Morgunblaðið - 03.02.1993, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 03.02.1993, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1993 21 BROTTFOR 11. FEBRUAR. TAKMARKAÐUR SÆTAFJOLDI. .I___■ TIL LONDON frá fimmtudegi til sunnudags Innifalið: Flug, gisting á White House hóteli, skoðunarferð, íslensk fararstjórn og akstur til og frá flugvöllum erlendis. (Flugvaliarskattur, kr. 1.200, er ekki innifalinn). 22.900.- Neðangreindir taka við pöntunum: Atlantik, Ferðabær, Ferðamiðstöð Austurlands, Ferðaskrifstofan Alís, Ferðaskrifstofa stúdenta, Guðmundur Jónasson hf., Land og Saga, Ratvís, Samvinnuferðir-Landsýn, Úrval-Útsýn, söluskrifstofur Flugleiða, Ferðaskrifstofa Reykjavíkur, Ferðaskrifstofa íslands og Ráðstefnur og fundir. vba Malaví Neita fréttum um pyntingar Reuter Stríðsheijur heilsast hálfri öld frá bardögunum um Stalíngrad Helmut Kohl, kanslari Þýskalands, og Borís Jelts- ín, forseti Rússlands, minntust þess á mánudag að 50 ár eru liðin frá því þýski herinn gafst upp við Stalíngrad eftir bardaga sem kostuðu mörg hundruð þúsund mannslíf. Leiðtogarnir sendu hvorum öðrum skeyti með loforðum um aukna samvinnu ríkjanna í framtíðinni. Fyrrverandi her- menn sem tóku þátt í bardögunum um Stalíngrad hittust í borginni, sem heitir núna Volgograd, og á myndinni rifja tveir þeirra, Þjóðveijinn Rudi Wunshmann (t.v.) og Rússinn Pavel Lavnev, upp atburðina fyrir 50 árum. Borís Jeltsín Rússlands- forseti ávarpaði hermenn við hátíðahöld í Volgograd og bar saman þau tímamót sem Rússar stæðu á nú og fyrir hálfri öld. Sagði hann þá beijast við skort og efnahagsörðugleika sem væru erfiðir viðfangs. Fyrst sigurinn í Stalíngrad hefði unnist væri einnig hægt að sigrast á þeim og verð- launin yrðu efnahagsleg endurreisn, frelsi og ný áhrif og virðing í samfélagi þjóðanna. Malaví. Frá Jóhönnu Ingvarsdóttur blaðamanni Morgunblaðsins. STJÓRNARANDSTAÐAN í Malaví hvetur til áframhaldandi þróunar- aðstoðar íslendinga og annarra þjóða við landið. Jafnframt neita fulltrúar hennar að pyntingum sé beitt í landinu. Þetta kom fram á fundi sem Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra, átti með stjórnarandstöðunni í Malaví. Arni Gunnarsson, stjórnarmaður í Þróunarsamvinnustofnun Islands, hefur hvatt utanríkisráðherra til þess að hætta við afhendingu tveggja skipa sem smíðuð eru á ís- landi, vegna mannréttindabrota stjórnvalda í Malaví. Jón Baldvin Hannibalsson átti fund með Harry Thompson, vara- formanni annars af tveimur stjórn- arandstöðuflokkum og fram- kvæmdarstjóra Lýðræðisbanda- lagsins, sem er samstarf stjórnar- andstöðuflokkanna. „Þetta var ákaflega fróðlegur fundur um stjórnarfarið í Malaví, sem mér var ekkert ókunnugt um og væntanlega ekki öðrum stjórnarmönnum í ÞSSÍ, þar á meðal Árna Gunnarssyni. Harry Thompson talaði í aug- ljósri væntingu þess að þjóðarat- kvæðagreiðslan 15. mars nk. um hvort menn vilji viðhalda eða binda enda á einsflokksstjórn Hastings Banda færi þannig að stjórnarand- staðan hefði sigur. Hann sagði það sameiginlega afstöðu stjórnarand- stöðu að hvetja öll ríki til þess að halda áfram aðstoð sinni. Áð sögn hans er eini fyrirvarinn sem gefin á þessari afstöðu að ráðið væri gegn beinum fjárframlögum til stjórnvalda í Malaví að óbreyttu." Jón Baldvin sagði að hann hefði spurt Harry Thompson hvort pynt- ingum væri beitt í Malaví. „Hann sagði nei, og bætti við að töluvert væri um handtökur á stjómarand- stöðufólki en stjómarandstaðan vissi ávallt af þeim. Lögfræðingar á þeirra snærum sjá til þess að málin eru tekin fyrir.“ Jón Baldvin innti eftir máli prestins Peter Ka- leso, en fram kom í fjölmiðlum í síðustu viku að hann sætti pynting- um í fangelsi í Malaví. „I tilviki prestsins sagði Harry Thompson að fullvíst væri að ekki hefði verið beitt pyntingum." Aðstoð við ógnarstjórn Jón Baldvin segir um það hvort við íslendingar eigum yfirhöfuð að aðstoða lönd þar sem stjórnarfari er ábótavant: „Malaví-verkefnið var ákveðið að fmmkvæði stjórnar Þró- unarsamvinnustofnunnar íslands þar sem Ámi Gunnarsson situr í stjórn. Verkefnið er til fimm ára, frá 1989-1994. Það veit hver ein- asti maður hvernig stjórnarfarið þar hefur verið undir stjórn Hastings Banda frá sjálfstæði. Ég segi um það einn hlut án þess að réttlæta það. Það var aldrei eins hryllilegt og ógnarstjóm Mengistus í Eþíópíu sem aftraði þó ekki t.d. Hjálpar- stofnun kirkjunnar, sem Árni Gunn- arsson átti hlut að, að halda uppi mannúðarstarfi þar.“ Greiðslukort með fríðindi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.