Morgunblaðið - 03.02.1993, Page 23

Morgunblaðið - 03.02.1993, Page 23
22 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1993 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið. Aðgerðir gegn at vinnuleysi Sin ömurlegasta afleiðing þeirr- ar efnahagskreppu, sem nú ír ríkjum hér á landi, er að atvinnuleysi virðist vera að festa sig í sessi. Síðasta virka dag des- embermánaðar ársins 1992 voru 7.000 manns á atvinnuleysisskrá og er það mesti fjöldi atvinnulausra síðan skráning atvinnuleysis hófst hér á landi með reglubundnum hætti. Það þarf ekki lengur að tína til dæmi af reynslu nágrannaþjóðanna til að sýna fram á hversu alvarleg- ur vandi atvinnuleysi er. Alls staðar í kringum okkur sjáum við þær hörmulegu afleiðingar sem atvinnu- missir hefur á einstaklinga, fjöl- skyldur og heilu byggðarlögin. Það er ekki ofsögum sagt að atvinnu- leysi er eitt alvarlegasta vandamál- ið sem við þessari þjóð blasir. Það verður að leita allra leiða til að draga úr þessum vanda og má þá ekki hika við að leita óhefðbundinna leiða. Reynir Hugason, formaður Landssamtaka atvinnulausra, ræðir þessi mál í grein í Morgunblaðinu í síðustu viku og segir þar m.a.: „Greiða mætti atvinnuleysisbætur beint til atvinnurekenda í stað laun- þega þegar unnt er að sýna fram á að skapa megi ný framtíðarstörf, sem annars yrðu ekki til og að at- vinnulausir yrðu ráðnir í störfin. Þetta er hugsað sem tímabundinn styrkur og bein innspýting fjár- magns til atvinnurekenda til þess að efla atvinnu í landinu, og kæmi að mestum notum í þeim greinum þar sem vaxtarvon væri og þar sem erfiðara er oft að fá ijármagn.“ Hvað er það eiginlega sem mælir gegn því að íjármagn sé notað beint til atvinnuskapandi verkefna, á veg- um sveitarfélaga eða einkaaðila, í stað þess að greiða út atvinnuleysis- bætur á hefðbundinn hátt? Sveitar- félögin hafa greitt um hálfan millj- arð í Atvinnuleysistryggingasjóð í því skyni að sjóðurinn fjármagni að hluta atvinnuskapandi átaks- verkefni á þeirra vegum sem svarar atvinnuleysisbótum á hvert stöðu- gildi sem skapast. Nokkur sveitar- félög hafa þegar nýtt sér þennan möguleika og umsóknir frá fleirum hafa verið lagðar fram. Atvinnuleysisvandinn verður hins vegar ekki leystur með skammtíma- aðgerðum einum saman. Markmiðið hlýtur að vera að tryggja hér fulla atvinnu, ekki til skamms tima held- ur til frambúðar. Átaksverkefni, sem hafa það að markmiði að skapa atvinnutækifæri handa atvinnu- lausum á krepputímum, geta þjónað mikilvægum tilgangi. Þau leysa hins vegar engan vanda til fram- búðar. Sá vandi sem nú er við að etja í íslensku atvinnulífí er að miklu leyti til kominn vegna samdráttar í fískveiðum. Ef fiskveiði fer að glæðast að nýju mun það að sjálf- sögðu leiða til hagvaxtar og aukinn- ar velsældar. Ekkert bendir hins vegar til að umtalsverð aukning helstu fiskveiðistofna sé á næsta leiti. Og jafnvel þó sú yrði raunin væri það engin töfralausn á vanda íslensks efnahagslífs. Það ástand sem nú er uppi í ís- lenskum efnahagsmálum sýnir best hversu varhugavert það er að treysta alfarið á eina atvinnugrein sem, eðli málsins samkvæmt, er háð sveiflum sem stjórnast af öðru en efnahagslegu umhverfi. Þegar sam- an fer alþjóðleg efnahagslægð og verulegur samdráttur fiskveiða stöndum við uppi berskjaldaðir. íslendingar hafa áratugum sam- an verið svo gæfusamir að búa við lífskjör sem jafnast á við það besta sem nokkurs staðar gerist í heimin- um. Það hlýtur að vera markmið okkar að tryggja að sú verði einnig raunin fyrir komandi kynslóðir. Slíkt gerist aftur á móti ekki sjálf- krafa. Við sjáum það alls staðar í kringum okkur að þær þjóðir sem best standa efnahagslega í dag eru þær þjóðir sem lagt hafa verulega vinnu af mörkum við að skilgreina sín framtíðarmarkmið og vinna síð- an markvisst og skipulega að því að framfylgja þeim. Langtímastefnumótun í efna- hags- og atvinnumálum hefur ekki verið til staðar á íslandi fram að þessu. í stað þess höfum við treyst á að fiskinn í sjónum myndi ekki þijóta og að orka fallvatnanna myndi einhvern veginn breytast í erlendan gjaldeyri og atvinnutæki- færi. Meðal aðila vinnumarkaðarins, jafnt fulltrúa launþega sem at- vinnurekenda, hefur að undanförnu gætt vaxandi áhuga á að ráðist verði í langtímastefnumótun fyrir atvinnulífið. Það er því fagnaðar- efni að Friðrik Sophusson fjármála- ráðherra boðaði á fundi hjá Versl- unarráðinu í síðustu viku að slík stefnumótun væri á dagskrá. Fjár- málaráðherra sagði á fundinum að of mikil áhersla hefði verið lögð á skyndilausnir í atvinnulífinu. Á und- anförnum árum hefði til að mynda tíu milljörðum verið eytt í „nýsköp- un“ en þeir væru nú að mestu leyti glatað fé þar sem verkefnin hefðu ekki skilað þeim árangri sem von- ast hafði verið til. Ráðherrann sagði að vel kæmi til greina að leita út fyrir landstein- ana eftir sérfræðiþekkingu á stefnumótun. Dæmi eru um að aðr- ar þjóðir, t.d. Danir, hafi gert slíkt með góðum árangri. „Það er ekki bara æskilegt og nauðsynlegt að vinna að langtímastefnumótun í atvinnulífinu. Það er stórhættulegt að gera það ekki. Við getum hvorki treyst á einfaldar „patent“lausnir né það að atvinnulífið lagist af sjálfu sér,“ er haft eftir Friðrik Sophussyni í Morgunblaðinu. Þetta eru forvitnileg ummæli og gætu boðað að ný vinnubrögð væru í uppsiglingu varðandi atvinnumála- stefnu á íslandi. Stefnumótun, hvort sem er til langs eða skamms tíma, er engin trygging fyrir hag- vexti. Það má hins vegar færa sterk rök fyrir því að hún sé forsenda þess að það ijármagn, sem varið er til „nýsköpunar", skili sér í raun- verulegum atvinnutækifærum og bættum lífskjörum. Stj órnsýsluendurskoðun Ríkisendurskoðunar Könnuð verði samein- ing Landgræðslunnar og Skógræktar ríkisins RÍKISENDURSKOÐUN telur rétt að kanna hvort hagkvæmt sé að sameina Landgræðslu og Skógrækt ríkisins. Nokkurt fé myndi spar- ast við sameiningu og nýting fjármuna yrði betri. Lagt er til að lögin um Landgræðslu rikisins verði endurskoðuð og að gerð verði úttekt á rekstri bifreiða og flugrekstur endurskoðaður. Þetta er meðal niðurstaðna í skýrslu Ríkisendurskoðunar um stjórnsýsluend- urskoðun hjá Landgræðslunni. í skýrslunni er bent á ýmis atriði sem Ríkisendurskoðun telur að betur mætti fara í rekstri Landgræðslu rík- isins. Þó er tekið fram að margt sé með ágætum í rekstrinum. Ekki tekist að stöðva eyðingu Tilgangur og markmið Land- græðslunnar er í fyrsta lagi að koma í veg fyrir eyðingu gróðurs og jarð- vegs og í öðru lagi að græða upp eydd og vangróðin lönd. í skýrslunni kemur fram það álit að þrátt fyrir marga áfangasigra hafi Landgræðsl- unni ekki tekist að ná fram því megin- markmiði sínu að koma í veg fyrir eyðingu gróðus og jarðvegs en betur hafi tekist með að græða upp. Getið er um þrjár orsakir fyrir þessu. I fyrsta lagi fjárskortur, í öðru lagi skortur á vísindalegri þekkingu á ýmsum þáttum gróðureyðingarinnar og í þriðja lagi að viðkvæmt land hafi ekki verið verndað nægjanlega fyrir ágangi búíjár. Bent er á að stefnubreyting hafi orðið í starfi Landgræðslunnar á síðustu árum þannig að meiri áherslu sé lögð á að koma í veg fyrir eyðingu gróðurs og jarðvegs en að græða upp eydd og vangróin lönd. Ríkisendurskoðun segir að skrán- ing á þörf landgræðsluaðgerða á hveijum stað ásamt gerð kostnaðará- ætlana hafi ekki farið fram með nægjanlega skipulegum hætti. Þá hafi árangur af starfi stofnunarinnar og kostnaður á hveijum stað ekki verið metinn. Ríkisendurskoðun legg- ur áherslu á að úr því verði bætt. Sérstök sljórn Talin er þörf á að endurskoða lög um Landgræðsluna. Ríkisendurskoð- un telur rétt að Alþingi skipti stofnun- inni þriggja manna stjórn og landbún- aðarráðherra formann. Þá skipi ráð- herra landgræðslustjóra til sex ára í senn og landgræðslustjóri ráði sína undirmenn. Saksóknara afhent gögnin um Eðvald EFRAIM Zuroff, forstöðumaður Simon Wiesenthal-stofnunarinnar, gekk í gær á fund Hallvarðs Einvarðssonar ríkissaksóknara og afhenti honum gögn frá sovézku öryggisiögreglunni KGB. Zuroff telur gögnin sanna að Eðvald Hinriksson, áður Evald Mikson, hafi gerzt sekur um stríðs- glæpi í heimsstyijöldinni síðari. „Zuroff kynnti mér gögn í sam- bandi við þetta mál og ræddi við mig um það nokkra stund," sagði Hallvarður Einvarðsson í samtali við Morgunblaðið. „Hér mun síðan fara fram rækileg athugun á þessum gögnum, en ég er á þessu augna- bliki ekki í neinni aðstöðu til að kveða á um það kann að leiða.“ Aðspurður hvort embætti hans hygðist afla sér frekari gagna um mál Eðvalds, sagðist Hallvarður ekki hafa meira um málið að segja. Ríkisendurskoðun telur rétt að könnun verði gerð á því hvort hag- kvæmt geti talist að sameina Land- græðslu og Skógrækt ríkisins. Nokk- urt fé myndi sparast við sameiningu, við yfirstjórn, fjármál og bókhald, starfsmannahald og kortagerð. Þá muni fé sparast í vélum og tækjum. Sameina megi störf landgræðslu- og skógarvarða. Enda þótt sameining mundi leiða til sparnaðar telur Ríkis- endurskoðun enn mikilvægar að nýt- ing á fjármagni verður betri í kjölfar sameiningar. Stjórn og forstjóri myndu væntanlega veija fé til þeirra verka sem þau teldu þrýnust þveiju sinni, burtséð frá því hvort þau teld- ust til skógræktar eða landgræðslu. Þannig tækju þeir ákvörðun sem kunnugastir væru þessum málaflokk- um og þjóðin mætti vænta bestu hugsanlegrar nýtingar á því fé sem varið er til þessara mála. Reykjavíkurskrifstofu lokað Lagt er til að starfi Landgræðsl- unnar verði skipt upp í sex svið: fjár- málasvið, almannatengsl, upp- græðslusvið, gróðurvemdar- og um- hverfissvið, fræræktarsvið og fyrir- hleðslusvið. Lagt er til að skriftofu Landgræðslunnar í Reykjavík verði lokað og sú starfsemi flutt í Gunnars- holt. Lögð er áhersla á að fjármálasvið stofnunarinnar verði eflt. Ráðinn verði fjármálastjóri og skilið milli starfs bókara og gjaldkera. Vakin er athygli á því að Land- græðslunni hafi tekist að halda sig nálægt ramma fjárheimilda á árunum 1990 og 1991 en árið 1989 hafi stofn- unin farið 7% yfir fjárveitingar. Þá er vakin athygli á því að framlög fyrirtækja og einstaklinga til land- græðslu hafi aukist mikið á undan- förnum árum sem sýni aukinn skiln- ing almennings á gildi landgræðslu enda hafi forráðamenn stofnunarinn- ar verið ötulir við kynningarstarf. Rekstrarkostnaður flugvéla Land- græðslunnar er talinn hár og nýting lítil. Ríkisendurskoðun telur rétt að flugrekstur og markmið þess rekstrar verði tekin til endurskoðunar. Þá er talið rétt að gera úttekt á bifreiðamál- um stofnunarinnar. * Kaup UA á Mecklenburger Hochseefischerei Fonnlegíir samninga- viðræður að hefjast FORMLEGAR samningaviðræður um kaup Útgerðarféiags Akureyringa á Meclenburger Hocheefischerei, næststærsta útgerðarfyrirtæki Þýzka- lands, munu hefjast á næstu dögum. Viðræðurnar verða á grundvelli viljayfirlýsingar um kaup ÚA á 60% hlut í fyrirtækinu, sem undirrituð var í desember. Gunnar Ragnars, forstjóri ÚÁ, segir að eitt af skilyrðum þess að kaupin nái fram að ganga, sé að sjávarútvegsráðuneytið veiti skipum þýzka fyrirtækisins leyfi til að landa afla sínum og athafna sig á annan hátt hér á landi. Slíkt leyfi hefur enn ekki fengizt. Stefnt er að því að Ijúka samninga- viðræðunum fyrir miðjan marz, þann- ig að ÚA geti tekið við rekstri Meck- lenburger Hochseefischerei 1. apríl eins og að er stefnt. Gunnar Ragnars segir að fulltrúar ÚA hafi rætt við sjávarútvegsráðuneytið og sent því formlegt erindi, þar sem farið er fram á löndunar- og athafnaleyfi fyrir þýzku skipin. „Þetta er eitt af mjög mikilvægum atriðum, sem lögð eru til grundvallar í öllum áætlunum okk- ar og niðurstaða þarf því að fást, ekki síðar en þegar að því kemur að ganga endanlega frá samningi í marz,“ sagði Gunnar. Karfinn talinn sameiginlegur stofn Eins og skýrt var frá í Morgunblað- inu í desember, segir í lögum um land anir erlendra skipa í ísfenzkum h öfn um að ekki megi landa afflaiúrsantjig inlegum fiskistofnum, _sem ganga unfi lögsögu fleiri ríkja en Islands og ekki hefur verið samið um skjptjngu á. Togarar Mecklenburger Hocljseþfisc- herei, hafa fiskað á Grænlandsmiðum og Reykjaneshrygg, aðallega karfa. Heimildir Morgunbiaðsins herma að það vefjist fyrir ráðuneytismönnum að veita leyfi fyrir löndunum skipanna hér vegna þess að karfinn við Græn- land teljist sameiginlegur stofn, sem ekki hefur verið samið um. Ákveðnar vísbendingar eru þó um að karfinn við Austur-Grænland sé sérstakur stofn. í lögunum um landanir erlendra skipa eru undanþáguákvæði, sem heimila sjávarútvegsráðherra að leyfa landanir skipa, sem veiða úr óskiptum sameiginlegum stofnum og er for- dæmi fyrir slíkum undanþágum. ÚA-menn munu leggja áherzlu á að ráðherra beiti þessu undanþáguá- kvæði nú og leggja áherzlu á þann hagnað, sem íslendingar myndu hafa af viðskiptum við þýzku skipin. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1993 23 Magnús Jónsson nýr veðurstofustjóri Hlakka til aðtakastá við starfið MAGNÚS Jónsson veðurfræðing- ur hefur verið skipaður veður- stofusljóri. Hann tekur við stöð- unni 1. janúar 1993 af Páli Berg- þórssyni en mun á næstunni taka þátt i vinnu við stefnumótun á Veðurstofunni. Það var umhverf- isráðherra sem skipaði Magnús í stöðuna. „Ég hlakka til þess að takast á við þau verkefni sem eru á Veður- stofunni," sagði Magnús Jónsson í viðtali við Morgunblaðið. „Núna er framundan úttekt á allri starfsem- inni. Ég var fyrst og fremst skipaður svona snemma til þess að taka þátt í þeirri úttekt og móta hana að ein- hveiju leyti ásamt öðrum starfs- mönnum Veðurstofunnar. Ég hef vissar hugmyndir um þessa stefnu- mótun en tel engan veginn tímabært að ræða þær nú. Þær munu koma í - ljós smám saman. Ég reikna með að byija fljótlega en dreg í efa að það verði strax á morgun.“ Borað í báðar áttir Skagfirðingur Fyrsta borunin í átt til Súgandafjarðar. Framvegis verður jarðgangagerðinni þannig háttað að borað verður til skiptis í báðar áttir. Á meðan hluti ganga- mannanna vinnur við að sprengja og moka út úr öðrum göngunum vinnur annar hópur við að bora í hinum. Merkum áfanga er náð í jarðgangagerðinni á Vestfjörðum Borinn nú kom- inn að gatnamót- um í miðju fjalli Magnús er 44 ára SkagflrðinguiV- fæddur og uppalinn á Sauðarkróki. Hann var stúdent frá Menntaskólan- um á Akureyri 1968 og lagði síðan stund á veðurfræði í Uppsölum og Stokkhólmi. Magnús hefur starfað hjá Veðurstofunni frá því að hann lauk námi árið 1979. Hann kenno. stærðfræði og veðurfræði við Menntaskólann á Akureyri á árunum 1982-1985, en var áfram í hluta- starfi hjá Veðurstofunni. Magnús er kvæntur Karítas Sigurðardóttur, hjúkrunarfræðingi, og eiga þau þijú börn. Þeip grafa fypir vestan Gangur verksins frá A gatnamótunum Yfirmenn jarðgangaframkvæmdanna. Björn Harðarson staðarverkfræðingur Vegagerðar ríkisins lengst til hægri ásamt Gísla Eiríkssyni umdæmisverk- fræðingi Vegagerðarinnar á Vestfjörðum og Gísla H. Guðmundssyni staðar- stjóra Vesturís á gangamótunum undir Botnsheiði. ísafirði. JARÐBORINN í Vestfjarðagöngum er þessa dagana að bora út ganga- mótin undir Botnsheiði þar sem leiðir kvíslast til Súgandafjarðar og Önundarfjarðar. Skömmu eftir að kemur inn í kvíslarnar mjókka bæði göngin og verða einbreið með útskotum þar til út úr vesturfjöll- unum kemur. Verkið hefur gengið samkvæmt áætlun og ekkert óvænt komið upp á. Vatn er svipað og búist var við, breytilegt eftir berglögum. Þó hittist svo á að óvenjumikið vatn kemur niður þarna á vegamótunum. Vatnið hafði hitnað eftir því sem innar dró í fjallið þar til það náði 15 gráða hita, en síðan snöggkólnaði það og er nú aðeins um 6 stig. Hitnar aftur Björn Harðarson staðarverkfræð- ingur Vegagerðarinnar átti þó von á að vatnið myndi hitna aftur og jafnvel fara yfir 15 stig í berggangi vestar í fjallinu, sem hefur hugsanleg tengsl við varmann sem virkjaður er í Súgandafirði. Líklega eru menn nú komnir dýpra í iður jarðar en áður hefur gerst á Islandi, rúma 2.000 metra lárétt og 200 metra lóðrétt. Meginhluti bergsins er um 12 milljóna ára gamalt blágrýti með yngri lóðréttum berggöngum og lá réttum jarðvegslögum líkt og hið metraþykka eldrauða sandsteinslag þar sem nú er verið að bora. - Úlfar Magnús Jónsson Utanríkisráðherra afhenti nýsmíði við athöfn í Malaví Dr. Sanibo veittí viðtöku skipinu NDUNDIMA Apaflóa, Malaví. Frá Jóhönnu Ingvarsdóttur, blaðamanni Morgunblaðsins. JÓN Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra aflienti stjórnvöldum í Malavi rannsóknarskip til afnota við hátíðlega athöfn í Monkey Bay í gær. Dr. E.Y. Sambo, auðlindaráðherra Malaví, veitti skipinu, sem á máli Malavímanna nefnist NDUNDUMA, viðtöku. Þróunarsamvinnustofnun íslands stendur undir um 65% af kostnaði við byggingu skipsins. Annað skip er í smíðum á Islandi. Það verður afhent í júní en Norræni þróunar- sjóðurinn lánar stjórnvöldum í Malaví fyrir smíði þess. Afhendingin átti að fara fram í gær, en henni varð að fresta vegna þess að forseti landsins, Hastings Banda, ákvað að flytja ræðu. Lögum samkvæmt mega engar opinberar athafnir vera í Malaví þann dag sem forsetinn ávarpar þjóð sína. Veiðiþol rannsakað „Skipinu er fyrst og fremst ætlað að rannsaka nýtanlega fiskistofna í Malawí vatni, sem hefur að geyma að minnsta kosti 500 þekktar fisk- tegundir,“ segir Björn Dagbjarts- son, framkvæmdastjóri Þróunar- samvinnustofnunar íslands. Heildarkostnaður við rann- sóknarskipið nemur um 65 milljón- um króna. Rannsóknarskipið var flutt í pört- um sjóleiðina til Tansaníu. Þaðan var það flutt landleiðina til Apaflóa í Malaví, um 2000 km. Þar hafa menn unnið hörðum höndum undan- farnar vikur við samsetningu skips- ins undir stjórn Hannesar Bjarna- sonar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.