Morgunblaðið - 03.02.1993, Side 44

Morgunblaðið - 03.02.1993, Side 44
Gæfan fylgi þér í umferðinni ALMENNAR trgmtiMaMli Framtíðar- öryggi í fjármálum KAUPÞING HF Löggi/t veribrífafyrirtaiki MORGVNBLADID, ADALSTRÆTI 6, 101 REYKJA VÍK SÍMl 691100, SlMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1565 / AKVREYRl: HAFNARSTRÆTl 85 MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRUAR 1993 VERÐ I LAUSASOLU 110 KR. Af sjálfsdáðum til hafnar Morgunblaðið/RAX Akranestogarinn Sturlaugur H. Böðvarsson komst hjálparlaust til hafnar í Ólafsvík um miðjan dag í gær eftir að leki komst að skipinu undan Öndverðamesi. Dælur skipsins höfðu undan svo lítill sjór safnaðist fyrir í því. Myndin var tekin þegar Sturlaugur var bundinn við bryggju í hríðarkófinu í gær. Leki kom að Sturlaugi H. Böðvarssyni við Snæfellsnes Óþægileg1 líð- 'an að vita af leka um borð LEKI KOM að skuttogaranum Sturlaugi H. Böðvarssyni frá Akra- nesi þegar hann var staddur undan Óndverðarnesi á Snæfells- nesi um klukkan 13 í gærdag. Skipstjórinn bað um aðstoð varð- skips en skipverjar sáu fljótlega að þeir réðu við lekann með dælum skipsins og sigldu til hafnar í Olafsvík. Skipið fer í fylgd varðskips til Reykjavíkur þegar veður leyfir og verður tekið þar upp i slipp. Sturlaugur tók niðri á grynning- um við Ondverðames snemma á mánudagsmorgun þegar skipið leitaði þar vars undan veðri. Rifa við bógskrúfu Skipið sigldi til hafnar í Ólafsvík þar sem botn skipsins var kannað- ur og sást beygla en ekki var talið að botninn hefði opnast. Þegar skipið fór út aftur í gærdag og var komið út fyrir nesið fór skyndilega að leka inn í framskipið. Þá var suðvestan átta vindstig og þungur gjór. Eiríkur Jónsson skipstjóri sagði að svo virtist sem opnast hefði rifa við bógskrúfuna að fram- an. Taldi hann líklegast að plata sem beyglaðist daginn áður hafí sprungið þegar skipið fór út aftur. Sjór komst í íbúðir skipverja en Eiríkur sagði að lekinn væri á litlu svæði og taldi hann að tjón væri ekki mikið. Leitað var eftir aðstoð varðskips sem statt var sunnarlega í Faxa- flóa. Skipverjar á Sturlaugi sáu hins vegar fljótlega að þeir myndu ráða við lekann með dælum skips- ins og héldu inn til Ólafsvíkur. Eiríkur sagði að enginn hætta hefði verið á ferðum en það væri óneitanlega óþægileg líðan að vita af leka í skipinu. Hann sagði að fyrst hefði safnast fyrir sjór en dælur skipsins fljótlega haft und- an. Metra löng rifa Þegar skipið kom til Ólafsvíkur fékk útgerðin hjálp slökkviliðsins við að þurrka skipið. Varðskipið kom til Ólafsvíkur í gærkvöldi og fóru tveir kafarar úr áhöfn þess að kanna skemmdirnar. Fundu þeir metra langa rifu við kjölinn, framarlega. Reynt verður að sigla togaran- um til Reykjavíkur í dag, þar sem hann verður tekinn í slipp. Morgunblaðið/Alfons Finnsson Dælt úr framskipinu Slökkviliðið í Ólafsvík var fengið til að dæla sjó úr Sturlaugi þegar hann kom til hafnar í gær. Sjór hafði meðal annars komist í íbúðir skipvetja í framskipinu. Hólmarar í bikarúrslitin í körfu Um þriðjungiir íbúa á leikinn MIKILL áhugí er í Stykkishólmi og nágrenni á bikarúrslitaleik Snæfells og Keflavíkur í körfuknattleik karla, sem fer fram í Laugardalshöll á laugardag. Forsala miða og sætaferða verð- ur í dag og á morgun, en lausleg könnun heimamanna gerir ráð fyrir að um 400 manns fylgi liðinu suð- ur. í Stykkishólmi búa liðlega 1.200 manns. Þetta samsvarar því að 35 þúsund manns fylgdu Reykjavíkur- liði á úrslitaleik. Snæfell leikur til úrslita í fyrsta sinn og reyndar hefur lið utan Stór- Reykjavíkursvæðisins ekki náð þeim áfanga fyrr. Viðbúnaður er því mikill í Stykkishólmi og m.a. hefur sérstakt fréttabréf verið borið á hvert heimili á staðnum, þar sem vakin er athygli á leiknum, greint frá sögu körfuknattleiksins í Stykk- ishólmi, undirbúningi stuðnings- manna fyrir úrslitaleikinn og dag- skrá fyrir og eftir leik. Annasamur janúar á Landspítala Aldrei verið jafn margar fæðingar ALDREI hafa jafn margar konur alið börn á Landspítalanum í janúarmánuði og í síðastliðnum mánuði. Þá áttu 275 konur böm á spítalanum miðað við 234 í fyrra. Árið 1992 var metár í fæðingum á spítalanum með 2.913 fæðingar eða 113 fleiri en þegar þær vom flestar árið 1988. Þrátt fyrir að tveir háir toppar í heimsóknartímunum og æski- yrði í fjölda fæðinga fyrst og síðast í janúar gekk allt vel að sögn Kristínar Tómasdóttur yfír- ljósmóður. Kristín bendir hins vegar á að oft hafí verið þröng á þingi legt sé að aðrir en nánir fjöl- skyldumeðlimir eða vinir bíði eitthvað með að koma í heim- sókn. Sjá ennfremur bls. 19. Samvinnuferðir-Landsýn o g Atlanta Samið um leiguflug fyrir 250 milljónir FERÐASKRIFSTOFAN Samvinnuferðir-Landsýn hf. skrifaði í gær undir samning við Atlanta hf. um allt leiguflug ferðaskrifstof- unnar á þessu ári. Aðallega er um að ræða flug til sólarlanda. Samningsupphæðin er um 250 milljónir króna. Samið var um 17.000 sæti í leigu- fluginu. Samvinnuferðir reikna með hækkun á verði sólarlandaferða vegna óhagstæðrar gengisþróunar. Flugfélagið Atlanta hf. hefur ekki flogið áður reglulega fyrir ís- lenskt fyrirtæki. Félagið mun einnig fljúga leiguflug á eigin vegum frá Austurríki og Þýskalandi, en Atl- antsflug sá áður um það. Atlanta annast leiguflugið með Boeing 737- flugvél sem félagið hefur nýlega fest kaup á. Vélin er með nýjum innréttingum og tekur 130 manns í sæti. Sjá nánar á bls. 18. Borgin sækir um styrk vegna tilraunaverkefna 52 fá starf í skólum REYKJAVIKURBORG hefur sótt um styrk úr Atvinnuleysistryggingasjóði til að ráða 52 starfs- menn til fjögurra mánaða í tilraunaverkefni í grunnskólum borgarinnar. Gert er ráð fyrir að fólki, sem nú er á atvinnuleysisskrá, verði boðin vinna. Annars vegar verða ráðnir 26 starfsmenn við umferðaröryggisgæzlu og hins vegar 26 manns vegna næringarátaks í skólunum. Reykjavíkurborg gerir ráð fyrir að ráða 26 manns, einn við hvem grunnskóla, til að sjá um gangbrautar- vörzlu og gæta umferðaröryggis. Engar sérkröfur eru gerðar um menntun og starfsmennimir ráðnir á Dags- brúnartaxta. Verði reynslan góð, kann svo að fara að starfsmennirnir verði ráðnir til frambúðar. Hugað að skólanesti Einnig eru 26 starfsmenn ráðnir tímabundið til næringarátaks í grunnskólunum. Reykjavíkurborg hyggst kanna hvort hægt sé að bæta neyzluvenjur skólabama. „Starfíð felst í ýmsum þáttum er tengjast neyzlu skólanestis, bæði þess sem komið er með að heiman og þess sem framreitt er í skólanum," segir í greinargerð skólaskrifstofu Reykjavíkur með umsókn borgarinnar. Starfsfólkið verður ráðið á taxta Fram- sóknar og ekki gerðar neinar kröfur um menntun. Reynist þetta vel, kann það að verða fest í sessi. Verkefnin tvö munu kosta á 8. milljón króna hvort, alls 15,5 milljónir króna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.