Það var viG laust suðvestan veður hér og gekk á með miklum hviðum. í einni þeirra fóru um 20 þakplötur af þakinu,“ segir Friðrik. Fjórir eru í heimili á Gili og amaði ekkert að fólkinu né urðu aðrar skemmdir á íbúðahúsinu. Friðrik segir að hann hafi reynt að fara út úr húsinu er þakið fauk en ekki hafi verið stætt á hlaðinu í rokinu. í gærdag var unnið að viðgerð á þakinu en Friðrik mun hafa fundið aftur 5 af þeim bárujárns- plötum sem fuku af. Um helgina fauk hluti af þaki fjárhússins á Gili. Þetta er stórt 350 kinda hús og segir Friðrik að rokið hafi fyrst splundrað stór- um glugga á vesturhlið hússins en síðan fauk hluti þaksins af. Búið er að gera við þessar skemmdir og eru fólk og fénaður á Gili nú varin fyrir veðri og vind- um.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.