Morgunblaðið - 03.02.1993, Page 43
43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1993
KNATTSPYRNA
Marco van
BASTEN,
AC Milan
heims
KNATTSPYRNUKAPPINIM Marcovan Basten
hefur bætt enn einni skrautfjöðrinni í hatt
sinn. Hann var útnefndur besti knattspyrnu-
maður heims 1992 á mánudagskvöldið. Sjö-
tíu landsliðsþjálfarar tóku þátt íkjörinu og
er þetta í annað sinn sem útnef ningin fer
fram. Lothar Mattháus var útnefndur besti
knattspyrnumaður heims 1990.
■V
Átta leikmenn
féngu atkvæði
Hér er listinn yfir þá leikmenn sem fengu
atkvæði hjá landsliðsþjálfurunum sjötíu,
sem tóku þátt i kjörinu. Á listanum eru
þrír Hollendingar og einnig þrír leikmenn
AC Milan.
1. Marco van Basten (AC Milan).151
2. Hristo Stoiehkov (Barcelona).... 88
3. Thomas Hássler (AS Roma) ....... 61
4. Jean-Pierre Papin (AC Milan).... 46
5. Brian Laudrup (Fiorentina) ..... 44
5. Peter Schmeichel (Man. Utd.).... 44
6. Dennis Bergkamp (Ajax).......... 29
7. Frank Rijkaard (AC Milan)....... 23
„Hollendingurinn fljúgandi"
Marco van Basten
Fæddur 31. október 1964 i Utrecht.
Þeir bestu byvja
gegn íslandi
Marco van Basten, besti knattspyrnumaður heims
og Evrópu, lék sinn fyrsta landsleik fyrir Hol-
landi gegn íslandi 7. september 1983 í Groningen í
Hollandi, þar sem Hollendingar unnu, 3:0. Van Bast-
en er ekki eini knattspymumaður Evrópu sem byijar
landsleikjaferil sinn gegn Islendingum. Allan Simons-
en, sem var knattspymumaður Evrópu 1977, þá sem
leikmaður með Borassia Mönchengladbach, lék sinn
fyrsta landsleik fyrir Danmörku gegn íslandi á Laug-
ardalsvellinum 3. júlí 1972. Skoraði þá tvö mörk þeg-
ar Danir unnu 5:2.
ítalskur meistari: 1988, 1992.
Meistari meistaranna: 1989.
Heimsmeistari félagsliða: 1989.
Knattspyrnumaður Evrópu: 1988, 1989, 1992.
Knattspyrnumaður heims: 1992.
■Hefur skorað 89 mörk í 143 leikjum fyrir AC Milan.
HOLLAND 1983-
Lék sinn fyrsta landsleik gegn Íslandi 7. september 1983 í
Groningen.
Evrópumeistari 1988 og var markahæstur með 6 mörk.
■58 landsleikir - 24 mörk.
AJAX 1981-1987
Hollenskur meistari: 1982, 1983, 1985.
Bikarmeistari: 1983, 1986, 1987.
Evrópumeistari bikarhafa: 1987.
Markakóngur Evrópu: 1986 (37 mörk í 26 leikjum).
■Skoraði 128 mörk í 129 leikjum fyrir Ajax.
ACMILAN 1987-
Marco van Basten
Besti
leik-
maður
Van Basten, sem er 29 ára leik-
maður með AC Milan, var fyrir
stuttu útnefndur knattspyrnumaður
Evrópu 1992, en hann var einnig
krýndur nafnbótinni 1988 og 1989.
„Van Basten er besti sóknarleikmað-
ur heims - skilningur hans á leiknum
er mikill og þá er hann frábær
markaskorari," sagði Johan Cruyff,
þjálfari Barcelona. Van Basten hefur
unnið til allra þeirra titla og nafn-
bóta sem knattspyrnumaður getur
unnið, nema að verða heimsmeistari.
„Það yrði stórkostlegt að verða
heimsmeistari með Hollandi 1994 í
Bandaríkjunum. Englendingar eru
aðalkeppinautar okkar um að komast
þangað. Ég hef trú á að við náum
að tryggja okkur farseðilinn til
Bandaríkjanna. Ef það tekst verður
Johan Cruyff þjálfari okkar í úrslita-
keppninni. Þá myndi draumur minn
rætast. Þegar ég var ungur var hann
dýrlingur hjá mér og síðan hef ég
kynnst honum sem leikmanni og ein-
um besta þjálfara heims. Hann minn
besti félagi í knattspymunni og það
yrði stórkostlegt að verða heims-
meistari undir hans stjórn," sagði
Van Basten.
„Það er mikill heiður fyrir mig að
hljóta þessa útnefningu,“ sagði Van
Basten, sem hefur verið sex ár sem
leikmaður hjá AC Milan. „Ég reikna
með að ljúka knattspyrnuferli mínum
á Italíu. Á næstu dögum mun ég
skrifa undir nýjan þriggja ára samn-
ing.“ Talið er að hann fái 114 millj.
ísl. kr. á ári í laun frá félaginu, en
þess má geta að hann var keyptur
til AC Milan á 142,5 millj. 1987.
Van Basten hefur ekki leikið með
AC Milan í mánuð vegna meiðsla á
ökkla. Hann reiknar með að geta
farið að æfa á fullum krafti eftir
tvær til fjórar vikur.
SPJÓTKAST
Einar fékk sitfur
á síðasta sumarmótinu á Nýja Sjálandi
Einar Vilhjálmsson, spjótkastari,
vann til silfurverðlauna á Opna
ný-sjálenska meistaramótinu sem
fram fór sl. laugardag. Einar kastaði
lengst 74 metra, en hann sagði að
vindur hefði verið frekar óhagstæð-
ur.
Einar kom heim í fyrrakvöld eftir
langt og strangt ferðalag frá Nýja-
Sjálandi. Hann var samtals 27
klukkustundir á flugi, 13 tíma frá
N-Sjálandi til Los Angeles, 11 tíma
frá Los Angeles til London og síðan
þijá tíma frá London til Keflavíkur.
Ferðalagið í heild tók um 50 klukku-
stundir.
„Þetta var skemmtileg ferð og
þess virði að komast út. Ég náði fimm
kastæfingum fyrir mótið við ágætar
aðstæður enda hásumar þarna núna.
Það er ekkert ósvipað veðurfar þar
og er hér á íslandi á sumrin," sagði
Einar.
Hann sagði að þegar mótið fór
fram á laugardaginn hefði verið mik-
ill vindur frá hægri. „Ég átti í mikl-
um erfiðleikum með útkastshornið
og það var erfítt að halda spjótinu
innan kastgeirans. Ég er engu að
síður ánægður með silfrið miðað við
aðstæður," sagði Einar. Sigurvegari
var heimamaðurinn Gevin Lovgrove
með 84,50 metra, en átta keppendur
tóku þátt í keppninni.
Einar Vllhálmsson.
■ PATREKUR Jóhannesson
fylgdist með leik Fram og Stjörn-*^
unnar af á sunnudagskvöldið vara-
mannabekknum. Hann sneri sig á
ökkla í leik með landsliðinu í Noregi
og var ekki orðinn góður. Reiknað
er með að Patrekur geti leikið með
fegn Víkingi í kvöld.
I MAGNUS Sigurðsson lék hins
vegar meiddur á olnboga og háði það
honum töluvert, enda gerði hann
ekki nema eitt mark fyrir Sljörnuna
á móti Fram.
■ REYNIR Reynisson, markvörð-
ur Víkings, er tognaður á hné og
óvíst hvort að hann leiki með Víking-
um gegn Stjörnunni.
■ VÍKINGAR tefldu fram þremur
markvörðum í leik gegn FH á dög-
unum, þannig að þeir era ekki á**^
flæðiskeri staddir i sambandi við
markverði.
■ KA-MENN frá Akureyri fara í
æfingabúðir til Skotlands um pásk-
ana, til að undirbúa sig fyrir knatt-
spymuvertíðina. Það verða leikmenn
meistaraflokks og 2. flokks sem fara
utan.
HANDKNATTLEIKUR
Héðinn Gilsson
gerði níu mörk
Héðinn Gilsson, sem komst ekki með íslenska
landsliðinu i handknattleik á alþjóðlega mót-
ið í Noregi fyrir tæpum tveimur vikum vegna
meiðsla, lagðist siðan veikur í rúmið og lá alla
síðustu viku. Hann reis upp um helgina og tryggði
Dusseldorf, 20:20, jafntefli á útivelli gegn Milberts-
hofen, gerði níu mörk og þar af þrjú úr vítaskotum.
Héftinn G.
Per Carlen meiddur
Per Carlen, línumaðurinn frábæri í heimsmeistaraliði Svía, meiddist
um síðustu helgi og vafasamt er talið hvort hann geti leikið í HM
í Svíþjóð í mars, skv. fréttum sænskra blaða. í leik með Ystad gegn Drott
! sænsku deildinni á dögunum tognaði liðband á fæti.
Ljóst er að hann verður ekki með í vináttuleikjum gegn
Dönum í næstu viku, og Ijóst að hann æfir lítið eða jafn-
vel ekkert fyrir HM, sem hefst 9. mars. Fyrsti leikur HM
verður viðureign íslands og Svíþjóðar í Gautaborg.
Frá Sveíni
Agnarssyni
í Svíþjóð