Morgunblaðið - 03.02.1993, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1993
Sovétmenn
blekktu
bankana
VALENTÍN Pavlov, fyrrver-
andi forsætisráðherra Sovét-
ríkjanna, staðfesti í gær að
sovésk stjórnvöld hefðu með
skipulegum hætti blekkt vest-
ræna lánardrottna sína og talið
þeim trú um að gullforði Sovét-
manna væri margfalt meiri en
hann var í raun. Pavlov sagði
að sovéskum ráðherrum hefði
tekist að fá hagstæð lán með
því að telja vestrænum lánar-
drottnum trú um að þeir væru
að lána auðugu ríki og tækju
því litla áhættu. Hann sagði
að sovésk stjórnvöld hefðu að-
eins verið að „taka þátt í mark-
aðsleiknum" og kvaðst telja að
það hefði verið góð hugmynd
að leika þannig á Vesturlönd.
Havel forseti
VACLAV Havel sór í gær emb-
ættiseið sem fyrsti forseti
Tékkneska lýðveldisins. Vlad-
imir Meciar, forseti Slóvakíu,
var ekki viðstaddur athöfnina,
og skýrðu sumir embættis-
menn fjarveru hans með veik-
indum en aðrir sögðu hann
vera önnum kafinn vegna ann-
arra mikilvægra verkefna.
Helmut Kohl
Kohl gegn
ofbeldi
HELMUT Kohl, kanslari
Þýskalands, hét því í gær að
beijast gegn ofbeldi gegn út-
lendingum í Þýskalandi og var-
aði við því að hætta væri á
aukinni þjóðernishyggju og út-
lendingahatri í Vestur-Evrópu
ef menn gættu ekki að sér.
Skýrt var frá því í gær að að
36.300 innflytjendur hefðu sótt
um pólitískt hæli í Þýskalandi
í síðasta mánuði og er það 14%
fjöigun frá mánuðinum þar á
undan.
Heildsöluverð á undirfatnaði
frá CACHAREL og PLEYTEX.
Einnig snyrtivörurá
kynningarverði.
ÞOKKI
Faxafeni 9, sími 677599
Reuter
Óvenjuleg skurðaðgerð
Læknar í Los Angeles hafa framkvæmt óvenjulega aðgerð til að bjarga lífi 22 ára bandarískrar konu, sem þjáðist
af arfgengum sjúkdómi er lýsir sér í alvarlegri truflun á starfsemi lungna. Aðgerðin fólst í því að hluti af lung-
um foreldra hennar var græddur í konuna. Á myndinni kyssir faðirinn (t.v.) dóttur sína eftir aðgerðina og
móðirin fylgist með.
Undirskriftasöfnun gegn útlendingum í Austurríki
Haider bíður ósigur
Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÞÁTTTAKA í undirskriftasöfnun Frjálslynda flokksins í Austurríki
(FPÖ) gegn útlendingum og rétti þeirra í landinu var minni en Jörg
Haider, formaður flokksins, vonaðist til. 417.278 skrifuðu undir
áskorun flokksins, sem var í 12 liðum, til þjóðþingsins um að tak-
marka fjölda útlendinga og rétt þeirra. Andstæðingar undirskrifta-
söfnunarinnar fögnuðu sigri á mánudagskvöld.
FPÖ fékk tæp 780.000 atkvæði
í síðustu kosningum og andstæðing-
ar undirskriftasöfnunarinnar sögðu
hann verða að fá svo margar undir-
skriftir með áskoruninni til að geta
verið ánægður með árangur. Haider
bar sig þó vel í sjónvarpsviðtali eft-
ir að niðurstaðan lá fyrir. Hann
kenndi baráttu andstæðinganna,
hinum stjórnmálaflokkunum, ka-
þólsku kirkjunni og verkamannafé-
lögum, um takmarkaða þátttöku.
Hann hældi þeim sem skrifuðu und-
ir fyrir hugrekki og sagði að mun
fleiri hefðu gert það ef þrýstingur
andstæðinganna hefði ekki verið
svo mikill.
Almennir borgarar geta knúið
austurríska þjóðþingið til að ræða
ákveðið mál ef þeir safna 100.000
undirskriftum. Þjóðþingið verður
nú að fjalla um tillögur FPÖ um
aukið eftirlit með útlendingum, tak-
mörkun íjölda þeirra og skertan
rétt. Austurríska útlendingalög-
gjöfin var nýlega hert og andstæð-
ingar undirskriftasöfnunarinnar
telja hana nægilega stranga.
Major hitt-
ir Clinton
BRESKIR embættismenn
skýrðu í gær frá því að John
Major, forsætisráðherra Bret-
lands, og Bill Clinton, forseti
Bandarílq'anna, myndu hittast
á fundi í Washington þann 24.
þessa mánaðar. Á fundinum
ætla leiðtogarnir að ræða hina
erfiðu stöðu í GATT-viðræðun-
um, málefni fyrrverandi Júgó-
slavíu og írak.
Honecker vill
ekki heim
ERICH Honecker, fyrrverandi
leiðtogi Austur-Þýskalands,
sagðist í gær
ekki ætla að
fara að kröfu
þýsks dóm-
stóls og
mæta aftur
fyrir rétt í
Berlín svo
formlega
verði hægt að
slíta réttarhöldum í máli hans.
Ákveðið var að fella niður
kærur á hendur Honecker
vegna manndrápa og spillingar
sökum slæmrar heilsu komm-
únistaleiðtogans.
Koivisto til-
kynnir áform
sín í apríl
MAUNO Koivisto, forseti Finn-
lands, hefur sagt að hann til-
kynni „í
fyrsta lagi í
apríl“ hvort
hann gefi
kost á sér til
endurkjörs.
Jafnaðar-
mannaflokk-
ur Finnlands
áformar að
efna til forvals í maímánuði
og gert hefur verið ráð fyrir
að það Iiggi fyrir 13. apríl
hveijir verði í framboði.
Hultberg hlýtur Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs
Vægðarleysi í lifandi
frásögn smábæjarlífs
TILKYNNT var í Stokkhólmi í gær að danski rithöfundurinn
Peer Hultberg hlyti Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 1993
fyrir skáldsöguna Bærinn og heimurinn (Byen og Verden). Hult-
berg sem er fæddur 1935 hefur tvisvar áður komið til greina við
úthlutun verðlaunanna. Hann hóf rithöfundarferil sinn 1966 og
eftir hann hafa komið sex bækur. Hultberg sem er doktor í pólsku
og pólskum bókmenntum hefur kennt við Lundúnaháskóla, en
býr nú í Hamborg þar sem hann fæst eingöngu við skriftir.
í greinargerð dómnefndar segir
um verðlaunabókina:
„Bærinn og heimurinn er mis-
kunnarlaus skáldsaga þar sem
spennan á milli efnis og forms
byggir upp dýpt og hraða. Það
er bærinn Viborg sem segir frá.
í hundrað örsögum er sagt frá
íbúum sem tilheyra ólíkum þjóðfé-
lagshópum og lífi þeirra frá fæð-
ingu til dauða. í Bænum og heim-
inum er örlögum allra lýst af inn-
sæi, sumir mætast, aðrir skilja
og enn aðrir verða alltaf einir.“
Verðlaunin sem eru 200.000
danskar krónur. um tvær milljón-
ir ísl. kr., verða afhent á fundi
Norðurlandaráðs í Osló 2. mars
nk. Þá mun Dagný Kristjánsdóttir
lektor fyrir hönd dómnefndar-
manna tala um Peer Hultberg og
bækur hans. Dagný sagði í sam-
tali við Morgunblaðið eftir að nið-
urstaða nefndarinnar var ljós að
Bærinn og heimurinn væri „mikið
listaverk", og dómnefndarmenn
væru stoltir af henni.
Mörgum þótti Peer Hultberg
vera meðal líklegustu verðlauna-
hafa Norðurlandaráðs þegar lögð
var fram hin viðamikla skáldsaga
hans Requiem (1985). Skáldsagan
samanstendur af 537 stuttum
textum sem eru eins konar ein-
ræður (innra tal) og leiða hugann
að James Joyce og ýmsum öðrum
brautryðjendum í skáldsagna-
gerð. Præludier (1990) þótti líka
álitleg verðlaunabók, en hún fjall-
ar um bernsku Chopins.
Nú hefur Peer Hultberg fengið
bókmenntaverðlaunin fyrir skáld-
söguna Bærinn og heimurinn,
Byen og verden (1992), en undir-
titill hennar er Roman i hundrede
tekster.
Raunsæislegri frásagnarmáti
Bærinn og heimurinn vitnar um
raunsæislegri frásagnannáta en
áður hjá Peer Hultberg. Það er
bærinn Viborg, fæðingarstaður
höfundarins, sem segir frá. Text-
arnir hundrað eru sjálfstæðir, afar
hnitmiðaðir og lifa sínu lífí, en
tengjast smám saman. Tímabil
sagnanna nær frá aldamótum til
samtímans.
Þröngsýni og fordómar setja
svip sinn á bæjarlífið, jafnt meðal
hárra sem lágra. Bærinn, lands-
byggðin, speglar heiminn í þess-
ari skáldsögu sem Dagný Krist-
jánsdóttir kallar „stórbók í öllum
skilningi" í grein hér í blaðinu
(22. janúar sl). Dagný skrifar
ennfremur:
„Það er sagt frá hefðum og
venjum, söngstríðinu mikla,
handayfirlagningum og trúar-
bragðadeilum. Það er sagt frá
sorg og hamingju, ofbeldi, geð-
veiki, einmanaleika - bærinn sér
allt. En hann dæmir ekki. í bók-
inni myndasl stöðugt spenna á
milli hins formlega frásagnarhátt-
ar og innihaldsins sem oft er
skelfílegt."
Peer Hultberg
í vægðarleysi sínu á lýsingum
íbúanna, heimsádeilu sinni, er
höfundurinn oft kaldhæðinn og
sú kaldhæðni kemur víða fram í
tilsvörum. Stundum er sjálfsmorð
eina Ieiðin til að losna úr viðjum
smábæjarins þar sem lífið býður
ekki upp á annað en erfíðleika og
vandamál.
Ástin er þó ekki alveg brottræk
þótt sorgin sé fyrirferðarmeiri en
gleðin. Húmorinn, hin góðlátlega
glettni og lífsskilningur höfundar-
ins eru aldrei fjarri.
Eins og áður er Peer Hultberg
lofaður fyrir góða dönsku og
vandaðan stíl og dómnefndin gat
ekki látið hjá líða í greinargerð
sinni að tala um hvemig „spennan
á milli efnis og forms byggir upp
dýpt og hraða“.
Jóhann Hjálinarsson